Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
35
Iþróttir
Amór Guðjohnsen, knattspymumaður hjá Anderlecht, í DV-viðtali:
Skiptir öllu að vinna
sigur í bikarkeppninni
- einhvem tímann á feiiinum verður að líta á peningalegu hliðina, segir Amór Guðjohnsen
ii
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
I annaö skipti á sínum ferli stendur Arnór Guöjohnsen frammi fyrir þvi aö leika á Heyselleikvanginum
í bikarúrslitum belgíska bikarsins. í fyrra skipti var Arnór ungur leikmaöur Lokeren og mátti hann byrja
leikinn á varamannabekknum. Nú er hann eitt af stóru nöfhunum hjá Anderlecht og er hreinlega ætiast til
að þeir vinni Standard Liege sem hefur átt erfitt uppdráttar í vetur. Blöö hér í Belgiu segja aö kraftaverk
verði að gerast ef leikmenn Standard hampa bikarnum i leikslok en viö vitum hvað geröist í enska bikar-
úrslitaleiknum á Wembley þai- sem dvergurinn lagði risann. Allt getur gerst í knattspymunni. í tilefni af
því tókura við Amór tali og spurðum fyrst hvort hann væri ánægður meö tímabiliö í ár.
„Hvorki ég né liðið í heild geta
glaöst yfir leiktímabilinu. Eftir hið
góða tímabil i fyrra er það ekki
hægt. í byrjun tímabilsins var ég
meiddur og missti fyrir bragðið af
mesta undirbúningnum en einmitt
það tímabil er rosalega mikilvægt.
Og það gerði það að verkum að ég
var alls ekki í formi í byijun tíma-
bilsins. Það tók langan tíma að ná
mér upp og raunar er erfitt að þurfa
að leika og finna að maöur er ekki
í formi.“
„Var látinn leika allar stöður
á vellinum“
„Blöðin skrifa og maður er
dæmdur eftir því sem maður sýnir
í leikjum. í raun var mér sama um
dagblöðin en ég vissi að ég yrði að
koma mér í form og lagði ég mig
allan fram um það. Ekki bætti úr
að í byrjun var ég látinn leika allar
stöður á vellinum. Það má kannski
segja að ég hafi veriö meira í bolt-
anum nú en í fyrra en þá var ég
meira í tækifærunum. Hins vegar
er ég búinn að vera nokkuð ánægð-
ur síðan þessi nýi þjálfari kom eða
frá því eftir áramót og má segja að
á þeim tíma sé ég búinn aö leika
vel. Svo er það auövitað slæmt að
þegar liðiö leikur illa þá er það
ekki svo áberandi þótt einn leik-
maöur leiki vel.
„Skiptir öllu máli að vinna
sigur í bikarkeppninni“
- Hversu miklu máli skiptir það
Anderlecht að vinna bikarinn í ár?
„Það má segja að það skipti öllu
máli fyrir okkur. Við getum bjarg-
að tímabilinu og þrátt fyrir slæmt
tímabil sýnir það best hvernig
knattspyrnan er því þú mátt aldrei
hengja haus því þaö er í raun ekki
fyrr en í enda tímabilsins sem
verðalaunaafhendingar eru. Það
má því segja að við séum búnir aö
leika vel ef við vinnum bikarinn
en ef hann tapast verður sagt að
við höfum átt slæmt tímabil. Það
er búið að lofa okkur stórum og
góðum aukagreiðslum því And-
erlecht verður að vinna eitthvað á
tímabilinu og höfum við verið
beðnir að segja ekki hve upphæðin
er stór.“
„Leikmenn gerðu sig seka
um algjör byrjendamistök"
- Nú tók töframaðurinn Goethals
við hðinu í febrúar og á tveimur til
þremur vikum voru leikmenn
farnir að trúa á getu sína og hðiö
lék vel. Hverjar eru sterkustu hlið-
ar hans sem þjálfara?
„Hann tók viö liöinu þegar allt
var komið í hnút og raunar tók
hann við okkur aht of seint. Leik-
menn voru búnir að leika undir
álagi með þessum þjálfara sem kom
hér í upphafi leiktímabilsins og
vorum við orðnir hræddir að leika
undir hans stjórn. Leikmenn gerðu
sig seka um algjörar byrjendavit-
leysur sem eiga ekki geta gerst en
vegna taugaspennu fór sem fór. í
raun var nokkuð sama hvaða þjálf-
ari kæmi, það bjóst enginn við
þessum hröðu breytingum á þess-
um stutta tíma. Goethals hefur
mjög sterk leikkerfi og hann getur
lýst liöum með einni setningu, það
sama og aðrir eru að rembast við
í hálftíma ræöu.“
„Nú leika allir án streitu og mór-
allinn hefur batnað mikið og ég
held í raun að það sé ekki hægt að
gera betur því við erum ekki með
topplið á evrópskan mælikvarða í
dag.“
„í raun þyrfti að kaupa tvo
sterka miðjumenn“
- Hvað þarf Anderlecht að gera
til að dragast aftur úr topphðum
eins og Mechelen og Club Briigge?
„í fyrra voru góðir leikmenn
seldir eins og Vercauteren og Scifo
auk þess sem Lozono fótbrotnaði.
Þarna fór helmingurinn af miðj-
unni en í raun þyrfti að kaupa tvo
sterka miðjumenn og jafnvel góðan
markaskorara. Ég er ég ekki svo
viss um að Hollendingurinn Bos-
man hafi verið rétti maöurinn þar
sem hann leikur alltof líkt
Krncevic.
„Degryse og
Ceulemans eru meðal
þeirra bestu“
- Hver er aö þínu mati besti leik-
maðurinn í Belgíu í dag?
„Það er erfitt að segja, sumir leik-
menn eru góðir á miðjunni en aðr-
ir láta taka eftir sér með því aö
skora mörk og svona mætti lengi
telja. Þó myndi ég segja aö Degryse
Arnór Guðjohnsen hefur átt góðu gengi að fagna hjá
Anderlecht en í fyrra sló hann rækilega í gegn hjá félaginu. í upphafi
þessa tímabils átti Arnór við meiðsli að stríða en frá áramótum hefur
hann skilað sínu hiutverki og vel það. DV-mynd Marc De Waele
Anderlecht hefur ekki vegnað eins vel og við hefði mátt búast á keppnistimabilinu. Sterkir leik-
menn voru seldir og ekki bætti úr skák að nýi þjálfarinn, sem ráðinn var í byrjun tímabilsins, var látinn fjúka
leik með Anderlecht i deildarkeppninni fyrr i vetur.
DV-mynd Marc De Waele
um áramótin. Arnór sést hér á fullri ferð
og Ceulemans hjá Club Brugge
væru mjög góðir. Mér finnst Degr-
yse vera sá efnilegasti sem Belgar.
eiga í dag. Ceulemans hefur aftur
á móti yfir geysilegri reynslu að
ráða og eru þessir leikmenn á
margan hátt mjög ólíkir. Hjá Mec-
helen finnst mér ísraelinn Ohana
góður en hann getur gert hluti sem
enginn getur annar. Þannig að erf-
itt er að nefna menn í þessu sam-
bandi,"
„Mér finnst uppgangur Ant-
werpen vera athyglisverður en þeir
voru við botninn í 1. deild í fyrra,
keyptu einn leikmann, Lenhof, og
fengu sér nýjan, góðan þjálfara sem
kom ákveðnum aga á og jók skipu-
lagið og eru þeir nú í öðru sæti ofan
frá. Ég held aö velgengni belgísku
liðanna sýni hversu hátt belgísk
knattspyrna er skrifuð. Það er fyrst
og fremst leikskipulagið og hvað
það snertir myndi ég telja Belga
efsta á blaði í dag. Það er mjög erf-
itt að leika í belgísku deildinni.“
„Afturför hvað
peningalegu
hliðina snertir"
„Það má segja að peningalega séð
hafi orðiö afturfór í Belgíu þar sem
leikmenn lenda nú í að borga háa
skatta og fyrir bragðið hefur verið
efitt að fá stór nöfn inn í landið.
. En það sýnir sig samt að belgísku
liðin ná alltaf langt á Evrópumót-
unum í knattspyrnu. Arie Haan
sagði við mig í samtali fyrir stuttu
að enginn munur væri á sex bestu
belgísku hðunum og sex efstu Uð-
unum í Vestur-Þýskalandi en aftur
á móti er mikill munur á minni Uð-
unum í Belgíu og eru miðlungsUðin
í Vestur-Þýskalandi mun sterkari."
Paris Saint Germain hefur
sýnt Arnóri áhuga
- Verður þú áfram hjá And-
erlecht?
„Paris Saint Germain hefur sýnt
mikinn áhuga. Þeir hafa komið
hingað til Belgíu og horft á mig í
nokkrum leikjum en þeir loða viö
fall í 2. deild svo ég veit ekki hvað
ég geri. Peningalega séð er tUboð
þeirra mjög áhugavert en knatt-
spyrnulega séð er það ekki nógu
gott en einhvern tíma á ferlinum
verður þú aö líta á peningalegu
hliðina. Og í raun getur þú ekki
valið um það heldur tekur þú tæki-
færið þegar það gefst.“
„Fram að deginum í dag hef ég
alltaf hugsað um að vera hjá Uði
sem hefur leikið í Evrópukeppni
eða á möguleika á titlum. Ég hef
heyrt minnst á fleiri lið en vil ekki
nefna flei'ri að sinni, þó kæmi aldr-
ei til að ég myndi skipta um félag
hér í Belgíu. Þetta kemur trúlega
ekki í ljós fyrr enn tveimur til
þremur vikum eftir bikarúrslita-
leikinn sem getur orðið góð auglýs-
ing."
„Hollendingar verða
geysilega sterkir“
- Nú, svona í lokin, hverju spáir
þú um úrslit í Evrópukeppni lands-
liða nú í sumar?
„Ég held að HoUendingar verði
geysilega sterkir. Eins gætu Eng-
lendingar og Rússar komiö á óvart
en ég hef ekki mikla trú á Vestur-
Þjóðverjum þó svo að þeir leiki á
heimavelU. Eg hef fylgst með þeim
í siöustu æfingaleikjum og er ég
ekki sáttur við þá. En í knattspyrnu
getur náttúrlega allt gerst,“ sagði
Amór Guðjohnsen.