Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 14
38
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAl 1988.
íþróttir Ð v
Irar héldu áfram sigurgöngu sinni á laugardaginn þegar þeir sigruðu Pólverja, 3-1, í vináttulandsleik í Dubl-
in. Kevin Sheedy, Tony Cascarino og John Sheridan skoruðu fyrir íra i fyrri hálfleik en Robert Warzycha fyrir
Pólverja i þeim síðari. Þetta var áttundi sigurleikur íra í röð og sá síðasti fyrir Evrópukeppnina í Vestur-Þýskalandi.
í gær var síðan tilkynnt að tveir snjallir leikmenn, Liam Brady og Ashley Grimes, gætu ekki leikið með írum i
keppninni vegna meiðsla. Á myndinni eigast við Pólverjinn Roman Wojcicki og írinn John Aldridge.
Símamynd Reuter
Beardsley lagði grunn að sigri enskra á Skotum:
;.V . #
Sköpunarverk guðs
- Beardsley er knattspymumaður mótaður af guði, segir Roxburg
„Enginn þjálfari hefur skapað Pet-
er Beardsley sem knattspyrnumann.
Hann er mótaður af guði,“ sagði
Andy Roxburg, einvaldur skoska
landsliðsins, eftir að lið hans hafði
legið fyrir Englendingum á Wem-
bley, 1-0. Viðureignin var liður í svo-
nefndum Rous-cup, sem er þriggja
þjóða keppni, þar sem Kólumbíu-
menn eru meðal þátttakenda ásamt
áðurnefndum liðum.
Roxburg var á því að Peter Beards-
ley hefði borið höfuö og herðar yfir
aðra menn á vellinum í þessu upp-
gjöri nábúanna, Englendinga og
Skota. Hann gerði enda usla með
hraða sínum og ótrúlegri leikni og
gerði að auki eina mark leiksins eftir
samspil viö Gary Lineker.
„Þetta var stórkostlegt mark sem
Beardsley gerði í raun upp á eigin
spýtur. Með hliðsjón af hugviti hans,
yfirferð og baráttu tel ég að Beards-
ley hafi verið maður leiksins," sagði
Bobby Robson, einvaldur enska liðs-
ins, eftir viðureignina.
Ef á heildina er litið höföu Englend-
ingar yfirhöndina en þeir nýttu illa
fjölmörg opin færi. Jim Leighton var
þeim raunar þrándur í götu en hann
varði margsinnis meistaralega.
Skotar eru úr leik í Rous-keppninni
þar sem þeir gerðu markalaust jafn-
tefli við Kólumbíu í síðustu viku.
Englendingar standa hins vegar vel
að vígi en þeir mæta einmitt Kólumb-
íumönnum í kvöld og dugir þeim
jafnteíli. Það er enskum engu að síð-
ur nokkurt áhyggjuefni að Bryan
Robson stríðir við bakmeiðsli í kjöl-
far leiksins við Skota. Læknar telja
hins vegar að Robson verði oröinn
leikfær löngu fyrir úrslit Evrópu-
mótsins í V-Þýskalandi og það skiptir
þá mestu. -JÖG
Vestur-þýska knattspyman:
Karlsruhe bjargaði sér
á síðustu sekúndunni!
- Mannheim þarf að leika aukaleiki um úrvalsdeildarsæti
Frétta-
stúfar
Benfica spjarar sig
Þaö er ekki víst að Diamantino,
buröarstólpi og fyrirliði portú-
galska liðsins Benfica, nái að
mæta PSV á morgun. Liöin
mætast þá í úrslitum í meist-
arakeppni Evrópu.
Diamantino meiddist í deild-
arleik um helgina en þá glímdu
saman Beníica og Guimaraes.
Benfica vann leikinn, 3-0, en
galt dýran toll.
Porto, sem fyrir löngu er orð-
ið landsmeistari í Portúgal,
vann útisigur á Espinho, 0-1.
Porto, sem hefur haft mikla
yfirburði í vetur, er með 11 stiga
forskot á Benfica, en síöartalda
liöiö er í silfursæti.
Annars vekur athygli marka-
rýrð í portúgölsku deildinni, en
þeim portúgölsku gekk illa að
skora um þessa helgi.
Úrslit
Benfica-Guiraaraes.......3-0
Esphino-Porto............0-1
Academica-Boavista.......0-0
Braga-Beienebnses........l-l
Chaves-Maritimo..........0-0
Penafiel-Setubal.........0-0
Salgueiros-Portimonense ....0-1
Staðan
Porto.....35 26 8 1 80-15 60
Benfica...35 19 11 5 56-19 49
Boavista..35 15 13 7 38-22 43
Belenenses.35 16 11 8 47-36 43
Sporting....34 15 11 8 51-39 41
Bikarinn í Sviss
Lið Grasshoppers varð um
helgina svissneskur bikar-
meistari í knattspyrnu. Liðiö
vann þá 2. deildar félagið
Schaffenhausen, 2-0. Þetta var
15. sigur Grasshoppers í keppn-
inni frá upphafi en Zúrich-liðiö
hefur 31 sinni glímt í úrslitum
bikarsins. Þess má geta að liö
úr 2. defid hefur aldrei hreppt
svissneska bikarinn. Var því
mikiö í húfi hjá Schaffenhausen
vegna þess sögulega gUdis sem
sigur liðsins hlaut aö hafa. Þeg-
ar til kom hafði 2. deildar liöið
einfaldlega enga burði til aö
sigra.
Skellir Evrópa í lás?
Englendingar stríða enn við
átök á áhorfendapöllum og síð-
asti vandinn var í tengslum við
leik Englendinga og Skota eins
og fram kemur annars staðar í
blaðinu. Talsmaður enska
knattspymusambandsins seg-
ist nú óttast að i kjölfar ólát-
anna kunni Evrópa aö skella í
lás á lið frá Englandi. Þau sækja
nú íast að fá keppnisrétt í fé-
lagsliöamótum álfunnar á nýj-
an leik.
Norman nældi í gull
Ástralinn Greg Norman, sem
nú er efstur á heimsafrekalista
í golfiþróttinni, vann sigru' á
Italian Open um helgina. Fór
hann fjóra hringi á 270 höggum
(69,68,63,70), eða á 15 undir pari
vaÚarins í Como.
Næstiir honum kom Craig
Parry (Ástr.), á 14 höggum und-
ir pari (65,68,67,71=271), en
þriðji varð Ronan Rafferty
(Bretl.), fór sá fjóra hringi á 13
höggum undir pari
(66,70,67,69 = 272).
Þess má geta að Norman fékk
35 þúsund pund fyrir sigurinn
á mótinu.
Kinversk kennslustund
Kínverjar tóku Englendinga í
kennslusfimd í badminton er
þjóðimar mættust í úrslitum
Thomas-cup (karlafi.) um helg-
ina. Kínverjar unnu, 5-0, á
sama tíma og Danir lögöu Hol-
lendinga, 3-2, í Uber-cup
(kvennafl.).
Siguröur Bjömssan, DV, V->ýskalandi:
Síðasta umferðin í úrvalsdeildinni
v-þýsku var leikin um helgina. At-
hygli beindist að fallbaráttunni en
neðstu hðin kepptust við að foröast
16 sætið í úrvalsdeildinni. Liðið sem.
þar situr má nefnilega leika við 3ja
efsta liðið í annarri deild um sæti í
úrvalsdeildinni og hefur sá leikur
gjarnan reynst botnliðunum erfiöur.
Mannheim lenti í þessu sæti nú
eftir að félagið náði aðeins jafntefli
við Stuttgart, 1-1. Það var Fritz Walt-
er sem náði forystunni fyrir Stutt-
gart með glæsilegri hjólhestaspymu
en Búhrer jafnaði á 11. mínútu.
Eftir leikinn fógnuðu leikmenn
Mannheim að vísu stiginu en þeir
höfðu fengið þau tíðindi að þeir væru
fyrir ofan Karlsruhe í stigatöflunni.
í Karlsruhe var staðan 0-1 fyrir
Frankfurt þegar örskammt var til
loka en Glesius jafnaði metin á síð-
ustu sekúndunni. Tryggði hann liði
sínu áframhald í úrvalsdeildinni meö
því marki.
Vonbrigði leikmanna Mannheim
voru því mikil þegar öll kurl voru
komin til grafar.
Kaiserslautern tryggði sér áfram-
hald með stórsigri á Gladbach, 5-2.
Fyrir Kaiserslautem skoruðu Kohr,
Roos, Friedmann, Allevi og Wutke.
Mörk Gladbach gerðu hins vegar
Wolf, sjálfmark og Hochstátter.
Meistarar Brimarborgara unnu
Schalke, sem fallnir eru í aðra deild,
án vandræöa. 1=4. Fyrir Bremen
skoruðu þeir Riedle og Ordenewitz,
gerði hvor um sig 2 mörk. Mark
Schalke gerði Tschiskale.
Evrópumeistarar Leverkusen töp-
uðu heima fyrir Bæjurum, 3-4, í stór-
skemmtilegum leik. Leverkusen sótti
ákaft í byijun og fór í 3-0 eftir aðeins
18 mínútna leik. Mörkin gerðu Haus-
mann, Tita og Götz. Þá tóku Bæjarar
hins vegar við sér. Mattháus minnk-
aði muninn og þeir Bayerschmidt og
Wegmann fylgdu í kjölfarið, gerði sá
síðartaldi 2 og sigurmarkið í leikn-
um.
Uerdingen, lið Atla Eövaldssonar,
vann stórsigur á Homburg, 5=1. Kunz
gaf tóninn snemma í leiknum en
Scháfer jafnaði rétt fyrir leikhlé.
Uerdingen gerði síðan út um leik-
inn í upphafi síðari hálfleiks með
mörkum Witezek, Kunz og Thom-
mesen, sem skoraði í tvígang á loka-
mínútunum.
Þá vann Hannover Köln, 0-3, HSV
lið Dortmund, 4-3, og Bochum lagði
Númberg, 3-0. Þess má geta að í síð-
asttalda leiknum skoraði markvörð-
ur Bochum síðasta markið úr víta-
spymu.
Frakkland:
Monaco
meistari
Monaco, lið Glen Hoddle og Mark
Hateley, hreppti franska meistaratit-
ilinn um helgina. Félagið gerði þá
jafntefli við Metz, 2-2.
í raun réð það jafntefli litlu því
reginkeppinautamir, Bordeaux, töp-
uðu fyrir Nantes á fostudag, 1-0. Með
þeim úrslitum varð forskot Monaco
á Bordeaux og hin liðin í fyrstu deild-
inni óvinnandi.
Þegar þijár umferðir em eftir er
staða Brest og Le Havre óvænleg, eru
bæði liðin í fallsæti. Þá er hið sljörn-
um prýdda lið Paris St. Germain
heillum horfið. Ef félagið réttir ekki
úr kútnum í síöustu leikjum mótsins
kann það að falla 1 2. deild. Parísar-
liðið varð franskur meistari árið 1986
og bikarmeistari árin 1982 og 83.
Úrslit
Metz-Monaco..................2-2
Le Havre-Montpellier.........1-3
Marseille-PS-Germain.........1-2
Racing-Toulon................0-0
Saint-Etienne-Lille..........4-3
Auxerre-Niort................1-3
Buce-Cannes..................1-2
Lens-Toulouse................2-0
Laval-Brest..................0-0
Nantes-Bordeaux..............1-0
Staðan
Monaco.......36 19 12 5 50-25 50
Bordeaux.....36 17 10 9 42-26 44
Montpel......36 16 9 11 60-36 41
St-Etienne...36 17 6 13 52-54 40
ParisSG......36 10 10 16 31-44 30
Brest........36 10 9 17 30-51 29
LeHavre......36 8 11 17 34-53 27
-JÖG
Tennis - HM:
Svíar meistarar
Svíar unnu um helgina sinn fyrsta
sigur á heimsmeistaramóti landsliða
í tennis. í undanúrslitum unnu Svíar
lið Tékka, 2-1, en í sjálfum úrshtun-
um lögðu þeir Bandaríkjamenn með
sama mun. í Uði Svía gegn Banda-
ríkjamönnum voru þeir Anders
Jarryd, Stefan Edberg og Kent Karl-
son. Svíarnir unnu báða einliðaleik-
ina en töpuðu í tvíliðaleiknum.
Vestur-þýska
knattspyman
Úrslit
Kaiserslautern-Gladbach...5-2
Bayer Uerdingen-Homburg...5-1
Hannover-Köln.............0-3
Bochum-Núrnberg...........3-0
Stuttgart-Mannheim........l-l
Scbalke-Werder Bremen.....1-4
Hamburger SV-Dortmund.....4-3
Karlsruher-Frankfurt......1-1
Leverkusen-Bayem Múnchen .3-4
Lokastaðan
Bremen.....34 22 8 4 61-22 52
Bayern.....34 22 4 8 83-45 48
Köln.......34 18 12 4 57-28 48
Stuttgart...M 16 8 10 69-49 40
Numberg....34 13 11 10 44-40 37
Hamburger...34 13 11 10 63-68 37
Giadbach...34 14 5 15 55-53 33
Leverkusen...34 10 12 12 53-60 32
Frankfurt..34 10 11 13 51-50 31
Hannover...34 12 7 15 59-60 31
Uerdingen..34 11 9 14 59-61 31
Bochum.....34 10 10 14 47-51 30
Dortmund...34 9 11 14 51-54 29
Kaisersl...34 11 7 16 53-62 29
Karlsruher....34 9 11 14 37-55 29
Mannheim ....34 7 14 13 35-50 28
Homburg....34 7 10 17 37-70 24
Schalke....34 8 7 19 48-84 23