Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
Fréttir
að
til lokunaraðgerða
„Það stendur í samþykkt bæjar- bæjarsjóð fyxir 1. júní. Ef þaö yrði in, sem Helgi byggði hótelið og að- eftir að reynast okkur mikils virði
stjórnar að Helgi Þór verði að ekki gert yrði gripiö til lokunarað- stöðuna á, hafði verið móar frá því á margan hátt," sagöi Hafsteinn
greiða þaö sem fallið er eða koma gerða. að IngóJfur Amarson reið hér hjá Kristinsson, forseti bæjarstjórnar.
og semja um greiðslur og greiöa inn „Það var mikið happaspor fyrir forðum daga. Helgi sá um allar Hafsteinn sagöi að Hvergerðing-
á skuldimar. Það verður unniö í Hveragerði að Helgi Þór Jónsson framkvæmdir, veg að hótelinu, ar ættu nóg af heitu vatni, mun
þessum málum um helgina og ég byggði þetta glæsilega hótel hér. plön og fleira. Bæjarfélagið kom meira en þeir hefðu not fyrir. Það
er allt aö því sannfaarður um aö Hveragerði hefur ekki þurft að þar hvergi nærri. munaði því lítiö um aö skrúfa frá
samkomulagtakistogekkikomitil leggja til neina fjármuni í þessa Selfyssingar byggðu hótel á tólf krana aö Hótel Örk. „Það hefur
þess aö við iokum fyrir orkuna," byggingu. Þó hafa vanskil á raf- áram. Helgi Þór byggði sitt á níu farið verst með Helga Þór, þennan
sagðiHafsteinnKristinsson,forseti magni komið sér illa fyrir okkur. mánuöum. Selfyssingar hafa greitt mikla og dugiega framkvæmda-
bæjarstjómar Hveragerðis. Við þurfum að greiða Landsvirkj- sitt hótel úr bæjarsjóði. Hér höfum mann, að hann hefur lán til alltof
Bæjarstjóm samþykkti á fundi í im 50% af rafinagninu og þaö höf- við sama og engu kostaö til. Hver- skamms tíma. Hann þyrfti aö hafa
fyrri viku aö Helgi Þór Jónsson um viö fjármagnað úr bæjarsjóði. gerðingar verða að meta það sem þessi lán til 30 eöa 40 ára svo að
yrði aö ganga frá orkuskuldum viö Annaö höfum við ekki greitt. Lóð- Helgi Þór hefur gert. Hótel Örk á vel færi. -sme
Pólarprjón fær
11 milljónir
Dómur hefur verið kveðinn upp í
Los Angeles vegna innheimtukröfu
þrotabús Pólarprjóns hf. á Blönduósi
gegn hjónunum Doriet og Árna Eg-
ilssyni og fyrirtæki þeirra, Icelander
Inc. Innheimtukrafa Pólarprjóns var
viðurkennd að fullu auk vaxta. Dóm-
urinn er endanlegur og ekki er hægt
að áfrýja. Líklegt er að gengið verði
eftir eignum þeirra hjóna til að inn-
heimta kröfuna.
Krafan, sem þama innheimtist, er
upp á 200.000 dollara og þá verður
líklega viðurkennd vaxtakrafa upp á
50.000 dollara til viðbótar. Þama
koma því tæpar 11 milljónir kr. í
þrotabúið. „Það er nú ekki búið að
borga þetta og miðað við að þaö tók
hátt í fjögur ár að fá dæmt í einfóldu
innheimtumáli þá má búast viö að
nokkurn tíma taki að fá þessa pen-
inga greidda," sagði Sigurmar Al-
bertsson, bústjóri þrotabús Pólar-
pijóns. í búið hafa borist kröfur upp
á hátt í 40 milljónir kr. og þar af for-
gangskröfur upp á 6 milljónir.
-SMJ
Deilt um ræktunaraðferðir á Svaðastaðakyninu:
Skýlaust brot
á reglugerð
- segja hrossaræktarmenn
Skarpar deilur era meðal hrossa-
ræktarmanna vegna ræktunarað-
ferða á Svaðastaðakyninu. Ræktunin
fer fram á Hólum í Hjaltadal. í búíjár-
lögum frá 1971 er reglugerð um
hrossaræktarbú að Hólum. Þar á aö
rækta Svaðastaðakyn eða austan-
vatnshross og deila menn um að-
ferðir. Þeir hrossaræktarmenn sem
DV ræddi viö vora ósáttir vegna þess
að fengnir hafa verið stóðhestar af
öðrum stofnum.
Þeir sem því hafa stjómað era í
þeirri trú að það flýti fyrir ræktun-
inni. Aðrir eru á öndverðum meiði
og segja að það muni slíta stofninn
og skaða verulega. „Þetta er skýlaust
reglugerðarbrot og. spillir tvímæla-
laust stofnræktinni og getur jafnvel
eyðilagt hana,“ sagði hrossaræktar-
maður sem vel þekkir til.
Allir voru sammála um að auðvelt
væri að deila um þessi atriði. „Það
hefur aðeins tíðkast í seinni tíð aö
stóðhestar af öðrum stofnum væra
fengnir til. Það þekktist ekki í skóla-
stjóratíð Haralds Ámasonar. Þetta
þekktist ekki fyrr en Jón Bjamason
tók við skólastjórn að Hólum," sagöi
kunnur hestamaður.
„Viö erum með ákveðnar hryssur
í ræktuninni. Ramminn setur okkur
þröngar skörður á stóðhestum. Þau
afkvæmi, sem ekki fá samþykki, eru
notuö í annað. Menn sjá ofsjónir ef
við notum aðra stóðhesta en af
Svaðastaðakyninu,“ sagöi Jón
Bjarnason, skólastjóri á Hólum í
Hjaltadal.
-sme
Víglundur Þorsteinsson:
„Látið vera að taka lán í dag“
„Það eru samdráttartímar fram- um íslenska bankakerfið að það
undan, raunvextir era þaö háir í viröist þungt og dýrt í rekstri og
landinu að þaö er beinlínis stór- þarfhast mikils vaxtamunar inn-
hættulegt að taka lán til eyðslu eöa og útlána til að standa undir kostn-
óvaranlegra fjárfestinga. Þaö er í aöi.“
raun hættulegt aö taka lán með Um launamálin sagði Víglundur
9-11 prósent raunvöxtum til hvaða aö launalækkun heföi veriö fiarsæl-
framkvæmdasemer.Látiðeinfald- asta lausn kjarasamningaviö-
lega vera að taka lán í dag.“ ræöna vetrarins. Laun hér á landi
Vaxtaþróun, þróun launamála og væra há ogeyðslusemin, fjármögn-
hækkun raungengis vora aðalum- uð meö dýrum lánum, mikil.
ræðuefni Víglundar Þorsteinsson- Loks sagöi hann að gengisfelling-
ar f ræðu hans á framhalds-árs- ar undanfarið leiddu aöeins til um
þingi Félags íslenskra iönrekenda 5 prósent raungengislækkunar
er haldið var á Hótel Sögu í gær. þegar upp væri staöið í árslok.
Sagði hann aö frá sjónarhóli út- Raungengið hlyti að lækka meira á
flytjenda væru raunvextir ýmist árinu.
sambærilegir viö umheiminn eða Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
sjö sinnum hærri miðað við 1987. herra tók einnig til mála og varaði
Þrátt fyrir þaö hefði ekki dregið viö þeim hugsunarhætti að halda
úreförspumeftirlánumílandinu. aö gengislækkanir eða pakka-
Hlyti lánaeftirspum að lækka þar lausnir í si og æ leystu einhvera
sem raunvextir væru jákvæðir og vanda. Síbylja um gengislækkun
þjóðin á leið inn í samdráttartíma- hefði meðal annars spiUt fyrir
bil eftir tveggja ára góðæri, kjarasamningaviðræöum vetrar-
„Alraennt veröur þaö að segjast ins. -hlh
Björk Guðmundsdóttir, söngkona Sykurmolanna, ásamt Sindra syni sínum við komuna til landsins í nótt. Sá stutti
fór með móður sinni utan og er að vonum þreyttur eftir langa ferð. DV-mynd GVA
Sykurmolamir komnir til landsins:
Súrrealísk mistök
- segir Einar Öm, einn forsprakki Molanna
„Þetta var ekki okkur að kenna.
Þetta voru súrrealísk mistök," sagði
Einar Örn, einn meðhma Sykurmol-
anna, en hljómsveitin kom til lands-
ins í nótt. Til stóð að hJjómsveitin
héldi í tónleikaferðalag til Bandaríkj-
anna en vegna tafar á atvinnuleyfi
seinkar þeirri fór. Að sögn Braga
Ólafssonar, bassaleikara Molanna,
er búið að ganga frá því máli núna.
Sykurmolamir muriu því halda vest-
ur um haf í sumar.
Sykurmolamir fara tvívegis til
Bandaríkjanna í sumar. „Við mun-
um fara 6. júní í fimm daga tónleika-
ferð til Bandaríkjanna," sagði Bragi
í samtali við DV í gær. „Viö höldum
tvenna tónleika, í Boston og New
York, í boði útgáfufyrirtækisins
Electra. Seinni tónleikaferðin verður
farin í júh og þá er ráðgert að halda
mhh 15 og 20 tónleika.”
Sykurmolunum var mjög vel tekið
í Bretlandi og héldu níu tónleika
þar. Þeir virðast einnig hafa fest sig
í sessi í Bandaríkjunum því að upp-
selt var á aha tónleika þeirra þar.
Björk Guðmundsdóttir, söngkona
Sykurmolanna, mun að öllum líkind-
um gefa út plötu með írsku söng-
konunni Sinead O’Connor. Sam-
vinna þeirra kom til tals í Bretlands-
reisu þeirra Mola en dagsetning er
ekki ákveðin. Einnig kom til tals að
Sykurmolarnir færa í heimsreisu
með hljómsveitinni Pubhc Image.
„Það er gott að koma heim,“ sagði
Einar Örn í samtali við DV í gær.
„Þetta er búið að vera langt ferðalag
og slíkt tekur á. Ég, Björk og Þór
erum búin að vera í burtu í mánuð
og við eram glöö og ánægð yfir að
vera komin heim. Þaö er æghega
erfitt aö skrifa 20 eiginhandaráritan-
ir á kvöldi, svo að ekki sé talað um
30 eöa 40. Við ætlum að slappa og
æfa á meðan við erum heima.“
„Við eigum heima á íslandi og hér
vhjum viö finna okkar frið. ísland
er og verður okkar griðland um ald-
ur og æfi. Þrátt fyrir aha þessa svo-
kölluðu „velgengni" komum við aht-
af heim aftur.“ -StB
Þjóðin þekkir minn málflutning
- segir Vigdís Finnbogadóttir
Engin hætta á áð norsku þómngamir berist til Islands
„Þjóöin þekkir málflutning minn
eftir átta ára starf og ég sé ekki að
ég hafi miklu við hann að bæta á
opinberam kosningafundum," sagði
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, í samtah við DV þegar hún var
spurð hvort hún myndi leggja út í
formlega kosningabaráttu á næst-
unni. Samkvæmt heimhdum DV
hafa stuðningsmenn Vigdísar hist
mikið undanfama daga. Þeir munu
styðja viö bakið á forsetanum fyrir
kosningamar og kynna framboð -
hennar. -JBj
Þörungablómi á borð við þann sem
nú gerir mikinn usla viö vestur-
strönd Noregs er þekktur hér á landi.
Það hefur þó verið haft efitir haffræð-
ingum að engin hætta sé á að þörung-
amir berist frá Noregi þar sem eng-
inn hafstraumur hggi beint frá Nor-
egi th íslands.
Gunnar Steinn Jónsson, vatnalíf-
fræðingur hjá Hollustuvemd ríkis-
ins, sagði í samtali við DV að dæmi
væru þekkt um blóma hér á landi,
bæði í gömlum heimildum og síðar
en síðast heföi slíkt gerst í Hvalfirði
í fyrrasumar þegar fiskur í eldisstöð
drapst. „Þörungablómi skapast viö
mjög sérstakar aðstæður og er ávaht
mjög staðbundinn. En þetta er míög
eðlhegt náttúrufyrirbrigði. Þegar
komið er út fyrir ákveðið svæðið
hverfa lífsskilyrði þörunganna og þá
deyja þeir af sjálfu sér. Mér vitanlega
hefur þaö aldrei gerst hér á landi að
hann dreifist um jafnstórt svæði og
um er að ræða í Noregi. Menn tengja
þetta næringarauðgun í Eystrasalti
og Kattegat.” -JBj