Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 11
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
11
Utlönd
Mannréttinda-
málin á oddinn
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
mun í ávarpi því sem hann flytur í
Helsinki í dag leggja fram álit banda-
rískra stjómvalda á frammistöðu
Sovétmanna í mannréttindamálum
undanfama mánuöi. Meö þessu
hyggst Reagan leggja áherslu á aö
mannréttindamál verði mjög ofar-
lega á dagskrá funda hans meö Mik-
hail Gorbatsjov, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins, sem hefjast á
sunnudag, 29. maí.
Reagan mun flytja ávarp sitt í Fin-
landia tónlistarhöllinni þar sem
Helsinkisáttmálinn var undirritaður
áriö 1975.
Reagan sagöi í viðtali við fmnskt
dagblaö, sem birt var í gær, að hann
teldi að Sovétríkjunum og banda-
mönnum þeirra í Austur-Evrópu
hefði ekki enn tekist að fara eftir öll-
um ákvæðum Helsinkisáttmálans
sem undirritaður var af Bandaríkj-
unum, Sovétríkjunum og flestum
Evrópulöndum.
Forsetinn sagði að ástandið í
mannréttindamálum í Austantjalds-
löndum hefði vissuiega batnað en
hvergi nærri nóg.
Talið er ólíklegt að Reagan verði
nijög harðorður í ávarpi sínu í dag
þar sem hann vilji ekki valda gest-
gjöfum sínum í Finnlandi vand-
kvæðum.
Reagan hefur undanfarið fariö
Jólasveinar veröa hvarvetna á vegi
Reaganhjónanna í Finnlandi og bera
þeir yfirleitt spjöld meö athuga-
semdum tengdum stefnu banda-
rískra stjórnvalda í ýmsum málum.
Þessi vill minna Reagan á Panama.
Simamynd Reuter
fremur varlega í gagnrýni sinni á
sovésk stjórnvöld og segist vilja
skilja við embætti sitt á þann hátt
aö eftirmaður sinn taki við góðu sam-
bandi við Sovétríkin.
Embættismenn stórveldanna
tveggja hafa þegar samþykkt að
mannréttindamál, afvopnunarmál,
svæðaátök og samskipti stórveld-
anna á ýmsum sviðum verði aðalmál
leiðtogafundarins í Moskvu.
Ekki er búist við að leiðtogarnir
nái neinum afgerandi árangri hvaö
varðar fyrirhugaðan samning um
gagnkvæman samdrátt í langdræg-
um kjamorkuvopnum. Hins vegar
er nú fastlega búist við að þeir geti
skipst á staöfestum eintökum af
samningnum um eyðingu meðal-
drægra kjarnorkuvopna sem þeir
undirrituðu á leiðtogafundinum í
Washington í desembermánuði síð-
asthðnum.
íhaldssamir andstæðingar samn-
ingsins í öldungadeild bandaríska
þingsins hafa nú látið undan og búist
er viö að Howard Baker, starfs-
mannastjóri Hvíta hússins, muni
koma til Moskvu á sunnudag með
samninginn staðfestan af öldunga-
deildinni.
Sovétmenn munu nú híða spenntir
komu Bandaríkjaforseta til Moskvu.
Skoðanakannanir benda til þess að
flestir þar telji heimsókn Bandaríkja-
forseta mikilvæga, jafnvel þótt ekki
veröi af undirritun samnings um
kjarnorkuvopn. Mest virðist bera á
því aö sovéskur almenningur bíði
heimsóknarinnar sem tækifæris til
að sýna Reagan í verki að Sovétríkin
eru ekki heimsveldi hins illa, líkt og
hann hefur stundum kallaö þau.
I
Gyðingar efndu til mótmæla gegn afstöðu sovéskra stjórnvalda í búri fyrir
framan þinghusiö i Helsinki í gær. Kröfðust þeir þess af Reagan Bandaríkja-
forseta aö hann setti málefni gyðinga, sem vilja komast á brott frá Sovét-
ríkjunum, á oddinn á fundi sinum með Gorbatsjov. Simamynd Reuter
•J:
Uéa
HJOLHYSI - FARANGURSVAGNAR - BATAVAGNAR
SÝNING Á MORGUN, LAUGARDAG, KL. 10-16
v IU-1 9Rn
Verð aðeins
kr. 199.000,- stgr.
(gengi 18.5. ’88)‘/ ***
• Tveggja hellna eldavél • Svefnpláss fyrir 3-4 •
Rafmagnsvatnsdæla og vaskur • Vatnstankur •
Gluggatjöld • 3 inniljós og rafkerfi • Fíberglass
yfirbygging • Galvaniseruð grind • Stór dekk •
Sjálfvirkar bremsur í beisli • Handbremsa, nefhjól
• Flexitorafjöðrun • Demparar • Léttbyggt og
hentar aftan í alla bíla • Þyngd 600 kg • Góðir
skápar
Fólksbílakerra með segli og
fullum Ijósabúnaði - Gott tæki til allra
flutninga - Burðargeta 400 kg. Verð
aðeins kr. 46.000,-
Bátavagnar með öllum búnaði fyrir mis-
Farangursvagnar með Ijósum - þyngd munandi stærðir af bátum. Verð kr.
aðeins 100 kg. Verð kr. 39.900,- 58.000,-
\/FI ARflRfí JÁRNHÁLSI 2 SÍM183266-686655
V LL U* I ■ U KRÓKHÁLSMEGIN EINNIG TIL SÝNIS DÍSILVERK, DRAUPNISGÚTU
3, AKUREYRI.