Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 10
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
10
f PR. Búðin hf.
Kársnesbraut 106 Kóp.
■■ S. 641418 / 41375.
m
smáskór
Skólavörðustíg 6b
gegnt Iðnaðarmannahúsinu.
Opið í verkfalli.
Sími 622812.
Póstsendum.
UNGBARNASKÓR
margar gerðir. Litir: Hvítt
m/bleiku eða bláu, stærðir
3ja—9 mánaða. Verð 760.
STRIGASKÓR
Litur: Bleikur, stærðir 22-34.
Verð 1.160
STRIGASKÓR
Litir: Rauður og Ijósgrænn,
stærðir 28-37. Verð 995.
SANDALAR
Litur: Grár, stærðir 24-30.
Verð 1.230.
Fréttir
Sýrlendingar tilbúnir
til árásar í Beirút
Um sjö þúsund sýrlenskir her-
menn hafa fengið fyrirmæh um að
ráðast inn í íbúðarhverfi í suður-
hluta Beirút í Líbanon í dag og stöðva
þar bardaga þá sem staðið hafa í
þijár vikur milli andstæðra fylkinga
shíta.
Aðeins fáeinum klukkustundum
eftir að Sýrlendingar tilkynntu þessa
ákvörðun sína sluppu fjórir æðstu
liösforingjar þeirra í Líbanon naum-
lega frá banatilræði sem þeim var
sýnt. Múhameðstrúarmenn réðust á
bifreið sem þeir voru í og skutu á
hana af vélbyssum.
Einn þeirra sem í bifreiðinni voru
var yfirmaður leyniþjónustu hers
Sýrlendinga.
Auk hans var ráðist á Saeed Bair-
akdar, yfirmann herafla Sýrlendinga
í Líbanon, Ali Hammoud, yfirmann
eftirlitssveita Sýrlendina, og einn
háttsettan Uðsforingja í viðbót.
Sýrlendingarnir íjórir voru á leið
frá fundi sem þeir áttu með Sheikh
Mohammed Hussein Fadlallah sem
er andlegur leiðtogi hizbollah.
Bifreiðir, sem í voru fréttamenn og
öryggisverðir, urðu einnig fyrir skot-
um og þykir mesta mildi að allir
skyldu sleppa ómeiddir.
Yfirmaður leyniþjónustunnar,
Ghazi Kanaan, sagði eftir tilræðiö að
það myndi engin áhrif hafa á þá
Palestínsk börn í rústum húss sem varð fyrir loftárás Israela í suðurhluta
Libanon í gaer. Simamynd Reuter
ákvörðun Sýrlendinga og írana að
stöðva bardagana í Beirút. Liðsmenn
hizbollah (flokks guðs), sem fylgja
írönum að málum, og amal-þjóövarð-
liða, sem fylgja Sýrlendingum, hafa
barist um þriggja vikna skeið og hafa
bardagarnir kostað um íjögur
hundruð tuttugu og fimm mannslíf.
„Stríðinu í úthverfunum er lokið,“
sagði Kanaan á fundi með frétta-
mönnum í gær. „Það er búið að
ákveða hvenær því lýkur og það
veröur mjög fljótlega. Ég fullvissa
ykkur um að áætlun okkar verður
sett í framkvæmd á morgun."
Sýrlenskir hermenn hafa verið til-
búnir til þess að ráðast inn í úthverf-
in þár sem barist hefur veriö allt frá
því 14. maí. Þeir eru búnir T-54 skrið-
drekum, eldflaugum, stórskotaliði og
öðrum fullkomnum vopnum.
Stjórnvöld í Sýrlandi vildu hins
vegar tiyggja sér samþykki stjórnar-
innar í íran áður en þau létu til skar-
ar skríða í borginni. Með því var
ætlunin að komast hjá frekari bar-
dögum við liðsmenn hizbollah sem
hafa náð nær öllum hverfunum sem
barist hefur verið um. Hverfi þessi
eru fátækrahverfi sem hafa verið á
valdi skæruliðafylkinga, án þess að
líbönsk stjórnvöld gætu haft þar
nokkur áhrif á gang mála, um fjög-
urra ára skeið.
Mannfall í átökum
á Sri Lanka
Alsirsættist
við Egyptaland
Indverskir hermenn hafa frá því á
mánudag fellt að minnsta kosti þrjá-
tíu skæruliða tamíla í baráttunni um
birgðastöð skæruliða sem staðsett er
í frumskóginum á norðausturhluta
Sri Lanka. Þrjátíu og níu skæruliðar
eru sagðir hafa særst í átökunum og
að minnsta kosti tíu Indveijar hafa
fallið.
Bardaginn, sem er sá mesti frá þvi
að Indveijar náðu á sitt vald höfuö-
vígi skæruliða við Jaffna í október,
stóð enn í morgun. Notuðu Indveijar
herþyrlur við liðs- og vopnaflutn-
inga.
Um sjötíu þúsund indverskir her-
menn hafa verið fluttir til norður-
og austurhéraðanna á Sri Lanka og
er það í samræmi við samkomulag
yfirvalda í Colombo og Nýju Delhi
sem miöar að því að binda enda á
uppreisn skæruliða. Þeir hafa í fimm
ár barist fyrir sjálfstæðu ríki fyrir
tamíla.
Að sögn yfirmanna indverska hers-
ins hafa tvennar búðir skæruliða
verið eyðilagðar. í öðrum þeirra
fundust sextíu og sex rifflar, sprengi-
þræðir, handsprengjur og matar-
birgðir.
Bjana Hnvriksson, DV, Bordeaux:
Eftir að hafa veriö útskúfað af
öðrum arabaríkjum sökum friðar-
samningsins viö ísrael 1979 er
Egyptaland nú smám saman aö ná
sáttum aftur við frændur sína. Allt
viröist benda til að Alsír muni á
næstunni taka upp eðlilegt stjórn-
raálasamband viö Egyptaland, lfk-
legast fyrir fund arabaríkjanna um
ástandið á herteknu svæðunum í
ísrael. Fundurinn verður haldinn
7. júní í Algeirsborg.
Alsírbúar, sem fyrir rúmri viku
tóku upp eðlilegt samband við Mar-
okkó eftir tólf ára sambandsslit,
vilja fá sem flest ríki til þessa fund-
ar og reyna þvi að ganga frá sam-
skiptunum við Egypta sem fyrst
enda er í raun lítið annað eftir en
aö afgreiða þau formlega því að á
milli ríkjanna tveggja er á mörgura
sviðum þegar komið eðlilegt sam-
band. Eftir þetta eru Sýrland, Lí-
banon og Líbýa einu arabaríkin
sem ekki hafa sæst við Egypta.
Eldur
í Ermar-
sundsferju
Eldur kom upp í vélarrúmi
Ermarsundsfeiju í morgun og
hlutust af nokkrar skemmdir.
Fljótlega tókst að ráða niður-
lögum eldsins og urðu engin slys
á mönnum.
Áttatíu og sex farþegar eru um
borð í ferjunni sem nú rekur á
Ermarsundi.
Þyrlur frá Bretlandi og Belgíu
fluttu slökkviliösmenn um borð í
feijuna og sovéskur togari og
bresk herskip voru nálæg. Drátt-
arbátur var einnig sendur til að-
stoðar.
Ekki er vitað um eldsupptök en
þetta er í annað sinn í þessari
viku sem eldur kemur upp í ferju
sem siglir á Ermarsundi.
Á mánudaginn fórst einn
áhafharmeðlimur i eldsvoöa og
annar slasaðist mikið.
í mars á síðasta ári hvolfdi feij*
unni The Herald of free Enter-
prise fyrir utan belgísku hafnar-
borgin Zeebrugge og fórust þá
tæplega tvö hundruö manns.
Ný tilraun til að
koma Noriega frá
Noriega hershöfðingi, æðsti ráöa-
maður í Panama, sagði í gær á þingi
aö viðræðumar við Bandaríkjamenn
hefðu farið út um þúfur vegna óað-
gengilegra skilyrða. Noriega kvaðst
þó enn vera fús til viðræðna.
Samkvæmt frásögn Noriega buð-
ust Bandaríkjamenn til að falla frá
ákæru á hendur honum varðandi
eiturlyfjamisferli auk þess sem efna-
hagsrefsiaðgerðum yrði aflétt gegn
því að Noriega færi frá völdum. Til-
boði Bandaríkjanna yrði að taka
strax, annars yrði það dregið til baka.
Noriega sagðist ekki hafa viljað
ganga að slíkum skilmálum.
Noriega gaf einnig í skyn aö vara-
forseti Bandaríkjanna, George Bush,
hefði haft hönd í bagga varðandi til-
boðin. Sagði Noriega að í ýmsum til-
fellum hefðu Panamamenn sam-
þykkt breytingar settar fram af ráð-
gjöfum varaforsetans til þess aö hlífa
Manuel Antonio Noriega ávarpar
Panamaþing í gær.
Símamynd Reuter
honum í kosningabaráttunni.
Forsetar Mið-Ameríkuríkja og
Lýðræðisstofnunin í Washington
vinna nú að því að finna nýjar dipló-
matískar leiðir til þess að koma her-
stjórninni í Panama frá eftir að við-
ræöumar við Noriega fóra út,um
þúfur. Viðræðurnar leiðir forseti
Guatemala, Vinicio Cerezo. Leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Panama, Ju-
an Sosa, sem er sendiherra Panama
í Washington, segist hafa tjáð emb-
ættismönnum bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins að stjórnarandstaðan
óski eftir samstarfi við Bandaríkin í
þessu máli.
Forseti Lýðræðisstofnunarinnar í
Washington segir aö Noriega sé já-
kvæður og áhugasamur. Markmiðið
er að fá Noriega og stjórnarandstöðu-
menn í Panama til að taka upp bein-
ar viðræður með tilstilli Mið-Amer-
íkuríkja um hvemig koma megi á
lýðræði í Panama. Þar yrði ákæran
um eiturlyfjamisferli og efnahags-
þvinganir ekki á dagskrá þar sem
það væri mál er snertu aðeins Banda-
ríkin og Noriega.