Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
Fréttir
Chase Osborne (lugmaöur kannar skemmdir á flugvélinni sem hann flaug. Af einhverri ástæðu flaug hann aftan
á aðra flugvél um 130 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Hin vélin er týnd og þrátt fyrir víðtæka leit hefur hún
ekki fundist. Einn flugmaður var í hvorri vél. Loftferðaeftirlit og rannsóknarnefnd flugslysa vinna að rannsókn á
tildrögum slyssins. DV-mynd S
Árekstur tveggja feijuflugvéla:
Flugmaðurinn
hefur engar
skýringar
- önnur vélin týnd, hín náði til Reykjavíkur
Tvær ferjuflugvélar skullu saman
er þær voru í flugi til íslands um
klukkan hálfátta í gærkvöldi. Vél-
arnar, sem eru sömu tegundar, voru
í samfloti frá Bandaríkjunum til Evr-
ópu. Þær eru af gerðinni Maule, fjög-
urra sæta og eins hreyfils. Einn flug-
maður var í hvorri vél. Önnur vélin
náði til Reykjavíkur með skemmdan
hægri væng og vængstoðir, en hinn-
ar vélarinnar var leitaö árangurs-
laust fram á nótt.
Vélin, sem náöi til Reykjavíkur,
mun hafa flogið aftan á hina vélina.
Vélamar voru þá um 130 sjómílur
suðvestur af Reykjanesi. Þær flugu
sjónflug og veður var þokkalegt.
Flugmaðurinn, Chase Osbome,
sem náði til Reykjavíkur, hefur litlar
skýringar getið gefið á með hvaða
hætti áreksturinn varð. Loftferðaeft-
irlit og rannsóknarnefnd flugslysa
vinna að rannsókn slyssins.
Osborne tilkynnti slysið klukkan
19.35 og sagði þá að vélamar hefðu
skollið saman og að hann sæi ekki
hina vélina. Fimm vélar tóku þátt í
leit sem hófst strax, flugvél Flug-
málastjómar, sem stjórnaði leitinni,
Fokker og þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, þyrla og Herculesvél frá Varnar-
liðinu. Fokker Landhelgisgæslunnar
lenti síðust leitarvélanna í Reykja-
vík, klukkan þrjú í nótt. Leit hafði
engan árangur borið. Varöskip er við
slysstaðinn.
Flugmaðurinn, Chase Osborne,
hefur lengi flogið feijuflugvélum.
Hann mun áöur hafa lent í vandræð-
um við ísland. Skúh Jón Sigurðsson,
deildarstjóri hjá Loftferðaeftirlitinu,
sagði í morgun aö hann hefði hitt
Osbome áöur. Skúli Jón vildi ekki
gefa upp af hvaða ástæðu þeir hefðu
hist og sagði að ekki væri ástæða til
að tengja þau mál saman.
-sme
Grásleppukarlar á suðvesturtiominu:
„Með báta fulla af ónýtum netum“
.Ástandið hefur ekki verið svona og ekki hægt annað en að skera menn ekki getaö vitjað neta í viku- kvaðst ekki hafa séð annað eins í Ekki vom allir tilbúnir aö reyna
slæmt 1 fjöldamörg ár. Þettaereig- netin,“ sögðu þeir feögar, Jakob tima og í gær lægöi fyrst nægjan- þau þrjátfu ár sem hann hefur á ný. „Maður er orðinn hálfleiður
inlega fyrsti dagurinn í röska viku Ólafsson og Bjami Þór Jakobsson lega til að bátar kæmust út. Oveð- stundaö grásleppuveiðar. „Óveörið áþessariveöráttu.Ætliviðhættum
sem raenn komast út og þá koma grásleppukarlar, í samtali við DV. riö hefur valdið töluverðu tjóni á hefur valdið töluverðu flárhags- þessu ekki í ár og tökum netin í
þeir til baka með báta fulla af ónýt- Veðurguöimir hafa ekki veriö netum og dæmi em um að menn legu tjóni, hátt í 150 þúsund króna, land. Svo er bara að undirbúa sig
umnetum.Netinfyllastafskeijum hliöhollir grásleppukörlum á suö- missi heilu trossurnar. geri ég ráð fyrir,“ sagöi hann. „En fyrirnæstaárogvonaaðþaðverði
og þangi og rifha í briminu þar til vesturhominu undanfarna daga. Hljóðið í grásleppukörlum var ætli ég reyni ekki að fara út aftur betra,“ sagöi Jakob Ólafsson.
ekkert er eftir. Þetta er mikið tjón Sökum mikils hvassviöris hafa ekki gott Einn viðmælenda DV á eftir. -StB
Heimsbikarmótið:
Falleg skák en Jóhann tapaði
- og Ehlvest komst upp að hlið Kasparovs
Jóhanni Hjartarsyni hefur enn
ekki tekist að hrista af sér slenið á
heimsbikarmótinu í Belfort í
Frakklandi. í gær var sjötta umferö
mótsins tefld og þá tapaði hann
enn, nú fyrir eistlenska stórmeist-.
aranum Jahn Ehlvest. Jóhann hef-
ur aðeins hlotiö 1,5 vinninga og
vermir neðsta sæti.
Ehlvest hefur teflt af miklum
krafti og er nú efstur ásamt heims-
meistaranum Garrí Kasparov. Þeir
hafa hlotið 4,5 vinninga. Spassky
er í 3. sæti með 3,5 v. en Karpov'
hefur 3 v. og biðskák. Næstir koma
Ribli, Short og Hubner með 2,5
vinninga.
Kasparov og Speelman gerðu
jafntefli í 6. umferðinni í gær,
sömuleiðis Jusupov og Hubner,
Nogueiras og Ribh og Spassky og
Short en þar slapp Spassky með
skrekkinn. Skákir Karpovs viö
Andersson, Beljavsky við
Ljubojevic og Sokolov við Timman
fóru í bið og verða tefldar áfram í
dag. Timman þykir hafa gjörtapaða
stöðu, skák Beljavsky við
Ljubojevic er jafnteflisleg en And-
ersson er aö reyna að kreista fram
vinning gegn Karpov.
Sjöunda umferö verður tefld á
morgun og þá hefur Jóhann hvítt
gegn Englendingnum Nigel Short.
Á fimmtudag teflir Jóhann síðan
við heimsmeistarann Kasparov og
hefur svart.
Arftaki Keresar
Eistlendingurinn Jahn Ehlvest
hefur vakið verðskuldaða athygh
fyrir frammistöðu sína til þessa.
Hann er 25 ára gamall og fyrrver-
andi Evrópumeistari unghnga.
Hann beið lægri hlut fyrir Jusupov
í áskorendaeinvígjunum í Saint
John í Kanada fyrr á þessu ári.
Ehlvest er oft nefndur í sömu
andránni og Paul Kéres, þekktasti
skákmeistari Eistlendinga fyrr og
síðar. Mörgum þykir skákstíll
þeirra áþekkur en Keres var þekkt-
ur fyrir að tefla rökrétt en þó af
geysilegu hugarflugi ef svo bar
undir. Skák Ehlvests við Jóhann
er lýsandi dæmi um þetta. „Þetta
var hin skemmtilegasta skák...“
sagöi Jóhann í samtali við DV og
bætti viö: ..eða það hefði mér
а. m.k. fundist ef ég hefði haft
hvítt!“
Hvítt: Jahn Ehlvest
Svart: Jóhann Hjartarson
Opna-afbrigði spænska leiksins.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0-0 Rxe4
Jú, það er rétt. Jóhann er farinn
að herma eftir Kortsnoj og tefhr
Opna-afbrigðið svonefnda af
spænska leiknum. Kortsnoj beitti
því í 1. einvígisskákinni við Jóhann
með afleitum árangri en Jóhann
er þó hvergi banginn.
б. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Rbd2
Rc5 10. c3 Bg4 11. Bc2 Be7 12. Hel
Dd7 13. Rb3 Re6 14. h3 Bh5 15. Bf5
Rcd8 16. Be3 a5 17. Rc5!
Fram að þessu hafa þeir fylgt 28.
einvígisskák Karpovs og Kortsnoj,
í Baguio 1978. Karpov lék 17. Bc5
en komst htt áleiðis. Leikur
Ehlvests er athyghsvert framlag.
17. - Dc6 18. Rd3 Bxf3 19. Dxf3 g6
20. Bg4 h5 21. Bxe6 Rxe6 22. Hadl
Hd8 23. Hd2 O-ð 24. Hedl Rg5?
Slæmur leikur því að riddarinn
er nauðsynlegur á e6 til að skorða
hvíta kóngspeðið. Eftir 24. - Dd7
og síðan c7-c6 hefur svartur aha
möguleika á að jafna taflið.
25. Bxgð Bxg5 26. He2!
Hótar 27. e6! fxe6 28. Dg3 með al-
varlegum afleiðingum.
26. - Hfe8 27. Dg3 Bh6 28. Hdel Kh7?!
29. e6! fB
Svarið við 29. - Hxe6 30. Hxe6
fxe6 yrði annaðhvort 31. Dxg6+
Kxg6 32. Re5 + eða enn sterkara 31.
Re5 De8 32. Rxg6! og ef 32. - Dxg6,
þá 33. Dxc7 + og hrókurinn fehur.
30. Df3 Kg7
I 1
£ tir JÖL
1 1 A 1
£ & £
á A s a £ £
abcdefgh
Skák
Jón L. Árnason
31. Re5!!
Kynngimögnuö mannsfóm sem
byggir meira á innsæi en nákvæm-
um útreikningum. Frelsingi hvíts
á e-línunni verður mjög erfiður við
að eiga og biskup svarts nær ekki
að skerast í leikinn. Fórnina verður
aö þiggja því að eftir 31. - Da6 32.
Rf7 er aht í hers höndum.
31. - fxe5 32. Df7+ Kh8 33. Hxe5!
Hg8 34. e7 Hde8 35. He6 Dd7 36. Hxg6
Hxg6 37. Dxg6 Bg7 38. D£7!
Nákvæmt. Svartur getur sig
hvergi hrært en eftir 38. Dxh5 +
Kg8 væri hann kominn yfir það
versta.
38. - d4 39. cxd4 Bxd4 40. He6 Bg7
41. g3!
Og er Jóhann hafði litið á stöðuna
um stund gafst hann upp því að
hann á ekki svar við tilfærslunni
He4-h4 ásamt máti. Faheg sóknar-
skák af Ehlvests hálfu, sem sjálfur
Keres hefði verið fuhsæmdur af.
-JLÁ