Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
Fréttir
í regngalla á þjóöhátíðardaginn.
DV-mynd JAK
Óveðrið 17. júní:
Svipað veður í
júní nokkrum
sinnum áður
- segir Trausti Jónsson
Hvöss suövestanátt, 8 vindstig og
slagviöri, einkenndu hátíðarhöldin í
tilefni 17. júní í Reykjavík. Hiti var
8-9 stig sem er aðeins kaldara en
eðlilegt er á þessum tíma árs. Að
sögn Trausta Jónssonar veðurfræö-
ings hefur ekki gert slíkt veður í suð-
vestanátt í júní síðan á stríðsárun-
um.
Óveðrið um helgina er þó ekki ein-
stakt á þessum tíma árs að sögn
Trausta og hefur nokkrum sinnum
gert svipað veður um miðjan júní.
Algengara er þó að slagveður, líkt
því sem hijáði höfuðborgarbúa um
síöustu helgi, fylgi norðanátt og er
þetta versta veöur í suðvestanátt síð-
an 1940. 4 júní það ár gerði mikið
óveður. Töluverðar skemmdir fylgdu
í kjölfarið og fauk t.a.m. mikið úr
kartöflugörðum.
Sé litið til lengri tíma og aðrar átt-
ir, auk suðvestanáttarinnar, teknar
með í dæmið er þetta versta veður
síðan 1959. Á þjóðhátíðardaginn það
ár fór vindur í Reykjavík upp í 9
vindstig og jörö var alhvít á Ákur-
eyri. Arin 1975 og 1983 gerði svipað
veður í júní og var um síðustu helgi,
þó var vindur ívið hægari. Svona
óveður er þvi ekki einsdæmi og að
sögn Trausta er slíkt veður í júní á
u.þ.b. 15-20 ára fresti.
-StB
a tjaldstæðinu
Gyifi Kris^ánason, DV, Akureyri:
„Ég get alls ekki skilið hvaöa
hvatir liggja aö baki þessum verkn-
aöi eða aö fólk skuli fá útrás við
að haga sér svona,“ sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, sundlaugarvörður á
Akureyri, í samtah við DV um
skemmdarverk sem unnin voru í
sundlauginni og á tjaldstæðunum
í bænum inn helgina.
Hópur ungs aðkomufólks var á
Akureyri um helgina og gekk mik-
ið á. Vakt er á tjaldstæðinu allan
sólarhringinn, nema milli kl. 6 og
8 á morgnana. Einn morguninn á
þeim tíma fóru unglingamir inn í
gæsluskúr við efra tjaldstæðiö,
brutu þar niöur millivegg og brutu
klósett.
Sundlaugin slapp heldur ekki.
Þangað var fariö og bekkjum, ryk-
sugu og reyndar öllu lauslegu kast-
að 1 laugina. Og ekki var látiö þar
viö sitja. Andapollurinn var heim-
sóttur og steypt þar undan heiöar-
„Ég skil bara alls ekki hvaöa
hvatir liggja að baki svona verkn-
aði,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson.
Minnisvarðinn á Höfn, gerður af
Helga Gíslasyni. DV-mynd Ragnar
Minnisvarði
Landgræðsla í Vestmannaeyjum:
Vikurieifamar koma
Aburöartankar flugvélarinnar fylltir.
DV-mynd Ómar
Óveðrið um helgina:
Óveruleg áhrif
á gróður
Óveðrið, sem gekk yfir suðvestur-
homið um síðustu helgi, hafði óveru-
leg áhrif á gróöur. Samkvæmt upp-
lýsingum DV hefur garðagróður orð-
ið einna verst úti og'nokkuö fokið
af viðkvæmum trjám. En skemmdir
á öðrum gróðri eru ekki teljandi.
Sláttur er vart hafinn á suðvestur-
horninu og hikuðu margir bændur
við þegar óveðrið skall á. Spretta
hefur verið góð og lítur vel út með
slátt. -StB
Júlía Imsland, DV, Hafiu
Á sjómannadaginn á Höfn afhjúp-
aöi Óskar Helgason minnisvarða um
sjómenn og sjósókn Homfirðinga og
Áustfirðinga. Minnisvarðinn, sem
gerður er af Helga Gíslasyni, stendur
á Óslandshrauni. Myndverkiö var
steypt í brons í Englandi og súlur og
stöpull steypt hjá ístaki hf. í Reykja-
vik. Við athöfnina vom tveir aldrað-
ir sjómenn heiöraðir, þeir Rafnkell
Þorleifsson og Þórhndur Magnússon
frá Eskifirði. Sjómannamessa séra
Baldurs Kristjánssonar var kl. 14 og
eftir hana skemmti fólk sér í íþrótta-
húsinu þar sem ekki var veður til
útihátíöahalda.
Akureyri:
Gróðurskemmdir í hvassviðrinu
jarðveg á hreyfingu
Ómar Gaxöarsson, DV, Vestmaiuiaeyjum:
Landgræðsluflugvélin TÚN, hin
nýja vél landgræðslunnar, var sl.
laugardag við áburðardreifingu hér
í Vestmannaeyjum. Einnig var fræi
dreift. Farið var yfir allt svæðiö
sunnan frá Stórhöfða og alveg nyrst
á eyjuna, m.a. inn í Heijólfsdal og
víðar.
Þetta hefur verið nokkuð árviss
viðburður aö fræi og áburði hefur
verið dreift hérna síðan um gos og
ekki tahn vanþörf því að alltaf em
einhveijar gróöurskemmdir. Ein
ástæða þess mun vera vikurleifar
sem enn eru víða í hlíðum og reynd-
ar víðar. Eru þær sífellt á hreyfmgu
og það veröur til þess að jarðvegur
fer af stað.
Dreift var nú 40 tonnum og gekk
það mjög vel og sést árangur eftir
hveija dreifmgu.
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
í hvassviðrinu, sem var á Akur-
eyri alla síðustu viku, urðu nokkrar
gróðurskemmdir í bænum, bæði í
görðum viö hús og einnig í kartöflu-
görðum.
„Það er aðallega um að ræða upp-
gufunarskemmdir," sagði Ánn
Steinar Jóhannsson garðyrkjustjóri
í samtah við DV. „Það er nýútplant-
aður gróður sem er viðkvæmastur
þegar svona veður kemur og ég vil
sérstaklega benda fólki á að renn-
bleyta allan gróður þegar von er á
svona roki.“
Víða í bænum eru runnar skræln-
aðir eftir hvassviðrið sem var mikið
og stóö óvenjulengi. Þá eru dæmi
þess að fokið hafi ofan af í kartöflu-
göröum. Mikið sandrok var niður
Glerárdal. Glerárdalur hefur reynd-
ar verið friðaður og á að hefjast
handa um það strax á næsta ári að
græða þar upp og hefta sandinn svo
hann fjúki ekki yfir bæinn í veðrum
sem þeim er Akureyringar hafa mátt
búa við undanfarið.
í dag mælir Dagfari
Kosið um Síberíulestina
Það var stórgaman að forseta-
sjónvarpinu í gærkvöldi þar sem
þær Sigrún Þorsteinsdóttir og Vig-
dís Finnbogadóttir leiddu ekki
saman hesta sína. Sigrún og henn-
ar hð lögðu sem fyrr áherslu á að
breyta forsetaembættinu frá því að
vera hlutlaust í rifrildismálum yfir
í það að forseti íslands gerðist
svona nokkurs konar útdeilari ill-
inda til þjóðarinnar. Vigdísarmenn
lögðu hins vegar áherslu á að emb-
ætti forseta væri yfir allar deiiur
hafið og þekkt fólk úr öllum flokk-
um var kallað til vitnis um að eng-
ir kæmust með tæmar þar sem
núverandi forseti hefði hælana.
Þingmaður Alþýðubandalagsins
gekk meira að segja svo langt aö
fullyrða að vegna töfrandi fram-
komu núverandi forseta nytu al-
þingismenn okkar betri fyrir-
greiðslu erlendis en ella. Það er út
af fyrir sig þakkarvert ef satt reyn-
ist að þingmenn fái spes þjónustu
á erlendum hótelum vegna þess
eins aö forseti vor hefur staðið sig
með prýði í landkynningarmálum
sem öðru. En við, þessir óbreyttu,
muldrum kannski í barminn að það
komi okkur ekki við hvort íslensk-
ir þingmenn fái svítu á erlendum
hótelum út á Vigdísi eða ekki. Hvað
þá þegar um er að ræða þingmenn
hinna svokölluðu vinnandi stétta.
Sigrún Þorsteinsdóttir býður sig
fram í fyrirfram tapaðri kosningu
en gerir það með skemmtilegri
ósvífni sem án efa skilar henni
nokkur hundruð atkvæðum.
Forsetakosningar á íslandi í ár
vekja litla athygli í heimspressunni
á sama tíma sem íslenskt hvalkjöt
í Finnlandi á leið til Japans um
Rússland verður tilefni til frétta
jafnt í sjónvarpi sem blöðum vítt
og breitt. Svo heppilega vildi til að
Þorsteinn var nýbúinn aö vera í
opinberri heimsókn í Finnlandi
þegar upp komst að hann hefði
haft hvalkjöt í farteskinu og átti
kjötmetið aö fara með Síberíulest-
inni yfir túndrumar áleiðis í ginið
á Japönum. Öll hefði þessi sending
komist til skila áfallalaust ef ekki
vildi svo til að hér uppi á skerinu
er til félag sem heitir Hvalavinafé-
lagið. Félag þetta sér rautt þegar
hvalkjöt er annars vegar og þá
sérstaklega ef það er flutt úr landi.
Forsvarsmaður félagsins lét svo
ummælt í sjónvarpinu að hvalavin-
ir ættu víða vini og þá ekki síst í
opinberum stöðum og innan Hvals
hf. Af þeim sökum gætu þeir gripið
inn í flutninga á dauðum hval hvar
sem væri í veröldinni.
Ekki skal fjölyrt um hvalveiöar
og flutning á hvalkjöti, hvort held-
ur er um steppur Síberíu ellegar
Hamborg, en það er að sjálfsögðu
degmum Ijósara að nú verður for-
seti íslands að taka á honum stóra
sínum og kynna vísindaveiðamar
fyrir alheimi. Þaö er í lagi út af
fyrir sig að bjóða lögmanni Færey-
inga til landsins og gera með hon-
um reisu vítt og breitt enda veiða
Færeyingar grindina af gamalli
veiðimannagrimmd og nefna ekki
vísindi í því sambandi. Úr því sem
komið er verðum við að gera okkur
ljóst að í augum heimspressunnar
er komiö upp hið versta mál. Fyrst
fer Þorsteinn til Finnlands og hval-
kjötið finnst þegar hann er nýbú-
inn aö kveðja Kóvistó og félaga.
Ráðherrann er ekki fyrr kominn
heim en Atla Dam er boðið í hálfop-
inbera heimsókn til að undirstrika
að við stöndum með Færeyingum
í hvalveiðum. Til aö kóróna allt
saman rís svo upp kona í Vest-
mannaeyjum og gerir kröfu til þess
aö verða kosin forseti íslands. Hér
veröur að setja undir lekann þótt
seint sé, hespa forsetakosingarnar
af í hvelh og senda síðan nýkjörinn
forseta í skyndiheimsókn til ná-
lægra heimsálfa til að þagga niður
í grænfriðungum og öðrum ofbeld-
isseggjum sem eru með nefið niðri
í öllu því sem þeim kemur ekki
við. Við getum enn sem fyrr vísaö
til þess að saga okkar og menning
heldur þessari þjóö á floti og nokk-
ur tonn af hval í Síberíulestinni
breyta engu um aö öll erum viö af
konungakyni. Þau orð hafa verið
látin falla í umræðunni um forseta-
kosningamar að embættið yrði
aldrei það sama eftir að kjörinn
forseti varð fyrir mótframboði. Vel
kann svo að vera en við verðum
þó allavega aö halda áttum og gera
okkur grein fyrir því að hvalurinn
verður aö hafa forgang.