Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
7
dv__________________________________________________________Fréttir
Þunka þorsk í fljotandi fískhjalli:
Fá 700 krónur fyrir
kíló af þorskinum
Guðmundur Karvel og Kjartan Ólafsson á fiskhjallinum fljótandi sem stend-
ur úti á Súgandafirðinum. Þeir segjast sjá Súgandafjörðinn i framíðinni
allan i fljótandi fiskhjöllum. DV-mynd GVA
Dalasýsla:
Kosið um sameiningu
átta sveitarfélaga
„Ég sé fyrir mér Súgandaijörðinn
allan þakinn fljótandi fiskhjöllum í
framtíöinni," sagði Guðmundur Kar-
vel Pálsson smábátaeigandi í samtali
við DV. H^nn hefur ásamt Kjartani
Ólafssyni smábátaeiganda smíðað
nokkuð stóran fiskhjall, ca. 40 fer-
metra að flatarmáli, og hyggjast þeir
þurrka þorsk í honum og selja síðar
á Ítalíumarkað.
„Við fáum allt að 700 krónur fyrir
kílóið af fiskinum. Þaö fer allt eftir
stærð þorskins. Þetta þykir herra-
mannsmatur og er mjög eftirsóttur á
Ítalíu,“ sagði Kjartan Olafsson.
Fiskhjallurinn er úti í miðjum Súg-
andafirðinum og á engan sinn líka
hér á landi hvað stærð varðar. Hann
er m.a. hafður úti á firðinum til vam-
ar gegn flugu.
Mikil fyrirhöfn
„Við vorum búnir að velta þessari
hugmynd fyrir okkur í nokkra mán-
uði og létum til skarar skríða nú
vegna þess hve lítið fæst fyrir þorsk-
inn frá smábátunum. Það tók okkur
nokkuð langan tíma að smíða hjall-
inn og kostaði nokkra fyrirhöfn. Til
dæmis eru 9 tunnur lagðar þvert
undir hjallinn til þess að halda hon-
um á floti,“ sagði Guðmundur.
„Við verðum að framkvæma þetta
yfir sumartímann vegna þess að fisk-
urinn má ekki frjósa. Nú þegar erum
við með eitt tonn á pallinum og ætl-
um að reyna að hafa þau um 20 áður
en við seljum fiskinn. En fiskurinn
rýrnar um 72% við þurrkun," sagði
Kjartan.
Þeir félagar kváðust bjartsýnir á
framtíðina og að engin hætta væri á
öðru en að þeir myndu selja fiskinn
til Ítalíu í vetur þó að ekki væru þeir
komnir með samning enn.
Þaö verður að segjast aö óneitan-
lega kemur Súgandafjörðurinn til
meö að líkjast thailensku íbúðar-
hverfi í framtíðinni ef svo fer sem
horfir. -GKr.
Vestfirðir:
Skálavíkurvegur
nánast vegleysa
Siguijón J. Sgurðsaon, DV, fsafirði;
Nokkuö hefúr borið á þvi að
undanfömu aö kvartað hefur
verið yfir veginum frá Bolungar-
vík tíl Skálavíkur og er þaö ekki
að ástæðulausu því vegurinn er
vægast sagt bágborinn. Þaö var
Vegagerö ríkisins, sem sá um við-
hald vegarins þar til Bolungarvík
hlaut kaupstaðarréttindi en frá
þeim tíma hefur viðhald veriö á
kostnað kaupstaðarins.
Aö sögn Óláfs Kristjánssouar,
bæjarstjóra Bolungarvikur, hef-
ur bæjarstjóm samþykkt þriggja
ára áætlun með uppbyggingu
vegarins í huga, þaö er frá Hærri-
krossi á Skálavíkurheiði og niður
í Skálavík. í ár er ætlunin að lag-
færa veginn fyrir 1,3 milljónir
króna og er gert ráð fyrir að
vinna hefjist í næsta mánuöi.
Sá hluti vegarins, sem liggur
úr byggö og upp að Hærrikrossi,
fellur undir framkvæmdir á
Bolafjaili og sjá radarmenn þar
um viðhaldiö.
Enn miðaráCohen
Aödáendum kanadíska tónlist-
armannsins og rithöfmidarins
Leonards Cohen gefst enn tæki-
færi á aö veröa sér úti um miða
á tónleika hans. Tórdeikarnir,
sem era á vegum Listahátíðar
1988, verða haldnir í Laugardals-
höll nk. föstudag. -StB
Á laugardaginn, samhliða forseta-
kosningunum, verður kosið um það
hvort átta sveitarfélög í Dalasýslu
eigi að sameinast.
Hefur nefnd unniö að sameiningar-
málinu í umboði sveitarfélaganna frá—
því í árslok 1986. Niðurstaða nefndar-
innar var að þessi sameiningarleiö
skyldi reynd og því verður kosið um
hana þann 25.
„Það er trú manna að sameiningin
verði byggðarlaginu til styrktar og
Bragi Einarsson í Eden í Hvera-
gerði lét leggja stórum vörubíl fyrir
inngöngudyr Tívolísins í Hverageröi
síðstliðinn sunnudagsmorgun. Eftir
að lögregla hafði veriö kvödd á vett-
vang var vörubíllinn færður. Sól-
mundur Sigurðsson, verktaki í
Hveragerði, sagði við DV að Bragi
hefði leigt af sér bílinn og fyrirskipað
að honum yrði lagt við dyrnar.
„Bíllinn var fjarlægður eftir að lög-
regla kom. Það er ekki rétt að ég
hafi leigt bilinn heldur var hann'til
sölu og ég leyföi eigandanum aö
leggja honum þama. Eg á landið þar
framdráttar. Þá er hægt að sameina
markmiðin og kraftana. Þetta eru lít-
il sveitarfélög með samtals 1013 íbúa.
Menn hafa ekki treyst sér til að
reikna sparnaðinn en vist þykir að
öll stjórnun verður markvissari og
sérhæfðari. Þá verða ekki margir í
einu að sinna sömu verkefnum á
mismunandi vettvangi,“ sagði Mar-
teinn Valdemarsson, sveitarstjóri í
Búðardal, við DV.
sem bílastæði Tívolísins er og gott
betur. Tívolíið stendur að hluta til á
mínu landi eða um 2.900 fermetrum
alls. Þar sem nú eru komnir nýir
rekstraraðilar að Tívolíinu vildi ég
minna á mig og árétta hver á landið.
Ég vil ná samningum við þessa menn
en alls ekki hrekja þá burtu því það
er öllum til góðs að tívolí veröi rekiö
þarna áfram,“ sagði Bragi Einarsson,
eigandi Edens í Hveragerði.
Vörubílnum var lagt um tvo metra
frá inngöngudyrunum og hefti hann
því aðgang fólks aö Tívolíinu.
-sme
Tivolfið í Hveragerði:
Vörubíl lagt við dymar
- færður að beiðni lögreglu
FRÁ MENNTAMALARÁÐUNEYTINU
Lausar stöður við framhaldsskóla
Umsóknarfrestur á áður auglýstum stundakennara-
stöðum við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í rafeinda-
tækni og handmenntum (fatahönnuður eða handa-
vinnukennari) framlengisttil 27. júní næstkomandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist skólameistara Fjölbrautaskólans í Breið-
holti.
Menntamálaráðuneytið
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við MENNTASKÓLANN í KÓPAVOGI er laus til um-
sóknar staða jarðfræðikennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 1.. júlí næstkomandi.
Þá er umsóknarfrestur á áður auglýstum kennara-
stöðum við eftirtalda skóla framlengdur til 27. júní
næstkomandi: við MENNTASKÓLANN VIÐ HAMRA-
HLÍÐ vantar kennara í efnafræði, lögfræði, stærð-
fræði og tölvufræði. Við FRAMHALDSSKÓLANN í
VESTMANNAEYJUM eru lausar kennarastöður í raun-
greinum, dönsku, viðskiptagreinum, stærðfræði,
tölvufræði og eðlisfræði.
Menntamálaráðuneytið
Áteiknaðir flat-
saums- og kross-
saumsdúkar.
Efni 50% hör og
50% bómull.
Stærðir Verð kr.
140x140 cm 1.960,-
140x180 cm 2.700,-
140x21 Ocm 3.100,-
140x230 cm 3.300,-
VERÐ ÁN GARNS.
LUKKUPOKAR
Verðmæti kr. 3.000,- Verð kr.
Englr tveir pokar eins.
1.500,-
POSTSENDUM.
ptannptímbersluntn
€rla
Snorrabraut 44. Simi 14290
Systkinin í Vesturheimi
Stærð 34x42 cm.
Krosssaumur m/áróragarni.
Verð í 10 þráða hör kr. 2.395,-
Verð í aida kr. 2.280,-
í Vesturheimi
Stærð 34x42 cm.
Krosssaumur m/áróragarni.
Verð í 10 þráða hörkr. 2.190,-
Verð í aida kr. 2.085,-
Vesturfararnir
Stærð 34x42 cm.
Krosssaumur m/áróragarni.
Verð í 10 þráða hör kr. 2.250,-
Verð í aida kr. 2.085,-