Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
9
Utiönd
Valery Giscard d’Estaing, fyrrum
forseti Frakklands, tekur leið-
beiningum fréttamanns Sjón-
varps, skömmu fyrir útsendingu.
Símamynd Reuter
Býður
sig fram
til for-
ystu
Valery Giscard d’Estaing, fyrr-
um forseti Frakklands, hyggst nú
hefja að nýju virka þátttöku í
stjórnmálum lands síns og hefur
boðist til þess að leiða samsteypu
miðjuafla gegn minnihlutastjórn
sósíalista.
Giscard, sem ekki hefur veriö
verulega virkur í stjórnmálum
síðan hann tapaöi forsetakosn-
ingum fyrir Mitterrand, núver-
andi forseta, árið 1981, sagöist í
sjónvarpsviðtali í gær vera reiðu-
búinn til þjónustu, ef vilji væri
til þess meðal miðjumanna.
Fordæma
valdarán
Bandarísk stjórnvöld fordæmdu í
gær valdarán það sem herinn á Haiti
framdi á sunnudag og sögðu að bylt-
ing þessi væri stórt skref aftur á bak
í þróun lýðræðis í þessum heims-
hluta.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, Phyllis Oakley, sagöi
í gærkvöld að valdaránið væri alvar-
legt áfall fyrir lýðræðisþróun á Haiti.
Valdaránið á Haiti var framið aö-
faranótt mánudags og var þaö her
landsins, undir forystu Henry Namp-
hy hershöfðingja, sem tók öll völd í
sínar hendur. Með því var bundinn
endi á borgaralega stjórn í landinu
sem haíði aðeins staöið síðan í febrú-
ar þegar Leslie Manigat tók við emb-
Öryggisvörður í Dóminikanska lýðveldinu ber eina af ferðatöskum Leslie
Manigat, sem settur var af sem forseti Haiti um helgina, inn í hótel i Santo
Domingo í gær. Forsetinn er flúinn frá Haiti. Simamynd Reuter
Edouard Piou, frá sendiráði Haiti i Bandaríkjunum, ræðir við fréttamenn á fundi þar sem hann fordæmdi valdarán
hersins á Haiti um helgina. Simamynd Reuter
ætti sem lýðræðislega kjörinn forseti
landsins.
Valdaránið kom nokkuð á óvart
þar sem flestir af helstu yfirmönnum
hers landsins höfðu virst styðja
Manigat forseta í síðustu viku þegar
hann ákvað að víkja Namphy úr
embætti sem yfirmanni hersins.
Henri Namphy hafði verið settur í
stofufangelsi í síðustu viku, en slapp
úr því um helgina. Hann sagðist, í
yfirlýsingu sem hann gaf út í gær,
hafa gripið til þessara aðgerða gegn
Manigat, þar sem forsetinn hefði
ætlað að taka sér einræðisvöld í
hendur. Sagði Namphy meðal annars
að Manigat hefði reynt aö gera her
landsins að viljalausu verkfæri í eig-
in höndum.
Manigat forseti hélt þegar í gær í
útlegð í Dóminikanska lýðveldinu.
Hann er nú staddur í Santo Dom-
ingo, höfuðborg lýöveldisins, þar
sem honum hefur verið veitt pólitískt
hæli. Hefur Manigat fariö þess á leit
við ríkisstjómir annarra ríkja að þau
aðstoði við að bijóta valdaræningj-
ana á bak aftur.
Giscard hvatti í viðtalinu Mit-
terrand forseta til þess að mynda
samsteypustjórn sósíalista,
miðjumanna og íhaldsmanna, til
þess að undirbúa fulla aðild
Frakka aö Evrópumörkuðum
árið 1992.
Miðjuöfl og íhaldssamir á
franska þinginu hafa samtals um
tvö hundruð og fimmtíu þing-
sæti, af fimm hundruð sjötíu og
sjö, og gætu því haft umtalsverð
áhrif á gang mála, ef þeir koma
sér saman um samstarfsgrund-
völl.
SUMARTÍSKAN
FRAKKAR OG DRAGTIR
í fallegum litum.
FRÁ FINNLANDI
Vandaður sumarfatnaður í
frábæru úrvali, stór númer.
Opið á laugardögum
Tlskuve rslLinin
HEE/t
U n D I R P A K I H U
Eiðistorgi 15 — Simi 61 10 16
Frakkar sprengja kjamorkusprengju
Frönsk stjómvöld tilkynntu í verðu Kyrrahafl síðastliölnn þessu svæðl orkusprengjuráþessusvæðiímai-
gær að Frakkar hefðu sprengt litla fimmtudag. Að sögn vísindamanna Aö sögn erabættismanna var um mánuði síöastliðnum. Var önnur
kjaraorkusprengju neðanjarðar erþettanítugastaogáttundakjarn- fimm kílótonna sprengju að ræöa. þeirra um tuttugu kílótonn að
við Mururoa kóralrifiö í sunnan- orkusprengjan sem þeir sprengja á Frakkar sprengdu tvær kjara- stærð en hin um áttatíú.
Meðal efnis:
Ég er þokkalega hugrakkur,
verð aldrei hræddur
Tímarit í toppformi
tryggið ykkur eintak
Skólavörðustíg 30 • Sími 23233
áðu þér í blað í tíma á næsta útsölustað.
Fortíðarfíkn
36 milljónir í verðlaun í golfinu
Hvað er til ráða í umferðinni.
Ásmundur og Sigríður skinka.
Verðlaunakrossgáta, herratískan í sumar,
bridge, golf, bátar, veiðimennska o.fl.