Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. Utlönd Leiðtogafiind inum lokið Fundi leiötoga iðnríkjanna sjö lýkur i Toronto í Kanada í dag. Fundurinn er af mörgum talinn hafa verið ár- angursríkur og virðast leiðtogarnir sjö hafa komist að sameiginlegri nið- urstöðu um aðgerðir til að auðvelda Afríkuríkjum að ráða við skuldir sín- ar, um samskipti austurs og vesturs, um aögerðir gegn hermdarverka- starfsemi og í eiturlyfjamálum. Fjármálaráðherra Kanada, Mic- hael Wilson, sagði fréttamönnum í morgun að þegar lægi fyrir sam- komulag um aðgerðir til að létta skuidabyrði Afríkuríkja. Sagði hann að leiðtogarnir væru orðnir sammála um öll efnisatriði og eftir væri aðeins að koma orðum að því sem þeir hafa komist aö samkomulagi um. James Baker, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að málamiðl- unarsamkomulag hefði orðið um aö heimila lánardrottnum að velja á milli þriggja leiöa til að létta skulda- byrðina. Búist var við í morgun að tilkynn- ing um samkomulag þetta yröi í loka- yfirlýsingu leiötogafundarins. Yfirlýsingar leiðtogafundarins um önnur málefni virðast hins vegar ætla að verða fremur máttlitlar. Þar á meðal má nefna mál svo sem sam- skipti austurs og vesturs, hermdar- verkastarfsemi og eiturlyfjamál. Leiðtogamir virðast ekki hafa reynt að taka á málum þessum af neinni festu. Telja fréttaskýrendur það stafa að mestu af því að þeir vilji ekki setja neitt á oddinn sem vakið gæti ósam- lyndi með þeim á þessum síðasta fundi leiðtoga þessara sjö ríkja sem Ronald Reagan, núverandi Banda- ríkjaforseti, sækir. Leiðtogarnir fögnuðu þó bættri sambúð Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna, þar á meðal fundi þeirra Reag- ans og Mikhails Gorbatsjov, aðalrit- ara sovéska kommúnistaflokksins, í Moskvu í lok síðasta mánaðar. Leiötogarnir lýstu yfir stuðningi við umbótatilraunir Gorbatsjovs innan Sovétríkjanna, en lýstu jafn- framt yfir áhyggjum yfir því að yfir- burðir Varsjárbandalagsins í hefð- bundnum vígbúnaði ógnuðu öryggi Vestur-Evrópu. Leiðtogamir hvöttu til aukinnar alþjóðlegrar samvinnu í aðgeröum gegn eiturlyfiaviðskiptum, einkum hvað varðar eftirlit með fiárhagsleg- um afrakstri þeirra og aðgerðir til að koma í veg fyrir að eiturlyfiasalar geti notað ólöglega fengna peninga í lögmætum viðskiptum. Hvað varöar hermdarverkastarf- semi gerðu leiðtogarnir litið annað en að endurtaka fyrri yfirlýsingar sínar. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, kemur til lokafundar leið- togafundarins í Toronto í gær. Simamynd Reuter Ronald Reagan Bandaríkjaforseti, sem sótti sinn síðasta leiðtogafund af Leiðtogarnir sjö stilltu sér upp til myndatöku í lok fundarins í Toronto. þessu tagi i Toronto, svarar spurningum fréttamanns. Símamynd Reuter Símamynd Reuter Sjö fyrrum hermenn hand- teknir vegna samsæris Filippseyskir hermenn handtóku í gær sjö fyrrverandi hermenn sem sakaðir eru um aðild aö samræri Filippseyingar skoða lík móður Marcosar, fyrrum einræðisherra landsins, en líkið hefur verið til sýnis opinberlega um margra vikna skeið. Sfmamynd Reuter um að taka herskildi ýmsar opin- berar byggingar og útvarpsstöðvar. Að sögn fréttastofu Reuters voru sjömenningamir handteknir í áhlaupi sem herinn gerði snemma í gærdag á einn af samastöðum stuðningsmanna Marcosar, fyrr- um einræðisherra á Filippseyjum, í úthverfi Manila, höfuðborgar landsins. Miðstöð þessi var sam- komustaður manna úr sveit sem kallar sig Svartaskógar-hersveit- ina, en það er hópur uppreisnar- manna úr her landsins, sem styður forsetann fyrrverandi. Að sögn talsmanna hersins er tahö að liðsmenn sveitarinnar hafi átt aðild að árás sem gerö var á herstöð eina þann 11. júní þegar grímuklæddir menn stálu þaðan tuttugu og fimm byssum um leið og þeir gerðu árangurslausa til- raun til aö leysa úr haldi stuðnings- mann Marcosar sem þar situr í fangelsi. Talsmennirnir sögðu aö við leit í höfuðstöðvum sveitarinnar í gær hefðu fundist handsprengjur, nokkurt magn af skotfærum og skjöl sem sýndu áætlanir sveitar- innar um aö taka herskildi út- varpsstöðvar, sjónvarpsstöðvar og opinberar byggingar. Telja stjómvöld að liðsmenn sveitarinnar hafi jafnframt haft uppi áætlanir um að koma Marcosi að nýju tO Filippseyja, en stuðn- ingsmenn hans hafa lagt á það mikla áherslu að hann fái að koma þangaö vegna dauða móður sinnar. Móðirin lést þann 4. maí síðastlið- inn, níutíu og fimm ára að aldri, og hefur lík hennar síðan verið opinberlega til sýnis í Manila. Corazon Aquino, forseti Filipps- eyja, hefur alfarið neitað Marcosi um heimild til að vera viðstaddur útför móðurinnar, þar sem talið er að hann og stuðningsmenn hans myndu reyna að nota það tækifæri til að efna til óeirða, jafnvel bylting- ar gegn ríkjandi stjórn landsins. Stjórnvöld hafa látió bera grjót og sand í hauga á flugvelli á norðan- veröum Filippseyjum, vegna gruns um að stuðningsmenn Marcosar hygðust fljúga með hann þangað. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.