Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. 13 Ronald Reagan Bandarikjaforseti. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands. LurieíDV Gengið hefur verið frá samning- um um birtingarrétt á myndum bandaríska teiknarans og háð- fuglsins LURIE og munu verk hans í framtíðinni birtast á þeim síðum DV sem helgaðar eru erlendum fréttum. Það þótti við hæfi að byija á því að birta flokk teikninga af leið- togafundi iðnríkja sem nú stendur yfir í Toronto í Kanada. Noboru Takeshita, gegnir embætti Brian Mulroney, forsætisráðherra forsætisráðherra Japan. Kanada. Heimur Lurie Kveðjustundin upprunnin. Reagan forseti tekur nú þátt í leiðtogafundi af þessu tagi í hinsta sinn og hinir leiðtogarnir kveðja hann með söknuði. Ciriaco de Mita, forsætisráðherra ítalfu. Francois Mitterrand, forseti Frakk- lands. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands. Sigurboginn klæddur fána Bjami Hiniiksson, DV, Bordeaux; Sigurboginn, sem Napóleon keisari reisti á sínum tíma í París, þarfnast andlitslyftingar og styrkingar því vatn hefur leikið undirstöður bogans illa, auk þess sem mengun hefur smám saman hulið hann þykku drullulagi. Vinnupallar hafa verið reistir allt í kringum Sigurbogann og stingur það auðvitað í augun því þessu helj- arinnar minnismerki var og er ætlað að njóta sín í borginni en allt vinnu- pallavíradraslið gefur boganum ólögulegt útht. Fram undan er svo 14. júlí, þjóðhátíðardagur Frakka, og þar sem þeir eru þjóð útlits og forms var ákveðið að hylja þennan ófogn- uð. í síðustu viku hófust því tveir tugir fjallgöngumanna handa við að klæða bogann í franska fánann. Fyrst þarf að strengja ótal þræöi sem síðan halda uppi dúknum sem er í frönsku fánalitunum: blár, hvítur og rauður. Dúkurinn mun hylja allar fjórar hliðar bogans og verður nú líklega enginn í vafa um hvernig franski fáninn lítur út. Kostnaðinum við viðgerðina á Sig- urboganum er bróðurlega skipt á milh ríkisins og ahsherjar þjóðar- söfnunar. Viðgerð fer nú fram á Sigurboganum i París og til þess að hylja Ijóta vinnu- palla var ákveðið að klæða bogann í franska fánann. simamynd Reuter Utlönd Mótmæla brennslu eitur- efna í Norðursjó Gizur Helgason, DV, Reersnæs: Samband fiskveiðimanna í Dan- mörku hefur mótmælt því við spönsku ríkisstjómina að Vulcanus R, eiturefnaskipið, brenni eitruðum úrgangi í Norðursjó í næstu viku. Dönsk hagsmunafélög eru óánægð yfir þvi að Vulcanus II notar dönsk fiskveiðisvæði, sem eru um 200 sjó- mílur suðvestur af Esbjerg, til brennslu á spönskum eiturefnum. Síðastliðiö haust stöðvuðu um 50 fískveiðimenn skipið er það ætlaði að brenna eiturefnum á þessum slóð- um og eru enn í gangi málaferli vegna þessa atburðar. Breskir fiskveiðimenn frá Grimsby hafa sagt að þeir æth sér að stöðva Vulcanus n ef skipverjar ætli sér að brenna eitruðum úrgangsefnum í Noröursjó. Þrír yfirlæknar látnir víkja Gizur Helgasan, DV, Reersnæs: Nú er tahð fuhsannað að þrír hátt- settir embættismenn innan danska heilbrigðiskerfisins hafi leynt því aö blóðgjafi hafi verið eyðnismitaður. Alhr höfðu þeir lýst því yfir árið 1985 að ekkert blóð væri í umferð sem ekki hefði verið rannsakað gaum- gæfilega með eyðni í huga. Hér er um að ræða yfirlækni í heil- brigðisstjórninni, forstjóra ríkisspít- alans og yfirlækni við Statens ser- umsinstitut en hann hefur nú þegar veriö rekinn og hinir tveir leystir frá störfum á meðan máhð er í rann- sókn. Ákveðið hefur verið aö höföa mál á hendur þeim öllum. Það var Elsebeth Kock Petersen heilbrigöisráðherra sem brá skurö- arhnífnum eins og færasti skurð- læknir síðasthðinn fóstudag og skar djúpan skurð í danska heilbrigðis- kerflð. Hún hlýtur að hafa komist að þeirri niðurstöðu að hér þyrfti að bregðast skjótt við eftir að hún hafði fengið í hendurnar 469 blaösíðna hryllingsskýrslu frá hæstaréttar- dómara um máhð. Skýrslan sýnir svo ekki verður um vhlst að embættismenn og lyflafyrir- tæki hafa í mörg ár unnið þveröfugt við öll fyrirmæh um meöferð á blóði með eyðni í huga. Eitt hroðalegasta dæmið úr skýrsl- unni er um 37 ára gamlan mann sem gefur 4 sinnum blóð á árunum 1983 og 1984. Þegar kallaö er á hann 1985 þá upplýsir hann aö hann sé hommi. Tekin er prufa á sjúkrahúsinu sem sýnir að hann sé eyðnismitaður og kominn með forstigseinkenni. Blóð úr þessum manni var síöan í hálft annaö ár gefið mörgum sjúklingum en einnig sent Statens serumsinstit- ut. Sjúkhngarnir, sem fengu blóð umrædds aðila, smituðust af eyðni. Ahir áðurnefndir embættismenn vissu um þetta vítaverða kæruleysi og höfðu áður verið krafðir sagna af yfirvöldum en gáfu þá shk svör að ekkert var hægt aö sanna. Það var fyrst þegar hæstarréttardómari fékk þá fyrirskipun að komast th botns í málinu að sannleikurinn kom smátt og smátt í ljós.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.