Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. 17 Standast stórfyrir- tækin ekki álagið? Gísli Sigurðsson skrifar: Mér verður hugsað til þess nú, þeg- ar samdráttur hér innanlands er orð- inn áþreifanlegur, bæði vegna utan- aðkomandi áhrifa og svo vegna markvissra aðgerða ríkisstjórnar- innar til að minnka þenslu, hvort hann bitni aðallega á einhverri sér- stakri atvinnugrein eða tegund fyrir- tækja eða hvort hann verki á allan atvinnurekstur sem hér er stundað- uf. Ef svo er, að allur atvinnurekstur er jafn viðkvæmur fyrir samdrættin- um og áhrifum þeim sem minnkandi þensla veldur, þá eru auðvitað blikur á lofti og vart annað að gera en fyrir- skipa eitthvert þjóðarátak til að mæta þessum samdrætti og ein- skoröa fjármagnsflæði og aðstoð hins opinbera við sérstakar útvaldar at- vinugreinar, sem sannanlegt er að við komumst ekki af án. Ef hins veg- ar samdrátturinn og minnkandi þensla bitnar einungis á sérstökum greinum reksturs eða fyrirtækjum, þá gegnir allt öðru máli og þarf ekki eins haröra og einskprðaðra aðgerða hins opinbera við. - Ég er einn þeirra sem held að hið síðara eigi við hér á landi og marka það af ýmsum nýliðn- um uppákomum og fréttum, einmitt frá nokkrum stórfyrirtækjum. Fréttir af meira en lítið brösóttum rekstri hins umfangsmikla Sam- bands ísl. samvinnufélaga er eitt dæmið og ef rétt reynist, að það sé í hópi þeirra fyrirtækja sem óskar eft- ir erlendri lánafyrirgreiðslu sem nemur um einum milljarði króna til að endurskipuleggja starfsemi sína og rétta við reksturinn, þá er þessi sami rekstur ekki þess viröi að hann sé réttur við. Annað dæmi um stórfyrirtæki sem virðist eiga í miklum og óyfirstígan- legum erfiðleikum eru Flugleiðir hf. Þar er bæði við innanhússvandamál að etja, að því er virðist, og eru hinar umfangsmiklu tilfærslur starfs- manna í stjómunarstöðum þar sönn- un þess - og utanaðkomandi aðstæö- ur, svo sem.tekjurýmun af starfsem- inni, lífæðinni sjálfri, fluginu, og óánægju viðskiptavina með stopula og óvissa ferðatíðni. - Uppsagnir fólks í stómm stíl viröast þar í sjón- máli og munu sennilega, ef af verð- ur, valda miklum vandamálum og mikilli óvissu. Ullar- og fataiðnaður virðist einnig vera viðkvæmur fyrir samdrættin- um, einkum eftir að framleiöslu- greinar voru sameinaðar, og ekki lofar fiskeldið góðu. Þaö er því ástæða til að ætla að stórfyrirtæki hér á landi séu einkanlega viðkvæm, jafnvel fyrir minnstu efnahagsbreyt- ingum og samrani tveggja eða fleiri fyrirtækja í eitt stórt hafi ekki gefið þeim þann styrk og getu til að stand- ast áföll sem vænst var, jaifnvel dreg- ið til muna úr þeim styrk. Mynd: Ástæða er til að ætla að stór- fyrirtæki hér séu einkanlega viö- kvæm fyrir jafnvel minnstu efna- hagsbreytingum. - Brösóttur rekstur hjá Sambandinu og óviss framtíð hjá Flugleiðum, segir bréfritari. Sigurður Óli Eyþórsson skrifar: Aðfaranótt laugardagsins 11. júní sl. skeði hábölvaður atburður, að því er mig varðar. Svo vill til að ég á bifreiö af gerðinni Mazda 929, fjögurra dyra, dökkbláa meö „hardtop". Hún stóð umrædda nótt fyrir utan Snorrabraut 73. Nema hvað? Einhver „NÖRD“ kemur og tekur upp á þeim and- styggðar ósið að brölta upp á fjór- hjóla apparatið og tekur að dansa og hoppa eins og óður væri. Halda mætti að hann hafi verið í trékloss- um eða einhverju þaðan af harð- ara, vegna þess að lakkiö á bílnum er stórskemmt og „boddýið" stór- lega dældað. Ef einhver hefur orðið verknað- arins var, er hann beðinn um að hringja í síma 11528 á ókristilegum tíma eða láta lögregluna vita. MATVÖRUVERSLUN til sölu af sérstökum ástæð- um á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Góð velta. 1 boði eru góð kjör. Allar nánari upplýsingar í síma 626644. MOSFELLSBÆR Einbýlishús í byggingu. Timburhús með bílskúr, byggt á staðnum. Húsið stendur á einum besta stað í Mosfellsbæ. Afhendist fullfrágengið að utan. Verð 5,2 millj. Allar upplýsingar í síma 626644. ÍSLANDSMÓTIÐ Æ A HEIMAVELLI VÍKINGS V/STJÖRNUGRÓF I FOSSVOGI I KVÖLD KL. 20.30 Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og greiða með korti. Þú gefur okkur upp: Nafn þitt og heimilisfang, slma, nafnnúmer og gildistlma og númer greiðslukorts. • Hámark kortáúttektar Islma kr. 4ÍÖ00.- SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 a DV fór á dögunum og kannaði úrval sumarblóma og trjáplántna í Hvera- gerði. Við litum einnig á pottaplönt- ur og kynntum okkur verð. Gróðursetning trjáplantna er hent- ugust á vorin. Þó er óhætt að gróð- ursetja fram eftir sumri. Á morgun verður leiðbeint um gróðursetningu trjáplantna, notkun á áburði, millibil plantna í görðum, hve djúpt skal moka niður o.s.frv. Einnig verða helstu trjátegundir kynntar. Grænmetisverð helst enn stöðugt þrátt fyrir að framboð nálgist hámark um þessar mundir. Þó er eins og ýmsar smásöluverslanir séu farnar að slá af álagningu þannig að verð lækkartil neytandans. í Lífsstíl á morgun verður sagt frá grænmetisverði í stórmörkuðum og reyndist það ansi misjafnt. Allt um verð á íslensku grænmeti í Lífsstíl á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.