Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Síða 30
30
Lífsstíll
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
s
__________________________________________________PV
Sundkennsla fyrir fullorðna:
Æ fleiri segja vatns-
hræðslunni stríð á hendur
Þaö eru ekki allir íslendingar syndir
þótt sumir álíti aö svo sé. Og eftir
því sem árin færast yfir virðist verða
erfiðara fyrir fólk að ráða bót á þessu
kunnáttuleysi. Margir skammast sín
fyrir að kunna ekki að synda og vilja
ekki láta sjá sig í almenningssund-
laugum innan um flugsynt fólk.
Fyrir nokkrum árum þótti það líka
heldur hjákátlegt að kunna ekki að
synda. Það var jafnvel gert grín aö
fólki sem skreið ofan í sundlaugina
og hélt sér við bakkann en þorði ekki
að sleppa honum. Sem betur fer hef-
ur orðið breyting á almenningsálit-
inu í þessum efnum sem öðrum.
Losnað um hina ósyndu
Um leið hefur losnað örlítið um
hina ósyndu og menn hafa ekki verið
eins hræddir og áður við að viður-
kenna staðreyndirnar og reyna aö
ráða bót á kunnáttuleysinu. Þeir hafa
sem sé sagt vatnshræðslunni stríð á
hendur.
Eitt af því sem hefur ýtt undir fólk
að drífa sig á sundnámskeið er það
hversu algengt það er orðið að ís-
lendingar skreppi til útlanda í sum-
^rfríinu. Hversu margir ósyndir hafa
ekki lent í vandræðum þegar þeir
liggja við sundlaugarbarfninn í fjöru-
tiu stiga hita en þora ekki ofan í laug
til að kæla sig þar sem þeir skamm-
ast sín fyrir að kunna ekki sund-
tökin?
Nú þykir það sjálfsagt að fullorðiö Hjá mörgum er það aðalatriðið að þora að sleppa bakkanum. Kútar, korkur og „uppblásin armbönd" hjálpa
fólk fari í skóla, endurmennti sig eða mörgum og auka öryggiskennd þeirra. DV-mynd GVA
nemi ný fræði. Því ekki að læra aö
synda?
Allirásama báti
En það er kannski erfitt fyrir mið-
aldra fólk að fara í sundtíma þar sem
meirihluti nemenda er börn og ungl-
ingar. Þess vegna er það meiri hvatn-
ing fyrir hina fullorðnu að skella sér
á námskeið þar sem allir þátttakend-
urnir eru á sama báti og þeir sjálfir.
Sundnámskeið fyrir fullorðna eru
því mjög þörf og snar þáttur í að
gera þjóðina synda.
Nú er bara um að gera fyrir alla
þá, sem hefur dreymt um það að
læra að synda en alltaf haldið að
þeir gætu það ekki eða ekki þorað
að viðurkenna það opinberlega að
þeir væru ósyndir, að drífa sig á
sundnámskeið. Og hugsið ykkur! í
næsta sumarfríi getið þið svo skellt
ykkur umhugsunarlaust út í næstu
sundiaug og synt eins og hver annar.
Og kannski glott viö tönn í laumi að
þeim sem enn þora ekki að sleppa
bakkanum en líta ílóttalega í kring-
um sig!
-ATA
Leióinlegt að geta ekki
notað laugamar í fríum
„Mig hefur alltaf langai
að synda,“ sagði Einar Sigurðsson,
segir Einar Sigurðsson sem dreif sig á sundnámskeið á fullorðinsaldri
ingað tíl að læra eini karlmaöurinn í fríðum hópi Námskeiðið, sem er á vegum Reykja- við Barónsstíg. taksleysi se
nemenda í ftillorðinsflokki í sundi. víkurborgar, er haldið í Sundhölllnni „Ég held að það sé eitthvað fram-
sem olli þvi hvað ég lét
verða langa biö á þvi að ég drifi mig
i sundiö. Ég lærði aldrei sund sem
strákur. Eftir að ég fullorðnaðist
fannst mér svo kjánalegt aö standa
frammi fýrir öllum og viðurkenna
að ég kynni ekki sund. Ég hélt mig
því fiarri sundstöðum.
Hefur farfð I taugarnar á mér
Það hefur þó oft fariö í taugarnar
á mér aö geta ekki notíö vatnsins.
Ekki síst á ferðalögum erlendís. Að
liggja kannski heilan dag í sólbaði
við hótelsundlaugina og þora aldrei
ofan í til að kæla sig!
Fyrir utan þetta eru sundhreyfing-
arnar afskaplega heilsusamlegar og
ég ætía í framtíöinni aö stunda sund
mér til heilsubótar. Þótt ég búist ekki
við því aö vinna nein stórkostleg af-
rek í vatninu," sagöi Einar og hló.
Aðstöðuleysi
Gerda Jónsdóttir hélt því fram að
hún væri elst á námskeiöinu, 65 ára
gömul. Félagar hennar í vatninu
voru henni rojög þakklátir fyrir yfir-
lýsinguna og sögöu að þetta hlyti að
vera rétt hjá Gerdu.
„Ég er hollensk ogþegar ég var ung