Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. 31 Lífsstm Elsti nemandinn 94 ára gamall - segir Edda Guðgeirsdóttir sem kennir fullorðnum sundtökin „Elsti nemandinn, sem ég hef kennt á þessum námskeiðum, var 94 ára. Hann kom ekki til að læra að synda. Hann var flugsyndur en langaði til að læra skriðsund," sagði Edda Guð- geirsdóttir sundkennari, en hún er leiðbeinandi á sundnámskeiðum Reykjavíkurborgar. DV leit við á námskeiði fyrir fullorðna í síðustu viku. Þar voru staddir um 13 nem- endur, flestir á miðjum aldri eða það- an af eldri. t Hlátrasköll og gleðihljóð „Fólkið hefur óskaplega gaman af þessum námskeiöum. Hér má gjam- an heyra hlátrasköll og gleðihljóð þótt fólkið sé kannski komiö af ungl- ingsárunum. Fólkið kemur hingað vegna þess að það langar til að læra að synda. Það ætlar sér kannski ekki að keppa í sundi eða vinna einhver afrek. En þaö vill geta bjargað sér í vatninu. Fjöldinn allur af fullorðnu fólki er ósyndur. Margir áttu þess aldrei kost í æsku að læra undirstöðuatriöin, ýmist vegna aðstöðuleysis, heilsu- brests eða vatnshræðslu. Það tekur ævinlega nokkurn tíma að venja vatnshrætt fólk við laugina. Ég þarf að vera með fólkinu í smástund á meðan það er að átta sig, en svo kem- ur þetta. Skemmtilegt að kenna fullorðnum Þaö er aö vísu alltaf tímafrekara að kenna fullorönu fólki en börnum, en þaö er í leiðinni skemmtilegt, jafn- vel skemmtilegra en að kenna börn- um. Fullorðna fólkiö er svo jákvætt og þakklátt og svo er þaö hingað komið til að ná árangri. Áhuginn hjá fólkinu er svo mikill og gleðin smitandi þegar vel gengur. Það gefur kennaranum kannski meira en flest annað,“ sagði Edda. Edda sagði að flestir sem kæmu á fullorðinsnámskeiðin væru alger- stúlka i Hollandi var engin aöstaða til að læra sund þar sem ég bjó. Það þótti heldur ekki eins sjálfsagt þar og hér að vera syndur." Fleiri tóku undir að það hefði upp- haflega verið aöstöðuleysi um aö kenna aö þeir lærðu ekki að synda í æsku. Eftir að fólk fullorðnast gefast svo færri tækifæri til að læra sund- tökin. Allir voru þó sammála um að sundnámskeið fyrir fulloröna væru svo sannarlega af hinu góða. Nem- endumir sögðu allir að þeir heföu aldrei drifiö sig á námskeið þar sem meirihlutinn væri böm og ungt fólk. „Maöur leggur ekki i svona lagað nema allir sem eru með manni á námskeiðinu séu á sama báti,“ varö einhverjum að oröi. Kemurfrá Stykkishólmi tíl að læra sund! Steinþóra Jónasdóttir var sammála þessu. Hún er frá Stykkishólmi en kom alla leið til Reykjavíkur til þess eins aö komast á sundnámskeiö fyrir fúllorðna. „Það er ekki um nein slík nám- skeiö að ræða heima á Stykkishólmi. Ef ég vildi læra að synda varð ég því að fara til Reykjavíkur til að komast á námskeiö,'1 sagði Steinþóra. Það var auöheyrt á öllum nemend- unum í Sundhöllinni að þegar fólk kemst yfir vatnshræðsluna er sund skemmtileg fþrótt. Nemendurnir kölluöust á bakkanna á milli og voru að metast og gantast. Hlátur og skemmtílegar yfirlýsingar voru tíðir viðburðir en þegar Edda Guögeirs- dóttir kennari tók til máls, þögnuöu allir og fylgdust vel meö. Eftir að sundkennslunni lauk fóru svo allir í heitu pottana og ræddu sundkennsluna, svo og önnur merki- leg málefiú. Nýr hópur sundáhuga- manna er greiniiega að koma upp á yfirborðið. -ATA Gerda Jónsdóttir (með gleraugu og hettu) sagðist vera elsta manneskj- an á námskeiðinu, 65 ára. Ýmsir aðrir á námskeiðinu voru henni þakkl- átir fyrir yfirlýsinguna. Margrét Betuelsdóttir er fremst á myndinni. DV-mynd GVA Það var greinilega skemmtilegt á námskeiðinu. Allir orðnir léttir og kátir eftir að þeir höfðu komist að þvi að það er ekki eins erfitt og marglr halda að fljóta I vatninu. Margrét Betúelsdóttir hlœr hér hátt og fnnilega og Stetnþóra Jónasdóttir (með hettuna) tekur undír. DV-mynd GVA Edda Guðgeirsdóttir sundkennari leiöbeinir sundfólki framtíðarinnar, ungu og öldnu, í Sundhöllinni við Barónsstíg. DV-mynd GVA lega ósyndir. Hún þyrfti að kenna fólkinu öll undirstöðuatriðin og nem- endurnir væru flestir með kúta og kork. í lok námskeiðsins, sem tekur sextán tíma og kostar nítján hundruð krónur, væru nánast allir búnir að sleppa kútunum og famir að synda af sjálfsdáðum og fyrirhafnarlaust. Gömlu kennsluaðferðirnar viðsjárverðar „Fyrir utan vatnshræðslu og aö- stöðuleysi má í mörgum tilfellum kenna gömlu sundkennsluaðferðun- um um það hve margir fullorðnir eru ósyndir. Það tíðkaðist til dæmis í gamla daga að henda vatnshræddum krökkum út í laugina og halda þeim frá bakkanum með prikum. Þetta dugði í sumum tilfellum. Neyðin kennir naktri konu að spinna og margir lærðu að fljóta af illri nauð- syn, bara til þess að forðast það að „Anda aó-og blása. ‘ Edda leióbeinir nemendum sinum í fullorðinsfiokki. DV-mynd GVA sökkva. Ýmsir fengu hins vegar ímu- gust á vatni og sundi, urðu logandi hræddir og forðuðust með öllu móti aö koma nálægt sundlaugum. Þessar kennsluaðferðir hafa sem betur fer verið aflagðar fyrir löngu. Það er frekar reynt að venja fólk, börn jafnt sem fullorðna, við vatnið og því kennt að slaka á. Þegar því marki er náð er fyrst hægt að kenna sundtökin fyrir alvöru," sagði Edda Guðgeirsdóttir. -ATA FASTEIGNIN STAFHOLT 2 í Grindavík er til sölu. Um er að ræða tvílyft, mikið endurnýjað íbúðarhús, 8 herbergi, á landi sem er ca 9000 m2. Óvenjulega rúm og góð greiðslukjör, til greina koma ýmiss konar skipti. Upplýsingar eru gefnar á Lögmannsstofu Kristjáns Stefánssonar hdl., sími 16412/27765. Auk þess eru upplýsingar gefnar eftir kl. 18.00 í síma 15870. Nauðungaruppboð sem auglýst var 136., 140. og 145. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á spildu úr landi Hvítárbakka II, Andakílshreppi, þinglesinni eign Jóns Friðriks Jóns- sonar, fer fram á skrifstofu embættisins miðvikudaginn 22. júní nk. kl. 14.30. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var 136., 140. og 145. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á jörð- inni Skipanesi, Leirár- og Melahreppi, þinglesinni eign Jóns Sigurðssonar og Svandísar Stefánsdóttur, fer fram að kröfu Jóns Sveinssonar hdl. á skrifstofu embættisins miðvikudaginn 22. júní nk. kl. 15.00. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara, sem auglýst var í 136., 140. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs- ins 1987 á jörðinni Sólbyrgi, Reykholtsdalshreppi, þinglesinni eign Bem- hards Jóhannessonar, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands og Stofnlánadeildar landbúnaðarins á skrifstofu embættisins miðvikudagínn 22. júní nk. kl. 14.00. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 136., 140. og 145. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á Kveld- úlfsgötu 22, 2.h.h„ þinglesinni eign db. Hönnu Marinósdóttur, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á skrifstofu embættisins miðvikudag- inn 22. júní nk. kh 11.15. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var 136., 140. og 145. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á Máva- kletti 3, þinglesinni eign Torfa Karlssonar, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands og Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á skrifstofu embættis- ins miðvikudaginn 22. júní nk. kl. 11.30. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýsiu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.