Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Page 35
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
35
Fólk í fréttum
Hilmar Jónsson
Hilmar Jónsson stórtemplar hefur
veriö í fréttum DV en hann var
endurkjörinn stórtemplar á stór-
stúkuþingi í Keflavík 2.-3. júní.
Hilmar Guðlaugur er fæddur 12.
maí 1932 í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð
í Norður-Múlasýslu. Hann var í
námi í Menntaskólanum í Reykja-
vík 1948-1951 en varð að hætta
námi vegna veikinda og var í námi
í Sorbonneháskóla í París 1954-
1955. Hilmar var bókavörður við
Borgarbókasafn Rvíkur 1956-1958
og hefur verið yfirbókavörður við
Bæjar- og héraðsbókasafnið í
Keflavík frá 1958. Hann var í hand-
knattleiksráði Keflavíkur 1958-
1966, lengst af sem formaöur og var
formaður fulltrúaráðs Alþýðu-
flokks Keflavíkur 1976-1974. Hilm-
ar var í barnavemdarnefnd Kefla-
víkur 1970-1975 og í byggöasafns-
nefnd Keflavíkur 1970-1978. Hann
var stórgæslumaður Unglingaregl-
unnar 1970-1980 og hefur verið
formaður áfengisvamarráðs Kefla-
víkur frá 1975. Hilmar hefur veriö
í æskulýðsráði Keflavíkur frá 1977
og var formaður Leikfélags Kefla-
víkur 1977-1980 og frá 1987. Hann
hefur verið stórtemplar frá 1980.
Hilmar hefur samið þessi rit:
Nýjar hugvekjur fyrir kristna
menn og kommúnista, 1955, Ris-
mál, 1964, ísraelsmenn og íslend-
ingar, 1965, Foringjar falla, 1967,
Kannski verður þú..., 1970, Fólk
án fata, 1973, Hundabyltingin, 1976,
Undirheimar rísa, 1977, og Útkall í
klúbbinn, leikrit, 1979. Hann var
meðritstjóri Keflavíkurtíðinda
1958-1959, ritstjóri Rismáls, 1968,
Röðuls, málgagns Alþýðuflokksins
í Keflavík 1970-1974, Jólablaðs
Unglingareglunnar 1974-1980 og í
ritnefnd Bókasafnsins um tíma.
Hilmar kvæntist 5. september
1964 Elísabetu Guðrúnu Jensdótt-
ur, f. 3. mars 1945, kennara. For-
eldrar hennar eru Jens Sæmunds-
son, vélstjóri í Hvammi í Höfnum,
og kona hans, Ásdís Jóhannesdótt-
ir símstöðvarstjóri. Börn Hilmars
og Elísbetar eru Jens, f. 20. mars
1965, lögregluþjónn í Keflavík,
sambýliskona hans er Geröur Sig-
urðardóttir, Jón Rúnar, f. 23. febrú-
ar 1966, leiðbeinandi í Keflavík, og
Guðlaug Jóna, f. 26. september
1969, fjölbrautaskólanemi. Bróðir
Hilmars er Sigurður Guðni, f. 21.
mars 1940, lyfsali í Austurbæj-
arapóteki í Rvík, kvæntur Fjólu
Guðleifsdóttur hjúkrunarkonu.
Foreldrar Hilmars voru Jón Guð-
jónsson, b. og verkamaöur í Kefla-
vík, og kona hans, Jóna Guðrún
Þorkelína Guðlaugsdóttir verka-
kona. Jón var sonur Guðjóns, b. í
Fögruhlíö, Einarssonar, b. á Set-
bergi í Fellum, Sveinssonar, b. í
Götu í Fellum, bróður Þórunnar,
móður Páls Ólafssonar skálds.
Sveinn var sonur Einars, b. í Götu
Sigurðssonar. Móðir Einars var
Bóthildur Magnúsdóttir, systir
Stefáns, ættfóöur Sandfellsættar-
innar, langafa Áma, afa Helga Selj-
ans og Árna Helgasonar í Stykkis- _
hólmi. Stefán var einnig langafi
Bóelar, langömmu Geirs Hall-
Hilmar Jónsson.
grímssonar. Þá var Stefán langafi
Bóasar, langafa Harðar Einarsson-
ar, framkvæmdastjóra Fijálsrar
flölmiðlunar, og Kjartans Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins.
Móðir Jóns var Sigríður Jóns-
dóttir, b. í Fögruhlíð, Þóröarsonar.
Móðir Jóns var Sigríður Sigfús-
dóttir, systir Kristínar, langömmu
Guðrúnar, ömmu Sigmundar Sig-
fússonar, læknis á Akureyri, og
langömmu Péturs Einarssonar
flugmálastjóra.
Jóna var dóttir Guðlaugs, báta-
og húsasmiðs, í Keflavík, Eyjólfs-
sonar, b. á Efri-Steinsmýri í Með-
allandi, Eiríkssonar, bróður, sam-
feðra, Ámýjar, ömmu Sigurbjam-
ar Einarssonar biskups og Aðal-
heiðar Bjamfreðsdóttur alþingis-
manns. Móðir Eyjólfs var Guðrún
Ásgrímsdóttir, b. á Oddum í Með-
allandi, Ámasonar, b. í Botnum,
Eiríkssonar, bróöur Sverris, lan-
gafa Jóhannesar Kjarvals.
Móðir Jónu var Málhildur Þor-
kelsdóttir, b. á Harðangri á Vatns-
leysuströnd, Jónssonar, b. á
Strympu á Rangárvöllum, Þorkels-
sonar. Móðir Málhildar var Guð-
rún, systir Guðríöar, langömmu
Oddnýjar, móður Jónatans Þór-
mundssonar prófessors. Guðrún
var dóttir Egils, b. á Þórustöðum á
Vatnsleysuströnd, Guðmundsson-
ar, prests á Kálfatjöm, bróður Þor-
valdar, langafa Finnboga, fóður
Vigdísar forseta. Guðmundur var
sonur Böðvars, prests í Guttorms-
haga, Högnasonar „prestafóður",
prests á Breiöabólstaö í Fljótshlíð,
Sigurðssonar, afa Tómasar Sæ-
mundssonar Fjölnismanns, lang-
afa Helga, fóður Ragnhildar al-
þingismanns og Tómasar prófess-
ors.
Afmæli
Til hamingju með daginn Axel Koidtsen Biyde
Axel Kordtsen Bryde.
Einar Jóhannesson
75 ára________________________
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Tjarnar-
braut 5, Hafnarfirði, er sjötíu og
flmm ára í dag.
70 ára
Sveinn Bergmann Bjarnason, Nes-
vegi 41, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Katrín Ásgeirsdóttir, Bogaslóð 4,
Höfn, er sjötug í dag.
Sigrún Hólmkelsdóttir, Laugarnes-
vegi 64, Reykjavík, er sjötug í dag.
Hún tekur á móti gestum í Félags-
heimili rafvirkja, Háaleitisbraut 68,
eftir kl. 20 í kvöld.
60 ára
Steinunn Jónsdóttir, Grundarstíg
6, Flateyri, er sextug í dag.
Hallbjörg Gunnarsdóttir, Heið-
vangi 12, Hafnarfirði, er sextug í
dag.
Ingibjörg Adolfsdóttir, Bogahlið 17,
Reykjavík, er sextug í dag.
Gunnar Valdimarsson, Mávahlíð
16, Reykjavík, er sextugur í dag.
50 ára_______________________
Trausti Gunnarsson, Eskihlíð 12b,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Skúli Jónsson, Selalæk 4, Rangár-
völlum, er fimmtugur í dag.
Jón Þór Ólafsson, Efstasundi 73,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Sævar Helgason, Hjallabraut 35,
Hafnarfirði, er fimmtugur í dag.
Valgeir Guðmundsson, Birki-
hrauni 2, Skútustööum, er fertugur
í dag.
Sigvaldi Jónsson, Reykjavík, er fer-
tugur í dag.
Guðrún Þorsteinsdóttir, Vallholti
41, Selfossi, er fertug í dag.
Steinunn Sigurðardóttir, Skúla-
götu 52, 3. hæð t.v., Reykjavik, er
fertug í dag. Hún tekur á móti gest-
um síðdegis.
Sigurður Óli Sigurðsson, Garðabæ,
Grindavík, er fertugur í dag.
Örn Þorláksson, Dunhaga 23,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Karl Viðar, Gránufélagsgötu 41,
Akureyri, er fertugur í dag.
Lísa Jónsdóttir, Keilusíðu 9a, Ak-
ureyri, er fertug í dag.
Jóhann Tr. Aðalsteinsson, Álf-
heimum 38, er fertugur i dag.
Axel Kordtsen Bryde, Ljósalandi
10, Reykjavík, er fertugur í dag.
Axel fæddist í Hafnarfiröi og ólst
þar upp. Hann innritaðist í Loft-
skeytaskólann og útskrifaðist þaö-
an 1967. Sama ár hóf Axel nám í
rafeindavirkjun hjá Pósti og síma
og lauk því námi þrem árum
seinna. Næstu flögur árin vann
Axel hjá Pósti og síma, en 1974 hóf
hann störf hjá Flugleiðum þar sem
hann starfar enn.
Axel kvæntist, 18.7.1970, Victoriu
Einar Jóhannesson, Aðalstræti
3, Akureyri, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Einar fæddist á Burstarfelli í
Vopnafirði, sonur hjónanna Jó-
hannesar Jóhannessonar, frá
Syðri-Vík í Vopnafirði, og Geirdís-
ar Árnadóttur, frá Breiðumýri í
Þingeyjarsýslu. Foreldrar Einars
settu upp bú á Skálanesi í Vopna-
firði en fluttu síðan til Húsavíkur.
Sem ungur maður vann Einar
ýmis störf víöa um land. Hann ók
leigubíl í Reykjavík, reri frá
Grindavík og var með hótelrekstur
í Hafnarfirði. En stærstan hluta af
starfsævi sinni vann Einar hjá
Ásmundsson, f. 5.7. 1947. Böm
þeirra eru Ása Lára, f. 28.2. 1972;
Kristín Elva, f. 7.9.1979; Páll Vign-
ir, f. 2.6. 1982; Ingibjörg Petra, f.
8.10. 1984.
Systkini Axels eru: Bent, Leif og
Inga Anna Lísa.
Faðir Axels var Claus Pétur
Kordtsen Bryde, var mjólkurbú-
stjóri hjá mjólkurbúi Flóamanna,
lést 1985, og móðir hans er Karin
Elísabet.
Síldarverksmiðjum ríkisins á
Húsavík. Hann tók þátt í að byggja
síldarbræðsluna á Húsavík sem tók
til starfa 1938. Einar vann hjá Síld-
arverksmiðjum ríkisins til ársins
1969, síöast sem verksmiðjustjóri.
Einar er einn af stofnendum Al-
þýðuflokksfélags Húsavíkur og var
formaöur þess um skeið. Um árabil
starfaði Einar í ýmsum nefndum á
vegum bæjarfélagsins og var á
tímabili varamaður í bæjarstjórn.
Einar er áhugamaður um leiklist
og var í nokkur ár formaður Leik-
félags Húsavíkur. Hann vann að
undirbúningi að stofnun leikfé-
lagasambands íslands sem stofnað
var um miðja öldina.
Einar á eina systur, Jóhönnu Sig-
urbjörgu, sem búsett er í Reykja-
vík.
Einar kvæntist 1935 Sólveigu
Þorsteinsdóttur, f. 30.7.1915, og átti
með henni 7 börn. Þau eru: Sædís
Birna, dó tveggja ára; Einar Georg,
kennari; Þórdís, húsmóðir; Þor-
steinn, rafvirki; Jóhannes, bfl-
stjóri; Baldur, vélstjóri; Þórhallur,
trésmiður. Hanna Sigríður Karis-
dóttir er sflúpdóttir Einars. Einar
og Sólveig shtu samvistum árið
1969.
40 ára
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn
og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð
og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi tveimur
dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Andlát
Heiðbjört Bjömsdöttir
Nýlátin er Heiðbjört Björnsdótt-
nr, Sjavarborg í Skagafirði. Heið-
björt fæddist 6. janúar 1893 á
Veðramóti og ólst þar upp. Hún
giftist 7. desember 1920 Árna Daní-
elssyni, f. 5. ágúst 1884, d. 2. ágúst
1965, b. og kaupmanni á Sjávarborg
í Skagafirði. Foreldrar hans voru
Daniel Andrésson, b. síðast á Ing-
veldarstöðum á Reykjaströnd í
Skagafirði, og kona hans, Hlíf Jóns-
dóttir.
Heiöbjört og Ámi bjuggu um
fimm ára skeið í Blaine í Banda-
ríkjunum, þar sem Árni vann við
skógarhögg og verslun. Árið 1925
fluttust Heiðbjört og Ámi til ís-
lands og bjuggu fyrst í Reykjavík
en frá 1927 á Sjávarborg.
Böm Heiöbjartar og Árna eru
Hlíf Ragnheiður, f. 19. desember
1921, gift Kristmundi Bjamasyni,
safnverði og fræðimanni.á Sjávar-
borg og eiga þau þrjár dætur; Þor-
steinn, f. 20. september 1923, d. 24.
mars 1965, læknir í Neskaupstað,
kvæntist Önnu Jóhannsdóttur og
eignaðist meö henni flögur börn en
hafði áður eignast eitt bam; Har-
aldur, f. 6. mars 1925, skrifstofu-
maður á Sauðárkróki, kvæntur
Margréti Truttmann og eiga þau
flórar dætur.
Systkini Heiðbjartar voru Stefán,
b. á Sjávarborg; Jón, skólastjóri á
Sauðárkróki; Sigurður Árni, fram-
færslufulltrúi í Rvík; Þorbjöm, b. á
Geitaskarði; Guðrún Steinunn, gift
Sveinbirni Jónssyni, húsasmíða-
meistara í Rvík; Björg, gift Bjarna
Sigurðssyni, b. í Vigur; Guðmund-
ur, b. í Tungu í Gönguskörðum;
Sigurlaug, kennari í Rvík; Harald-
ur, kennari og leikari í Rvík.
Foreldrar Heiðbjartar vom Björn
Jónsson, b. og dbrm. á Veðramóti,
og kona hans, Þorbjörg Stefáns-
dóttir. Björn var sonur Jóns, b. í
Háagerði á Skagaströnd, Jónsson-
ar og konu hans, Guöríðar Ólafs-
dóttur, systur Steinunnar, móður
Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara.
Þorbjörg var dóttir Stefáns, b. á
Heiði í Gönguskörðum, Stefáns-
sonar og konu hans, Guðrúnar Sig-
urðardóttur, b. og skálds á Heiði,
Guðmundssonar. Bræður Þor-
bjargar voru Sigurður, prestur og
alþingismaöur í Vigur, faðir Bjarna
í Vigri, manns Bjargar Bjömsdótt-
ur og foreldrar Sigurðar sendi-
herra og Sigurlaugar, mennta-
skólakennara og fyrrv. alþingis-
manns, og Stefán, skólameistari á
Akureyri, faðir Valtýs ritstjóra.