Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. Jarðarfarir Pétur Thomsen ljósmyndari lést 17. júní. Útfór hans fer fram frá Foss- vogskirkju mánudaginn 27. júní kl. 13.30. Kristín Anna Kress, fædd Thorodd- - sen, verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni í Reykjavík miðvikudaginn 22. júní kl. 15. Dagbjört Hallgrímsdóttir, Vallar- braut 2, Seltjarnarnesi, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 22. júní kl. 10.30. Minningarathöfn um Guðnýju Helgu fer fram í Dómkirkjunni fimmtudag- inn 23. júní og hefst kl. 15. Friðrik Baldur Sigurbjörnsson stór- kaupmaður, Reynimel 27, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtu- daginn 23. júní kl. 13.30. Sigurður Svavar Gíslason fram- reiðslumaður verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23. júní kl. 13.30. Jarð- sett verður í Fossvogskirkjugarði. Monika S. Helgadóttir, Merkigili, verður jarðsungin að Reykjum mið- vikudaginn 22. júní kl. 17. Húskveðja verður á Merkigili kl. 11.30. Jarðarfor önnu Jónu Jónsdóttur, sem dó af slysforum þann 11. júní, fer fram frá Dómkirkjunni fostudag- inn 24. júní kl. 13.30. Jarðarför Margrétar Ólafsdóttur, áður Seljavegi 13, fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík miðvikudag- inn 22. júni kl. 13.30. Helga S. Jónsdóttir lést 11. júni. Hún fæddist á Akureyri 16. október 1895. ' Foreldrar hennar voru hjónin Jón Jónsson og Jóhanna Gísladóttir. Helga fluttist til Siglufjarðar skömmu eftir 1920 og bjó þar í rúma hálfa öld. Hún giftist Helga Skafta Stefánssyni en hann lést árið 1979. Þau hjón eignuðust fimm börn og eru fjögur á lífi. Útför Helgu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Stefanía Vilhjálmsdóttir lést 8. júní. Hún var fædd að Hánefsstöðum 1. janúar 1912. Foreldrar hennar voru hjónin Vilhjálmur Árnason og Björg ; Sigurðardóttir. Stefanía starfaði alla tíð við bókhalds- og skrifstofustörf, bæði heima og erlendis, síðast hjá Ohufélaginu hf., þar til hún hætti vegna aldurs. Útfór hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Ólafur Pálsson, fyrrum verkstjóri í Grænmetisverslun landbúnaðarins, lést 11. júní sl. Hann fæddist 19. des- ember 1909, sonur hjónanna Páls Jónssonar og Sólrúnar Guðmunds- dóttur. Kona hans er Þóra Stefáns- dóttir og áttu þau þrjú böm. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15. Tapaðfundið Bangsi er týndur Collie-hundur týndist fóstudaginn 17. júni sl. á heiðinni fyrir ofan Miðdal í Laugardal. Hann er merktur, með ól. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir hans eða vita hvar hann er niðurkominn _ vinsamlegast hringi í síma 22997 eða á * kvöldin í síma 32631. Aridlát Hrafnhildur Finnsdóttir, Tjamar- lundi 50, Akureyri, lést að heimili sínu þann 15. júní. Sveinn S. Einarsson verkfræðingur er látinn. Auðbjörg Káradóttir, Ósabakka, Skeiðum, andaðist 18. júni á Sjúkra- húsi Suöurlands. Jakob Halldórsson andaðist í Landspítalanum 17. júní. Bjarni Guðmundsson, Grænuhlíð 20, Reykjavík, lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 16. júní. Eðvarð Guðmundsson, Frostaskjóh 103, Reykjavík, lést 17. júní. Jón Jakob Jónsson, Hjaltabakka 26, Reykjavík, andaðist í Borgarspital- anum að morgni 17. júní. Björn Bjarnason frá Skorrastað lést í Borgarsjúkrahúsinu að morgni 17. júní. Árni Ágúst Einarsson, Hverfisgötu 42, Reykjavík, andaðist á heimih sínu 18. júní sl. Dr. Pálmi Möller, prófessor við tann- læknaháskólann í Birmingham, Alabama, lést þann 19. júní. Þórey Jóhannesdóttir frá Grímsey, Elliheimilinu Skjaldarvík, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. júní. Sigurður Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðsstjóri á Þórshöfn, lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur laugardaginn 18. júní. Útivistarferðir Þriðjudagur 21. júní kl. 20: Sólstöðuferð í Viðey. Brottfor frá Kom- hlöðunni, Sundahöfn, kl. 20. Leiðsögu- maður Lýður Bjömsson sagnfræðingur. Kynnist útivistarparadís Reykvíkinga og fræðist um merka sögu eyjarinnar. Kaffi- veitingar á staönum. Verð 350 kr., frítt f. böm yngri en 12 ára með foreldrum sínum. Fimmtudagur 23. júní kl. 20: Jónsmessunæturganga Útivistar 1988. Hörðuvellir - Hestagjá - Þingvellir. Létt og skemmtileg gönguleið. Hluti gömlu þjóðleiðarinnar til Þingvalla. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Fjölmennið. Sjáumst. Dagsferðir Ferðafélagsins: Þriðjudagur 21. júní kl. 20: Esja-Ker- hólakambur/sólstöðuferð. Verð kr. 500. Fimmtudagur 23. júní kl. 20: Jóns- messuganga. Valin verður létt og skemmtileg gönguleið. Laugardagurinn 25. júní Kl. 8: Gönguferð á Heklu. Verð kr. 1.200. Kl. 13: Viðey. Brottfor frá Sundahöfn. Verð kr. 250. Sunnudagur 26. júní. Kl. 13: Straumsel - Óttarsstaðasel. Verð kr. 600. Tónleikar Kór frá Finnlandi með tónleika Kórinn Seitakouru frá Rovaniemi í Finn- landi heldur tvenna tónleika hér á landi. Fyrri tónleikamir verða í Grindavíkur- kirkju í kvöld kl. 20.30 og þeir seinni í Norræna húsinu 22. júni kl. 20.30. Fimmtudaginn 23. júní er svo „Lapp- landsdagur" í Norræna húsinu kl. 17. Tilkyimiiigar Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag kl. 14. Félagsvist. Sýningar Sýning á skúlptúrum í Nýlistasafninu framlengd Sýning á skúlptúrverkum Donalds Judd, Richards Long og Kristjáns Guðmunds- sonar í NýUstasafninu, sem ljúka átti um sl. helgi, hefur verið framlengd tíl 26. júní. Safnið er opið virka daga kl. 16-18 og 14-18 um helgar. Athugasemd Öh mál eiga sér tvær hhðar og einnig það þegar hljómsveitin Strax var enn að hljóðprufa í Laug- ardalshölhnni að kvöldi 16. júní er hleypa átti tónleikagestum í húsið. Sökum bilana í hljóðkerfi borgar- innar gat hljóðprufa Strax-manna ekki hafist fyrr en eftir að hljóm- leikamir áttu að hefjast. Hljóm- sveitin notaði lágmarkstíma til að hljóðprufa eða 15 mínútur. Áður höföu hðsmenn hennar beðið í Laugardalshöll í fjórar klukku- stundir. Af þessum sökum hófust hljóm- leikamir mun seinna en auglýst hafði verið. Er sú staðreynd lá fyr- ir settu The Christians þá kröfu fram aö fá að komast á sviö á fyrir- fram áætluðum tíma. Það þýddi að Strax-mönnum var plantað aftast að þeim forspurðum. Klukkan var að ganga þrjú um nóttina þegar Christians höföu lokið sér af og hirt sitt hafurtask og var þá Strax gert að standa við gerða samninga um að leika. Strætisvagnar, sem flytja áttu stóran hluta yngri tón- leikagesta, höföu þá þegar lagt af stað eftir um klukkustundarbið. Á laugardagskvöld endurtók sig svipað munstur hjá hljómsveitinni Strax er hún átti að leika í veitinga- húsinu Lækjartungh. Þá sló raf- magninu út og magnari hússins brann yfir svo að aflýsa varð tón- leikunum. ÁT Meiming Tónsmíðaævintýif Það sem helst lifir í minningunni frá listahátíðum sl. 10 ára eða svo em einn eða tveir strengjakvartett- ar. Enn er leikur Vínarkvartettsins á síðustu hátíð í fersku minni, þó það nú væri. Hann lék Alban Berg op. 3 og Dauðann og stúlkuna ótrú- lega fallega. Og nú heyrðum við Guameri-kvartettinn leika Mozart, Janacek og Beethoven. Þessi kvartett er frægur um allar jarðir af hljómplötum og tónleika- haldi. Haim haföi aldrei komið hér og kannski kemur hann aldrei aft- ur. En leikur hans mun seint gleymast. Þó var hann alls ekki fljótur að ná á manni tökunum. Einhvem veginn fóra fyrsti og ann- ar þáttur G-dúr kvartettsins eftir Mozart ekki vel í mann, þeir náðu ekki fluginu. En svo kom dramað í hæga þættinum og fúgatosnilldin í lokin eins og skyndileg himna- sending og eftir það var allt á hreinu. í kvartett nr. 1 eftir tékk- neska stórmeistarann Janacek léku Guameriamir af ótrúlegri snilld. Samspilið var eins leikandi létt og best getur orðið í kvartett- Guarneri-strengjakvartettinn. Listahátið Leifur Þórarinsson spili, þar sem öll hljóðfærin fjögur hlafa sinn ákveðna persónuleika. En hápunkturinn var auðvitað B- dúr kvartett Beethovens með stóra fúgunni. Þetta mikla tónsmíðaæv- intýri gaf kvartettinum tækifæri til að sýna áheyrendum í tvo heim- ana, með grafalvöraþrangnum hú- mor og glæsilegum sigurvilja í full- komnum leik. Troðfullt Gamla bíó stóð á önd- inni yfir þessum ósköpum því þetta var næstum of stór skammtur af magnaðri list - næstum og þó ekki nóg því mikið vill meira. LÞ Slappur endir Sinfóníutónleikar undir stjóm Gilberts Levin Debra Vanderlinde kólóratúr- sópran. Lokatónleikar Listahátíðar voru sinfóníutónleikar undir stjórn Gil- berts Levin. Þessi heldur harðhenti stjómandi er gamall kunningi ís- lenskra sinfóníugesta og hefur oft gert hér talsverða lukku, síðast í apríl sl. Með Levin var kólóratúr- sópran, Debra Vanderlinde frá Ameríku, mikill akróbat í slaufum og triUum og sérlega góður stílisti. Hún söng Exultate jubilate kantöt- una eftir Mozart af miklum innileik og meðfæddu músíkaliteti og gerði aríu Ófelíu úr Hamlet Thomas Listahátíð Leifur Þórarinsson glæsileg skil. Ekki getur maður hins vegar sagt að flutningur Júpí- ersinfóníunnar hafi snert mann djúpt undir stjórn Levins. Tempóin vora býsna hröð og krefjandi en undarlega ójöfn. Músíkin eins og náði ekki andanum fyrir heldur óhstrænum hamagangi sem virk- aði meira en Utið fráhrindandi. Kannski var sinfónian ekki nógu mikið æfö? Það má vel vera að mestur tíminn hafi farið í Jóns- messunæturdraum Mendlesohns sem var lokanúmerið og var leik- inn með talsverðum glæsibrag. En það verður að segjast eins og er að þetta var heldur slappur endir á annars nokkuð viðburðaríkri Listahátíð. LÞ Listapopp a þjóðhátíðardaginn: Léttkryddaðir tónlistarskyndibitar Hátt á fjórða þúsund manna vora viðstaddir popptónleika á vegum Listahátíðar í Laugardalshöll á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Fjórar hljómsveitir komu fram, mönnum til mismikillar skemmtunar, Bjami Arason og Búningamir, Geiri Sæm og HunangstungUð, Strax og svo aðalatriði kvöldsins, The Blow Monkeys. Ef tekið er mið af meöalaldri tón- leikagesta í Laugardalshöllinni þá var greinilegt að þær hljómsveitir, sem þama vora saman komnar, höföuöu Utið til fólks yfir átján ára. Á köflum var samkoman meira í líkingu við dýragarð en venjulega tónleika vegna hástemmdra hrópa og hjarðkenndra hreyfinga æstra unglinga sem margir hveijir höföu greinilega gætt sér heldur ótæpi- lega á lystisemdum Bakkusar. Þegar ég mætti haföi Bjama Ara- son lokið leik sínum og hef ég því fátt um hann að segja. Geiri Sæm og hljómsveit hans, Hunangstung- Uð, vora næst á svið. Geiri haföi sér einnig til aðstoðar stöUumar Evu og Emu sem áttu að sjá um bakraddir. Svo virðist sem hljóð- blöndunarmaðurinn hafi tekið þetta hlutverk þeirra fullalvarlega því það heyrðist nánast ekkert í þeim. Einnig var hljóðblöndun á hljóðfæraleikarana afar léleg og Listáhátíð Þorsteinn Högni Gunnarsson má segja að staða Geira Sæm og Hunangstunglsins sem upphitun- arsveitar hafi komið fram í þessari slöppu hljóðblöndun. Ekki get ég séð annað en að tónUstin, sem þau fluttu, hafi heldur dugað til annars en aö skipa þeim á varamanna- bekkinn þetta kvöld. Hálflitlaus popptónUst sem sjaldan steig úr gryfiu meðalmennskunnar. Hvað textagerð Geira Sæm varðar þá geta textar á borð við: „Ég finn að nú er hasarinn hafinn“ varla talist mjög spennandi sem uppistaðan í texta heils lags. Óstaðfestar fregnir herma að Strax sé í þann veginn að ná samn- ingi við hfiómplötufyrirtæki í Bret- landi, og er engin ástæða til annars en að óska hljómsveitinni til ham- ingju með það. Væntanlegur frami Strax á erlendri grund hefur sjálf- sagt valdið því aö hún kom fram sem hálfgerðir tónhstarlegir kleyf- hugar þetta kvöld. Hins vegar fluttu hún fáguð lög sem eiga sjálf- sagt eftir aö biðla til enskra hlust- enda og einnig lög sem heföu betur sómt sér í fari Stuðmanna sem ís- lensk dansleikjatónUst. Þetta ó- samræmi í tóniistinni varð til þess að veikja heildina og dró úr áhrifa- mætti hennar. Að öðra leyti var tæknilega hUðin hjá Strax öllu skárri en hjá fyrri sveit, hljóð- blöndun var þokkaleg og fag- mennska allsráðandi í öUum hljóð- færaleik. The Blow Monkeys hefur átt tölu- verðum vinsældum að fagna víðs vegar um lönd með röð vinsælla laga og þetta kvöld sviku þeir ekki þá gesti sem höföu komið til að hlýða á þessi lög. TónUst Dr. Ro- bert og félaga er auðveldast að lýsa sem hvítri soultónUst með popp- formerkjum sem rennur afskap- lega ljúflega niður, en skilur að sama skapi heldur Utið eftir. Flutn- ingur hlj ómsveitarinnar var enda afiur í þeim stíl, bæði var söngur Dr. Robert og hljóðfæraleikur sveitarinnar afslappaður og yfir- vegaður. Svo virtist sem áhorfend- ur skemmtu sér vel og gripu menn óspart til dansspora í takt við tón- listina. Hveijum augum sem menn kunna að Uta þá tegund popptón- listar sem The Blow Monkeys fluttu þá uppfyUtu þeir nákvæm- lega þær væntingar sem gerðar vora til þeirra þetta kvöld. í mínum huga ágætis- léttvigtarpopp á Lista- hátíö 1988.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.