Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 40
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið f hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá I síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjörn - Auglýsingar - Áskrift - Oreifirtg: Slmi 27022
Spár Þjóðhagsstofnunar:
Meiri ftávik en
ættu að vera
- segir Þórður Friðjónsson
„Það er alveg rétt að það eru þarna
talsvert mikil frávik og meiri en ættu
að þurfa að vera. Ég vonast til þess
að með nýjum aðferðum verði hægt
að minnka þessa kerfisbundnu
skekkju," sagði Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, um nið-
urstöður tveggja hagfræðinga Seðla-
bankans um spár stofnunarinnar.
„Þessi athugun virðist benda til
þess að hægt sé að bæta spár Þjóð-
hagsstofnunar. En ég vil vekja at-
hygli á því að spá um þróun efna-
hagsmála hér er óvenju erfið vegna
sveiflna í efnahagslífinu og ef til vill
minni stöðugleika í efnahagsstjórn
en víðast annars staðar. Einnig má
iefna að unnið er mikið við að byggja
upp nauðsynlegan gagnagrunn.
Þetta hefur leitt til þess að minni
vinna hefur farið í að endurbæta
sjálfa áætlanagerðina. Það er engum
blöðum um það að fletta að frá tækni-
legu sjónarmiði hefur áætlanagerðin
staðið talsvert að baki því sem gerist
í nálægum löndum. Nú að undan-
fómu hefur verið unnið að gagngerri
endurskoðun á spágerðinni með það
fyrir augum að taka upp þá tækni
sem best hefur gefist í nágrannalönd-
um okkar,“ sagði Þórður.
-gse
- sjá úttektina bls. 6
Lánskjaravísítalan:
80 prósentverðbólga
Lánskjaravísitalan fyrir júlí hækk-
ar xun 5 prósent. Sé þessi mánaða-
hækkun lánskjaravisitölunnar um-
reiknuð til eins árs þýðir þetta 80
prósent verðbólgu. Síðustu þrjá mán-
uði hefur lánskjaravísitalan hækkað
um 37,5 prósent.
Lánskjaravísitalan er sett saman
úr framfærsluvísitölu og bygginga-
vísitölu. Framfærsluvísitalan hækk-
m- um 3,4 prósent en byggingavísitaT-
fem um hvorki meira né minna en 8,4
prósent.
Hækkun framfærsluvísitölunnar
er til komin vegna gengisfeliingar-
innar síðustu og hækkunar launa.
-JGH
LOKI
Næst verður að senda
hvalkjötið með kafbátum!
------------
Heimildir til eriendra lán;
Fiskvmnslan
t
vill milljarð
„Það er alveg fjóst að þarna em
verulegar fjárhæðir frá fiskvinnsl-
unni og miklu mun hærri en einn
milljarður. En maður hefur heyrt
að ýmis fyrirtæki utan hennar hafi
einnig sótt um. Við lítum svo á að
þessar heimildir í febrúar og síðan
aftur nú hafi verið veittar vegna
bágrar stöðu fiskvinnslunnar. Við
munum því fylgjast með þvi að
þessir fjármunir skili sér til okk-
ar,“ sagði Amar Sigmundsson,
formaður Sarabands fiskvinnslu-
stöðvanna.
í DV i gær var greint frá því að
umsóknir um heimildir til erlendr-
ar lántöku væra nú komnar á sjö-
unda milljarð í viðskiptaráðuneyt-
inu. En hver er ástæðan fyrir þess-
ari miklu eftirsókn?
„Það gat hver sem er sagt sér það
að sótt yrði um heimildir til lána
að hærri fjárhæð en einn raiHjarð-
ur. Það var engin spuming um það
að þessi fjárhæð þurfti að vera
miklum mun hærri. Stjómvöld
ákváðu að heimila lánfyrir þennan
eina milljarð og það er alveg Ijóst
að það er ekki hægt aö gera ýkja
mikið fyrir hann. Það er því öruggt
að þessar heimildir bera ekki mik-
inn árangur. Fiskvinnslan er okkar
stóriðja og hún þarf á miklu fjár-
magni að halda,“ sagði Amar.
-gse
Kæra þrjár
nauðganir
Þrjár konur kærðu nauðganir til
Rannsóknarlögreglu á sunnudags-
morguninn. Alls eru fjórir menn
kærðir. Tveir þeirra hafa verið úr-
skuröaðir í allt að 30 daga gæsluvarð-
hald.
Fyrsta kæran barst um klukkan
fimm á sunnudagsmorgun. Konan,
sem kærði, sagði nauðgunina hafa
átt sér stað í heimahúsi í Hafnarfirði
fyrr um nóttina. Um fjórum tímum
síðar kærði önnur kona nauögun.
Hún segir að sér hafi verið nauðgað
í fbúð í Hafnarfirði. Tveir menn, ann-
ar um þrítugt og hinn um fertugt,
hafa verið handteknir vegna þessara
mála. Þeir hafa báðir verið úrskurð-
aðir í allt að 30 daga gæsluvarðhald.
Þriðja konan, sem kærði nauðgun,
segir að tveir varnarliðsmenn hafi
þvingað sig til samræðis. Hún þáði
bílfar með þeim frá veitingahúsi í
Reykjavík. Hún segir annan mann-
inn hafa komið fram vilja sínum.
Ekki hefur þótt ástæða til gæsluvarð-
halds yfir varnarhðsmönnunum.
MáUð er í rannsókn hjá RLR. -sme
Grásleppuveiði hefur verið dræm það sem af er vertíð á suðvest-
urhorninu. Óveðrið sem gekk yfir Suður- og Vesturland síðustu
viku bætti gráu ofan á svart, hamlaði bvl að margir trillukarlar
gætu vitjað neta og eyðilagði mörg net. Sigbór Ólafsson frá Hlíð-
arenda í Ölfusi gat fyrst vitjað neta á sunnudag eftir hátt í viku-
tíma. Að sögn Sigbórs, sem lagði 15 trossur, eru öll hans net lík-
iega ónýt. Sjá nánar á bls. 2. DV-mynd GVA
Finnska ríkisstjómin:
Hvalkjötið
endursent
„Tekin hefur verið ákvörðun um
að senda gámana aftur til íslands.
Við lítum svo á að með því sé máhnu
lokið af hálfu finnskra stjórnvalda,"
sagði Bárlund, umhverílsmálaráð-
herra Finnlands, í samtali við DV í
morgun.
Finnska ríkisstjórnin hélt fund um
máhð í morgun og var yfirlýsing gef-
in út eftir fundinn'. Grænfriðungar
hafa þó ekki yfirgefiö hafnarsvæðið.
Þeir gera kröfu um að hvalkjötinu
verði eytt í Finnlandi.
Finnsk yfirvöld hafa látið aðgerðir
grænfriðunga afskiptalausar. Hópur
þeirra hlekkjaði sig við gáma með
hvalkjöti, sem komið höfðu með
Dettifossi til Helsinki, í gærmorgun.
Strax og aðgerðirnar urðu heyrin-
kunnar gaf Bárlund umhverfismála-
ráðherra út þá yfirlýsingu að upp-
skipun á hvalkjöti á finnsku yfir-
ráðasvæði bryti í bága við bann viö
innflutningi á afurðum á dýrum sem
em í útrýmingarhættu.
-gse/hlh
Hlutafé í Glitni hf.:
Iðnaðarbankinn
á forkaupsrétt
„Sala á eignaraðild Nevi hefur ekk-
ert komið til tals en okkur er tjáð að
hún sé ólíkleg. Við höfum enn ekkert
heyrt frá Bergenbanka eijda em okk-
ar samskipti við fyrirtækiö Nevi. Ef
hins vegar kemur til þess að Nevi
vilji selja þessi hlutabréf í Ghtni hf.
þá eru ákvæði í samþykktum félags-
ins um að shkt skuli gerast í samráði
við aöra hluthafa og þeir eigi þá for-
kaupsréttinn,“ sagði Valur Valsson,
stjómarformaður Ghtnis hf. og
bankastjóri Iðnaðarbankans.
Veðrið á morgun:
Rigning
á Austur-
landi
Á morgun fer lægðarmiðja
austur yfir landið og vindátt
verður því breytileg. Rigning
verður austanlands og við norð-
urströndina, en síðdegis styttir
upp. Á Suðvestur- og Vesturlandi
verður skúraveður. Hiti verður á
bihnu 5 til 12 stig.
Eins og fram kom í DV í gær hefur
Bergenbanki keypt norska íjármögn-
unarfyrirtækið Nevi sem ræður yfir
tæplega 2/3 af hlutafé Glitnis hf.
Sagði talsmaður bankans að komið
hefði th tals að selja eignaraðhdina
að Ghtni og fleiri slíkum fyrirtækjum
utan Noregs. Bein hlutaíjáreign Nevi
er 49% af hlutafé Ghtnis sem myndi
nema tæpum 49 milljónum króna aö
nafnvirði ef htiö er til eiginfjárstöðu
fyrirtækisins.
„Það sem fram hefur komið er ekk-
ert nema jákvætt fyrir Nevi. Kaup
Bergenbanka á Nevi eru frekar til
að styrkja Ghtni og því er þetta já-
kvæð þróun. Bergenbanki er einn
sterkasti banki Noregs og shkt gefur
fyrirtækinu aukið tækifæri á mark-
aðnum,“ sagði Valur.
-JFJ