Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1988, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988.
21
Berg-
þóru-
konur
borða
nesti
Konur úr Oddfellowstúkunni
Berþóru voru nýlega á ferð í
Borgarfirði og skoðuðu Borgar-
nes og sveitirnar í kring. Eftir
hádegi voru þær staddar í mjólk-
urbúinu í Borgarfirði og var boð-
ið að fá sér kaffisopa í sal búsins,
snæða nesti sitt og gæða sér á
grautum framleiddum í Borgar-
firði. Um 60 konur voru í ferðinni
og voru þær hinar ánægðustu
með viðurgjörninginn.
-JFJ/DV-mynd JAK
Þvotta-
dagar á
nesinu
Á ferð um sunnanvert Snæ-
fellsnes, milli Búða og Arnar-
stapa, blasti einkennileg sjón við
blaðamanni. í mýri við veginn
lágu ótal fótur og mjólkurkassar
í hinum ýmsu litum og „böðuðu"
sig þar í rigningunni. Tjáði stúlka
á bænum blaðamanni nefnilega
aö verið væri að þvo, eða réttara
sagt láta þvo, ílátin og veðurguð-
irnir látnir um ómakið. Það má
þá kenna þeim um, eins og svo
margt, ef seint gengur að þvo.
Hitt var blaðamanni óskiljanlegt
að tíma skyldi eytt í það að henda
ílátunum út í mýrina og hirða
þau aftur „hrein“, í stað þess að
fá röska manneskju til að ljúka
þvottinum á „einni komma
fimm“ og koma þessari augna-
prýði fyrir á viðeigandi stað.
-hlh
Geirabakarí
gengur vel
„Þetta gengur bara vel hjá okkur
og hefur verið nóg að gera frá því
viö opnuðum. Fólk er mjög ánægt
með þá þjónustu sem við veitum,
enda finnst því kærkomið að geta
keypt sitt brauð um helgar en það
hefur ekki verið hægt hér i Borgar-
nesi,“ sagði Annabella Albertsdóttir.
Annabella afgreiðir í Geirabakaríi
í Borgarnesi, en hún er eiginkona
Sigurgeirs Erlendssonar, bakara og
eiganda bakarísins sem opnað var í
samkeppni við kaupfélagið.
Bakaríið var opnað 30. apríl og þar
getur fólk bæði tekið brauðin með
sér en einnig er hægt að fá sér sæti
og drekka kaffi og fá sér með því.
Annabella sagði að bakaríið væri vel
staðsett og þangað væru farnir að
koma ferðamenn, en auk heima-
manna ættu þau viðskipti við Eddu-
hótelin og staði í kring. -JFJ
toyota
RÝMINGARSALA!
Til aö rýma fyrir árgerðum 1989 veröa
Corolla GT-i bílarnir seldir á júníveröi meö
100.000 kr. afslætti.
KAUPBÆTIR!
Þeir sem koma fyrstir fá kaupbæti því þeir geta
valiö sér álfelgur að verðmæti 35.000 kr. eða
sóllúgu að verömæti 45.000 kr.
Tilboð þetta gildir til 15. júlí.
Tilboösverö kr. 749.000.-*
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
TOYOTA
* Verð án afhendingarkostnaðar