Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988. Fréttir Er Viðeyjarklaustur fúndið? Pipa Skúia fógeta? Nokkrar krítarpipur fundust f Viðey og meðal annars þessi sem er fagurlega útskorin. Tóbaksreykingar hófust á íslandi á 17. öld og kritarpípur voru í notkun fram á 19. öld. Tilgátan um eiganda pípunn- ar er ekki á ábyrgð fornleifafræðings. Perlur i lófa. Þessar glerperlur hafa einhvern timann skreytt heföarmeyj- ar í Viðey. Myndir Gunnar Þetta þumalstóra verkfæri er líklega „still“ sem notaður var til að skrifa með í vaxbækur. Letrið var skrifað með mjórri endanum en sá breiðari var notaður til aö stroka út letrið. í sumarlok verður líklega hægt aö slá fóstu hvort þeir miklu útveggir sem fomleifafræðingar grafa upp í Viðey eru hluti af Viðeyjarklaustri. Uppgröfturinn í Viðey er um það bil hálíhaður og margt sögulegra muna hefur fundist að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur fomieifafræðings. Hún sagði ekkert hægt að fullyrða um klausturbyggingu fyrr en búið væri að grafa niður á alla útveggina og þeir rannsakaðir sem heild. Arið 1226 var klaustriö vígt og það hélst til siðaskipta 1550 þegar Viðey komst í eigu Danakonungs. Fomleifauppgröfturinn í sumar og fyrrasumar staðfestir að búseta í Viðey er eldri en áður vora heimildir um. Með því að bera saman öskulag úr þekktu eldgosi á tíundu öld við fundarstaði ýmissa muna má rökstyðja að byggð hefjist í Viðey ekki seinna en um 1000. Áður voru ekki heimildir fyrir eldri búsetu en á 12. öld. Þurfamannahæli í sögu Viðeyjar hafa skipst á skin og skúrir. Eftir að eyjan komst í kon- ungseign drabbaðist staðurinn niður og varð útibú frá Bessastöðum þar sem umboðsmaður konungs sat. Um tíma var eyjan þurfamannahæh fyrir úttaugaða landseta konungsjarða i Guhbringusýslu og Mosfehssveit. Manntahð frá árinu 1703 nefnir ekki einn einasta íbúa í Viðey og virðist sem hún hafi verið í eyði. Bústaður höfðingja Um miðja átjándu öld hófst Viðey til vegs á ný þegar Skúh Magnússon landfógeti settist þar að og reisti sér embættisbústað.. Bústaðurinn er kallaður Viðeyjarstofa og er elsta hús í Reykjavík. Miklar endurbætur hafa verið'gerðar áViðeyjarstofu og mun húsið opnað á fiý í ágúst næstkom- andi. Skúh fógeti bar beinin í Viðey en Ólafur Stefánsson stiftamtmaður settist þar að og bjó höfðinglega th ársins 1812 er hann lést. Sonur Olafs, Magnús Stephensen, keypti Viðey og var hún í eigu ættarinnar til ársins 1903. Snemma á þessari öld varð Viðey vettvangur gjaldþrotsævintýris Milljónafélagsins svokallaða. Pétur Thorsteinsson hafði efnast á fisk- verkun og útflutningi á Bíldudal og kom til Reykjavíkur til aö stofna Margrét Hallgrímsdóttir fornleifafræðingur heldur á hellu úr flögubergi. Hellan er frá miðöldum og var notuð til baksturs, m.a. á brauði. stórútgerð. Umsvifin vora mest í Viðe^ og þar varð til htið þorp. Mihj- ónafélagið fór á hausiijn og þó að útge{;ð héldi eitthvað áfram var þorp- ið í Viðey dauðadæmt og fór í eyði 19438 Uppgröftur Frá sjónarmiði fomleifafræðings hlýtur óbyggð eyja að vera kjörinn starfsvettvangur. Það skyggir þó á gleði fomleifafræðinga að rannsókn- arsvæði þeirra í Viðey er svo að segja ofan í Viðeyjarstofu sem verið er að endurbyggja. Margrét Hahgríms- dóttir var samt hin ánægöasta með framvindu mála í Viðey og sagði uppgröftinn ganga vonum framar. Merkilegustu fomleifafundir í Við- ey era vaxtöflur sem fundust í fyrra og í sumar. Töflumar era htlar, i^n 9x5 cm, og vora notaðar á miðöldum sem skrifblokkir eða „krasspappír" tíl að punkta riiður athugasemdir og hugmyndir eigenda sinna. Töflumar eru vaxborið tré og á þeim má sjá letur á þrem tungumálum, íslensku, latínu og þýsku. Ekki er enn búið að ráða textann, enda verður með sér- stakri meðferð að verja töflumar skemmdum áður en þær þola hand- fjötlun. „Uppgreftinum verður haldið áfram fram í september og síðan verður lokið við aö kanna svæðið næsta sumar ef peningar fást.“ sagði Margrét. pv Æðsta sljóm ríkisins meðal síbrotastofnana Þegar ríkisreikningar áranna 1983 til fjárlögum sömu ára kemur í ljós að fóra lengra fram úr fjárlögum en lög- reglustjórinn fékk ákúrur frá Jóni herra fyrir stuttu fyiir að hafa þrá- 1986 eru skoðaðir með hhðsjón af bæöi forseti íslands og ríkisstjómin reglustjórinn í Reykjavík. En lög- Baldvini Hannibalssyni fjármálaráð- sinnis farið fram úr fjárlögum. Þegar Jón Baldvin kynnti niður- stöður sex mánaða uppgjörs ríkis- reikninga var hann harðoröur í garð nokkurra „síbrotastofnana" eins og hann kahaði þær ríkisstofnanir sem oftast höfðu farið fram úr fjárlögum. Jón Baldvin nefndi sérstaklega til sögunnar lögreglustjórann í Reykja- vík og bæjarfógetaembættin í Hafn- arfirði, Keflavík, á Akranesi og Sel- fossi. Þegar frammistaða þessara emb- ætta er skoðuð miðað við æðstu stjóm ríkisins kemur í ljós að hún er síður en svo áberandi verri. Á árunum 1983 til 1986 fór lögreglu- stjórinn í Reykjavik þannig aö með- altali um 51 prósent fram úr fjárlög- um. Á sama tíma fór sjálf ríkissfjóm- in 73 prósent fram úr fjárlögum, for- seti íslands 63 prósent og Alþingi 45 prósent. Hæstiréttur var eina stofn- unin af æðstu stjórn ríkisins sem hélt sig þokkalega innan ramma fiár- laga. A umræddu tímabih eyddi rétt- urinn ekki nema um 23 prósentum umfram fjárlög, -gse Æðsta stjóm ríkisins Síbrotastofnanir Jón Baldvins 0/0 framúrakstur á fjárlögum 1983-1986 % framúrakstur á fjárlögum 1983-1986 ^00"1 100-, A þessum súluritum má sjá eyðslu umfram fjárlög annars vegar hjá „síbrotastofnunum" Jóns Baldvins og hins vegar hjá æðstu stjórn rikisins á árunum 1983 til 1986. Mföað er við meðaital framúrakstursins á þessum árum. .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.