Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988.
3
Fréttir
Verkamannabústaðir:
50 missa íbúðir sínar
á nauðungaruppboðum
sumir verða bráðlega bomir út með lögregluvaldi
Fimmtíu eigendur íbúöa í verka-
mannabústaðakerfinu hafa misst
íbúöir sínar á nauðungarsölu og
geta enga björg sér veitt. Fólkið býr
e'nn í íbúðum sínum því þaö fær
hvergi annars staðar inni. Sumir
verða bráðlega bomir út með lög-
regluvaldi.
Þrátt fyrir mjög lágar afborganir,
undir 10 þúsund krónum á mán-
uði, missir fjöldi fólks heimili sitt
vegna þess að það stendur ekki í
skilum við lánardrottna.
Þegar íbúð er seld undan eiganda
á hann þess kost að gera upp skuld-
ir sínar innan tveggja mánaða og
halda íbúðinni en flytjast úr henni
ella.
Bornir út nauðugir
Þeir 50 eigendur verkamannabú-
staða sem selt hefur verið ofan af
skiptast í tvo hópa að sögn Páls R.
Magnússonar, formanns stjómar
verkamannabústaða. Annars veg-
ar þeir sem samningar eru að ta-
kast viö og fá aðlialda íbúöinni eða
fara í annað húsnæði. Hins vegar
um 20 eigendur og fjölskyldur
þeirra sem em á lokafrestí og verða
bomir út nauðugir, ef þeir fara
ekki viljugir.
Páll segir þar áberandi að aörar
skuldbindingar en húsakaupin
sjálf leiða til nauðungamppboðs á
íbúðum fólks. Hann nefndi að eig-
endur fara út í sjoppu- og mynd-
bandaleigurekstur sem ekki skilar
þeim aröi sem ætlast er til og lána-
drottnar krefjast nauðungarupp-
boðs á eignum fólksins. Einnig era
þess dæmi að eigendur verka-
mannabústaða ganga í ábyrgð fyrir
skuldum vina og vandamanna sem
ekki borga og þá er gengið á íbúðir
ábyrgðarmanna.
íbúðunum endurúthlutað
Stjóm verkamannabústaða verð-
ur lögum samkvæmt að kaupa
íbúðir verkamannabústaða sem
seldar eru á nauðungaruppoði.
íbúðunum er endurúthlutað og eru
tæplega 600 umsækjendur og fjöl-
skyldur þeirra á biðhsta eftir íbúð-
um. Alls era rúmlega 3000 íbúðir í
verkamannabústaðakerfmu.
Nauðungaruppboðum á íbúðum
í verkamannabústöðum fer fjölg-
andi. Árið 1986 voru 12 íbúðir seld-
ar á nauðungaruppboði, talan í
fyrra var 19 og í ár hafa 12 íbúðir
þegar verið seldar nauðungarsölu.
pv
Pétur Ingólfsson verkfræöingur með líkan af nýju Arnarnesbrúnni. Bílar
keyra yfir brúna á milli Garðabæjar og Arnarness en undir brúna er keyrt
á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. DV-mynd GVA
Brú yfir Amameshæðina:
Kostar hátt í
200 milljónir
„Það mun fara fram útboð á verk-
þáttum í desember en verkfram-
kvæmdir munu ekki hefjast fyrr en
fljótlega eftir áramótín. Þegar þær
hefjast verður að vinna hratt og vel
vegna mikils umferðarþunga sem
þarna er. Þetta er þó framkvæmd
sem tekur eitt til eitt og hálft ár að
vinna,“ sagði Pétur Ingólfsson, verk-
fræðingur hjá Vegagerð ríkisins.
Eitt af forgangsverkefnum í vega-
gerö mun vera að byggja brú yíir
Arnameshæðina en hún mun tengja
saman umferð á miUi Amames-
hverfisins og Garðabæjar. Jafnframt
verður sprengdur vegur í Arnarnes-
hæðina og mun hann liggja á milh
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Pétur
sagði að ekki væri búið aö skipta
framkvæmdum í verkhluta en ljóst
væri að framkvæmdirnar myndu
kosta á annað hundrað miUjónir. Um
arðsemiútreikninga sagði Pétur að
þeir hefðu verið gerðir en hann vissi
ekki nákvæmlega niðurstöðuna úr
þeim en þungavigtarástæðan fyrir
þessari brúargerð væri sú aö þessi
staður væri mikUl slysastaður og
þessar framkvæmdir ættu að auka
umferðaröryggi. JFJ
Keyptu formanninn út
Eftir deilur innan stjórnar Vímets
hf. í Borgamesi keyptu nokkrir hlut-
hafar Hannes Guðmundsson, fyrr-
verandi sendifuUtrúa hjá varnar-
málaskrifstofu utanrUdsráðuneytis-
ins, út úr fyrirtækinu.
Hannes, sem var stjómarformaður
fyrirtækisins, var stærsti hluthafmn
í Vímeti, áttí um 30 prósent hluta-
flár. Hann hafði um nokkurra miss-
era skeið gert kröfu um aukin um-
svif fyrirtækisins. Hvorki aðrir
stjórnarmenn né framkvæmdastjóri
fyrirtækisins tóku undir þessi sjón-
armið. Að endingu varð það að sam-
komulagi að Hannes sagði af sér
stjórnarformennsku og seldi sinn
hlut. -gse
MV SENDING
SUBARU
JUSty
Vinsælasti fjórhjóladrifni
smábíllinn!
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Verð frá kr. 442.000.-
Ingvar
Helgason hf.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Ö) 91-3 35 60