Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988. 5 Fréttir Verslunarmannahelgin: Búast viðyfir 20 þúsund manns á fimm útihátíðir Búist er við að mllli 20 og 23 þús- tnanns, á Melgeröismelum í Eyja- krónur á þær hátíðir þar sem borg- og 3000 fyrir 13-15 ára í Galtalæk. und manns muni sækja útihátíö- firðimiUi7og8000,iGaItalækmilli aö er sérstaklega inn á svæðið. í Vík kostar nóttin 500 krónur fyrir imar fimm sem haldnar verða um 4 og 6000 og loks 1500 til 2000 manns Kostar 4500 krónur inn á skemmt- tjald með tveimur eða fleiri. verslunarmannahelgina. í Vest- íVik. unina á Melgeröismelum, 4000 i Fyrir utan þessar skipulögöu há- mannaeyjum er búist við 7000 Miöaverö er á bilinu 3000 til 4500 Eyjum, 3500 fyrír 16 ára og eldri tíðir má samkvæmt venju reikna með straumi fólks til Þingvalla, Laugarvatns, í Þjórsárdal, Þórs- mörk, Húsafell og fleiri staöi - ef veður leyfir. -hlh Mikið um tónlist í Atlavík: „Stefnum að stórri hátíð“ „Það verða hefðbundnir dansleikir öll kvöldin og þess utan mikið um tónleika. Við stefnum að stórri hátíð, en það er alltaf erfitt að geta sér til um fjöldann sem kemur. 1985 voru 7000 manns í Atlavík. í ár mundi ég segja að 4000-5000 manna helgi væri góð helgi,“ sagði Magnús Stefánsson hjá Ungmenna- og íþróttasambandi Austfjarða viö DV. Tónlistin mun setja mikinn svip á verslunarmannahelgina í Atlavík. Þar verða Stuðmenn, Strax, Bubbi Morthens og hljómsveit, Megas, Sú Ellen, Stuðkompaníið, Bjami Arason og hljómsveit og Bjartmar Guðlaugs- son. Á laugardag og simnudag verður látúnsbarkakeppnin sem hljómsveit- in Strax stendur fyrir. Eru það und- anúrslit þar sem 5 söngvarai- úr hverju kjördæmi keppa um aö verða fulltrúar síns kjördæmis í úrslita- keppninni í ríkissjónvarpinu í haust. Fyrir utan tónlistina verða kraft- lyftingamennimir Magnús Ver Magnússon og Hjalti Úrsus mættir á staðinn. Þeir munu sýna og leyfa fólki að taka á. Tívólí eða leiktækja- svæði verður einnig til staöar. Einstök félög ungmennasambands- ins munu sjá um hluti eins og veit- ingasölu, aðgöngumiða og gæslu. Áfengisbann er á hátíðinni og mun lögregla sjá um leit að áfengi. Aldurs- takmark á Atlavíkurhátíðina er 16 ár. Veröur yngra fólk að vera í fylgd með forráöamönnum. Verð aðgöngmniða er 4500 krónur. -hlh Oft hefur verið fjölmennt á útihátíðum í Atlavik. Vík í Mýrdal: Fyrst og fremst fjölskylduhátíð „Við munum hafa upp á ýmislegt að bjóða úti viö, eins og hestaleigu, varðeld, siglingar, minigolf, útsýnis- flug, gönguferðir og útigrill. Viö ger- um okkur vonir um að hingað komi 1500-2000 þúsund manns ef vel viðr- ar. Við ráðum eiginlega ekki við meira,“ sagði Páll Pétursson, einn aðstandenda Vík 88, við DV. Það er Ungmennafélagið Drangur og Björgunarsveitin Víkverji sem standa fyrir útihátíöinni í Vík. Auk fyrrnefndra atriöa mun hljómsveitin Kaktus spila á dans- leikjum öll kvöldin ásamt hljóm- sveitinni Ofris á laugardagskvöldið. Eins kemur Jón Páll Sigmarsson í heimsókn og sýnir. „Hér verður ekki selt inn á svæöið. Kostar 500 krónur nóttin fyrir hvert tjald með tveimur eða fleirum í. Við höfum ekki eins ofan af fyrir fólki og gert er á hinum hátíðunum. Hér verður ýmislegt í boöi þar sem fólk skemmtir sér sjálft." í óbeinum tengslum við Vík 88 er hægt aö komast í vélsleðaferðir upp á Mýrdalsjökul. Ekkert aldurstak- mark er á hátíðina, nema á dansleik- ina, 16 ára aldurstakmark. -hlh Galtalækur: Venjubundin útihátið fyrir alla fjölskylduna „Við verðum með venjubundna útihátíð eins og síðastliðin 20 ár. Það er boðið upp á dagskráratriði frá morgni til kvölds alla dagana þar sem sérstaklega er tekið mið af hverj- um aldurshópi auk einhvers fyrir alla. Við reiknum með um 5000 manns en getum hæglega tekið á móti 7000,“ sagði Guðni Björnsson hjá Galtalækjarhátíðinni. Verður góð aöstaða fyrir börn þar sem sjaldséð leiktæki og tívolí eru meðal möguleikanna. Sérstakir bamadansleikir verða og svo kemur Brúðubíllinn í heimsókn. Á sunnu- dag munu Ómar Ragnarsson og Jón Páll Sigmarsson koma og skemmta bömunum. Unghngamir fá sérsvæði fyrir sig á tjaldstæðinu svo þeir geti haldið hópinn. Verða þijár unglingahljóm- sveitir á staönum, Que frá Dan- mörku, Kvass frá Stykkishólmi og Fjörkallar frá Reykjavík. Eins verð- ur danssýning og hæfileikakeppni. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar sér sérstaklega um að leika fyrir dansi hjá þeim eldri öll kvöldin. Á kvöldvökum, sem ætlaðar eru öllum, veröa Ómar Ragnarsson, Pálmi Gunnarsson, Jóhann Krist- jánsson eftirherma, Þorvaldur Hall- dórsson og fleiri. Loks má nefna gönguferðir í ná- grenninu, íþróttavöll og svæðisút- varp þar sem útvarpað verður frá dagskráratriðum og fluttar tilkynn- ingar. Verð fyrir 16 ára og eldri er 3500 krónur. 13, 14 og 15 ára borga 3000 krónur inn en 12 ára og yngri fá frítt inn. Sérstakt sunnudagsverð verður að svæðinu en hefur ekki verið ákveðið enn. -hlh Farsíma til lengri og skemmri tíma til einstaklinga og fyrirtækja Sjónvörp í sumarbústaðinn og við önnur tæki- færi, t.d. á sjúkrahús eða þegar tæki þitt bilar. Video-myndatökuvélar. Taktu mynd af fjölskyldunni, vinum og ævintýrum sem aldrei koma aftur. Sendum ef óskað er. Góð tæki - góð þjónusta. Pöntunarsímar 651877 og 53776. HLJÓÐRITI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.