Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988. Viðskipti Forstjóri Daihatsu er óbreyttur bHvélavirki úr Þingeyjarsýslu Jóhann Jóhannsson, annar for- stjóra Daihatsuumboösins. Brim- borgar hf., fyrirtækisins sem keypti Volvoumboðiö, Velti hf„ á föstudag- inn, er fimmtugur, óbreyttur bif- vélavirki noröan úr Þingeyjarsýslu, frá Þórshöfn, eins og Hans Gíslason. sölumaöur hjá Daihatsuumboðinu, orðar þaö, en hann hefur unniö í áraraöir meö þeim Jóhanni og Sig- tryggi Helgasyni, aöaleigendum Brimborgar. og er mikill kunningi þeirra. Sigtr>'ggur, viöskiptafræö- ingur aö mennt. er Vestmannaeying- ur. Hann er sonur Helga Benedikts- sonar, hins fræga athafnamanns þar í bæ. Þannig hófst ævintýrið Ævintýri þeirra Jóhanns og Sig- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 23-26 Sp.lb Sparireikningar 3jamán. uppsogn 23-28 Sp.Ab 6 mán. uppsogn 24-30 Sp.Ab 12mán. uppsogn 26-33 Ub 18mán. uppsogn 39 Ib Tékkareikningar, alm. 9-15 Ib.S- b,Ab Sérték-kareikningar 10-28 Vb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán uppsogn 4 Allir Innlánmeðsérkjörum 20-36 Lb.Bb,- Sp Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6-7,25 Úb.Bb,- Ib Úb Sterlingspund 7-9,50 Vestur-þýsk mork 2,75-4,25 Úb Danskarkrónur 7,25-8,50 Vb,Ab,- Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 38-39 Ab Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 41 Allir Vióskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 39-42 Lb.Bb,- Sb Utlán verötryggö . Skuldabréf 9,25 Vb.1b Útlán til framleiðslu Isl. krónur 36-41 Úb SDR 8,50-9,25 Lb.Úb,- Sp.Bb Bandaríkjadalir 9.75-10.50 Bb.Úb,- Sp Sterlingspund 12-12,75 Úb.Sp,- Bb Vestur-þýskmórk 5,25-7,25 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 52,8 4,4 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. júli 88 38.2 Verötr. júlí 88 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júli 2154 stig Byggingavísitalajúli 388 stig Byggmgavisitala júlí 121,3 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 8% 1 júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávóxtunarbréf 1,6930 Einingabréf 1 3,131 Einingabréf 2 1,809 Einingabréf 3 1,994 Fjolþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,340 Kjarabréf 3,122 Lífeyrisbréf 1,574 Markbréf 1,633 Sjóðsbréf 1 1,504 Sjóósbréf 2 1,326 Tekjubréf 1,497 Rekstrarbréf 1,2299 HLUTABRÉF Soluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 115 kr. Eimskip 269 kr Flugleiðir 240 kr. Hampiðjan 116 kr. lönaöarbankinn 168 kr. Skagstrendingur hf. 158 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr. Tollvörugeymslan hf. 100 kr. (1) Viö kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn. Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýslngar um peningamarkað- inn birtasi i DV á fimmtudögum. tryggs hófst á því að Sigtryggur ann- aðist bókhaldið fyrir Jóhann. Síöan þegar Brimborg var stofnaö kom Sig- tryggur inn í fyrirtækiö með Jóhanni sem eigandi. Þetta var í kringum áriö 1976. „Þeir hugsa mjög svipað og eiga sérlega auðvelt með að vinna sam- an," segir Hans Gíslason. Brimborg hefur flutt inn ýmislegt annað en Daihatsu-bíla. Fyrirtækið haföi umboð fyrir Toyota-varahluti og margir kannast eflaust viö Toy- ota-saumavélarnar. Sú þekktasta þeirra er Páhna. Fyrirtækið hefur ennfremur flutt inn svonefnda þrek- gorma, heilsugorma, sem notið hafa vinsælda. Nýjast er innflutningur arinkubba frá Bandaríkjunum. Fyrsti Daihatsuinn árið 1977 Daihatsu-bílarnir eru aöall fyrir- tækisins. Þeir fyrstu komu til lands- ins áriö 1977. „Þeir seldust fremur hægt í byrjun. En áriö 1980 fengum við þúsund ódýra bíla frá Svíþjóð og Belgíu. Þetta voru 1 og 2ja ára bílar. Þeir uröu á sínum tíma þekktir und- ir heitinu útsölubíiarnir. Svo mikil sala var í þeim aö fólki var hleypt inn í hollum. Upp frá þessu var síðan gert aprílgabb, þar sem svo og marg- ir bílar, sem áttu aö vera geymdir í Hafnarfirði, voru auglýstif til sölu. Þetta gabb heppnaðist víst mjög vel.“ Galdurinn á bak við velgengnina - Hver er aö þínu mati galdurinn viö velgengni þeirra Jóhanns og Sig- tryggs? „Það er þetta gífurlega aðhald sem hér ríkir í fjármálum. Það er ekkert bruöl, heldur er haldið stíft utan um Félagarnir Sigtryggur Helgason, til vinstri, og Jóhann Jóhannsson, aðaleigendur Daihatsuumboðsins, fyrirtækisins Brimborgar hf. Þeir keyptu Volvoumboðið seinnipartinn á föstudaginn. Þessi mynd var tekin skömmu eftir að skrifað var undir. DV-mynd JAK hlutina. Öll þessi ár hér hjá fyrirtæk- inu hef ég aldrei orðið var við neinn flottræfilshátt á neinu sviði. Hingað berast ekki langir matarreikningar af veitingahúsum.“ Þeir Jóhann og Sigtryggur skrifuðu undir kaupsamninginn á hlutabréf- unum í Velti seinni partinn á föstu- daginn. Um helgina voru síðan allir starfsmenn Brimborgar í vinnugöll- unum við að gera þjónustuverkstæð- ið upp við Bíldshöfðann klárt. Gáfu sér ekki tíma til að skála fyrir kaupunum „Eg veit ekki til þess að þeir hafl gefið sér tíma til að skála fyrir kaup- unum á föstudaginn," segir Hans Gíslason. .jqH Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs: Hundruð fýrirtækja verða gjaldþrota á næstu mánuðum - „árið 1989 verður ár hinna móigu gjaldþrota“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráös ís- lands, segir að útht sé fyrir að hundr- uð fyrirtækja fari á höfuðið á næstu mánuðum. Þetta byggir hann á við- tölum viö stjómendur fyrirtækja. Þá spáir annar franunámaður í atvinnu- lífinu, Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðn- tæknistofnunar íslands, aö mörg fyr- irtæki veröi gjaldþrota á næsta ári. „Árið 1989 verður ár hinna mörgu gjaldþrota," segir Páll. Að sögn Vilhjálms eru þetta fyrir- tæki í öhum greinum sem em að verða gjaldþrota. „Ástæðumar eru nokkrar fyrir þessari stöðu. Fyrir- tæki hafa reist sér hurðarás um öxl í launamálum og íjárfestingum. Enn- fremur hefur gengi krónunnar verið vitlaust skráð og svo er raunar enn- þá.“ Vilhjálmur segir að verið sé halda uppi of háum lífskjörum á íslandi miðað viö getu. „Þjóðartekjur á mann á íslandi í fyrra vom 21.700 dollarar. Það er með því allra hæsta i heimi. Þrátt fyrir samdrátt um 5 prósent, sem sýnist nauðsynlegur til að ná jafnvægi í þjóðarbúskapnum, em þjóðartekjur á mann á Islandi með því allrajiæsta sem þekkist í heiminum." Páll Kr. Pálsson segist byggja orð sín um árið 1989 sem ár hinna mörgu gjaldþrota á því að eiginfjárstaða fyr- irtækja sé orðin mjög slæm. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands. „Menn hafa reist sér hurðarás um öxl í launamálum og fjárfestingum.“ „Góð og gróin fjölskyldufyrirtæki, sem voru með mjög sterka og trausta eigmfjárstöðu fyrir nokkrum ámm, em nú komin niður í um 10 prósent eiginfjárhlutfall og jafnvel neðar.“ Páll segir ennfremur: „Menn em aö keyra reksturinn á þetta 10 til 20 prósent raunvöxtum. Það þýðir að fyrirtækin eru komin með fjár- magnskostnað sem er út í hött.“ Að sögn Páls er ekki hægt aö kenna of háum vöxtum eingöngu um heldur sé ekki hægt að horfa framhjá því að um óskynsamlegar og rangar fjár- Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntækni- stofnunar íslands. „Eiginfjárstaða fyrirtækja er oröin mjög slæm.“ festingar hafi líka verið að ræða í mörgum tilfellum. Fari mörg fyrirtæki á höfuðið verð- ur framhaldiö líklegast að fólk missir vinnuna. Þau fyrirtæki sem eiga inni hjá gjaldþrotafyrirtækjunum lenda líka í greiösluvandræðum. Bankar og lánasjóðir komast ennfremur í klemmu vegna gjaldþrotafyrirtækj- anna, þannig aö erfiðara verður að fá lán fyrir önnur fyrirtæki. Niðurstaðan er sú að spennan, eft- irspurain, í þjóðfélaginu minnkar. -JGH Roth forstjóri kemur 6. ágúst Hinn nýi forstjóri ísal, Þjóðvetj- inn Christian Roth, kemur til landsins laugardaginn 6. ágúst. Daginn eftir heilsar hann upp á mannskapinn en fyrsti heih starfsdagurinn veröur mánudag- urinn 8. ágúst. Roth var tæknileg- ur framkvæmdastjóri í Straum- svík á árunum 1977 til 1979. Christan Roth er dyggur um- hverfisverndarsinni Það lætur hann óspart í ljós manna á miUi. Hann er jafnframt raikil fugla- skoðari og náttúruunnandi. Roth er fimmtugur aö aldri. Hann er Bæjari, ólst upp skammt frá Munchen. Hann er eðlisfræö- ingur að mennt. -JGH Christian Roth, forstjóri Isal. Mætir til starfa um aðra helgl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.