Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988. 33 LífsstOl Aðalheiður Pálsdóttir með prakkaralegu baggalútana sem hún bjó til sjálf. klukkustund að sandblása hvern stein. Þá fer að síga á seinni hlutann í vinnslunni en áður en lýkur þarf að dytta að smáatriðum, mála ofan í steinana o.s.frv. Smáu steinarnir eru hins vegar mun auöveldari í vinnslu. Þeir þurfa einnig að slípast og eru settir saman í kílóavís í þar til gerða vél. Þar rúlla þeir fram og til baka í nokkra daga. Eftir slípunina eru þeir tilbúnir til þess aö verða settir saman í eitthvert listaverk enda eru þeir notaðir nán- ast eins og þeir koma af skepnunni. Hugmyndaflug hstamannanna ræð- ur því hvernig og hvað úr þeim verð- ur. Til dæmis hafa svonefndir bagga- lútar orðið mjög vinsælir. Þá er tveimur til þremur mismunandi steinum raðað upp þannig aö úr verði litlir karlar og kerlingar. Síðan eru sett á þau augu og jafnvel munn- ur og nef þannig að þau verði dálítið vinaleg ásýndum. Framtíðarlífæð Borgarfjarðar Helgi kvað vinsældir borgfirska steinsins sífeht vera að aukast. Hann sagði að 30% fleiri hefðu heimsótt búðina í ár miðað við sama tíma í fyrra. Hann sagöist binda miklar vonir við framtíð steinaverksmiðj- unnar og sagði að eftir 1 til 3 ár færi hún að gefa eitthvað í aðra hönd. lands. Jóhannes Kjarval listmálari fékk mikinn innblástur í Borgarfirð- inum, þaðan sem hann er upprunn- inn, og er talið að sveitin, ekki síst Álfaborgin, hafi verið kveikjan að mörgum verka hans. Auk þess hafa margar álfasögur verið skráöar það- an, til að mynda í þjóðsögum Jóns Árnasonar. Þar má fjnna margar sögur úr sveitinni sem segja til um að mennskt fólk hafi gengið að eiga álfa og ílust í Álfaborgina enda hafi álfarnir verið glæsilegt og gott fólk. Eöa voru álfar kannski menn? Við spurðum Helga hvort hann tryöi á álfa: „Ég neita ekki tilveru þeirra en ég trúi ekki á álfa. En eitt er ljóst að allar þessar sögur, sem bæði hafa magnast úr Borgarfirðinum sem og af öðrum stöðum á landinu, eiga sér einhverja stoð' í raunveruleikanum,“ sagði Helgi. -GKr Slipunarvélarnar likjast einna helst gömlum þvottavélum. Kristján Þor- steinsson yfirslípari sagði mikla vinnu liggja að baki hverjum steini. „Áriö ’86 varð 5% halli á rekstri verksmiðjunnar en á síöasta ári varð 5% gróöi þannig að stefnan virðist sú að verksmiðjan fari að skila veru- legum hagnaði á næstu árum enda er nóg að gera hjá okkur. Hins vegar er einna verst aö búðir á höfuðborg- arsvæðinu og Fríhöfnin í Keflavík hafa ekki tekið okkur sérlega vel. Ég tók til dæmis eftir því þegar ég fór í gegn um fríhöfnina á dögunum aö þeir höfðu troðið þeim fáu baggalút- um sem við höfum selt þeim á bak við í hillu þannig að það var bæði erfitt að nálgast þá og þeir voru næst- um ósýnilegir," sagði Helgi „en Ak- ureyringar hafa tekið okkur vel og selt muni frá Álfasteini í þónokkrum mæli.“ Álfadrottningin sjálf í Borgarfirði Búa álfar í steinum? Þessari spurn- ingu verður líklega seint svarað. Hún hefur engu að síður vakið margan Borgfirðinginn til umhugsunar í gegnum árin. Þorsteinn M. Jónsson, fyrrum skólastjóri barnaskólans á Akureyri, lét einhvern tíma hafa eftir sér að í Borgarfirði eystra byggi hvorki meira né minna en álfadrottning ís- Helgi Arngrímsson, framkvæmdastjóri Alfastelns, neitar ekki tilveru álfanna i Borgarfirði. Hann segir að sögurnar eigi sér a.m.k. einhverja stoð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.