Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Síða 38
38
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988.
Þriðjudagur 26. júlí
SJÓNVARPIÐ
18.50 Frénaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Villi spæta og vinir hans. Bandarísk-
ur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Ragn-
ar Ölafsson.
19.25 Poppkorn. Endursýndur þáttur frá
22. júlí.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Geimferðir. (Space Flight). - Fyrsti
þáttur- Drunur í lofti. Nýr bandarískur
heimildamyndaflokkur í fjórum þátt-
um, þar sem rakin er saga geimferða
allt frá hönnun fyrstu eldflauganna í
Þýskalandi til stjörnustriðsáætlana
okkar daga. Þýðandi Jón O. Edwald.
21.35 Höfuð aö veði (Killing on the Ex-
change). Breskur spennumyndaflokk-
ur i sex þáttum. Þriðji þáttur. Leikstjóri
Graham Evens. Aðalhlutverk Tim Wo-
odward, John Duttine og Gavan
O'Herlihy. Þýðandi Gunnar Þorsteins-
son.
22.25 Úr frændgarði. Fjallað er um Finna
fyrr og nú og einnig er rætt við islend-
inga búsetta í Finnlandi. Umsjónar-
maður Ögmundur Jónasson.
23.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
16.25 Jarðskjálftinn. Earthquake. Spennu-
mynd um hrikalega jarðskjálfta i Los
Angeles. Aðalhlutverk: Charlton Hes-
j, ton, Ava Gardner, Lorne Greene,
George Kennedy og Walter Matthau.
Leikstjóri: Mark Robson. Framleiðend-
ur: Jennipgs Lang og Mark Robson.
Þýðandi: Gunnar Þorsteinsson. Uni-
versal 1974. Sýningartími 120 mín.
18.20 Denni dæmalausi. Dennis the
Menace. Teiknimynd. Þýðandi: Eiríkur
Brynjólfsson.
18.45 Ótrúlegt en satt. Out of this World.
Gamanmyndaflokkur um litla stúlku
sem hlotið hefur óvenjulega hæfileika
í vöggugjöf. Þýðandi: Lára H. Einars-
dóttir. Universal.
19.19 19.19. Heil klukkustund af frétta-
% flutningi ásamt fréttatengdu efni.
20.30 Miklabraut. Highway tp Heaven.
Engillinn Jonathan hjálpar þeim sem
villst hafa af leið. Þýðandi: Gunnar
Þorsteinsson. Worldvision.
21.20 íþróttir á þriðjudegi. Iþróttaþáttur
með blönduðu efni úr viðri veröld.
Umsjónarmaður er Heimir Karlsson.
22.20 Kona í karlaveldi. She's the Sheriff.
Gamanmyndaflokkur um húsmóður
sem gerist lögreglustjóri. Aðalhlutverk:
Suzanne Somers. Lorimar.
22.45 Þorparar. Minder. Spennumynda-
flokkur um lífvörð sem á oft erfitt með
að halda sig réttum megin við lögin.
Aðalhlutverk: Dennis Waterman,
George Cole og Glynn Edwards. Þýð-
andi: Björgvin Þórisson. Thames Tele-
vision.
23.45 Hraustir menn. Bravados. Sigildur
vestri. Söguhetjan strengir þess heit
að koma fram hefndum fyrir eiginkonu
sina sem myrt varaf harðsnúnum bófa-
flokki. Aðalhlutverk: Gregory Peck,
Stephen Boyd, Joan Collins, Henry
Silva og Lee Van Cleef. Leikstjóri:
Henry King. Framleiðandi: Herbert B.
Swope. Þýðandi: Ásdis Birgisdóttir.
20th Century Fox 1958. Sýningartimi
95 min.
1.20 Dagskrárlok
19.35 Úr sögu siðfræðinnnar - John Stu-
art Mill. Vilhjálmur Árnason flytur
fimmta erindi sitt. (Einnig útvarpað á
föstudagsmorgun kl. 9.30.)
20.00 Litli barnatíminn. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Endurtekinn frá morgni.)
20.15 Kirkjutónlist.
21.00 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
(Endurtekinn þáttur frá morgni.)
21.30 Útvarpssagan: „Laxdæla saga".
Halla Kjartansdóttir les (14).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Gestaspjall - Slitrur af Paradís.
Umsjón: Viðar Eggertsson (Áður út-
varpað í desember sl.)
23.20 Tónlist á síðkvöldi - Ravel, Debussy
og Prokofiev.
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
t»aö er ekki að ástæðulausu sem
Finnland er tfðum nefnt þúsund
vatna landið.
Sjónvarpið kl. 22.25:
Frændur
vorir
Finnar
Finnar hafa löngum haft sína
sérstöðu meðal Norðurlanda-
þjóðanna. Einkum stafar það af
legu landsins og áhrifum frá Sov-
étríkjunum sem voru mikil á ár-
unum kringum seinna stríð. Þeir
tala einnig tungumál sem mál-
spekingar fyrr og síðar hafa velt
fyrir sér og sem öllum er kunn-
ugf hefur einna mest greint þá frá
hinum Norðurlandaþjóöunum.
Engu aö síður hafa margir ís-
lendingar á seinni árum sest aö
í Finnlandi og líkað vel enda segja
margir að Finnar og íslendingar
séu mjög svipaðir í eðli sínu -
harðduglegt og skemmtilegt fólk.
Ögmundur Jónasson, frétta-
maöur Sjónvarpsins á Norður-
löndunum, heimsótti Finnland á
dögunum og ætlar Sjónvarpiö aö
sína afrakstur heimsóknarinnar
í kvöid. Hann mun m.a fjalla um
Finna fyrr og nú og ræða við ís-
lendinga búsetta í landi hinna
þúsund vatna eins og Finnland
er oft og tíðura nefnt
Rás I
FM 92,4/93,5
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Álfhildur
Hallgrímsdóttir og Anna Margrét Sig-
' urðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Þvert yfir ísland"
eftir Jean-Claude Barreau. Catherine
Eyjólfsson þýddi ásamt Franz Gislasyni
sem les (7).
14.00 Fréttif. Tilkynningar.
14.05 Djassþáttur. - Jón Múli Árnason.
(Endurtekinn þáttur frá miðvikudags-
kvöldi.)
15.00 Fréttir.
15.03 Driffjaðrir. Haukur Ágústsson ræðir
við Eystein Sigurðsson, Arnarvatni i
Mývatnssveit. (Frá Akureyri) (Áður
útvarpað í janúar sl.)
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
■•16.20 Barnaútvarpið. Drekadagur Barna-
útvarpsins. Umsjón: Sigurlaug Margr-
ét Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. - Janácek og
Bartók.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjet-
arsson. Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
FM 91,1
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Valgeir Skagfjörð.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvars-
syni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Bláu nóturnar. - Pétur Grétarsson.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í
næturútvarpi til morguns. Að loknum
fréttum kl. 2.00 verður endurtekinn frá
föstudegi þátturinn „Ljúflingslög" í
umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Fréttir
kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20,
14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.0(0, 22.00 og 24,00.
Svæðisútvaxp
Rás n
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
12.00 Hádegisfréttir Byigjunnar - aöal-
fréttir dagsins. Simi fréttastofunnar
25390.
12.10 Höröur Arnarson. Sumarpoppið
allsráóandi. Fréttir kl. 13.00, 14.00 og
15.00.
16.00 Ásgeir Tómasson, i dag - í kvöld.
Ásgeir Tómasson spilar þægilega tón-
list fyrir þá sem eru á leiðinni heim og
kannar hvað er að gerast. Fréttir kl.
16.00 og 17.00.
18.00 Kvöldfréttatími Bylgjunnar.
18.15 Margrét Hrafnsdóttir og tónlistin
þin. Simi 611111 fyrir óskaiög.
21.00 Þórður Bogason með góða tónlist
á Bylgjukvöldi
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Bjarni
Ölafur Guömundsson.
12.10 Hádegisútvarp. Bjarni D. Jónsson.
Bjarni Dagur i hádeginu og veltir upp
fréttnæmu efni, innlendu jafnt sem
erlendu, í takt viö góöa tónlist.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Gamalt og
gott leikið með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist.
14.00 og 16.00 Stjörnufréttir. Sími
689910.
16.10 Mannlegi þátturinn. Árni Magnús-
son. Tónlist, spjall, fréttir og frétta-
tengdir atburðir.
18.00 Stjörnufréttir.
18.00 íslenskir tónar. Innlend dægurlög
að hætti hússins.
19.00 Stjörnutíminn á FM 102,2 og 104.
Bjarni Haukur og Einar Magnús við
fðninn.
20.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Helgi leikur
spánnýjan vinsældalista frá Bretlandi
og stjörnuslúðrið verður á sinum stað.
21.00 Síökvöld á Stjörnunni. Fyrsta flokks-
tónlistarstemning með Einari Magg.
22.00 Oddur Magnús. Óskadraumurinn
Oddur sér um tónlistina.
00.00- 7.00 Stjörnuvaktin.
AlrA
FMT02.9
10.00 Morgunstund, Guðs orð, bæn.
10.30 Tónlistarþáttur. Fjölbreytileg tónlist
leikin.
24.00 Dagskrárlok.
12.00 Tónafljót. Opið að fá að annast
þessa þætti.
13.00 íslendingasögur.
13.30 Um Rómönsku Ameríku. Umsjón:
Mið-Amerikunefndin. E.
14.00 Skráargatiö.
17.00 Samtökin '78.E.
18.00 Tónlist Irá ýmsum löndum. Tékk-
nesk tónlist. Umsjónarmaður Jón
Helgi Þórarinsson.
19.00 Umrót.
19.30 Barnatimi. Framhaldssaga.
20.00 Fés. Unglingaþáttur í umsjá ungl-
inga. Opið til umsóknar.
20.30 Baula. Tónlistarþáttur í umsjá
Gunnars L. Hjálmarssonar.
22.00 íslendingasögur
22.30 Þungarokk á þriðjudegi. Umsjón:
Hilmar og Bjarki.
23.00 Rótardraugar.
23.15 Þungarokk, frh.
24.00 Dagskrárlok.
18.00Halló Hafnarfjörður. Fréttir úr bæjar-
lífinu, létt tónlist og viðtöl.
19.00
Dagskrárlok.
Hlióöbylqjan Akureyri
FM 101,8
12.00 Ókynnt hádegistónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson leikur tónlist i
eldri kantinum og tónlistargetraunin
verður á sínum stað.
17.00 Pétur Guðjónsson verður okkur inn-
an handar á leið heim úr vinnu. Timi
tækifæranna kl. 17.30.
19.00 Ókynnt kvöldtónlist.
20.00 Valur Sæmundsson leikur vandaða
tónlist og tekur fyrir ýmsar þekktar
hljómsveitir.
22.00 Þátturinn B-hliðin Sigríður Sigur-
sveinsdóttir leikur lög sem litið hafa
fengið að heyrast, en eru þó engu að
síður athygli verð.
24.00 Dagskrárlok.
Framhaldsþátturinn Geimferðir (Spaceflight) svalar í senn fróðleiksþörf
og hefur afþreyingargildi.
Sjónvarpið ld. 20.35:
Geimaldarfróðleikur íyrr og síðar
- athyglisverður myndaflokkur
Við tuttugustu aldar menn lifum
á geimöld og hefur kvikmynda-
heimurinn oftsinnis ýtt undir þaö.
Hins vegar hefur lítiö veriö tekið á
raunsæinu í þeim efnum. Myndir
á borö við Stjörnustríð og fleiri í
þeim dúr hafa verið byggðar upp í
ævintýra- og spennustíl en fáar
kvikmyndir hafa leitt huga okkar
aö hinni raunverulegu geimöld.
Framhaldsþættirnir Geimferöir
(Spaceflight), sem Sjónvarpið sýnir
fjögur næstu þriðjudagskvöld, eru
sagöir svala í senn fróðleiksþörf
manna og hafa afþreyingargildi.
Hann hjálpar fólki að skilja geim-
söguna til dagsins í dag og hvert
framtíðin muni leiöa okkur. Byrjað
er á Sputnikævintýri Rússa áriö
1957 og sagt frá Apolloprógrammi
Bandaríkjamanna og þegar Neil
Armstrong steig fyrstur manna á
tunglið 1969. Og farið er aftur í tím-
ann og rifjaðar upp hugmyndir
framsýnna manna. Enn fremur
hvaöa stjórnmálalegan og hernað-
arlegan ávinning og afturfór þetta
hefur í för meö sér meö geimvarn-
aráætlunum og öðru.
Leikstjóri þáttanna er Blaine
Baggett en meöal annars koma
fram leikarinn frægi, Martin She-
en, og fyrrum geimfari, Wally
Schirra. -GKr
Rás 1 kl. 22.30:
„Paradís" á leiklistarhátíðum
Slitrur af paradís nefiúst þáttur
Viðars Eggertssonar um leiklistar-
hátíðir bæði austanijalds og vest-
an. Viðar veröur í gestaspjalli og
mun fjalia um sínar „paradísir"
sem hann skilgreinir svo að þar
geti allt gerst en enginn viti hvað
gerist.
í þættinum segir Viðar meðal
annars frá ævintýrum sem hann
og hans samferðamenn Ientu í á
leiklistarhátíðum í Suður-Frakkl-
andi, Belgrad, Póllandi og Edin-
borg. Einnig segir hann frá sér-
stæðum og eftirminnilegum sýn-
ingum og frá því hvernig þaö var
að vera gestur á leiklistarhátíð,
annars vegar sem þátttakandi og
hins vegar sem áhorfandi.
-GKr
Úr Bravados (Hraustir menn), glæpaklika veldur hugarangri manna.
Stöð 2 kl. 23.45:
Villtur vestxi
Bravados, eða Hraustir menn, er
sagður sígildur vestri með úrvals-
leikurum. Ekki vantar heldur stór-
stjörnuflóðið því Gregory Peck og
Joan Collins fara þar með aðal-
hlutverk ásamt Stephen Boyd,
Henry Silva og Lee van Cleef. Leik-
ararnir eru hins vegar 30 árum
yngri í vestranum en þeir eru í
dag, látið því ekki blekkjast.
Myndin segir frá ógæfumanni
sem trúir því statt og stöðugt að
glæpaklíka hafl nauðgað og myrt
konuna hans en kemst svo smátt
og smátt að því að hann er engu
betri en morðingjarnir eða trúir
því.
Hallewell gefur myndinni aðeins
eina stjörnu og segir hana heldur
rysjóttan vestra með væmnum
endi. En gagnrýnandinn Leonard
Maltins segir hana öllu betri en
Hallewell og gefur henni einar 3
stjörnur. -GKr