Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988.' FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN í REYKJAVÍK Almennur safnaðarfundur verður haldinn í Gamla bíói mánudaginn 12. september nk. kl. 20.00. Fundarefni: 1. Kosning sjö manna í kjörstjórn vegna væntanlegra prestkosninga skv. 22. gr. laga Fríkirkjusafnaöar- ins í Reykjavík. 2. Ósk 70 meölima safnaðarins um safnaðarfund vegna „uppsagnar safnaðarprests" 3. Önnur mál. Athugið: Þeir einir eiga rétt til fundarsetu sem skráðir voru í söfnuðinn þann 1. des. 1987 og náð höfðu þá 16 ára aldri. Vinsamlegast hafið persónuskilríki tiltæk við inngang og mætið tímanlega. Stjórn Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík LADA LADA þjónusta Erum með: Smurþjónustu fyrir Lada Ljósastillingar Mótorstillingar 10.000 km skoðun Hemlaviðgerðir Pústviðgerðir Endurskoðun fyrir Bifreiðaeftirlitið Allar almennar viðgerðir fyrir Lada Ath. Reglulegt eftlrllt eykur öryggl og endingu bílslns Opið: mán-fimmtud. 8-18 föstudaga 8-15.30 Menning ^ dv Monica Kristensen: Ferðin á Suðurskaut var jafnframt ferð um mín eigin sálardjúp. DV-mynd Brynjar Gauti BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ DALBREKKU 4 KÓPAVOGI SlMI 46940 SK0LARI1VELAR fllíEVDIC kennslubók í vélritun fylgir vWC 1 ■ l^# öllum ritvélunum frá okkur. TÓLVULAND - B BRAGA LAUGAVEG1116-118 V/HLEMM-S. 621122 frá kr. 13.950,- BR0THER AX 15 m/leiðréttingarborða, kr. 18.760 stgr. 0LYMPIA CARRERA m/leiðréttingarborða, kr. 18.300 stgr. SILVER REED EZ20 m/leiðréttingarborða, kr. 18.800 stgr. SILVER REED ÉP10, lítil og létt, kr. 13.950 stgr. SILVER REED EB50, lita- og blekpunktar, kr. 18.900 stgr. SENDUMí PÓSTKRÖFU VISA Hér fara saman gervileiki og ógæfa Sturlunga 1 útgáfu Svarts á hvitu Sú er ætlun mín, að íslenzkum al- menningi hafi veriö Sturlunga saga lítt tiltæk og þar með lítt kunn fyrr en út kom fjögurra binda útgáfa hennar á vegum Siguröar Krisfjáns- sonar á árunum 1908-1915, en um þá útgáfu sáu þeir Benedikt Sveinsson og dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði. Útgáfa Guðbrands Vigfússonar frá 1878 hefur varla verið í margra manna höndum, en það er þó í fram- haldi af henni, að skáld úr hópi ís- lenzkra menntamanna taka að velja sér yrkisefni úr henni. Það gæti t.d. átt við sr. Matthías, sem mun hafa lokið við kvæði sitt um Víg Snorra Sturlusonar um 1880. Hann minntist á persónur úr Sturlungu í kvæöi til Vestur-íslendinga 1898. í Söngbók Stúdentafélagsins 1894 birtist kvæði Hannesar Hafstein um Þórð kakala og einnig kvæðið um Snorra („Þegar hnígur húm að þorra“), sem Hannes á sennilega hlut í. Áriö 1899 kom út leikrit Indriða Einarssonar, Sverð og bagall, sem gerist á Sturlungaöld. Ekki hef ég rekizt á fleira af þessu tagi frá síðustu öld, en það segir út af fyrir sig ekki mikið. Ekki alþýðueign fyrr en á þessari öld Á árunum 1817-1820 birtist Sturl- unga saga fyrst á prenti og þá^Kaup- mannahöfn. Varla hefur hún komizt í margra hendur hér á landi, en hef- ur líklega verið heimild fáeinna manna, sem sömdu greinargerðir í rit það, sem á íslenzku nefnist Frá- sögur um fornaldarleifar 1817-1823. Jón Espólín, sá mikli sagnaþulur, Bókmenntir Páll Líndal vitnar í Sturlungu í greinargerö frá 1818, sem þar birtist, hvort sem sú tilvitnun byggist á framangreindu riti eða einhveiju handriti. Það, sem veldur mér nokkurri furðu er, að 1. bindi hans frægu Árbóka hefst ekki fyrr en með frásögn af Gamla sátt- mála frá 1262, en um þær mundir er Sturlungaöld taliö lokið. Hann hefur e.t.v. litið á Sturlungu sem eins kon- ar inngang að Árbókunum? Þótt Sturlunga kæmist ekki fyrr á prent en snemma á 19. öld, er iðulega í hana vitnað í Feröabók Eggerts og Bjarna, sem Eggert Ólafsson samdi og út kom 1772, og í Annálsbrotum, sem Gísli Oddsson, biskup í Skál- holti 1632-1638, samdi, er minnzt á eldgos við Reykjanes árið 1226 og Sandvetur 1226-1227 svo og Flóabar- daga 1244 og kemur þetta heim við islendingabók Sturlu Þórðarsonar, undirstöðurit Sturlungusafnsins. Þetta bendir til, að vitneskjan um Sturlungaöldina hafi geymzt meðal lærðra manna, en alþýðueign hefur sá fróðleikur ekki orðið eða getað orðið fyrr en komið var fram á þessa öld. Dr. Guðni Jónsson sá um alþýðlega útgáfu á Sturlungu árið 1948, en ný útgáfa hafði komiö út 1946. Þetta var langvandaðasta útgáfan, sem komið hafði út til þessa, en hana önnuðust þeir Jón Jóhannesson, Kristján Eld- járn og Magnús Finnbogason. Þetta var tímamótaútgáfa, bæði vönduð og vísindaleg í bezta lagi. Það verður því varla sagt, að ís- lendinga hafi skort aðgengilegar Sturlunguútgáfur þaö, sem af er þessari öld. Laus viðfræöilegan rembistíl En „maður getur aUtaf á sig blóm- um bætf‘, stendur þar, og ekki alls fyrir löngu hefur hið góðfræga og athafnasama bókaforlag Svart á hvítu sent frá sér nýja útgáfu þessa merkisrits meö nokkrum fylgiritum. Það veröur ekki sagt af neinni sann- girni annað en þetta sé í senn frábær- lega vönduð og aðgengileg útgáfa. I þessari útgáfu er Sturlungusafnið látið halda sér, en ekki bútað sundur í einstakar sögur eftir því sem hægt er, eins og gert var í útgáfunni 1946. Þótt þar séu tilvísanir, þannig að auðvelt ætti að vera að halda þræði, þá þykir mér sá háttur, sem nú er á hafður, mun þægilegri, enda fylgja einnig tilvísaiúr, þannig að þeir, sem vilja lesa „vísindalega" geta vissu- lega gert það. Þá er verkið þægilegra til lestrar, þar sem það er í þrem handhægum bindum, en eldri út- gáfan í tveim nokkuö stórum og þungum. Skýringar eru bæöi miklar og góðar í báðum útgáfum, þó eru þær mun fyllri og notadrýgri í nýju útgáfunni. Það er mikils virði t.d. að fá orðaskýringar í stafrófsröð upp á 80 síður. í nýju útgáfunni er mikið af alls konar fróðleik til skýringar og viðmiðunar, t.d. um atburði er-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.