Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Qupperneq 21
Sigurjón
úr leik?
Óvíst en hvort Sigurjón Kristjáns-
son getur leikið með Valsmönnum
gegn sínum gömlu félögum í ÍBK í
1. deildar keppninni í knattspyrnu á
laugardaginn. Siguijón varð fyrir
meiðslum á hné í Evrópuleiknum við
Monaco í fyrrakvöld og í spjalli við
DV í gærkvöldi sagði hann að ekki
væri komið í ljós hve slæm þau
reyndust. Hann er annar marka-
hæsti leikmaður 1. deildar með 10
mörk og á í harðri baráttu við Fram-
arann Guðmund Steinsson um
markakóngstitilinn.
-VS
Snorri
brotinn
- Steinar bjartsýnn
Hermundur Sigmuiidsson, DV, Noregi:
Snorri Leifsson, sem leikur með 1.
deildar nýhðrnn Runar í handknatt-
leik, handarbrotnaði fyrir skömmu
og ljóst er að hann missir af fyrstu
leikjum hðsins í deildarkeppninni
sem hefst eftir hálfan mánuð.
Með Runar leikur einnig Steinar
Birgisson, fyrrum leikmaöur Vík-
ings og íslenska landsliðsins, og í
spjalh við DV á dögunum sagðist
hann bjartsýnn á gengi nýhðanna í
1. deild í vetur. „Okkur vantar
reynslu en samt leggst mótið vel í
mig,“ sagði Steinar en hann hefur
leikið sérstaklega vel í vöm með hði
Runar í æfingaleikjum að undan-
fömu.
Seðill með
ÓL-leikjum
íslenskar getraunir og Handknatt-
leikssamhand íslands hafa komist að
samkomulagi um að settur verði í
sölu getraunaseðih með 12 hand-
boltaleikjum ólympíuleikanna í Seul.
Öh leyfi fyrir útgáfu seðhsins hafa
þegar fengist og verður seðilhnn eins
og seðlamir vom sl. vetur, 12 leikir
á seðh og hægt að kaupa keríisseðla
eins og venjulega. Skilafrestur
seðlanna mun verða til 26. september
en útgáfa þeirra verður kynnt nánar
á næstunni.
-gk
Leikiðgegn
DDR í Seoul
Ákveðið hefur verið að landshð ís-
lands og Austur-Þýskalands í hand-
knattleik mætist í landsleik í Suður-
Kóreu skömmu fyrir ólympíuleik-
ana.
Leikiuinn mun fara fram í Seoul
og fyrir luktum dyram. Austur-
Þjóðverjar leika sem kunnugt er í
öðrum riðh en íslenska hðið í hand-
knattleikskeppni ólympíuleikanna.
Leikurinn gegn DDR verður kær-
komið tækifæri fyrir íslenska hðið
til að fínpússa spil sitt fyrir sjálf átök-
in á ólympíuleikunum.
*SK
. -«---sem birtast i blöðum vfða um lönd f dag. Til vinstri skorar Roberto Fernandez síðara mark Barcelona
án þess að Þorsteinn Þorsteinsson og Ormarr örlygsson táí rönd við reist en til hægri eíga Viðar Þorkelsson og Julio Salinas í harðri baráttu.
Símamyndlr/Reuter
Heimspressan
í viðbragðsstöðu
- viðureign Fram og Barcelona í brennidepli
Eftir frábær afrek íslenskra knattspymumanna Það er einsdæmi að alþjóðleg fréttastofa sýni
undanfarið - jafntefli íslands við Sovétríkin og sig- íþróttaviðburði á íslandi slíka athygli og mikil við-
ur Vals á Monaco, beindust augu heimspressunnar urkenning fyrir íslenska knattspyrnu. Þeir hjá
að Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Á milli 50 og Reuter vildu vera við öllu búnir ef stórlið Barcel-
60 leikir fóru fram á sama tíma í Evrópumótunum ona lenti í sömu vandræðum á Laugardalsvellinum
í knattspymu en fréttastofa Reuters einblíndi á og sovéska landsliðið og Frakklandsmeistararnir
viðureign Fram og Barcelona og sendi frá sér út en afrek landsliðsins og Vals í þeim leikjum hafa
um allan heim tvær myndir úr þeirri viðureign. þótt mikil tíðindi víöa um lönd. -vs
i Atli Hilmarsson skorar mark tyrir islenska liðið i gærkvöldi.
DV-mynd KAE
„Landsleikur“ fyrir
luktum dyrum
íslendingar og Danir léku nokkurs
konar landsleik í handknattleik í
íþróttahúsinu í Seljaskóla í gær-
kvöldi. Leikurinn var eingöngu hafö-
ur með æfingu í huga. Leikið var
fyrir luktum dyrum. Leiktiminn stóð
yfir í 30 mínútiu-. Danir sigruöu, 13-9.
„Við æfðum varnar- og sóknarleik.
Danir stilltu upp eftir óskum okkar
og ég held að hðið hafi haft gott af
þessu. Einnig vom kerfi fínpússuð,'1
sagði Guðjón Guðmundsson, hðs-
stjóri íslenska landshðsins í hand-
knattleik, í samtah við DV í gær-
kvöldi.
Þjóðimar leika landsleik í kvöld í
íþróttahúsi Seljaskóla og hefst leik-
urinn kl. 20.15. Þjóðimar leika svo
annan leik á sama stað á fóstudags-
kvöldið. -JKS
HM 1 handknattleik 1993:
Eru Svíamir
búnir að tapa?
Hin mikla keppni Svía og íslend-
inga um að fá að halda heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik áriö
1993 kann nú að hafa tekið þá stefnu
að Svíamir séu úr leik.
í Ijós hefur komið að í febrúar 1993,
þegar keppnin á að fara fram, eiga
Svíar að sjá um heimsmeistara-
keppnina í skíðagreinum í Falum og
mim forráðamönnum sænsks hand-
knattleiks hafa bmgðið mjög er þeim
varð þetta ljóst.
„Eg tel stöðuna nú vera þannig að
verulegar líkur séu á því að við höld-
um keppnina," sagði Jón Hjaltahn
Magnússon, formaður HSÍ, á blaða-
mannafundi í gær. Ákvörðun um
keppnisstað fyrir HM 1993 verður
tekin á fundi Alþjóða handknatt-
leikssambandsins sem fram fer í Seo-
ul á miövikudag og fimmtudag í
næstu viku. Fulltrúar HSÍ á þinginu
halda til S-Kóreu í dag.
-gk