Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988.
íþróttir___________________________________
Ólafur fyrirliði ÍA
gegn Ujpest Dozsa
- UEFA-leikminn á Akranesi kl. 18 í kvöld
Landsliðsmaðurinn ungi, Ólafur
Þórðarson, verður fyrirliði Skaga-
manna í fyrsta skipti í kvöld þegar
þeir mæta Ujpest Dozsa frá Ung-
verjalandi í UEFA-þikarkeppninni.
Hann tekur við fyrirliðastöðunni af
Guðbirni Tryggvasyni sem er í leik-
banni eftir brottrekstur gegn Kalmar
frá Svíþjóð í fyrra og missir af báðum
leikjum ÍA við Ungverjana. Leikur
ÍA og Ujpest fer fram á Akranesi og
hefst kl. 18.
„Ég á von á mikilli baráttu og það
er vissulega gaman að vera fyrirliði
í fyrsta sinn í svona stórleik. Við vit-
um lítið um Ungverjana en þeir eru
örugglega mjög sterkir og ég hef trú
Nafn: Sigurður H.
Bergmann.
Aldur: 27 ára.
Hæð: 1,87 m.
Þyngd: 109,5 kg.
Félag: UMFG.
á að þeir leiki létta og skemmtilega
knattspyrnu. Viö ætlum okkur að
berjast af krafti og það verður dags-
formið sem ræður mestu um hvemig
okkur telst til,“ sagði Ólafur í spjalli
við DV í gær.
Slæmt að missa Guðbjörn
Sigurður Lárusson, þjálfari ÍA, ætl-
ar að stilla upp fimm manna vörn til
að byrja með gegn Ungverjunum í
kvöld með Alexander Högnason sem
aftasta mann. „Það er slæmt að
missa Guðbjörn úr vörninni í svona
erfiðum leik því liðið er mjög ungt
og reynslulítið. Við ætlum að heíja
leikinn varlega og þreifa fyrir okkur
--------------------------------1
DV kynnir
íslensku
ÓL-farana
„Æfingar hafa
verið erfiðar"
„Æfingar fyrir ólympíuleikana
hafa gengið mjög vel og það er
enn æft af fullum krafti," sagði
júdómaðurinn Sigurður Hauks-
son Bergmann frá Grindavík í
samtali við DV í gær en hann
er annar tveggja júdómanna
okkar sem keppir á ólympíu-
leikunum í Seoul. Sigurður hef-
ur um árabfi verið einn sterk-
asti júdómaður okkar og oft-
sinnis orðið íslandsmeistari í
hinum ýmsu þyngdarflokkum.
Hann hóf að æfa júdó þegar
hann var 14 ára gamall og hefur
æft af kappi síöan eða í 13 ár.
„Áhuginn á júdóinu kviknaði
hjá mér þegar ég var 14 ára og
það var fyrir hreina tilviljun.
Skólafélagarnir plötuðu mig í
þetta.“
- Hvenær byrjaði undirbúning-
urinn hjá þér fyrir ólympíuleik-
ana?
„Það má segja að hann hafi
byijað af alvöru um mánaða-
mótin maí/júní og síðan hef ég
æft tvisvar á degi hverjum í um
það bil þijár klukkustundir.
Þetta hefur auðvitað verið mjög
erfitt en maöur verður að leggja
eitthvað á sig ef maður stefnir
að góðum árangri."
- Ert þú farinn að gera þér ein-
hveija hugmynd um möguleika
þína í yfirþungavigtinni í Seo-
ul?
„Nei, ég hef ekkert hugsað út
í það og slíkar vangaveltur eiga
ekki rétt á sér fyrr en búið er
að draga um það hveijir glíma
• saman. Maður fer að velta
þessu fyrir sér daginn fyrir
fyrstu ghmuna.“
- Hvemig leggst keppnin í þig?
„Bara þokkalega. Þetta verð-
ur án efa erfitt en ég geri mitt
besta. Það er stórkostlegt aö fá
tækifæri til að keppa á ólympíu-
leikum og að sjálfsögðu er þetta
toppurinn á mínum ferh. Það
er ekki hægt að neita því að það
er kominn fiðringur í mig,“
sagði Siguröur Hauksson Berg-
mann.
Sigurður varð árlega íslands-
meistari í júdó frá 14 ára aldri
þar til hann varð 21 árs í hinum
ýmsu þyngdarflokkum. Síðustu
sex árin hefur hann ýmist keppt
í 95 kílóa flokki eöa þar yfir og
þrívegis orðið íslandsmeistari.
Oftsinnis hefur Sigurður hafn-
að í öðru sæti á íslandsmóti á
eftir Bjama Friðrikssyni,
bronsverðlaunahafa frá síðustu
ólympíuleikum í Los Angeles.
-SK
en sjá síðan hvernig leikurinn þró-
ast,“ sagði Sigurður við DV.
Skagamenn hafa skoðað upptöku
af leik með Ujpest en Sigurður sagði
að þeir hefðu þó haft takmarkað gagn
af henni. „Upptakan var léleg og
maður náði ekki að þekkja einstaka
leikmenn á henni. En þó kom fram
að liðið er með snögga og tekniska
leikmenn en leikur þó nokkuð kerfis-
bundna knattspyrnu. Ég er nokkuð
bjartsýnn og vonast eftir þokkaleg-
um úrslitum,“ sagði Sigurður.
Eitt þekktasta lið
Austur-Evrópu
Ungverska liðið kom til landsins á
þriðjudag og hefur dvahð í Reykjavík
en er væntanlegt til Akraness eftir
hádegið í dag. Það æfði á Valsvehin-
um við Hlíðarenda í gærmorgun.
Ujpest Dozsa er eitt af þekktustu hð-
um Austur-Evrópu, hefur 18 sinnum
orðið ungverskur meistari og er með
í Evrópukeppni nánast á hverju ári.
Þrír leikmenn þess eru fastamenn í
ungverska landsliðinu, Ervin
Kovács, Attila Herédi og István Koz-
ma og má því reikna með að þeir
komi aftur til íslands þann 21. sept-
ember en þá mætast þjóöirnar í vin-
áttulandsleik á Laugardalsvellinum.
-VS
• Olafur Þórðarson leiðir hið unga lið IA i Evrópuleiknum gegn Ujpest
Dozsa Irá Ungverjalandi á Akranesvelli í kvöld. DV-mynd EJ
Ferðin á ólympíuleikana:
Stóri hópurinn
fer á sunnudag
Keppendur íslands á ólympíuleik-
unum í Seoul, að undanskildum
sundmönnum og sighngamönnum,
sem þegar eru famir utan, munu
halda til S-Kóreu síðdegis á sunnu-
dag.
Þá halda 24 keppendur af stað en
sá hópur er skipaður 15 handbolta-
mönnum, 2 júdómönnum og 7 fijáls-
íþróttamönnum. Einnig fara þjálfar-
ar, læknar og sjúkraliðar, flokkstjór-
ar og fararstjórar utan á sunnudag.
Hópurinn heldur frá íþróttamið-
stöðinni í Laugardal skömmu fyrir
kl. 15 og mun koma við á Lækjar-
torgi og kveðja „opinberlega" um það
bil sem heimshlaupið hefst þar. Ef
tími vinnst til munu ólympíufaramir
svo taka lagið áður en þeir halda
áfram til Keflavíkur og að sjálfsögðu
syngja þeir þá handboltalagið „Ger-
um okkar besta“. Hópurinn gistir
síðan eina nótt í New York á leið
sinni til Seoul.
Þeir sem verða í Seoul á vegum
ólympíunefndar verða ahs 51 talsins.
Keppendur em 32, þjálfarar 5, flokks-
stjórar 4, læknar 2, einn sjúkraþjálf-
ari, tveir aðstoðarmenn og fimm
manna aðalfararstjóm.
Frá ólympíunefnd íslands fara
Gísh Hahdórsson formaöur, Bragi
Kristjánsson aðalritari, Sveinn
Bjömsson, forseti ÍSÍ, sem verður
aöalfararstjóri, Gunnlaugúr Briem
gjaldkeri og Jón Hjaltahn, formaður
HSÍ, sem einnig verður blaðafuhtrúi
ólympíunefndarinnar í Seul.
Fleiri munu fara með hópnum en
þeir fara ýmist á vegum sinna sér-
sambanda eða á eigin vegum.
-gk
Frétta-
stúfar
ÍFH tíl Liibeck
íþróttafélag heymarlausra, ÍFH,
mun taka þátt í alþjóðlegu móti
heymarlausra handboltamanna
sem fram fer í Lúbeek í Vestur-
Þýskalandi 9.-11. september. Auk
íslenska hðsins keppa á mótinu
lið frá Danmörku, Svlþjóö og
Vestur-Þýskalandi. íslenska liðið
hefur æft af kappi í aht sumar
fyrir mótið og verður fróðlegt að
sjá hver árangurinn verður á
mótinu í Vestur-Þýskalandi. Þess
má geta að íslenska hðið varð í
ööru sæti á síðasta Norðurlanda-
móti heymarlausra í handknatt-
leik.
Spánverjar byrja í Seoul
Hópur Spánveija frá Barcelona
mun fara til Seoul og fylgjast
gaumgæfilega með öllu varðandi
ólympíuleikana. Sem kunnugt er
veröa ólympíuleikarnir árið 1992
haldnir í Barcelona. Spánveij-
arnir ætla aö nýta tækifærið vel
og kynna Barcelona fyrir þeim
sem áhuga hafa. Fjögur ár eru
þangað til leikamir fara fram í
Barcelona en ljóst má vera að
snemma verður að hefja undir-
búning fyrir mestu íþróttahátíð
sem um getur í heiminum.
Bardaganum frestað?
Allar líkur em nú taldar á því
að bardagar hnefaleikakappa-
anna Mike Tyson og Frank
Bruno, sem fyrirhugaður var 22.
október nk„ verði frestað. Ástæð-
an er meiðsli Tysons eftir bílslys.
Kappinn á nokkuð langt í land
með að ná sér fullkomlega af
meiðslunum sem hann hlaut í
slysinu og er reiknað með því að
bardaganum, sem beðið er með
mikihi eftirvæntingu, verði frest-
að fram í desember.
Luzern með 2 stiga forskot
Sigurður Grétarsson og félagar
hans 1 svissneska knattspyrnu-
liðinu Luzem gera það gott í 1.
deildinni. Síðasti leikurinn í 9.
umferð deildarinnar fór fram í
fyrrakvöld og léku þá Behinzona
og Sion. Meö sigri gat Behinzona
komist 112 stig, einu stigi á eftir
Luzern. Sion sigraði hins vegar í
viðureign hðanna sem bæði era
með 10 stig. Luzem er efst með
13 stig, þá kemur Grasshoppers
með 11 og Aarau, Bellinzona og
Sion hafa 10 stig hvert félag.
Cram enn í vanda
Breski langhlauparinn Steve
Cram hefúr ekki átt sjö dagana
sæla undanfarið. Síöasta ár var
dapurt hjá þessum snjalla hlaup-
ara og sjálfur segist hann ekki
geta gert sér grein fyrir öhum
þeim vandamálura sem að steðj-
uðu. Cram segist þó halda að eitt
af vandamálunum hafi verið óbil-
andi sigurvissa. Sjálfur hafi hann
staðið í þeirri meiningu að nóg
væri fyrir sig að mæta í hlaupin
og aö sigra hafi nánast verið
formsatriði.
Á alþjóðlegu fijálsíþróttamóti
um síðustu mánaðamót raeiddist
Cram á kálfa en sjálfur segir
hann meiðshn smávægheg og að
þau komi ekki í veg fyrir þátttöku
hans á ólympíuleikunum í Seoul.
Bretar binda miklar vonir við
frammistöðu Crams á leikunum
í Seoul. Snjallir hlauparar þeirra
á borð viö Steve Owett og Sebast-
ian Cœ náöu ekki aö komast í
breska ólympíuliðiö og því er
mikiö álag á Cram. Hann á marga
glæsta sigra að baki, Evrópu-
meistaratíth i 1500 metra hlaupi
1982, tvo sigra á Samveldisleikun-
um og sigur á heimsmeistara-
móti. Þá hefur Cram sett heims-
met í þremur vegalengdum, 1500
metrum, míluhlaupi og 2000
metra hlaupi.