Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988. fæst á járnbrautar- stöðinni í Kaup- mannahöfn ENSKA ÞÝSKA FRANSKA SPÆNSKA DANSKA PORTÚGALSKA ÍTALSKA ÍSLENSKA fyrir útíendinga Uppl. í simum 10004/21655 Mímir FIWI LOFTPRESSUR GÆDAVARA Á GÓÐU VERÐI 200 ml kr. 18.258,- m/sölusk. 340 ml kr. 38.817,- m/sölusk. SÖLUAÐILAR: iselco sf.. Reykjavík Húsasmiðjan. Reykjavík Byggingaversl. KÁ. Selfossi Kaupfélag Rang., Hvolsvelli Vélsmiðja Hornafjarðar, versl. Kaupfólag Isfirðinga, timbursala Kaupfélag V-Húnvetninga. Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga. Sauðárkróki Norðurljós, Akureyri Kaupfélag Þingeyinga, véladeild Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstúðum Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði Kaupfélag Borgfirðinga. ISELCO SF. Skeifunni 11d - simi: 686466 Lífestm Punktar frá lesendum Lesendur hafa veriö duglegir að gefa okkur ábendingar og senda inn uppskriftir og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við höfum safnað nokkrum uppskriftum saman til birtingar og hvetjum lesendur til að halda áfram að hafa samband við okkur. Margrét Júlíusdóttir, húsfreyja á stóru sveitaheimili í Borgarfiröi, gaf uppskriftir að ódýru kaffibrauði sem vinsælt er á hennar heimili. Með því að nýta kartöflur í vínarbrauð kemst Matur maður hjá því aö fleygja soðnum kartöflum sem hafa orðið afgangs kvöldið áður. Kartöfluvínarbrauð 250 g hveiti 250 g smjörlíki 250 g kaldar, soðnar kartöflur 1 tsk. lyftiduft 1 msk. sykur Kartöflurnar eru marðar í vél eða stappaöar með gafíli. Öllum efnun- um er blandað saman og deigið hnoð- að vel. Deigið er flatt í lengj u, ca 25-30 sm breiða. Lengjan er smurð með rabarbarasultu (eða annarri sultu) og báðar hliðar brotnar inn að miðju. Skiljið eftir mjóa opna ræmu í miðj- unni. Penslið yfirborðið með eggi og bakið við 200° C þar til lengjan er orðin ljósbrún. Skreytið hana með súkkulaði eða glassúr eða bakið meö möndlum og sykri. Á heimilum verða oft afgangar af oststykkjum sem nýtast ekki sem álegg. Því er upplagt að baka eitthvað gott úr þeim, t.d. ostahorn. 100 g rifmn ostur (afgangar) 250 g heilhveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. sykur 'A tsk. salt 75 g smjörlíki 2 dl súrmjólk egg til að pensla með Þurrefnunum er öllum blandað saman, smjörlíkið muhð saman við og rifna ostinum bætt út í, bleytt í með súrmjólkinni og deigið hnoðað vel. Deiginu er skipt í tvo hluta og hvor um sig flattur í kringlótta köku (á þykkt við flatköku). Hvor kaka er skorin í átta hluta. Hver hluti er rúll- aður saman frá breiðari endanum og látið endann snúa niður á bökun- arplötunni. Smyijið bökunarplötu og beygið hvert horn lítillega. Penslið með eggi og stráið osti yfir ef vill. Bakið við 200° C þar til hornin eru orðin ljósbrún. Margrét tók fram að mjög gott væri að setja skinkuaf- ganga inn í vafningana. Ostahornin eru mjög góð sem kaffi- brauð eða með súpu. Kryddsulta með mömmusteik Um daginn birtum við nokkrar uppskriftir að kryddsultum. Af því tilefni hringdi lesandi, Sigríöur Kristinsdóttir í Reykjavík, og gaf okkur uppskrift að kryddsultu úr rabarbara. Sagði hún þessa sultu góða tilbreytingu frá hinni hefð- bundnu rabarbarasultu og líka sér- staklega vel með grilluðu kjöti og „mömmusteik" en á hennar heimili kálla krakkarnir venjulega mat- reiðslu á lambakjöti með brúnni sósu „mömmusteik". Rabarbarakryddsulta 1 kg rabarbari 1 kg laukur 750 g dökkur púðursykur 200 g edik 1 tsk. salt 1 tsk. pipar 1 tsk. allrahanda Laukurinn er hakkaður eða skor- inn smátt og rabarbarinn í htla bita. Öllum efnunum blandað saman í pottinn. Sultan er soðin í tvo tíma og síðan sett á hrein glös og þeim lokað þétt. Merkja verður glösin vel svo þau ruglist ekki saman við ókrydduðu rabarbarasultuna. -JJ Kringlóttri (eða aflangri) köku er skipt í átta hluta. Hornunum er rúllað upp frá breiðari endanum og beygð örlít- ið. Pensluð með eggi og osti stráð yfir ef vill. Örbylgjan Tómatsósa Tómatsósu er þægilegt aö búa til í örbylgjuofni eins og margt annað. Þessi uppskrift er fljótleg og einföld og tílvalið að prófa hana þegar tóm- atar eru á góðu verði. Með því að gera sína eigin tómatsósu getur maður verið viss um efnin í henni 1 og veriö laús við allt sem heitír aukefni, hvort sem þau heita htar- e.ða bragðefni. 1 'A kg þroskaðir tómatar 1 msk. salt 1 stór laukur, fínsaxaöur 2 dl edik 75 g dökkur púðursykur 'A-1 tsk. pipar 1 tsk. kanill Vi tsk. múskat sykur eftir smekk Skerið tómatana í sneiðar og leggið þá í stóra skál, saltíð á milh laga og látíð bíða í 2 klukkustund- ir. Bætíð afganginum af hráefnun- um saman við og sjóðið á fullum styrk í 30 mínútur. Þá eru tómat- arair marðir í blandara og maukið sett í hreina skál. Sjóðið maukið á fullri orku í 15 mínútur eða þar til sósan er farin að þykkna. Kælið sósuna og setjið á flöskur eða giös. vel þroskaöir tómatar eru notaðir við gerð tómatsósunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.