Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Síða 44
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988.
~^4
Sviðsljós
Vigdís í Norsk Ukeblad
Norðmenn eru mjög spenntir íyrir
heimsókn Ólafs Noregskonungs til
íslands í þessari viku. í Norsk Uke-
blad í þessari viku er myndum
skrýtt viötal viö Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta íslands, rúm opna
aö lengd. Greinilegt er á öllu að
Norðmönnum fmnst mikið til for-
seta íslands koma.
Blaðamaðurinn, sem tekur við-
taliö, gerir að umtalsefni gott sam-
band Islands og Noregs og minnist
sérstaklega á heimsókn Vigdisar til
Noregs fyrir sjö árum. Þá féll
norska þjóðin fyrir persónutöfhan
Vigdísar og greinilega eru Norð-
menn mjög hreyknir yfir því að
fyrsta konan, sem kjörin var í emb-
ætti forseta í lýöræðisríki, skuli
hafa heimsótt heimaland þeirra.
Vigdís Finnbogadóttir er sögö
vera heillandi gestgjafi Noregskon-
ungs og vitnaö til þess aö þau eru
bæði mjög mikið áhugafólk um
sögu þannig að ekki ætti þau að
skorta umræðuefni.
Viðtalið er myndum prýtt og
greinilegt að i Noregi er htið á
heimsókn Noregskonungs til
„Sögueyjunnar" sem hátíðlegan
viöburð.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, með blómvönd sem blaðamaður
Norsk Ukeblad færði henni að gjöf.
Vigdis Finnbogadóttir og Ólafur Noregskonungur á gangi í Osló er Vigdis sótti Noregskonung heim fyrir sjö
árum. Fyrir aftan þau má sjá Harald krónprins.
Bílamarkaður
á laugardögum
Fjöldi bílasala og bílaumboöa auglýsir
fjölbreytt úrval bíla af öllum geröum
og öllum veröflokkum.
Auglýsendur athugið !
Auglýsingar í DV-Bílar þurfa aö berast
í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum.
Ráðherratennis
George Shultz, utanrikisráðherra Bandarikjanna, hefur i mörgu aö snúast.
Hánn gefur sér þó ööru hverju tima til að slaka á og fá útrás. Shultz hlýtur
að hafa verið nokkuð fjörugur á yngri árum því að hann mun einhvern tima
hafa látið tattóera tígrisdýr á bakhlutann á sér og er talið að hann sé eini
bandariski utanríkisráðherrann sem slikt hefur gert.