Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988. Frétdr Grétar Kristjánsson ætlar að stofna samtök gjaldþrota fólks. DV-mynd Ægir Már Hyggst stofna landssamtök gjaldþrota einstaklinga: Eg vil gera eitt- hvað annað en að drepa mig „Ég er enn einn míns liðs en vona að fólk fari að hafa samband við mig. Þessi auglýsing er fyrsta skref- ið,“ sagði Grétar Kristjánsson við DV. Grétar hefur auglýst í einu blað- anna að fyrirhuguð sé stofnun lands- samtaka gjaldþrota einstaklinga er vinni að hagsmunamálum slíkra og veiti þeim aðstoð á ýmsan hátt. „Það eru ótal vandamál sem koma upp þegar fólk verður gjaldþrota. Maður á yfirleitt ekkert heimili eftir gjaldþrot og leigumarkaðinn þekkja allir. Lánstraust er ekkert og ef mað- ur á einhver verðmæti þá eru þau tekin upp í skuldir. Svo er hin hliðin. Félagsleg og sálræn vandamál. Þau veröa mörgum þung í skauti. Þaö geta ekki allir borið hina virðulegu nafnbót þjóðfélagsvandamál og sum- ir binda enda á allt saman með því að svipta sig lífi. Ég er því handviss um að að gjaldþrota einstakhngar geta haft hag af að bindast samtök- um.“ Grétar er sjálfur gjaldþrota. Hann var í útgerð og gjaldþrotiö er að hans sögn löng saga og leiðinleg. Segir hann orsökina að sumu leyti óheppni og sumu leyti eigin heimsku. „Það er vandlifað í þessu þjóðfé- lagi. Það er um það að ræða að éta eða vera étinn. Ég átti skuldlausar eignir upp á 15 milljónir 1984. Þær dugðu ekki fyrir skuldunum. Það eru margir sem geta ekki staðið í skilum og skuldimar stækka með ógnar- hraða á skömmum tíma. Stundum ná menn að semja en ég fékk heng- ingarólina um hálsinn. Þannig er um æ fleiri og innheimtuskrifstofunum íjölgar að sama skapi. Það er stór- eflis atvinnuvegur aö gera menn gjaldþrota.“ Að sögn Grétars er að minnsta kosti eitt félag gjaldþrota einstakl- inga til í heiminum og er þaö í Jap- an. Grétar býr „upp á náð og mis- kunn“ hjá kunningjum sínum og ætlar ekki að hnika frá markmiði sínu. „Ég er ekki náungi sem er gefinn fyrir það aö gefast upp. Ég vil gera eitthvað annað í málinu en ganga út og drepa mig.“ -hlh Mistök á Landspítalanum: Ungböm sködduð* ust varanlega - ríkissjóöur viöurkennir bótaskyldu Ríkissjóður hefur viöurkennt bóta- skyldu í máli sen upp kom á fæðing- ardeild Landspítalans fyrir nokkru. Þurrmjólkurblanda var ranglega meðhöndluð með þeim hörmulegu afleiðingum að þrír nýburar veiktust alvarlega. Því olli bakteríusýking af völdum þurrmjólkurinnar sem aftur leiddi til heilahimnubólgu. Eitt bam- anna er látið. Það hafði raunar verið veikt fyrir og ekki verið hugað líf. Hin bömin tvö hlutu varanlegan skaða af völdum heilahimnubólg- unnar. „Ríkislögmanni hefur verið falið að fara með málið," sagði Guðmund- ur Bjarnason heilbrigðisráðherra er DV ræddi viö hann. „Hann telur bótauppgjör ekki tímabært þar sem ekki er ljóst hvernig heilsufar barn- anna verður. Hann hefur unnið í samráði við foreldra barnanna og þeim hafa verið kynntar þessar nið- urstöður. Þau hafa fallist á þessa til- lögu ríkislögmanns." „Þaö var á árunum 1986 og 1987 sem þetta gerðist en það eru ekki nema 2-3 vikur síðan málið fór frá okkur,“ sagði ráðherra. -JSS Veröhækkimaráhrifum gengisfeUingar: Verður hleypt út í frosið verðlagið Ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar kynnti í gær formlega þær efnahagsráðstafanir sem urðu henn- ar fyrsta verk. Þessar aögerðir felast í 3% gengisfellingu, millifærslu, frystingu launa og frystingu verölags að því marki að ekki megi rekja verð- hækkunina til kostnaðarhækkana erlendis. Ríkisstjómin hefur ákveðiö að framlengja verðstöðvun til febrúar- loka. Undantekningar frá þeirri verðstöðvun eru ef innflutningsverð hækkar. Verðbreytingaáhrif 3 pró- sert gengisfellingarinnar í gær munu því koma fram. Laun eru hins vegar algjörlega fryst og munu ekki hækka fyrir en 15. febrúar. Þá munu þau hækka um 1,25 prósent. Það veröur fyrsta launahækkunin síðan í júní á þessu ári. Þau mildandi áhrif, sem ríkis- stjómin grípur nú til, em að hækka tekjutryggingu og heimilisuppbót Tryggingastofnunar um 3 prósent 1. október og lána 150 milljónir til íjöl- skyldna í alvarlegum greiðsluerfið- leikum. Millifærsla ríkisstjómarinnar til atvinnuveganna er umfangsmikil eða 3 milljaröar strax og aðrir 3 þeg- ar til lengri tíma er litið. Með lögunum heimilar ríkisstjórn- in verðjöfnunarsjóði atvinnuveg- anna aö taka 800 milljóna króna lán með ríkisábyrgð. Hinn nýi atvinnu- tryggingasjóður fær einnig heimild til lántöku með ríkisábyrgð aö upp-. hæð 1.000 milljónir á næstu tveimur árum. Beint framlag úr ríkissjóði nemur öðrum 1.000 milljónum til sjóðsins. Gert er ráð fyrir að hann láni og.hafi milligöngu um að lána um 5 milljarða. Ríkissjóöur greiðir einnig 40 milljónir til ullariðnaðar- ins. Fiskeldi og loðdýrarækt fá end- urgreiddan söluskatt að ótilgreindri upphæð. Þá verður raforka seld til fiskiðnaðar á íjórðungi lægra verði. í tengslum viö aðgerðirnar fær Ól- afur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra heimild til að auka útgjöld rík- issjóðs um 900 milljónir á þessu ári. Fjármálaráðuneytiö hafði áður tahö að hallinn á ríkissjóði í ár færi í um 1 til 1,5 milljarða. Ríkisendurskoðun hafði hins vegar spáð um 2 mUljarða halla. Með þessum auknu útgjöldum má gera ráð fyrir haUa frá 2 til 3 milljörðum í ár. Hallinn á næsta ári stefnir nú í um 3,5 miUjarða. Ríkisstjórnin ætlar að afgreiða fjárlög fyrir það ár með um 800 milljóna króna tekjuafgangi. Því markmiði mun verða náð með nýjum sköttum að andvirði um 2,5 milljarð- ar og niðurskurði upp á 1,5 mUlj- aröa. Engin ákvörðun hefur verið tekin um í hvaða formi skattamir verða. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að lækka nafnvexti um 5 til 10 prósent á næstunni. Ef bankar og sparisjóðir sinna því ekki mun Seðla- bankinn lækka vextina með lögum. Þá stefnir ríkisstjómin aö því aö lækka raunvexti um 3 prósent. Lánskjaravísitölu verður breytt þannig aö launavísitala vegur jafn- þungt og byggingar- og framfærslu- vísitölur. Miðað við að laun verða fryst á næstunni leiðir það til lægri greiðslubyrði af lánum. Þegar litið er til langs tíma mun það hins vegar eflaust leiða til aukinnar greiðslu- byrði. Laun hafa aö meðaltali hækk- að um 2 til 3 prósent umfram verðlag á undanfömum ámm. -gse Stuðningsmenn séra Gunnars: Skoðanakönnun stjómarinnar er skrípaleikur Eins og DV skýrði frá í gær ætla hefur safnaðarblaðið fræga veriö stuðningsmenn séra Gunnars gróflegamisnotaðafþessutilefni.“ Bjömssonar aö fá lögbann á kosn- Hafi stjómin hafnaö hugmynd- ingar sem safnaöarstjórn Fríkirkj- um biskups um skoöanakönnun i unnar hefur boöaö til á laugardag sumar og séu kosningar nú ekki og sunnudag. í bréfi, sem stuðn- annað en tilraun stjórnarinnar til ingsmenn séra Gunnars hafa sent aö viðhalda skaðabótaskyldri upp- frá sér, segir frá safnaðarfundinum sögn prestsins. Tefji það að messu- sem haldinn var i Gamla bíói og hald geti hafist og kjör nýrrar þeirri ákvörðun hans aö ógilda stjórnar farið fram á safnaðar- uppsögn séra Gunnar frá í vor og fundi. lýsa vantrausti á stjómina. „Af augljósum ástæðum er ekki „Stjóm, sem hefur þverskallast uhnt að fallast á það fordæmi, aö við aö sinna þeirri augíjósu skyldu löglegum ákvörðunum safnaðar- sinni í lýöræðisþjóðfélagi að segja funda sé vísað til skoðanakannana af sér, hefur ekkert umboð til þess af þeim sem orðið hafa í minni- aö láta framkvæma skoðanakönn- hluta á fundunum og misst tiltrú un, - „atkvæðagreiöslu" - um mál- safnaðarfólks. Shkt er skrípaleik- efni, sem lögmætur safnaöarfund- ur.“ ur hefur afgreitt, það er uppsögn Loks fara Gunnarsmenn þess á safnaðarprestsins. Er enda ekki leit viö safnaðarfólk að það taki gert ráð fyrir shku í lögum safnað- ekki þátt í atkvæðagreiðslunni eöa arins, fremur en í lögum félaga al- styðji viðleitni stjómarinnar til aö mennt. Þar fyrir utan er engin kljúfa söfnuðinn með ólögmætri trygging fyrir hlutlausri fram- uppsögn. kvæmd atkvæðagreiðslunnar. Þá -hlh Kjötmiðstöðin fékk greiðslu- stöðvun í gær Kjötmiðstöðin hf. fékk greiöslu- í gærdag. stöðvun í einn og hálfan mánuð í gær. Lögheimili fyrirtækisins er í Garðabæ og þar var úrskurðurinn kveðinn upp. Forráðamenn Kjötmið- stöðvarinnar lögðu fram beiðnina um greiðslustöövun síðastliðinn mánudag. „Við ætlum að nota tímann til að endurskipuleggja fyrirtækið," sagði Gísh Gíslason, lögfræðingur Kjöt- miðstöövarinnar, í morgun. Hann sagði að skiptaráðandinn í Garðabæ hefði veitt greiðslustöðvunina seint Um það hvort greiðslustöðvunin væri ekki undanfari gjaldþrots fyrir- tækisins sagðist Gísh fuhviss að svo væri ekki. „Það er enginn kominn með dóm á fyrirtækið. Það sýnir aö við biöjum um greiðslustöðvun fyrr en almennt gengur og gerist hjá fyrirtækjum sem eru í endurskipulagningu. Yfirleitt biðja fyrirtæki hérlendis of seint um greiðslustöðvun en þannig á ekki að nota greiðslustöðvunina.1' -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.