Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 32
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022 FOSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988. Bein útsend- ing rofin Þeir Frónbúar, sem fylgdust með leik íslendinga og A-Þjóðverja í sjón- -varpi í nótt. fengu frábæra skemmt- un þann tíma sem útsending leiksins varði. Hún var hins vegar rofm vegna þess hversu leikurinn dróst á langinn. Ekki tókst að fá fram úrslit fyrr en eftir tvíframlengdan leik og víta- kastskeppni. A-Þjóðverjar höfðu þar betur. skoruðu úr þremur vítum á móti einu íslendinga og lvktaði leikn- um 31-29. Útsending frá leiknum var rofin þegar staðan var 25-25 en þá var fvrri framlenging að baki. Handbolta- þvrstir nátthrafnar urðu því að láta sér nægja rödd Samúels Arnar. en hann hélt sínu striki þrátt fyrir að mvndin brvgðist. ellegar íýsingu -4rnars Björnssonar í útvarpi. -JÖG Ölduselsskóli: Kennarinn í tveggja mán- aða veikindafrí '•■Kennarinn í Ölduselsskóla, sem hætti störfum á dögunum þar sem hann hafði þurft að sitja undir harkalegri skammarræðu Sjafnar Sigurbjörnsdóttur fyrir framan sam- kennara sína á kennarastofunni í fyrri viku. er nú í tveggja mánaða veikindafríi. DV hafði samband við skólann og var tjáð þetta, ásamt þvi að líklega kæmi kennarinn aftur til kennslu. Samkvæmt heimildarmönnum DV meðal foreldra varð reiöilesur Sjafn- ar til að fylla mælinn í brösóttu sam- starfi hennar og kennaranna. For- eldri tjáði DV að ekki hefði heyrst um sættir í málinu eða hvort kenn- ari barnanna kæmi aftur til starfa. (^^ffirkennari skólans kennir nú um- ^ræddum bekk. Er yfirkennari hluti deilnanna innan skólans þar sem ekki þykir rétt að ráðningu hans staðið, ekki hafi verið leitað umsagn- ar kennararáðs viö ráðninguna, eins og vera ber við slíkar ráðningar. -hlh LOKI Það verður ekki komist hjá því að halda ólympíuleika lyfjanotenda. Varamaður Skúla Alexanderssonar greiðir atkvæði ef vantraust kemur fram Stjórnin hefúr ekki meirihluta þingsins - ólögiegt að kalla til varamenn nema vegna forfaUa, segir Sigurður Líndal í kjallaragrein í DV í dag dregur Sigurður Líndal, prófessor í lögum, í efa að ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar sé rseirihlutastjórn. Ástæðuna segir Sigurður vera þá að Skúli Alexandersson hafi lýst þeirri sannfæringu sinni að hann sé andvígur þessariríkisstjórn. Það samkomulag, sem Skúli hefur gert við Alþýðubandalagið, að hverfa af þingi og kalla til varamann ef vantrauststillaga kemur fram, seg- ir Sigurður stangast á við ákvæði um varamenn í kosningalögum. „Það er því jjóst að sá af forsetum þingsins, sem fær erindi Skúla i hendur, hefur ekki heimiid til að ■verða við þvi á þessum forsendum. Ef forseti gætir þess ekki kemst þingið ekki hjá því að fialla ura málið og taka afstöðu til þess,“ skrifar Sigurður. Samkomulag Skúla viö Alþýðu- bandalagið var gert síðastliðinn þriðjudag. í því felst að varamaöur Skúla, Gunnlaugur Haraldsson, verður kallaður tii ef vantraust verður borið frara á ríkisstjórnina og þegar stjóraarfrumvörp, sem Skúli treystir sér ekki til að styöja, koma fram. Þetta samkomulag faef- ur Skúh sjátfur gert opinbert. Rikisstjóm Steingríms Her- mannssonar hefur ekki nema 32 þingmenn á bak við sig ef varamað- ur Skúla er talinn með. Hún hefur meirihluta í sameinuðu þingi og efri deild en jafnmikinn þingstyrk og stjórnarandstaðan í neðri deild. Þegar Skúh situr á þingi er stjórnin hins vegar einungis með 31 þing- mann að baki sér. Þá hefur hún jafnan þingstyrk og stjómarand- staðan í neðri deild en er í minni- hluta bæði í sameinuðu þingi og í efri deild. Þar sem Sigurður dregur í efa lögmæti þess að varamaður Skúli komi inn þegar vantraust eöa stjómarmál, sem Skúli er mótfall- inn, koma til afgreiðslu þingsins dregur hann jafhframt í efa að stjórnin hafi meirihluta. „Þetta er gott,“ sagöi Skúh Alex- andersson þegar DV bar þetta und- ir hann. „Það er ekki mitt að meta þetta. Sigurður Líndal segir ýmsa hluti. - Þú telur það ekki óeðlilegt að kalla til varamann til að mál, sem þú ert mótfalhnn, nái frara í þing- inu? „Það ætla ég ekkert að segja af eða á um.“ - Kæmitilgreinafyrirþigaðgreiða sjálfur atkvæði þitt á móti van- trausti og með stjómarfrumvörp- um? „Það hefur aldrei staðið til,“ sagði Skúh. -gse Pressuliðið í skák, valið af Sigurdóri Sigurdórssyni blaðamanni DV, sigraði ólympíulandsliðið í skák á Skákhátiðinni í Kringlunni í gær. Lokatölur urðu 3 'A gegn 1 'A og voru flestar skákirnar æsispennandi. Á 1. borði sigraði Jón L. Árnason Friðrik Ólafsson, á 2. borði tapaði Margeir Pétursson fyrir Guðmundi Sigurjónssyni. Á 3. borði gerðu Helgi Ólafsson og Hannes Hlifar Stefánsson jafntefli. Á 4. borði tapaði Karl Þorsteinsson fyrir Björgvin Jónssyni og á 5. borði tapaði Þröstur Þórhallsson fyrir Sævari Bjarnasyni. Hátíðin heldur áfram í dag og þá teflir Þröstur Árnason við valinkunna borgara. DV-mynd GVA Veörið á morgun: Hvassvsðri eða stormur Á morgun verður suðaustanátt og allhvasst eða stormur um mestallt landiö. Búist er einnig^ við rigningu. Hitinn á landiríu verður 6-9 stig. Togarasmíði fyrir araba Skipasmíðastöðinni Stálvík hefur borist beiðni um smíði 10 togara fyr- ir aðila í Marokkó. Þessi viðskipti munu vera tilkomin vegna samninga sem fyrirtækið stóð í vegna hugsan- legra kaupa á notuðum togurum héö- an sem DV greindi frá í vor. Ef af þessu verkefni verður er búist við að flestar helstu skipasmíðastöðvar landsins taki þátt í smíði skipanna. Auk þessarar beiöni frá Marokkó hyggst Stálvík senda tilboð í smíði 14 togara fyrir íran. -gse Þung umferð í Reykjavík Umferðin var mjög þung í Reykja- vík þegar fólk var á leið heim frá vinnu í gær. Var verið að setja nýja „línu“ í ljósin á nokkrum gatnamót- um þar sem umferðin er einna mest á morgnana og síðdegis. Þurfti að stilla ljósin eftir umferðarþunganum á gatnamótum við Kringlumýrar- braut, Miklubraut, Laugaveg, Nóa- tún og Háaleitisbraut. Töluverðar umferðartafir urðu vegna þessa og reyndi verulega á þohnmæði margra ökumanna. Að sögn lögreglu tóku flestir töfunum vel og er ljósastilhng- um líklega lokið að sinni. -hlh Kópavogur: 26 bílar færðir til skoðunar 26 bifreiðir voru færðar til skoðun- ar á lögreglustöðinni í Kópavogi í gær þar sem ökumenn þeirra höfðu trassað að sinna skoðunarskyldu sinni. Lögreglan hefur nú vakandi auga meö óskoðuðum bílum. 11 voru teknir fyrir of hraðan aksturí Kópa- voginum, þar af einn á 107 kílómetra hraða á Nýbýlavegi. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.