Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Page 17
16 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988. FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988. Seoul’88Q9P Heimsmet hjá gyðjunni ósigrandi Gulli fagnað Heimsmeistarinn í lyftingum í 100 kílógramma flokki, Sovétmaðurinn Ana- toli Khrapatyi, stóð sig vel á ólympíuleikunum í Seoul. Anatoli stóð undir merkjum og lyfti gríðarlegum þunga sem dugði honum til að hreppa gullverðlaunin. Hann var að vonum glaður er hann sté á pallinn. Hlaupadrottningin Florence Grif- fith Joyner hafði mikla yfirburði í 200 metra hlaupinu í fyrrinótt og sló heimsmetiö i tvígang. Fyrst sló hún gamalt met austur- þýskra hlaupakvenna og síðan sitt eigið í sjálfum úrslitunum. Þjálfari Florence, A1 Joyner sem einnig er eiginmaöur hennar og ólympímeistari í þrístökki frá því í Los Angeles, þusti út á hlaupabraut- ina er ústlit voru ljós og bar þessa glæsilegu stúlku í fanginu. Ekki var ástæða til annars en að fagna rækilega því þetta var annar sigur Florence á leikunum en hins vegar markaði sigurinn íjóröa gull Joyner-fjölskyldunnar. Florence hafði áður orðið hlut- skörpust í 100 metra hlaupinu en mágkona hennar, Jackie Joyner- Kersee, vann gull í sjöþraut og í lang- stökki. Eitthvaö er þeim mágkonum illa við gömlu heimsmetin því Kersee sló einnig heimsmet í sinni aðalkeppnis- grein. Hún bætti metið í sjöþrautinni og setti aö auki ólympíumet í lang- stökki. Þess má geta að Florence grét í annað sinn sigurtárum á leikunum er hún tók við gullverðlaunum í 200 metra hlaupinu. Hún er án alls efa drottning þess- ara ólympíuleika í Seoul. Florence Griffith Joyner grætur hér öðru sinni sigurtárum á ólympíuleikunum í Seoul. Hún hefur nú unnið gull í 100 °g 200 metra hlaupi. Florence setti heimsmet i tvígang í fyrrinótt. Símamynd Reuter Gull og glæpur Tveir af fremstu sundmönnum Banda- ríkjanna, þeir Troy Dalby og Douglas Gjertsen, leiddust út í þá ógæfu að taka styttu nokkra ófrjálsri hendi í Seoul. Voru þeir að fagna stórkostlegum sigri sínum í 4x200 metra skriðsundi en gengu of langt í galsanum. Hrifu þeir meö sér fokdýran grip sem vertshúseigandi vildi hreint ekki sjá á bak. Kærði hann því kappana og vék þá sigurbrosið allsnögglega af andliti þeirra fyrir óttanum við svarthohð. Refsingar eru strangar í S-Kóreu og kunna menn að sitja á bak við lás og slá í allt að áratug fyrir hina minnstu grip- deild. Mál sundmannanna hefur verið í brennipunkti í Seoul síðustu dagana. Aðilar í utanríkisþjónustu Bandaríkj- anna hafa lagt hart að sér í þessu máli og reynt að fá fram farsæla lausn. Það má segja að það hafi tekist því að í nótt var sú ákvörðun tekin af hálfu s-kóreskra yfirvalda að vísa málinu frá. Var sagt að sú ákvörðun hefði byggst á því að um ólympíukeppendur hefði verið að ræða auk þess sem heimamenn vildu ekki skaða góð samskipti sín við Banda- ríkin. Sundkapparnir tveir hafa nú þegar verið reknir úr ólympíuliði Bandaríkja- manna og verða þeir sendir heim eins fljótt og unnt er eftir því sem heimildir herma. ' >V ■í . . C'/ *; Kanar sýndu loks klæmar Bandarisku stúlkurnar í körfuknattleiknum létu ekki sitt eftir hggja í úr- slitaleiknum. Þar mættu þær stahsystrum sínum frá Júgóslavíu og gekk á ýmsu í upphafi. Júgóslavarnir komu Könum í opna skjöldu með frábærri baráttu og ótrúlegri hittni. Jafnt var á flestum tölum en er leið á leikinn náðu bandarísku stelpurnar að sýna sitt besta og knýja fram öruggan sigur. Bandarísku körlunum hefur ekki gengið jafnvel og konunum í Seoul. Marg- ir ætluðu að þeir væru óvinnandi vígi en þeir urðu mjög á óvart að láta undan fyrir Sovétmönnum á sama hátt og í Munchen 1972. Þar fengu Banda- ríkjamenn silfur en tóku aldrei við því í mótmælaskyni og hggur peningur- inn í bankahólfi í Munchen. í gær fengu Kanarnir bronsið í sárabætur fyrir ósigurinn gegn Rússum í undanúrslitunum, unnu þá Ástrahubúa, 78^9, sem þykir ekki hátt skor í Mekku körfuboltans. Hér má líta sundkappana frægu, þá Troy Dalby og Douglas Gjertsen. QQP Seoul5 88 Stjarnan slegin út Stefán Edberg hefur ekki átt sjö Var honum þar spáö sigri í báð- dagana sæla í tenniskeppni ólymp- um greinum affjölmörgun en hann íuleikanna. var hins vegar sleginn út í báðum Hann náði góðum árangri í Los í undanúrslitum. Angeles áriö 1984 en þá var íþróttin Edberg heldur þó ekki heim án ekki meðal formiegra keppnis- verðlauna. Hami fær bronspen- greina en það er hún hins vegar rtú. inga, bæði fyrir einliða- og tvfiiða- Þessi heimsfrægi Svii hefur sótt leik. á brattann í báðum keppnisþáttum Ekki var þó leikið ura þriðja sæt- á leikunum í Seoul, bæði í einliða- ið heldur deila þeir kappar því með og tvihðaleik. sér sem falla út í undanúrslitunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.