Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Blaðsíða 24
48 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988. Smáauglýsingar ■ Verslun WENZ vetrarlistinn 1988/9 ásamt gjafa- lista er kominn. Pantið í síma 96-21345. Wenz umboðið. p.h. 781, 602 Akureyri. ■ BQar tíl sölu Range Rover sjúkrabilreið '85 til sölu, ekinn 47.600 km. Til sýnis á Rauðarár- stíg 18. Uppl á skrifstofutíma í síma 26722 og 985-21780. Rauði Kross Is- lands. Oalhatsu Rocky DX '85, lengri gerð, dísil, vökvastýri, silfurgrár, með dekkra hús, spokefelgur, sílsalistar, grjótgrind, ekinn 43.000 km., verð 850 þús., skipti á nýlegum beinskiptum fólksbíl. Uppl. í síma 98-21518 e. kl. 19. Audl 100, árg. 1984, til sölu, litur hvít- ur. Verð 570 þús. Útborgun 100 þús., eftirstöðvar á skuldabréfum. Uppl. í símum 42537 og 673625. Volvo 244 DL 1978 til sölu, sjálfskipt- ur, vökvastýri, mjög gott eintak, ath. skipti á ódýrari eða dýrari. Uppl. í síma 671906 eftir kl. 19 og um helgar. Dýrari óskast. Ein fallegasta Sierran í bænum til sölu, árg. '86 GL, verð 550 þús. Óska eftir nýlegum 4WD bíl, t.d. Subaru (turbo), Lancer eða öðrum góðum bjl á 700-900 þús. Uppl. í síma 675360 eftir kl. 19. Volvo 245 GL '82 statlon til sölu, sjálf- skiptur, ekinn aðeins 68 þús. km. Mjög vel með farinn, sumar- og vetrardekk. Uppl. í síma 689584. VW Golf 1800 GT 1987 til sölu, mjög vel með farinn og failegur bíll, litur hvítur, sóllúga, litað gler o.fl. Skipti möguleg á 300-400 þús kr. bíl. Uppl. í síma 42870. Audi 200 Turbo '84 til sölu, sjálfsk., rafm. í rúðum og speglum, centrallæs- ingar, topplúga, álfelgur, ekinn 100 þús. Skipti á ódýrari kema til greina. Uppl. í síma 92-37788 eftir kl. 19. Nissan Sunny Coupé '87 til sölu, ekinn 28 þús. km, mjög fallegur bíll. Nánari uppl. í síma 673176 eftir kl. 18 á föstu- dag og eftir kl. 14 á laugardag. ■ Ýmislegt Nýtt, nýtt. Vorum að fá alveg meirihátt- ar fatnað (balldress) s.s. pils og kjóla, stutt og síð snið í nokkrum útfærslum, toppa, buxur og jakka, allt úr latex (gúmmí) og pvc (fóðrað plast) efnum. Dömur! þetta eru alveg meiriháttar dress. Leitið uppl. Sjón er söguríkari. Rómeó & Júlía. Æðislega smart nærfatnaöur í miklu úrvali á dömur, s.s. sokkabelti, nælon- sokkar, netsokkar, netsokkabuxur, opnar sokkabuxur, heilir bolir m/og án sokkabanda, toppar/buxur, corse- lett st. stærðir, o.mfl. Sjón er sögu ríkari. Rómeó og Júlía. Hjálpartæki ástarlífins eru bráðnauð- synleg til að auka á tilbreytingu og blása nýju lífi í kynlíf þitt, og gera það yndislegara og meira spennandi. Við höfum leyst úr margvíslegum kyn- lífsvandamálum hjá hjónafólki, pörum og einstaklingum. Mikið úrval f/döm- ur og herra. Ath. sjón er sögu ríkari. Opið 10-18 mán. - föstud. og 10-16 laugard. Erum í húsi nr. 3, 3. hæð v/Hallærisplan, sími 14448. Menning Tilraun um samklipp - um sýningu Unu Dóru Copley Á sunnudag lýkur sýningu Unu Dóru Copley í Gallerí Gangskör. Þarna eru mestmegnis samklipp í síðdadaískum anda, mögnuð upp með gvassi, lakki og fleiru. Una Dóra notast talsvert við rifrildi úr tímaritaauglýsingum og þvíum- líku, að því er virðist til að ná fram einhvers konar absúrdleikhús- Myndlist Ólafur Engilbertsson áhrifum. Að þessu leyti svipar að- feröum hennar mjög til gömlu dadaistanna, sérstaklega þeirra Richards Huelsenbecks og Kurts Schwitters. Meðal dadaista var rushð vegsamað og hafiö upp í æðra veldi „ónytjalistar". Myndir Kurt Schwitters urðu oft á tíðum næsta þrívíðar út af því hvað allt ruslið sem hann hafði fundið var fyrirferðarmikið. Mynd númer 13 á sýningu Unu Dóru er þannig næstum því lág- mynd vegna þess hve „ruslið" er plássfrekt. Una Dóra er reyndar sparsöm á efnivið, þó svo að hún notist við fjölmiðlunarhrat í verk sín. Þetta er pappír á pappír ofan; engin útbrunnin sjónvarpstæki eða afvegaleidd tölvuforrit. Gvassið gerir það að verkum aö verkin fá á sig ævintýralegan blæ. Myndim- ar eru allar í svipaöri stærð, en sumar eru þess eðhs að þær hefðu Verk eftir Unu Dóru Copley. gjarnan mátt vera ögn stærri. Þar kemur bæði til fjölbreytileiki í áferð og myndbyggingu. Sem dæmi má nefna mynd númer tólf, en þar má sjá bút af striga í felum fyrir miðri mynd. Sú mynd hefði örugg- lega notið sín betur í stærra form- ati þar sem striginn hefði fengiö aukið hlutverk. Mynd númer 16 sómir sér hins vegar mæta vel í smáu sniði en hún viröist jafnframt hafa þá sérstöðu að vera aðeins gvassmynd en ekki collage. Máske að undirrituöum hafi þó missýnst í því efni. Eftirminnilegastar þóttu mér númer eitt og sex, hvort- tveggja sláandi uppbyggðar abs- úrdsenur. Sýning Unu Dóru ber nokkurn tilraunakeim en vinnu- brögðin eru forvitnileg og verður spennandi að sjá hvert þau munu leiða. Fréttir Olympíuleikur DV: Síðasta umferðin í dag - bónusviiimngurinn til New York dreginn út á morgun Elín Óladóttir, einn vinningshafanna i ólympiuleik DV, Bylgjunnar, Fjarkans og Flugleiða, dregur út nafn vinningshafa gærdagsins i beinni útsendingu hjá Þorsteini Ásgeirssyni á Bylgjunni. DV-mynd KAE í dag er komið að síðustu umferð- inni í Ólympíuleik DV í samvinnu við Bylgjuna, Fjarkann og Flugleiðir, því að í dag verður dregið úr fjörkum með nafni Margeirs Péturssonar stórmeistara. í gær var dreginn út vinningshafi úr fjörkum með nafni Sigurðar Gunnarssonar. Það var vinnings- haflnn frá því í fyrradag, Elín Óla- dóttir, sem kom í heimsókn í beina útsendingu í þátt Þorsteins Ásgeirs- sonar og dró út nafn þess heppna. Upp úr pokanum kom nafn Ólafs H. Ólafssonar, Rauðarárstíg 38. Þegar haft var samband viö Ólaf og honum sagt frá þessum glæsilega vinningi, helgarferð fyrir tvo með Flugleiöum til Glasgow eða London að eigin vali, var hann ekki tilbúinn að segja til um það hvemig hann myndi nýta sér vinninginn. Elín Óladóttir, sem vann sér inn helgarferð fyrir tvo til London í boði Flugleiða í fyrradag, brá skjótt við og er á leið til heimsborgarinnar á morgun með eiginmanni sínum, Frey Hreiðarssyni, og sagði hún í viðtali við Þorstein á Bylgjunni þegar hún dró út vinningshafa gærdagins að hún væri ákveðin í aö láta sér líða vel í ferðinni. Hver fer til New York? Á morgun, laugardag, verður síðan dreginn út glæsilegasti vinningur- inn, helgarferð til New York fyrir tvo í boöi Flugleiða. Dregið er sérstak- lega úr úrklippunum úr DV sem fylgdu með innsendu íjörkunum. Állir sem þátt hafa tekið í fjarkaget- rauninni eiga möguleika á því að hljóta þennan glæsilega vinning, einn eða ellefu, allt eftir því hve oft þeir sendu inn fjarka. -JR Norrænt tækniár á Isafirði: Mjólkursamlagið kynnti starfsemina Siguijón J. Sgurössan, DV, ísafiröi: í tilefni af Norrænu tækniári höfðu 17 mjólkursamlög opið hús fyrir al- menning síðasthðinn laugardag, þar á meðal Mjólkursamlag ísfirðinga. „Þetta heppnaðist vel, á annað hundrað manns heimsóttu okkur og skoðuðu starfsemina," sagði Pétur Sigurðsson mjólkurbússtjóri í sam- tali við DV. Að sögn Péturs var fólki boðið að bragða osta og ýmsar mjólkurvörur og börnin fengu ís. Á staðnum voru mjólkurfræðingar sem útskýrðu vinnslurás mjólkurstöðvarinnar, meðal annars gæðaeftirlit, alveg frá því mjólkin kemur til stöðvarinnar og þar til hún fer til neytenda. Þá var einnig dreift fræðsluefni um mjólk og mjólkurframleiðslu og sögu hennar á Islandi. Þar kemur fram að á síðasta verðlagsári nam innan- landsneyslan 99% af ársframleiðsl- unni en áður en kvótakerfið var tek- iö upp varð aö flytja miklar birgöir út og kosta í það úttlutningsbótum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.