Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Auglýsir atvinnu á olíuborpöllum:
Þarna er beinlínis ver-
ið að féfletta fólk
„Þessi auglýsing er hrein fólsun
og þama er beinlínis verið að féfletta
fólk,“ sagði Kristinn Steindórsson
um margendurteknar auglýsingar
frá atvinnumiðlun hér á landi þar
sem segir að viðkomandi miðlun
komi lysthafendum í samband við
oliuborpaila, hótelkeðjur og sam-
yrkjubú, svo eitthvað sé nefnt.
Kristinn hefur unnið á olíuborpöll-
um víða um heim undanfarin ár, þar
á meðal á norskum palli í Norður-
sjónum. Hann er nýkominn heim að
utan. „Ég þori að fullyrða að það fær
enginn vinnu 1 gegnum miðlun eins
og þá sem er að auglýsa þessa dag-
ana,“ sagði hann. „Framboðið á
starfsmönnum á olíuborpallana er
Atvmnuraiölunin:
Alveg pottþétt
- segir Eggert Guömundsson
„Þessi upplýsingaþjónusta er al-
veg pottþétt og ég hef fengiö hring-
ingar frá mörgum sem eru búnir
að fá atvinnu erlendís raeð aðstoð
hennar,“ sagði Eggert Guðmunds-
son sem rekur umrædda atvinnu-
miðlun. „Þar á meðal eru menn
sem fengið hafa vinnu á oliubor-
pöllura."
Atvinnumiðlunin er starfrækt
þannig aö fólk getur hringt í hana
og fengið senda bækiinga sem hafa
að geyma nöfii á ýmiss konar fyrir-
tækjum um allan heim. Bækling-
unura fylgja ýmsar upplýsingar um
landvistarleyfi, skattamál og flelra
í viðkomandi löndum. Fyrir þenn-
an pakka þarf aö greiða 1400 krón-
ur.
„Þarna er ekkert plat á ferð-
inni,“ sagði Eggert. „Eg er ekki að
útvega fólki vinnu heldur nöfn á
fyrirtækjum sem það getur síöan
skrifað til og sótt um vinnu hjá.
Þetta hefur gefið góðan árangur.
Til dæmis hringdi til mín kona um
daginn sem bað mig að senda syni
sínum bækling. Vinur hans hafði
nefhilega verið að ráða sig á olíu-
borpall í Norðursjónum með aðstoð
slíks bæklings og ætti að byrja inn-
an tíöar.“
Eggert kvaðst ekkert vita um
hvort lögreglan í Svíþjóð hetði lok-
að atvihnumiðlunum af svipuöu
tagL Það skipti sig engu máli því
hann gæti haldiö áfVam að miðla
upplýsingum um atvinnumögu-
leika þótt einhveijum miðlunum
annars staðar hefði vedð lokað.
Ekki vildi Eggert segja hvert nafnið
á sænsku miðluninni, sem hann
fékk sín gögn þjá, væri. „Það er
leyndarraál,“ sagði hann. „En það
voru nokkrir sænskir einstakling-
ar sem fóru af stað og söfnuðu upp-
lýsingum um ýmis fyrirtæki. Síðan
fóru þeir af stað meö þessa þjón-
ustu. Þessa einstaklinga hitti ég í
Svíþjóð um síðustu áramót og það
varð að ráði aö ég færi af stað með
svipaða þjónustu hér heima"
-JSS
svo mikið að það sækja allt að 500
um hvert pláss sem losnar í Noröur-
sjónum. Þetta er sama sagan um all-
an heim. Þeir sem ætla að notfæra
sér þjónustu sem þessa hafa ekkert
upp úr því nema fjárútlátin. Fólk fær
engin svör þótt það skrifi og sæki um
vinnu.
Þessi atvinnumiðlun, sem rekin er
hér, er angi af sænskri miðlun sem
rekin var af Austurlandabúum. Þeir
• voru einnig með útibú í Noregi. Þetta
var eins konar pósthólfaþjónusta svo
erfitt var að höndla höfuðpaurana.
En norska lögreglan og sú sænska
komust á slóð þeirra og upprættu
þess'a starfsemi. Þá voru birtar við-
varanir í blöðum um að fólk skyldi
ekki eiga nein samskipti við miðlan-
imar því þama væri einungis um
fjárplógsstarfsemi að ræða. Mér
finnst að yfirvöld hér á landi ættu
að gera eitthvað í málinu því þetta
er allt sama keðjan og var með höfuð-
stöðvar í Svíþjóð."
-JSS
Nýr glæsibátur til Keflavíkur
var kominn til ára sinna, byggður
1964,“ sagði Oddur ennfremur.
„Við munum halda til síldveiða í
vikunni og frysta síldina um borö.
Nú þegar er búið að selja alla síld-
ina, sem við veiðum, til Japan fyrir
viðunandi verð. Japanskur eftirlits-
maður mun verða um borð og fylgj-
ast með öllu.
Um borð mimu starfa 13 manns en
báturinn er með um 27 tonna frysti-
getu á sólarhring úr þremur frysti-
tækjum. Báturinn er einnig útbúinn
fyrir togveiðar, dragnótaveiðar og
netaveiðar. í bátnum er 1500 hestafla
vél og hliðarskrúfa að framan og aft-
an. Hvor skrúfa er 225 hestöfl," sagði
Oddur að lokum.
Hilmar Magnússon og Oddur Sæ-
mundsson skipstjóri.
DV-myndir Ægir Már
i
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Nýr glæs'flegur bátur, Stafnes KE
130, kom til Keflavíkur um helgina.
Eigendur bátsins eru þeir Oddur
Sæmundsson skipstjóri og Hilmar
Magnússon. „Stafnesið er 176 tonn
að stærð, byggt í Kolvereid í Noregi.
Það tók tíu mánuði að smíða bátinn,
og kostaði 170 miUjónir,“ sagði Odd-
ur Sæmundsson skipsljóri í samtah
við DV.
„Við fengum 14 milljónir fyrir
gamla Stafnesið sem skipasmíða-
stöðin tók upp í nýja bátinn. En hann
Stafnes KE 130
Dýrategundum mismunað
Reykvíkingar eru greinilega ekki
miklir hundavinir. í almennri
skoðanakönnum um hundahald í
borginni mættu aðeins tólf prósent
kjósenda og þar af sögðust sextíu
prósent vera á móti núverandi
hundahaldi. Aðeins þijú þúsund
manns, eða tæp fjörutíu prósent
þeirra sem kusu, samþykktu þær
reglur sem gilda um hundahald í
Reykjavik.
Þetta er auðvitað mikill ósigur
fyrir hundaeigendur og þá um leið
fyrir borgarstjómina sem hefur
lagt blessun sína yfir hundahald
samkvæmt ákveðnum reglum sem
um það gilda. Það kann að hafa
ráðið úrslitum að Davíð borgar-
stjóri, sem er sjálfur hundaeigandi,
var fjarverandi þegar kosningin fór
fram. Reyi’víkingar hafa vanist því
aö láta Davíð segja sér fyrir verk-
um og kunna ekki fótum sínum
forráð þegar foringinn yfirgefur
svæðið.
Hundavinir eru að vonum súrir
yfir úrslitunum og haft er eftir for-
manni Hundaræktarfélagsins í gær
að dýrategundum sé mismunað.
Engar atkvæöagreiðslur fara fram
um ketti eða hesta segir formaður-
inn og auk þess hafi það vakið at-
hygli að fólk hefði vérið beðið um
persónuskilríki. Nú er ekki alveg
gott að átta sig á því hvað formaöur
Hundaræktarfélagsins hefur við
það aö athuga að kjósendur hafi
verið beðnir um persónuskilríki en
kannski stendur það í sambandi
við þá fullyrðingu að dýrategund-
um hafi verið mismunað. Það er
ekki sama hvaöa dýrategund kýs
en þeir sem stjórnuðu kosningunni
hafa sennilega viljað koma í veg
fyrir að aðrar dýrategundir heldur
en mannskepnan greiddu atkvæði.
Þess vegna var beðið um persónu-
skilríki, til að vera klár á þvi aö
hvorki kettir, hestar né heldur
hundamir sjálfir greiddu atkvæði
um hundahaldið.
Annars er að heyra á þeim
hundavinunum aö í uppsiglingu sé
önnur skýring á kosningaúrslitun-
um heldur en sú að hundavinir
hafi tapað. Sú fullyrðing kom fram
í útvarpi í gær að þegar ekki sé
meiri þátttaka í skoðanakönnun-
inni en raun ber vitni um sé það
staðfesting á því að þeir sem heima
sitja séu sammála núverandi fyrir-
komulagi á hundahaldinu. Þetta er
í rauninni það sama og stuðnings-
menn séra Gunnars héldu fram í
allsheijarkosningunni í Fríkirkju-
söfnuðinum. Þeir héldu því fram
að meirihlutinn styddi séra Gunn-
ar af því að meirihlutinn sat heima.
Verður ekki annað sagt en þetta
séu frumlegar og nýstárlegar kosn-
ingaskýringar og litlir stjómmála-
flokkar og fylgislausir geta örugg-
lega fært sér þær í nyt með því að
segja það sama. Eftir þvi sem fylgið
er minna því meira verður það
vegna þess fjöida sem ýmist er fjar-
verandi eða kýs aðra. Þeir em þá
með því að segja aö þeir hafi ekk-
ert á móti flokknum eða málstaðn-
um, sem stendur uppi fylgislaus,
með því að láta hann afskipta-
lausan. Auðir og ógildir verða hér
eftir sá hópurinn sem ræður úrslit-
um í sérhverjum kosningum.
Nú, svo er líka hin aðferðin, sem
fram kemur í máh eins borgarfull-
trúans, að taka ekki mark á skoð-
anakönnuninni vegna þess hversu
fáir tóku þátt. Segja bara allt í
plati, auk þess sem það er eiginlega
ómark að hafa kosningar í Reykja-
vík þegar Davíð er íjarstaddur.
Meirihlutinn á jú að ráða og þegar
meirihlutinn situr heima ræður
hann en ekki þeir sem ómaka sig
til að kjósa. Svo er þess að geta að
þeir sem kusu á móti hundahaldinu
em á móti hundum og þeir eru
varla hlutgengir vegna þess að það
er ekki sanngjarnt að þeir fái að
ráða sem era á móti hundum þegar
verið er áð gera upp á milli dýrateg-
unda.
í síðasta lagi var spurningin í
skoðanakönnuninni þannig að það
var alls ekki hægt að skilja hana.
Það era jafnvel líkur til þess að
þeir sem sögðu nei hafi í rauninni
meint já. Hvemig er hægt að taka
mark á skoðanakönnun þegar
skoðanakönnunin er þannig út-
búin að þeir segja já sem vilja segja
nei og hinir segja nei sem sögðu já?
Það er alveg sama hvemig á þessa
skoðanakönnun er htið. Hunda-
haldið heldur áfram. Og svo var
þetta bara skoöanakönnun en ekki
kosning og skoðanakannanir eru
ekki bindandi, sérstaklega þegar
úrshtin era öðruvísi en þau eiga
að vera.
Dagfari