Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Side 16
16 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. Frjálst,óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 • Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSA/IIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. íþróttasigur Handknattleikskeppninni í Frakklandi er lokið. ís- lenska landsliðið náði þar frábærum árangri og er ástæða til að óska liðinu og aðstandendum þess til ham- ingju með glæsileg úrslit. Öll þjóðin hefur fylgst með leikjunum og gleðst innilega yfir frammistöðunni. Fjöl- miðlar hafa skýrt ítarlega frá gangi mála og sjónvarpið hefur flutt leikina heim í stofu, þar sem fólk getur lifað sig inn í hverja hreyfmgu, hvert skot og hvert mark, með öllum þeim æsingi og spenningi sem íþróttakapp- leik fylgir. Enn einu sinni hefur komið í ljós hversu áhrifamikið og vinsælt sjónvarpsefni það er þegar hægt er að fylgjast með íþróttum í beinni útsendingu. Að þessu leyti hefur sjónvarpið hjálpað handboltanum og handboltinn sjónvarpinu. Ekki síst á tíma þegar við getum teflt fram frábæru liði og framúrskarandi ein- stakhngum. Keppnin í Frakklandi var svokölluð B-keppni heims- meistaramóts Alþjóða handknattleikssambandsins. ís- lendingar þurftu að lenda í einu af sex fyrstu sætunum til að öðlast rétt til að leika í hópi A-þjóða á næsta ári. Það takmark náðist og vel það. Ekki fer á milli mála að íslenska liðið er í hópi þeirra allra bestu í þessari íþrótt. Er það glæsileg frammistaða, jafnvel þótt hand- knattleikur sé ekki iðkaður við sömu útbreiðslu og margar aðrar íþróttir. Hér á landi hefur handknattleik- urinn verið hátt skrifaður og með tilkomu fleiri íþrótta- húsa hefur honum vaxið fiskur um hrygg. Inniíþróttir af þessu tagi henta að mörgu leyti vel hér á landi þar sem veturinn er langur og veður hamla iðkun úthþrótta sem annars staðar þykja eftirsóttar. Það fer ekki mihi mála að íslenska þjóðin er stolt af sínu hði eins og jafnan þegar íslenskir íþróttamenn vinna góða sigra. íslendingar sameinast í gleði sinni og áhuga og fátt sýnist efla betur samkennd þjóðarinnar og þjóðernisvitund heldur en einmitt velgengni okkar manna í íþróttum. Er þá ekki minnst á gildi sjálfra íþróttanna fyrir æskuna og heilbrigðið sem af iðkan þeirra fæst. Auðvitað þarf ekki að fjölyrða um þá stað- reynd að sigrar og afrek á alþjóðavettvangi laða þúsund- ir ungmenna til íþróttaiðkunar og stórstjörnurnar eru og verða fyrirmynd þeirra sem eru að stíga sín fyrstu spor. Ábyrgð fylgir velgengni og stjörnudýrkun. Sú ábyrgð er íþróttanna. En ábyrgð hlýtur einnig að fylgja hjá ís- lenskum stjórnvöldum og hjá allri þjóðinni th að veita íslenskum áhugamönnum og áhugamannasamtökum möguleika th að standa sig.í því uppbyggingarstarfi sem skhar sér í betri þjóð og hraustari æsku. Sigur á alþjóðavettvangi kemur og fer. í íþróttum skiptast á skin og skúrir. Það er þess vegna ekki nóg að klappa og kætast þegar vel gengur. Það verður líka að standa við bakið á íþróttamönnum okkar þegar á brattann er að sækja. Og einnig þeim sem ekki eru í sviðsljósinu en eru samt að. Þannig hlúum við að fram- tíðinni og þeim langtímamarkmiðum sem eru tilgangur íþróttanna: að gera drengi að mönnum og menn að drengjum. íslenska handknattleikslandsliðið hefur sýnt það og sannað að það þarf ekki stóra þjóð eða mihjónir manna th að skara fram úr. Ef efniviðurinn er fyrir hendi skap- ar æfmgin meistarann. Með einbeitingu og baráttu, með leikni sinni og samæfmgu hafa strákarnir okkar komið, séð og sigrað. Þeir hafa verið glæshegir fuhtrúar ís- lenskrar íþróttaæsku. Þeir hafa staðið sig eins og hetjur. Ehert B. Schram Marga hefur furðað á því á liðnum árum hve peningamagn í umferð var mikið, hvað kaupgetan var mikil og hvað bruðlið og óhófið var mikið hjá ákveðnum hópum. Þá var einnig eftirtektarvert hvað mikið af alls konar þjónustufyrir- tækjum spruttu upp eins og hendi væri veifað. Á þenslunni og vellyst- ingunum virtist enginn endir ætia að verða. Sumir klóruðu sér í höiðinu og skyldu ekki samhengið og töluðu um að fjárfestingar og kaupæði væri langt umfram það sem fram- leiðsluverðmæti þjóðarinnar stæðu undir, þrátt fyrir metafla og metverð. Sumir höfðu jafnvel spáð því að hart yrði í ári 1985 og áfram. En svo hurfu þessir miklu peningar „Það er i sjálfu sér ekkert furðulegt að stjórnmálamenn skuli þjónusta pappírsbaróna ... - Sjálfir eru þeir í raun stærstu pappirsbarónarnir sem til eru í þessu þjóðfélagi.“ Kaupleigufurstar og pappírsbarónar allt í einu af markaðnum og menn fóru að tala um kreppu. Þetta gerðist líka án þess að nokkurt samhengi væri á milli versnandi gengis á peningamark- aði landsins og minnkandi fram- leiðsluverðmæta þjóðarinnar. En einhvers staöar hlýtur samhengið að vera. Feitu árin og þau mögru Einu sinni var konungur í Litiu- Asíu sem hét Krösus hann var gíf- urlega auðugur og var talað um aö aldrei hefði annar eins auður verið samankominn í einu ríki. Krösus konungur var aö vonum ánægður meö auðlegð sína og veldi sitt og ræddi það við gríska spekinginn Sólon, að hann væri svo ríkur og voldugur að á því gæti enginn end- ir oröið. Sólon á að hafa sagt við hann að enginn vissi sína ævina fyrr en öll væri og minntist Krösus þess þegar Kýros Persakonungur haföi lagt undir sig ríki hans og tekið auðæfi hans. Þessi saga og margar fleiri sýna að mörgum hættir til að ofmetnast þegar vel gengur og gæta þess ekki að leggja til hliðar til að mæta erf- iðum tímum. Venjulegast létu menn sér þó nægja að eyða ein- göngu því sem þeir öfluðu en á síð- ari tímum hefur það orðið algeng- ara að menn tækju forskot á sæl- una og eyddu fyrirfram margfóld- um mánaðarlaunum sínum. í okkar þjóðfélagi höfum við mörg glögg og sum hryggileg dæmi þess að kaupleigufurstar og papp- írsbarónar hafi slegið um sig, sett upp fyrirtæki sem voru öll fjár- mögnuð með skuldabréfum og kaupleigutækjum, keypt bifreiðar og önnur vélræn leikfóng langt um efni fram eöa dekrað við sig með öðrum hætti. Þegar peningamir voru greiddir út úr kaupleigufyrirtækjunum og fjárfestingarfélögunum var þar af leiðandi allt fljótandi í peningum og eyðslan gífurleg. Þegar nú kem- ur að fyrstu afborgununum harðn- ar á dalnum. Kaupleigufurstamir óg pappírsbarónamir þurfa að fara að greiða til baka. í sumum tilvikum má fresta greiðslum, í öðmm tekst að skuld- breyta með þvi aö taka ný lán í bankanum eða hjá fjárfestingarfé- laginu. Vandinn er þá að mati sumra í þessari stétt horfinn, vegna þess að vandinn er eingöngu sá sem við er að ghma vegna fallinna víxla og innstæðulausra ávísana. Annar vandi fyrirfinnst ekki í huga venju- legs pappírsbaróns. I hugum sumra er slíkt jafnvel ekkert vandamál vegna þess að þeir eru með svo mikið umleikis að þetta er allt að ganga upp. Alla- vega gengur þaö upp svo fremi sem óviðkomandi aðilar, eins og þeir sem lánuðu viðkomandi, sýna ekki þá ósvífni að krefja þá um greiðsl- ur. Síðan fer kreppuhringekjan á fullt. Þeir sem hafa lánað fá ekki greitt og lenda í erfiðleikum. Þannig getur margt sómakært Kjallariim Jón Magnússon lögmaður fólk, sem ekki má vamm sitt vita, lent í verulegum greiðsluerfiðleik- um vegna kaupleigufurstanna, en æth það að leita til bankastjórans síns um lán þá er það undir hælinn lagt að það fái það vegna þess að það er ekki á vanskilaskrá og bank- arnir sækjast eftir að lána van- skilamönnum vegna þess að á því græða þeir mest. í leikriti eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Ámasyni var sungið lag- ið, „Við viljum aukavinnu, við vilj- um ennþá meiri aukavinnu." Nú gæti samræmdur kór bankastjóra, jafnt í einkabönkum sem í ríkis- bönkum, sungið uppáhaldstextann sinn sem er, „Við viljum dráttar- vexti, við viljum ennþá meiri drátt- arvexti.“ Bankar og fjármálasiðferði Mörgum kann aö finnast þaö furðuleg staðhæfing að vanskila- fólki sé lánað ítrekað. Einhvern veginn er það fjarri hugmyndum venjulegs fólk að þannig sé það. En er þaö þannig? Ég er ansi hræddur um að margur pappírs- baróninn eigi greiðari leið að hjarta bankastjórans síns til að fá hátt lán, þrátt fyrir að hann sé í vanskú- um, en sómakæri skilamaðurinn. Ég held því fram að ekkert hafi rýrt jafnmikiö almennt fjármála- siðferði í þessu landi og framkoma bankastofnana og stjórnmála- manna í sambandi við peninga. Þannig skiptir engu máli hvernig forsögu kaupleigufurstinn á. í fjár- málaheiminum er hann tekinn í viðskipti, jafnvel þó að hann hafi verið fundinn sekur um tékkamis- ferli eða nýlega verið lokað á hann tékkareikningi. Sem dæmi um hversu lítill skilningur er á eðlileg- um viðskiptaháttum í bankakerf- inu má nefna aö fyrir nokkru stefndi einn ríkisbankinn allmörg- um aöilum fyrir rétt til að kreíja þá um greiðslur á ávísunum sem reyndust innstæðulausar. Sagan var sú aö í umræddu til- viki hafði viðskiptavinur bankans, vinsamlegur pappírsbarón, lent í vanskilum með þeim hætti að ávís- anir bárust á reikning hans fyrir hærri fjárhæð en innstæöa var fyr- ir. Ríkisbankinn setti þessar ávís- anir á serstakan geymsluhsta hjá sér og lét enga vita af því að hann teldi ávísanimar ekki góðan greiöslueyri. Af þessum ávísunum tók bankinn síðan dráttarvexti af viðskiptavini sínum sem að lokum varð gjaldþrota. Þegar þar kom að ekki var meira að hafa af pappírsbaróninum greip bankinn til þess ráðs að stefna grandalausum einstakhngum fyrir rétt. Þegar svona dæmi og ýmis fleiri sem gerast í bankakerfinu eru skoðuð þá verður að telja að það sé borin von að hægt veröi aö koma á eðlilegum viðmiöunum um lán og lánafyrirgreiðslu í þessu landi. Síðan er það garmurinn hann Ketill. Stjórnmálamenn mega ekk- ert aumt sjá eins og dæmin sanna. Einkenni á fyrirgreiöslustjórn- málamönnum er það aö þeir eru gagnrýnislausir. Þannig reyna þeir að leysa allra vanda á annarra kostnað hversu vitlaust sem það kann að vera. Þegar í harðbakkann slær gangast heilu þingmanna- nefndirnar í að koma vitleysunni áfram. Gjaldþrota fyrirtæki og autt atvinnuhúsnæöi um land allt bera þessari góðmennsku vitni. Þaö er í sjálfu sér ekkert furðu- legt að stjornmálamenn skuh þjón- usta pappírsbaróna á alla lund sem þeir geta. Sjálfir eru þeir í raun stærstu pappírsbarónarnir sem til eru í þessu þjóðfélagi. Því að þeir eru á hverju ári að veðsetja börnin sín og annarra í þessu landi með óhófseyðslu og bruðli. Nú þegar vandamáhn hrannast upp kunna þessir menn engin ráð, hvorki í stjóm né í stjómarand- stöðu. Holskeflu lánsfjár var dælt yfir þjóðina í mesta góðæri í ís- landssögunni auk þess sem prent- aðir vom innstæðulausir peningar í Seðlabankanum. Það er hægt að halda þessum dansi áfram enn um hríð. Því miður virðist tími papp- írsbarónanna ekki vera liðinn und- ir lok. Það er enn timi til að fara í dansinn ef fahnir víxlar, skulda- bréf og framtíð bamanna þinna angra þig ekki. Jón Magnússon „Eg held því fram að ekkert hafi rýrt jafnmikið almennt Qármálasiðferði 1 þessu landi og framkoma bankastofn- ana og stjórnmálamanna í sambandi við peninga.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.