Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Side 26
26
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
Iþróttir
Blikur á lofti í
íþróttahreyfingunni
í nýjasta
hefti
íþrótta-
blaðsins er
birt magn*
þrungin
völvuspá
fyrir þetta
ár sem rétt
er að vitna
aðeins í:
„Þaö eru greinilega ýmsar blikur
á lofti í íþróttimum hér á landi og
í sfjómun þeirra mála... í það
minnsta beinast öli spjót að aðal-
- stjóminni og menn viija virka,
unga athafnamenn í þá stóla sem
skipta máli fyrir hreyfinguna. Ein-
hver endemis ládeyða hefur verið
í kringum starfsemina og sætir
stjómin sífellt meiri gagnrýni fyrir
dugleysi og hlutleysi í stað þess að
láta hendur standa fram úr erm-
um.“
Rauði lifurinn
verður áberandi
Umknatt-
spymu:
„Fjöimenn-
asta
íþróttasam-
bandið
verður
mikið á
milli tann-
anna á fólki
á árinu ...
Þrátt fyrir deilur i sambandinu sé
ég menn hlaupa sigurhring eftir
keppm við menn frá öðrum lönd-
um ... Aðalþjálfarinn veröur í
brennidepli og saetir gagnrýni fyr-
ir það að sjást lítið hér á landi.
Hann er þó hæfur maður og nær
góöum árangi en óánægjuraddir
viija íslenskan þjálfara í hans
staö ... Það er eins og rauöi litur-
t inn verði mest áberandi á ár-
inu ... Sérstaklega virðist eitt lið
ætla aö spjara sig vel og það spilar
hugsanlega áfram fVam eftir
vetri."
Nýr maður og áhuga-
verðar breytingar
Handbolt-
inn: „Úr-
valslið
handboit-
ans veröur
mikið í
sviðsljósinu
en það virð-
ist vera
mjög vant
því.Ánægja
er með nýjan mann sem stjómar
liöinu og hann gerir áhugaverðar
breytingar. Reyndir leikmenn
þurfa að sitja heima og sætta
nokkrir þeirra sig ekki við þá
málalyktan ... Margir leikmenn
héðan fá gyliiboð að utan og sumir
hverjir láta freistast og gera garð-
inn frægan. Einhverjar íleiri
hræringar verða i handboltanum
og menn virðat alltaf vera að fara
úr einu liði i annað.“
Spjðtkasfarinn
á háum þrepum
Frjálsar
íþróttir:
„Spjótkast-
arinn
stendur á
háum þrep-
um og virð-
ist ekki
kippa sér
upp við það.
Hanu kann
vel við sig þar og fær mikið lof.
Hann heilsar félaga sínum sem
bætir sig verulega og fylgir fast á
hæla honum. Þeir dvelja þó hér á
landi á árinu. Afrek þeirra veröa
flest unnin á erlendum vettvangi.
Þó veröur mikill hasar í kringum
mót I Reykjavík um miöbik sum-
ars og þar veröur mikið barist."
- Og er hér aöeins fátt eitt tínt til
úr viskubrunni völvunnar, sem
virðist þó hrifin af rauðum lit og
nefnir hann víða!
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
kariaflokki. Frá vinslri: Örnólfur Valdimarsson, Helgi Geirharðsson, Kristján Valdimarsson
DV-mynd GVA
• Fjórir efstu menn
og Einar Úlfsson.
Sextíu keppendur
á svigmóti Framara
Skíðadeild Fram hélt svonefnt
Emmess-svigmót á svæði sínu í Eld-
borgargili um fyrri helgi. Keppt var
í fjórum flokkum og voru þátttakend-
ur um 60 talsins. Úrslit urðu sem hér
segir:
Kvennaflokkur:
1. Þórdís Hjörleifsdóttir, Vík ....1:30,47
2. Margrét Ingibergsd., Fram ...1:33,34
3. Guðný Hansen, IR.........1:35,63
4. Guðbjörglngvarsdóttir, Vík.l:37,49
5. Sigrún Grímsdóttir, Fram ....1:41,81
Karlaflokkur:
1. Örnólfur Valdimarsspn, ÍR...1:20,29
2. Helgi Geirharðsson, Árm..1:21,55
3. Kristján Valdimarsson, ÍR....1:21,88
4. EinarÚlfsson, Ármanni....1:25,06
5. Guðjón Mathiesen, KR.....1:26,37
Stúlknaflokkur, 15—16 ára:
1. Valdís Arnardóttir, ÍR...1:35,66
2. Gunnlaug Gissurard., Vík ....1:37,14
3. LiljaGuðmundsdóttir, KR....1:46,29
4. Helga Rún Pétursdóttir, IR ...1:53,59
Drengjallokkur, 13-14 ára:
1. Kristján Kristjánsson, KR ....1:13,50
2. Ásbjörn Jónsson, KR.......1:16,30
3. Róbert Jónsson, Fram 1:21,22
4. Hörður M. Þorvaldsson, Árm
........:....................1:29,71
5. Ásgeir Björgvinsson, Fram ..1:30,16
-VS
Siglfirðingar sigursælir
- á tveimur mótum í skíðagöngu í HHðaiflaHl
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Siglfirðingar unnu þrenn gull-
verðlaun í tveimur skíðagöngumót-
um sem fram fóru í Hlíðarfjalli við
Akureyri um fyrri helgi, en þaö voru
VISA bikarmót Skíðasambandsins
og FN-mót í boögöngu.
í VISA mótinu var keppt í fjórum
karlaflokkum og einum flokki
stúlkna. í karlaflokki sigraði Einar
Ólafsson, ísaflrði, sem gekk 30 km á
1:47,17 klst. og hafði nokkra yfir-
burði. i 17-19 ára flokki sigraði
Sveinn Traustason, Fljótum, í 15 km
göngu, fékk tímann 58,55 mín.
í flokki 15-16 ára voru gengnir 7,5
km og þar sigraði Daníel Jakoþsson
ísafirði á 29,29 mín. Kristján Hauks-
son, Ólafsfirði, sigraði í flokki 13-14
ára, gekk 5 km á 20,42 mín. í stúlkna-
flokki, 13-14, ára voru gengnir 2,5 km
og þar sigraði Hulda Magnúsdóttir,
Siglufirði, á 14,34 mín.
í FN-mótinu vann sveit Sigluíjarð-
ar í 3x7,5 km boðgöngu, fékk timann
79,08 mín. Siglflrðingar unnu einnig
í boögöngu 15-16 ára drengja en þar
gekk reyndar með þeim í liöinu
Hulda Magnúsdóttir. Sveitin fékk
tímann 62,37 mín. Loks er að geta
sigurs Ólafsfirðinga í boðgöngu 13-14
ára drengja, sveit þeirra fékk tímann
45,00 mín.
Lyftingar:
Haraldur
settimet
Haraldur Ólafsson frá Ak-
ureyri setti glæsilegt íslands-
met í jafnhöttun á íslands-
meistaramótinu í ólympísk-
um lyftingum sem fram fór í
Garðaskóla fyrir skömmu.
Hann lyfti 178,5 kílóum og
vann öruggan sigur í 82,5 kg
flokki.
Þaö var hins vegar Guð-
mundur Helgason úr KR sem
sigraði í stigakeppni mótsins
og hann náði að komast upp
fyrir Harald í henni með því
að jafnhatta 190 kíló í 110 kg
flokki.
Gamla kempan Guðmundur
Sigurðsson, sem nú keppir
fyrir ÍR, sigraði í 90 kg flokki
og hreppti sinn 19. Islands-
meistaratitil en hann keppti
nú á mótinu í 21. skipti.
Þá voru sett níu drengjamet
á mótinu og unglingameistari
varð Tryggvi Heimisson frá
Akureyri. KR sigraði örugg-
lega í stigakeppni félaga en
Akureyringar urðu í öðru
sæti.
-VS
Skotfimi:
Carl náði
ólympíu-
lágmarki
Carl J. Eiríksson náöi fyrir
skömmu alþjóðlegu ólympíu-
lágmarki í riffilskotfimi, 60
skot liggjandi af 50 m færi með
22. cal. riffli, þegar hann fékk
590 stig í mánaðarkeppni
Skotfélags Reykjavíkur.
Carl og Björn Birgisson hafa
unnið til skiptis á mótum á
vegum Skotfélagsins. Carl
sigraði í mánáðarkeppni í
loftskammbyssu í lok janúar
en Björn sigraði hann í hlið-
stæöri keppni í febrúar. Björn
vann ennfremur í mánaðar-
keppni með staðlaðri skamm-
byssu en Carl í mánaðar-
keppni í riffllskotfimi, þrí-
þraut. Þorsteinn Guðjónsson
varð í öðru sæti á þremur
þessara móta.
Tveir sigrar Framstúlkna
- Haukar unnu tvö leiki og töpuðu einum 11. deUd kvenna
Fimm leikir fóru fram í 1. deild
kvenna í handknattleik i siðustu
viku. Haukastúlkurnar voru þátt-
takendur í þremur þeirra, þær sigr-
uðu Þór tvívegis á Akureyr i en biðu
síðan lægrí hlut fyrir Fram. Fram
vann einnig sigur á Víkingi og náði
með þvi tveggja stiga forystu í
deildinni og þá sigraði Stiarnan Val
í Digranesi.
Stjarnan - Valur 29-25
Valsliðið byijaði leikinn af krafti
og náöi forystunni fljótlega í leikn-
um. Aldrei var munurinn þó meiri
en tvö mörk og undir lok fyrri hálf-
leiks náði Sljaman góðum kafla og
var yfir í hálfleik, 11-10. í síöari
hálfleik byrjaði Stjaman vel og
breytti stööunni í 16-11 og náöi
Valsliöið aldrei að svara þessum
mikla mun og urðu lokatölur sem
fyrr segir 29-25.
Hjá Stjörnunni var Erla Rafns-
dóttir allt i öllu og var langat-
kvæðamest með 10 mörk. Einnig
var Herdís Sigurbergsdóttir ógn-
andi í síðari hálfleik. Guðrún
Kristjánsdóttir var góö í sókninni
hjá Val og gerði alls 11 mörk.
• Mörk Stjömunnar: Erla 10,
Herdís 5, Hrund 4, Helga 4, Guðný
2, Ingibjörg 2, Ragnheiður 2.
• Mörk Vals: Guörún 11, Katrín
5, Kristín Anna 4, Ema 2, Ásta
Björk 2, Kristín 1.
Fram - Haukar 20-17
Það var mikið fjör í Höllinni er
þessi lið mættust, jafnt var á öllum
tölum og spuming hvomm megin
sigurinn lenti. Staðan í hálfleik var
11-10, Fram í vil. Haukar tóku til
þess ráðs í síöari hálfleik að taka
Guðríði Guðjónsdóttur úr umferð
en hún hafði verið allt í öllu í sókn-
arleik Framliðsins. Þegar aöeins
fimm mínútur voru til leiksloka
fékk Haukaliðið gullið tækifæri til
að komast yfir í fyrsta skipti en
Kolbrún í marki Fram sá viö því
og varði vítakast. Fram náði þá
tveimur hraöaupphlaupum í röð
og vann með þremur mörkum.
Það var fyrst og fremst góð mark-
varsla og vamarleikur sem skóp
sigur Fram, einnig var Guðríöur
iðinn við markaskorunina og gerði
alls 8 mörk. Hjá Haukum var
Margrét góð og var hún tekin úr
umferð þegar 10 mínútur vom til
leiksloka. Þá var Hrafnhildur ógn-
andi í sóknínni og Þómnn átti einn-
ig ágætan leik.
• Mörk Fram: Guðríður 8, Ama
4, Margrét 2, Jóhanna 2, Ósk 2,
Hafdís 1, Ingunn 1.
•Mörk Hauka: Margrét 6, Þór-
unn 4, Hrafnhildur 3, Steinunn 1,
Ragnheiður 1, Brynhildur 1, Elfa 1.
Víkingur - Fram 15-20
Fram-stúlkur bættu tveimur stig-
um í safnið í toppbaráttunni er þær
lögðu Víkinga að velli í Laugar-
dalshöllinni á mánudagskvöld.
Leiknum lauk 20-15 eftir aö jafnt
hafði verið í hálfleik, 10-10.
Guðríöur var atkvæðamest í liöi
Fram og geröí 10 mörk, þrátt fyrir
að vera tekin úr umferö síöari hálf-
leikinn. Einnig sýndi Kolbrún
gamla takta í raarkinu og virðist
vera að ná sér á strik að nýju. Ungu
stúlkumar í liði Víkings, þær Halla
og Heiða, voru yfirburðamanneskj-
ur í liðinu, skoraðu 11 af 15 mörk-
um liðsins. Mikil efni þar á ferö.
• Mörk Fram: Guðríður 10, Ósk
4, Sigrún 2, Arna 2, Margrét 1, Ing-
unn 1.
• Mörk Víkings: Heiða 6, Halla 5,
Svava 1, Inga L. 1, Valdís 1, Jóna 1.
Þór - Haukar 10-19 og 21-28
Óhætt er aö segja að Haukamir
hafi stolið stigunum tveimur af Þór
í fyrri leik liöanna. í fyrri hálfleik
síðari leiksins var jafnræði en i síö-
ari hálfleik sigldu Haukamir fram
úr og sigraðu örugglega, 28-21.
Margrét átti mjög góðan leik fyrir
Hauka og skoraði alls 11 mörk. Inga
Huld var atkvæðamest Þórsara
meö 7 mörk.
EL/ÁBS