Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Side 22
22
MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR 1989.
Iþróttir
Stúfar
frá París
Steön Knstjánsson, DV, Strasbourg:
Skemmtilegasti boltinn
„fslendingar leika að minu mati
skemmtilegasta og besta hand-
boltann af öllum liðum í heimin-
um í dag,“ sagði pólskur dómari
í samtali við DV hér í Frakklandi.
Orð pólska dómarans segja
mikið um styrkleika íslenska
liðsins á þessu móti en segja má
að hvergi hafi verið veikan hlekk
að finna. íslenska hðið hefur vak-
iö feiknalega athygh hér i Frakk-
landi og leikmenn Uðsins eru
mjög vinsælir á meðal áhorfenda.
Enn einu sinni hefur litla ísland
komið á óvart í heimi handknatt-
leiksins og ég fullyrði að það eru
fá, jafnvel örfá, lið í heirainum
sem eru sterkari en það íslenska.
Glæsilegur árangur
Þáttur Bogdans landsUðsþjálfara
í þessum glæsilega árangri hér í
Frakklandi er mikiU og þeir sem
gagnrýndu hann sem mest eftir
ólympiuleikana hafa nú væntan-
lega séð meö eigin augum hve
góður þjálfari Bogdan er. Hann
var meö niðurbrotiö Uð í höndun-
um eftir ólympíuleikana og
skammur tími var til stefnu tU
að rífa leikmenn upp úr þeirri
lognmollu sem þeir voru sokknir
í eftir hrakfarimar i Seoui. Þeir
sem hæst töluöu og gagnrýndu
Bogdan mest töluöu um þaö efdr
ólympiuleikana að nýir vendir
sópuöu best. Nú held ég aö þeir
hinir sömu ættu að athuga eigin
vendi.
Otrúleg afrek
Það er ekki ofsagt aö árangur ís-
lenska liösins í b-keppninni hefur
komiö öUum á óvart sem hér hafa
verið. Auðvitað vissum viö hvaö
íslenska liðið gat gert á góðum
degi en að alUr þessir dagar yrðu
svo góðir sem raun hefur orðið á
hvarflaöi ekki að nokkrum
manni.
Ein bjórdós á mann
= 28,7 milljónir
Undirbúningur islenska Uösins
fyrir þessa ógleymanlegu b-
keppni var HSI gríöarlega dýr.
HSI þurfti að leggja út um 10
mUljónir króna. I dag skuldar
HSÍ um 5 miUjónir króna. Eftir
þeim fréttum sem borist hafa
hingað tU Frakklands hefur mest
öU íslenska þjóðin fylgst af at-
hygU með framgöngu landsUös-
mannanna hér í Frakklandi. ís-
lendingar gefa mikiö fyrir að eiga
íþróttamenn í fremstu röð og nú
er komið aö handknattleiksunn-
endum á íslandi að sýna hvað í
þeim býr og hver hugur íslend-
inga er í raun og veru tíl lands-
liðsins. Sú hugmynd skaut upp
kollinum í herbúðum íslending-
anna að ekki væri vitlaust að
hver íslendingur myndi leggja af
mörkum andvirði einnar bjór-
dósar. Ef 250 þúsund íslending’ar
rayndu gera það myndi sá styrk-
ur nema 28 miUjónum og 750 þús-
undum betur. Landsliösmenn
okkar og þeir menn sem staðiö
hafa að Uðinu í gegnum súrt og
sætt undanfarin ár, fórnað fjöl-
skyldulífi og miklum tíma, eiga
það svo sannarlega skiUð.
„Vona að
ég geti
hætt“
- segir Alfreð Gíslason
Stefan Kristjánsson, DV, París:
„Ég geri ekki ráð fyrir því að leika
fleiri landsleiki. Það eru allar líkur
á því aö ég hætti. Ég er að vona að
ég geti hætt. Það er erfiðara að kom-
ast út úr svona hóp en inn í hann,“
sagði Alfreð Gíslason eftir leikinn
gegn Póllandi.
„Ég hef leikið rúmlega 170 lands-
leiki og þetta er tíunda áriö sem ég
er í landsliöinu. Það er stefnan hjá
mér aö hætta. Þetta er orðið ágætt.“
Hvað fannst þér um leikinn gegn
Póllandi?
„Ég held að þetta hafi verið mjög
góður úrsUtaleikur og það var ekki
verra að vinna Pólverjana. Samt var
leiðinlegt að Einar. skyldi meiðast.”
Nú hefur þú lengi leikið erlendis
og þar á meðal marga stórleiki með
Essen þar á meðal úrslitaleiki í Evr-
ópukeppninni. Slær leikurinn gegn
Póllandi þetta aUt út.
„Ég veit það ekki. Þetta var stór-
kostlegt. Ég hef leikið úrsUtaleiki í
Evrópukeppninni en ekki unnið sig-
ur í þeirri keppni. Núna unnum við
gulUð og auðvitað er það allt annað
mál,“ sagði Alfreð Gíslason.
• Leikmenn stigu trylltan dans i kjölfar sigursins í B-keppninni. Hér má
sjá Kristján Arason og Alfreð Gíslason fagna innilega.
DV-mynd Brynjar Gauti, Paris
„Snýst allt um peninga“
- segir Olafur Jónsson, stjómarmaður í HSI
• Ólafur Jónsson.
Steíán Kiistjánsson, DV, París:
„Það sem hefur veriö að gerast
hér í Frakklandi er ævintýri likast.
Sumir hafa líkt þessu við ævintýrin
eftír H.C. Andersen. íslenska Uðiö
hefur veriö frábært og mér er til
efs aö nokkru sinni áður hafi ís-
lenskir íþróttamenn staðið sig bet-
ur en strákamir á þessu móti,“
sagði Ólafur Jónsson, stjórnarmaö-
ur í HSÍ og fyrrum fyrirliöi íslenska
landsUösins, í samtaU viö DV i gær.
„Þegar svona hlutir gerast er það
fyrst og fremst samvinna í vissum
þáttum sem er ástæöan. Góðir leik-
menn, góður þjálfari og góð stjórn.
Allt þarf þetta að vinna saman og
séu allir þessir þættir í lagi þá
næst góður árangur. Það eru mörg
verkefni sem bíða okkar á næstu
árum en þaö er bjart framundan.
Við þurfum að byggja upp okkar
unghngaUð markvisst eins og við
höfum raunar gert og það er aö
skila þessum árangri hér í Frakl-
andi. En aUt snýst þetta þó um eitt,
nefnilega peninga. Þó að við séum
ahir af vilja gerðir er það einfald-
lega ekki nóg. Það kostar mikla
peninga að vera bestur og ná ár-
angri. Það þarf aö tryggja ijárhag
HSÍ til aö við getum haldið áfram
aö standast þeim bestu snúning
eins og við höfum gert hér.“
Nú hefur sú hugmynd skotið upp
kollinum að hver ísiendingur láti
fé af hendi rakna sem nemur verði
einnar bjórdósar. Hvað finnst þér
um þessa hugmynd?
„Ég held að ég, Jón HjaltaMn og
Bogdan, hafi fyrst komið fram með
þessa hugmynd aö ef hver íslend-
ingur myndi setja í bauk fyrir HSÍ
andvirði einnar bjórdósar þá eru
öll fjárhagsvandmál HSÍ gleymd og-
grafin. Ég hvet íslensku þjóðma til
að styrkja HSÍ sem nemur verðinu
á einni dós af bjór. Ef sú verður
raunin þá erum við í góöri aðstöðu
til halda álram að gera góða hluti
í handboltanum," sagði Ólafur.
Alfreð einn sá færasti
- segir hinn heimsfrægi rúmenski leikmaður Stinga
Stefán Kristjánsson, DV, París:
„ísland var með besta liðið í þess-
ari keppni. Liðið lék alltaf betur og
betur og þaö var mikill stígandi í leik
liösins," sagði hinn heimsfrægi
handknattleiksmaður Vaselie Stinga
frá Rúmeníu í samtali við DV.
„Það sannaðist í dag að íslenska
hðið er mun betra en það pólska. Það
vantaði aö vísu einn sterkan leik-
mann í pólska liðið en það hefði engu
skipt þótt hann hefði verið með,“
sagði Stinga sem lék 240 landsleiki
fyrir Rúmeníu á sínum langa og
stranga ferli.
Þegar DV ræddi við Stinga var ný-
búið að útnefna Aifreð Gíslason besta
leikmann B-keppninnar og við spurð-
um Stinga áhts á þeirri kosningu.
Stinga sagði við DV: „Þetta er mjög
mikill heiður fyrir Gíslason og ég er
mjög ánægður meö aö hann skuU
hafa verið kosinn besti leikmaðurinn
því hann var það svo sannarlega.
Valið var hárrétt. Alfreð er með fær-
ustu handknattleiksmönnum í heim-
inum í dag og sömu sögu má segja
um Kristján Arason sem lék mjög
vel á þessu heimsmeistaramóti.“
Hvaö vilt þú segja um gengi rúm-
enska liðsins á mótinu.
„Ég get sagt þér þaö aö við í rúm-
enska liöinu erum mjög lukkulegir
með sigurinn gegn íslandi. Þaö er aUt-
af gaman aö geta sagt eftir á aö viö
höfum unniö sigurvegarana á mót-
inu. En viö erum með mjög ungt Uð
en ég hef trú á því að Uð Rúmeníu
muni geta gert stóra hluti á heims-
meistaramótinu í Tékkóslóvakíu
1990.“
Hvar stendur íslenka liöið í dag.
„Það er mjög erfitt aö segja til um
þaö. Liðið lék mjög vel á þessu móti
en hvemig mun Uðið leika í Tékkó-
slóvakíu. Eg hef ekki trú á því aö lið-
iö leiki jafnvel þá og það hefur gert
hér.“
Hefur þú leikiö þinn síðasta leik
fyrir Rúmeníu?
„Já, minn síöasti landsleikur var
gegn Spánveijum á laugardag. Mig
langar ekki að leika fleiri landsleiki.
Ég hef leikið 240 landsleiki og þetta
hefur tekiö mjög mikinn tima á 12
ára tímabih. Ég á konu og börn sem
þurfa aö fá sinn tíma og nú er komið
aö þeim,“ sagði Stinga en hann er 32
ára gamall.
Tilboð
frá þremur
Iðndum
Stefán Kristjánsson, DV, París:
„Forráðamenn frá þremur félögum
hafa rætt við mig hér í Frakklandi.
Þetta eru menn frá frönsku liði,
svissnesku liði og vestur-þýska 2.
deildar félaginu Huttenberg," sagöi
Héðinn Gilsson í samtah við DV í
gær.
Héðinn hfur sýnt stórskemmtilega
takta í þessari keppni og vakið áhuga
margra. Verður þess ekki langt að
bíöa að þessi ungi og efnUegi leik-
maöur fari til félags erlendis. En ekki
í bili. Héöinn sagöi í gærkvöldi: „Það
er alveg öruggt að ég leik heima á
næsta ári.“ íslenskir handknattleiks-
unnendur ættu því að fá að njóta
snhli hans lengur en margir höföu
búist viö.
Almenn ánægja
Almenn ánægja viröist vera á
meðal forráðmanna Uðanna sem
hér kepptu í Frakklandi um
framkvæmd b-keppnmnar.
Frakkar virðast hafa sloppið vel
frá þessu móti. Það veröur þó
ekki sagt um fréttamenn á staðn-
um. Upplýsingastreymi var oftat
af skomum skammti og mega
Frakkar taka sig á í þeirri deUd-
inni fyrir næsta stórmót sem þeir
halda.
Vestur-Þýskaland féll í c-keppni
Stefan Kristjánæcm, DV, Paris:
Danir náöu aö halda sér í b-keppn-
inni með þvi að sigra Vestur- Þjóð-
veija 30-241 gær í leiknum um 7.-8.
sætiö.
Vestur-Þjóðveijar féUu þar með í
c-keppni og er þaö gífurlegt áfall
fyrir hina miklu handboltaþjóð.
Hefur þjálfari Vestur-Þjóðverja,
Petre Ivanescu, þegar sagt af sér.
Danir höfðu aUtaf forystuna gegn
Vestur-Þjóðverjum og léku mjög
vel. MUúl barátta var í danska hð-
inu en engu var líkara en aö Vest-
ur- Þjóðveijar sættu sig viö c-
keppnina. Liö þeirra var niðurbrot-
ið og alUr leikmenn Uðsins með
hugann við aðrahluti. Petra Iva-
nescu sagði eftir leikinn að hann
hefði reynt aUt sem hann gat tíl
þess að ná upp stemmningu hjá
sínum mönnum fyrir leUdnn en
það hefði bara ekki tekist.
Mörk Dana: Lars Lundbye 8, Mic-
hael Fenger 6/1, Erik Veje Ras-
mussen 5/3, Klaus Sletting Jensen
3, Kim G. Jacobsen 2/1, Kim Jensen
2, Bjarne Simonsen 2, Niels Erik
KUdelund 1 og Frank Jörgensen 1.
Mörk Vestur-Þjóöverja: Rudiger
Neitzel 6, Jochen Fraatz 4, Martin
Schwalb 4/2, Volker Zerbe 3, Mic-
hael Klemm 3, Ulrich Rothl, Peter
Quarti 1, Christian Fitzek 1 og
Andreas Dörhofer 1.