Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 48
F R ÉTT A S KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
Eyjamaður í gæsluvarðhald:
Kærður fyrir
- að nauðga
16 ára stúlku
Vestmannaeyingur hefur verið
kærður fyrir aö nauðga sextán ára
stúlku. Búið er að úrskurða manninn
i 14 daga gæsluvarðhald. Hann var
fluttur flugleiðis til Reykjavíkur í
gær.
Verknaðinn á maðurinn aö hafa
unnið í heimahúsi í Vestmannaeyj-
um á laugardagsmorgun. í húsinu
var talsverður fjöldi fólks sem sat þar
að drykkju. Stúlkan kærði manninn
og hefur lögreglan yfirheyrt stúlk-
_J^na og manninn sem kærður var.
pá hefur fólk, sem var í íbúðinni,
verið yflrheyrt.
Rannsókn málsins er ekki lokið.
Stúlkan hefur gengist undir læknis-
rannsókn vegna málsins. Ekki er enn
vitað með vissu hvort maðurinn náði
fram vilja sínum eða ekki.
-sme
Sigluijörður:
Enn hætta
á snjó-
flóðum
„Hér er nánast óbreytt ástand. Það
er enn snjóflóðahætta fyrir ofan bæ-
inn og hafa átta fjölskyldur verið
flarri heimilum sínum í þrjá sólar-
hringa. Nú hefur hann snúist í norð-
austan og því aukast möguleikarnir
á snjóflóðahættu inni í Skutulsdal
þar sem borholur hitaveitunnar eru.
Við höldum fund um málið klukkan
ellefu og metum ástandið á ný,“ sagði
Þráinn Sigurðsson, bæjartæknifræð-
ingur og formaöur almannavarna-
nefndar á Siglufirði, í samtali við DV.
Sagði Þráinn aö nokkur úrkoma
hefði verið síðustu daga sem bætti
ekki ástandið. Hefur ein fjölskylda
snúið aftur í hús sitt sem mun vera
á mörkum hættusvæðisins.
-hlh
0tBÍLASr0
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIRMENN
Rannsókn á Keflavíkurflugvelli:
Umfangsmikið
smygl a afengi
- samspil þriggja hermanna og flögurra íslendinga
Fjórir íslendingar og þrír banda-
rískir hermenn hafa verið í ströng-
um yfirheyrslum hjá lögreglunni á
Keflavíkurflugvelli vegna gruns
um að hafa í sameiningu smyglað
talsverðu magni af áfengi út af
Keflavíkurflugvelli. Ekki þótti
ástæða til aö óska eftir gæsluvarö-
haldi yfir þeim sem grunaðir eru.
Bandaríkjamennirnir þrír hafa
játað að hafa selt íslendingunum
talsvert magn af áfengi. Ekki fékkst
gefið upp hvört Islendingarnir
hefðu játað aðild sína að málinu.
Lögreglan á Keflavíkurflug\'elli fer
meö rannsókn málsins. Þorgeir
Þorsteinsson, lögreglustjóri á
Keflavíkurflugvelli, sagði að ekki
hefði þótt ástæða til að óska gæslu-
varðhalds. Lögreglan nýtti sér hins
vegar þá heimild að vista menn í
sólarhring vegna rannsóknarinn-
ar.
Lögreglan hraut upp skápa á
vinnustað íslendinganna. Þar
fannst nokkurt magn af ólöglegu
áfengi. Ekki hefur sannast hvort
áfengið er í eigu þeirra fjögurra
íslendinga sem grunaðir eru eða
hvort það er í eigu vinnufélaga
þeirra. Lögreglan mætti á vinnu-
stað mannanna, en þeir starfa hjá
Vamarliðinu, vopnuð stórum töng-
um. Klippt var á hengilása til að
skoða í skápana.
Þorgeir Þorsteinsson segir að
rannsókn málsins sé enn í gangi.
Sterkur grunur er um að áfengi
hafl verið smyglað mánuðum sam-
an og að um umtalsvert magn sé
að ræða. Heimildir DV herma að
rannsóknin teygi anga sína nokkur
ár aftur í tíraann. Þorgeir Þor-
steinsson vildi ekki staðfesta að svo
væri.
-sme
Hattur bjórdrykkjumanna hefur verið hannaður og eitt eintak búið til, eins og sést á þessari mynd. Hugvitsmaður-
inn hefur þarna samtengt tvær bjórtegundir en hætt er við að sannir bjóraðdáendur láti það eiga sig. Vegna fall-
hæðarinnar er Ijóst að eftir að bunan er komin af stað verður hún ekki stöðvuð fyrr en dósirnar hafa verið tæmdar.
DV-mynd KAE
Hafís landfastur við Horn
„Hér er landfastur ís eins langt í
suðurátt og ég sést,“ sagði Ólafur
Jónsson, vitavörður á Hornbjargs-
vita, í samtah við DV í morgun. Ólaf-
ur sagði að um þriggja kílómetra
breitt belti væri af þéttum ís en þar
fyrir utan væru stakir jakar. „Þetta
hefur verið aö lemjast hér upp að
undanfarna daga en vindinn er að
lægja mikið núna,“ sagði Ólafur.
Búist er við að hafís hafi teppt sigl-'
ingaleiöina fyrir Horn. Flutninga-
skipin Arnarfell og Hvítanes biöu
vestan við Horn og Mánafoss að aust-
anverðuímorgun. -Pá
Segið svo að
Skallagrímur sé ekki
framsóknarmaður!
Veðrið á morgun:
Víða él
og hvasst
Á morgun verður norðaustan-
átt, allhvöss við norðaustur- og
austurströndina, en hægari ann-
ars staðar. Úrkomulítið eða úr-
komulaust veröur sunnan- og
suðvestanlands en él í öðrum
landshlutum.
Blindbylur
og ófærð
um allt
Norðurland
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Norðlendingar fengu sinn skammt
af vetrarveðri um helgina, og vel
það. Alveg síðan á fóstudagskvöld
hefur verið hvassviðri og ofankoma,
nær allir vegir ófærir og ekkert flug,
t.d. til Akureyrar, síðan á föstudag.
Miklir erfiðleikar urðu í umferð-
inni á Akureyri og víða sátu bílar
fastir í snjósköflum enda sáu öku-
menn varla út úr augum fyrir snjó-
komunni og skafrenningnum. í
morgun var hins vegar búið að opna
helstu ökuleiðir strætisvagna en víða
í úthverfum voru götur Olfærar eða
ófærar. Á Noröurlandi var skóla-
haldi víða aflýst í morgun. Kolbeinn
Gíslason, starfsmaður Flugleiöa á
Akureyrarvelli, sagði í morgun að á
Akureyri biðu 340 manns eftir flugi,
en útlit með flugveður væri slæmt
samkvæmt veðurspá. „Það verður
fjör hérna á miðvikudaginn þegar
þetta fer í gang,“ sagði Kolbeinn.
Hæstiréttur
úrskurðar um
hver á Kók
Hæstiréttur hefur fellt dóm í deilu-
máli erflngja að Vífilfelli hf. Tveir
erfmgjanna vildu fá erfðaskrá eins
erfingjans fellda úr gildi. Ein dóttir
Björns heitins Ólafssonar arfleiddi
bróður sinn, Pétur Björnsson, að sín-
um eignarhluta. Þessu vildu aðrir
erfingjar ekki una.' Dregið var í efa
að konan hefði verið sér meðvituð
um afleiðingar gerðar sinnar.
Áður hafði skiptaréttur í Reykjavík
dæmt í þessu sama máli. Þar var
erföaskráin staðfest. Sama niður-
staða fékkst í Hæstarétti. Einn dóm-
aranna, Guðrún Erlendsdóttir, skil-
aði sér atkvæði. Hún vildi að erfða-
skráin yröi felld úr gildi.
í þessu máli er tekist á um verulega
hagsmuni. Björn Ólafsson átti mikl-
ar eignir er hann féll frá.
-sme
BjórbíU veðurtepptur:
ísfirðingar
án bjórs
1. mars?
„Við Vestfirðingar virðumst vera
þriðja flokks þjóðfélagsþegnar. Ég er
að heyra að óvíst sé hvort Stein-
grímsfjarðarheiðin verður opnuð á
morgun eða þriðjudag. Vegagerðin
ber fyrir sig tækjaskort. Það er allt
á eina bókina lært. Ég fór frá Reykja-
vík á fóstudag og kom hingað til
Hólmavíkur á fóstudagskvöld. En
það er sem sagt óvíst hvenær ég fer
héðan,“ sagði Jóhann Snæfeld bíl-
stjóri í samtali við DV í gær.
Jóhann, sem á vöruflutningafyrir-
tækið Eldingu á ísafirði, er með um
10 þúsund lítra af bjór á bíl sínum.
Hann sagöist reikna með að margir
væru spenntir að vita hvort hann
kæmist með bjórinn til ísafjarðar
fyrir miðvikudag - það er 1. mars.
-sme