Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
29
Iþróttir
Frétta-
stúfar
Rotarinn í stuði
Rotarinn frá Bronx-hverflnu í
Nýju Jórvík, Mike Tyson, var
hreint ekki í vandræðum með
andstæöing sinn, Frank Bruno,
um helgina. Tyson, sem er heims-
meistari í hnefaleikum atvinnu-
manna, rotaði áskoranda sinn,
sem er breskur, með tæknilegu
höggi í fimmtu lotu. Voru þá liðn-
ar tæpar, 2,55 mínútur á lotuna.
Þess má geta að Ty son hefiir aldr-
ei tapað glímu á ferlinum og þyk-
ir gjaman fara ómjúklega með
andstæðinga sína. Það var engin
breyting þar á um helgina.
Börsungar iiggja
Á Spáni bar það helst til tíðinda
í íyrstu deildinni að Barcelona
steinlá á heimavelli fyrir Osas-
una, 1-2. Þessi ósigur var sá fyrsti
hjá liðinu á heimavelli í vetur.
Madrid-búar unnu um helgina
Real Betis, 5-1. Sá leikur var að-
eins upphitun fyrir stórleikinn á
Evrópumótinu um miðja viku en
þá mætir Real Madrid liði PSV
Eindhoven frá Hollandi.
Úrslit:
Real Oviedo-Atl. Madrid....5-2
Sevilla-Cadiz..............1-1
Bilbao-Malaga..............3-1
Logrones-Espanol...........0-0
Celta-Elche.............. 3-0
Real Murcia-Valencia.......0-1
Barcelona-Osasuna......... 1-2
Real Valladolid-Sporting...0-1
Real Zaragoza-Sociedad.....0-0
Real Madrid-Real Betis.....5-1
Staöan:
RealMadrid22 15 7 0 57-23 37
Barcelona...23 14 6 3 48-19 34
At. Madrid.. 23 11 5 7 41-29 27
Valencia...23 9 9 5 22-18 27
Ofankoma í Skotlandi
Vegna snjókomu í Skotlandi á
laugardag fóru aðeins fram 3 leik-
ir í skosku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Toppliðin unnu öll
örugga sigra. Glasgow Rangers
sigraði St. Mirren, 3-1, á Ibrox í
Glasgow. Ian Ferguson, Ally
McCoist og Mark Walters skor-
uðu mörk Rangers. Brian Irvine
og Paul Wright skoruöu mörk
Aberdeen í sigrinum gegn Hearts
en þriðja markiö var sjálfsmark.
Celtic vann síðan sigur á
Dundee, 0-3, á útivelli.
Staöan:
Rangers....27 18 4 5 45-21 40
Dun. Utd...26 13 10 3 36-13 36
Aberdeen ....27 12 12 3 37-22 36
Celtic.....27 16 2 9 57-37 34
Hibernian ...26 10 7 9 27-26 27
Inter óstöðvandi
Inter Milano tryggði stöðu sína á
toppnum í ítölsku deildinni um
helgina. Liðið vann þá sannfær-
andi sigur á útivelli gegn Pisa,
0-3. Aldo Serena gerði tvö marka
Inter í leikniun og fór á kostum.
En þrátt fyrir þennan sigur lék
lnter í skugga hins Mílanó-liðs-
ins, AC, sem vann Pescara, 6-1.
Hollendingurinn Frank Rijkaard
gerði eitt marka liðsins og Ruud
Gullit, landi hans, gerði tvö, ann-
að með glæsilegum skalla. Virdis
skoraði tvennu á sama hátt og
Gullit
Alberigo Evani rak smiðshögg-
ið á mikinn sigur meistaranna.
Urslit:
Ascoli-Fiorentina.........1-1
Cesena-Juventus...........1-2
Como-Sampdoria............0-2
Verona-Atalanta...........1-0
AC Milan-Pescara..........6-1
Napoli-Lecce..............4-0
Pisa-Internazionale........0-3
Roma-Bologna..............1-1
Torino-Lazio............ 4-3
Staðan:
Inter......19 14 4 1 34-10 32
Napoli.....19 13 4 2 40-14 30
Sampdoria.. 19 10 7 2 27-20 27
ACMilano.,19 9 6 4 33-15 24
Juventus...19 7 8 4 27-21 22
Stuttgart sígur
niður töfluna
- tapaöi 2-0 fyrir Hannover á laugardag
Góð lörammistaða badmintonmarma í Boston:
Þorsteinn og
Broddi unnu
m m wmm m m ■■
i tviliðaleik
- lögðu kanadískt par að velll
Hvorki gengur né rekur hjá Stuttgart
í vestur-þýsku úrvalsdeildinni í
knattspymu þessa dagana. Um helg-
ina lék Stuttgart gegn Hannover sem
er í þriðja neðsta sæti deildarinnar.
Stuttgart tapaði, 0-2, og er nú í sjötta
sæti.
Bayern Múnchen heldur sínu
striki og sigraði Karlsruhe, 3-2. Ro-
land Wohlfarth skoraði tvö mörk og
Júrgen Wegmanm gerði eitt. Werder
Bremen veitir Bayern harða keppni
en fjögur stig skilja liðin að. Bremen
sigraði Kaiserslautern og skoraði
Nobert Maier eina mark leiksins í
• Jiirgen Wegmann skoraði eitt
marka Bayern Miinchen gegn
Karlsruhe.
Valur vann
sér inn
tvær ferðir
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Landsúrvalið sigraði Suðurnesja-
úrval, 90-87, í „Stjörnuleiknum" á
mikilli körfuknattleikshátíð í Kefla-
vík í gærkvöldi. Suðurnesin vora
yfir í hálfleik, 53-Ú5, en Landið sneri
leiknum sér í hag með því að skora
37 stig gegn 8 á góöum kafla um mið-
bik síðari hálfleiks.
Flest stig Landsins skoruðu Valur
Ingimundarson, 26, Jóhannes Krist-
björnsson, Í6, og Sturla Örlygsson,
12. Jón Kr. Gíslason skoraði 23 stig
fyrir Suðurnes og Sigurður Ingi-
mundarson 19.
Maður leiksins var kjörinn Valur
Ingimundarson og fékk að launum
Evrópuferð frá Flugleiðum. Valur
vann einnig þriggja stiga keppni sem
fram fór fyrir leikinn og fyrir það
fékk hann ferð innanlands með Flug-
leiðum. í hálfleik fór fram „troðslu-
keppni“ og þar sigraði Teitur Örlygs-
son, Njarðvík, eftir hörkukeppni við
Grindvíkinginn Guðmund Bragason
og fékk einnig innanlandsferð.
Handknattleikur:
Þjóðverjar
söðla
um
Siguröor Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
V-Þjóðverjar gera nú ráð fyrir að
flestir af þeim leikmönnum sem spil-
uðu í landsliði þeirra í B-keppninni
í Frakklandi hætti að leika með því.
Landsliðsþjálfarinn Petre Ivanes-
cu, sem er frá Rúmeníu, hefur nú
sagt starfi sínu lausu í kjölfar áfalls-
ins í Frakklandi og því er ljóst að
söðlað verður um hjá V-Þjóðverjum
fyrir C-keppnina sem fram fer í Finn-
landi.
síðari hálfleik.
Úrslit í úrvalsdeildinni á laugar-
dag:
Bayern-Karlsruhe............3-2
Hannover-Stuttgart..........2-0
Dortmund-Hamborg............2-2
Stuttgart Kickers-Frankfurt.0-1
St. Pauli-Bochum............1-0
Köln-Núrnberg...............1-1
Mannheim-Uerdingen..........3-3
Bremen-Kaiserslautern.......1-0
Gladbach-Leverkusen.........2-0
Staðan í úrvalsdeildinni:
Bayern ...19 10 9 0 38-15 29
Bremen ...19 9 7 3 32-20 25
Köln ...19 10 4 5 31-14 24
Hamburg ...18 9 5 4 32-20 23
Gladbach ...18 7 8 3 26-21 22
Stuttgart ...19 8 5 6 33-28 21
Uerdingen ...19 5 10 4 27-24 20
Karlsruhe ...19 8 4 7 32-30 20
Leverkusen... ...19 5 10 4 25-23 20
St. Pauli ...19 5 10 4 21-21 20
Dortmund ...19 5 9 5 28-19 19
Kaiserslautern .19 5 8 6 28-24 18
Bochum ...18 5 6 7 20-23 16
Núrnberg ...19 5 4 10 22-35 14
Frankfurt ...19 5 4 10 11-29 14
Hannover ...19 3 6 10 18-33 12
Stuttgart Kick...l8 3 5 10 20-45 11
Mannheim.... ...19 1 8 10 17-37 10
-JKS
íslenskir badmintonmenn
stóðu sig vel á móti í Boston sem
lauk í gær. Broddi Kristjánsson
og Þorsteiim Páll Hængsson
komust alla leið í úrslit í tvíðhða-
leik, gerðu gott betur, sigruðu
andstæöinga sína frá Kanada.
Úrslit í hrinunum voru 15-11 og
17-15. Þeir félagar áttu i höggi við
serkasta par Kanadamanna, Goss
og Bitten.
Broddi Kristjánsson og Þórdís
Edwald léku til úrslita í tvennd-
arleik en töpuðu fyrir Goss og
Jobin frá Kanada, 9-15 og 11-15.
Broddi tapaði hins vegar fyrir
andstæðingi sínum í undanúrsht-
um í einliðaleik. Þorsteinn
Hængsson vann til verölauna í
aukafiokki, en keppendur í þeim
voru slegnir út í fyrstu umferð
mótsins.
Broddi Kristjánsson, Þórdís
Edwald og Árni Þór Hallgríms-
son munu um næstu helgi taka
þátt i móti sem haldiö veröur í
Kanada. Fram aö mótinu í
Kanada munu íslendingamir
leika nokkra sýmngarleiki í
Bandaríkjunum.
Sl. Smmtudag háöu íslendingar
landsleik við Bandaríkin í Bost-
on. Bandaríkjamenn fóru með
sigur af hólmi, 4-3, eftir jafna og
skemmtilega baráttu.
-JKS
FERMINCARFÖT!
Jakki........... 7.400.
Buxur........... 3.580.
Skyrta........ 1.980.
Bíndi............. 850.
Opið mánudaga - fimmtudaga.. 09.00—18.00
föstudaga..................09.00—19.00
og á laugardögum til kl. 14.00!
REYKJAVÍKURVEGI 62 - SÍM! 651680
HAFNARFIRÐI