Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 30
30
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
íþróttir____________
Stúfar frá
París
Stefán Kristjánasan, DV, Paris:
Mikið mannvirki
íþróttahöllin Bercy, þar sem ís-
lendingar léku við Póiverja í gær,
er feiknarlegt mannvirki. Hún
tekur um 15 þúsund manns í sæti
og er svo til ný. Útlit haiiarinnar
er ekki síöur nýtískulegt en það
sem inn í henni er. Veggimir
halla nokkuð og eru grasi vaxnir.
Húsið er þaö stórt aö það myndi
taka skreílangan mann um tiu
mínútur að ganga hringinn
kringum húsið.
Þeirfrönsku geta
þá dæmteftir allt
Frönsku dómararnir, sem
dæmdu hinn eftirminnilega leik
íslans gegn Vestur-Þýskalandi,
sýndu það og sönnuðu þegar þeir
dæmdu leik Rúmeníu og Spánar
um bronsiö að þeir eru ekki eins
lélegir og þeir virtust vera í okkar
leik gegn þeim þýsku. í þeim leik
höiðu þeir greinilega fengiö fyrir-
raæli fyrir leikinn en virtust ekki
hafa talað viö neinn í marga daga
er þeir dæmdu Rúmeniu-Spán
mjög svo vel.
Mikil stemning
Það var mikill hugur í stuðnings-
mönnum íslenska landsliðsins
kvöldið fyrir leikinn gegn Pól-
landi. Þeir sátu inni á herbergjum
og gerðu við íslensku fánana
þnnig aö allt yrði nú klárt þegar
á hólminn væri komið. Aðrið
höiöu keypt kampavínið, þeir
sem öryggir voru um íslenskan
sigur.
Þorgils Óttar þakkaði
Þorgils Óttar Mathiesen hitti
marga stuðningsmenn ísienska
landsliðsins eftir leik Sviss og
Rúmeníu, síðasta leikinn í milli-
riðlinum. Þá var ijóst aö ísland
myndi leika um gullið. Þorgils
kom að máh við stuöningsmenn
landsliðsins og sgði stuðning
þeirra ómetanlegan fyrir lands-
Uðið.
Það var þá lítið
gat á öðru markinu
Eins og keraur fram hér að fram-
an þá er Bercy-höllin afar glæsi-
leg bygging og þar virðist allt
vera eins vel úr garði gert og
kostur er. Það kom því mörgum
á óvart sem fylgdust með leikjum
í hölUnni á laugardag þegar dóm-
ararnir fundu lítiö gat á öðru
markinu. Úr þessu var bætt snar-
lega í orðsins fyllstu merkingu.
Hringt i Kjartan
að nóttu sem degi
Áhugi landsmanna fyrir úrslita-
leiknum í gær var hreint ótrúleg-
ur. Kjartan L. Pálsson, fararstjóri
hjá Samvinnuferðum/Landsýn,
hefur haft í nógu að snúast Sím-
inn hringdi að nóttu sem degi og
nær alltaf voru íslendingar á hin-
um enda línunnar sem vantði
miða á leikinn gegn PóUandi. ís-
lendinga dreif að hingað úr ólík-
legustu áttum og uppskáru laun
erfiðisins.
Allt vitlaust á Reyðarfirði
Tveir af stuðningsmönnum is-
lenska lansliðsins, sem fylgt hafa
Uðinu aUa leið hér í Frakklandi,
búa á Reyðarfirði. Ekki er það
fréttnæmt heldur það að á Reyö-
arfirði búa 750 manns og þar
snerist Ufið um handknattleik á
meðan á B-keppninni stóð. Þess
má geta að handknattleikur er
ekki stundaöur á Reyöarfirði.
Sýndur um alla Evrópu
Leikur íslands og PóUands var
sýndur í beinni sjónvarpsútsend-
ingu um aUa Evrópu. Á frönskum
sjónvarpsstöðvum var mikið gert
úr leiknum og hann auglýstur í
bak og fyrir í ótai skipti.
I>V
Sigurður er hættur
með landsliðinu
- var að leika minn síðasta landsleik, segir Sigurður Sveinsson
sé hættur í landsliöinu. Margir eru
að hugsa máUð og munu gera það
næstu dagana en líklegt er aö fleiri
fylgi í kjolfarið. Sigurftur Sveinsson
lék stórt hlutverk í þessari b-
keppni og sýndi ótrúlegt öryggi í
vítaköstum. Hann skoraði úr 14
vítum í röð á ýmsan raáta. Alls lék
Sigurður um 175 landsleiki fyrir
legt tímabil en tímafrekt og erfitt urinn sem segir ákveðið að hann • Siguröur Sveinsson. . íslands hönd.
Steön Kristjánsson, DV. Paris:
„Ég er búinn að vera í þessu í tíu
ár og hef fengið nóg. Ég var að leika
minn síðasta landsleik - gegn Pól-
veijum,“ sagði stórskyttan Sigurö-
ur Sveinsson í samtali við DV eftir
leikinn gegn Pólveijum.
„Þetta er búiö að vera skemmti-
og er mál að Unni. Þetta var frábær
leikur hjá strákunum gegn Póll-
andi og þessi árangur er toppurinn
á mínum ferU sem handknattleiks-
manns. Sóknarleikurinn var sér-
lega góður í dag og mörg markanna
voru stórglæsilegsagði Sigurður
Sveinsson.
Sigurður er fyrsti landsUðsmað-
• Þeir Alfreð Gíslason og Þorgils Óttar Mathiesen höfðu ríka ástæðu til að fagna i gær. Alfreð var útnefndur
besti leikmaður B-keppninnar og Þorgils Óttar var valinn í heimsliðið. Báðir velta því alvarlega fyrir sér að hætta
með landsliðinu en hvorugur hefur tekið endanlega ákvörðun í málinu. DV-mynd Brynjar Gauti, Paris
Þorgils Óttar:
Meiri
líkur að
ég hætti
Stefán Kristjánsson, DV, Paris:
„Ég var búinn að ákveða að þessi
leikur gegn Pólveijum yrði minn síð-
asti landsleikur. En eftir þessi stór-
kostlegu úrslit mun ég skoöa málin.
Ég tel þó að líkurnar á að ég hætti í
lansliðinu séu meiri," sagði Þorgils
Óttar Mathiesen, fyririiði íslenska
landsliðsins, í samtali við DV eftir
leikinn gegn Pólverjum.
„Viö lékum fyrir troðfullri höll og
það var virkilega gaman að sjá alla
þessa íslendinga hér. Við vorum
ákveðnir í að gera aUt sem í okkar
valdi stóð til að valda þessu fólki
ekki vonbrigðum sem hafði lagt svo
mikið á sig til að koma og horfa á
okkur. Ég vil nota tækifærið og
þakka öllu þessu fólki fyrir frábæran
stuðning. Arangur okkar í þessari
keppni er betri en maður þorði að
vona fyrir hana. Liðsheildin var frá-
bær í þessu móti og hún skóp fyrst
og fremst sigurinn. Líklega var leik-
ur okkar gegn Rúmeníu bestur. Ég
er að vísu ekki búinn að átta mig á
þessum leik. Ég get þó sagt það að
sóknarleikurinn var alveg súper.“
Nú eru margir þeirrar skoðunar
að þú hafir ekki í annan tíma leikið
betur. Hvað vilt þú segja um það?
„Ég veit það ekki. Maður er að
leysa úr læðingi kraft sem maður er
búinn að safna í allan vetur. Við vor-
um ekki sáttir við gang mála á
ólympíuleikunum og héma losuðum
viö kraft sem við vorum búnir að
byggja upp,“ sagði Þorgils Óttar.
Skeytastraumur til Parísar
- tvö skeyti frá Jóni Baldvin og eitt frá Svavari
Stefan Kristjánsson, DV, Paiis:
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra sendi tvö skeyti hingað
til Parísar í gær eftir sigurinn gegn
Pólverjum.
Þaö fyrra var til landsliðsins og
hljóðaði svo: „Fyrir hönd íslensku
þjóðarinnar og ríkisstjómar íslands
færi ég ykkur þakkir á stund sigurs-
ins. Þið eraö öll landi og þjóð til
sóma.“
Annað skeyti sendi Jón Baldvin og
var það stílað á Alfreð Gíslason. Það
hfjóðaði svona: „Á stund sigursins
sendir flokkur þinn þér heillaóskir
og baráttukveðjur. Við erum öll stolt
af þér.“
Svavar sendi skeyti
Það voru fleiri en Jón Baldvin sem
sendu íslenska landsliðinu heilla-
óskaskeyti eftir leikinn gegn Pól-
landi. Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra sendi svohljóðandi skeyti:
„Við erum stolt af ykkur. Til ham-
ingju með glæstan sigur.“
Loks kom skeyti frá Hafnarfirði:
„Við emm öll stolt af ykkur, bestu
kveðjur." Þetta var frá íþróttabanda-
lagi Hafnarfjarðar.
Iþróttasamband fatlaðra sendi
svona skeyti: „íþróttasamband fatl-
aðra óskar ykkur til hamingju með
sérlega glæsilegan árangur og sigur
á þessu sterka handknattleiksmóti.“
Og einnig bárast skeyti með ein-
kennilegum undirskriftum. Undir
eitt skeyti var skrifaö „sjö“: „Viö
óskum ykkur innilega til hamingju
með gulliö. Við vorum viss um að
þiö mynduð vinna.“
Prins Póló verksmiðjumar sendu
eftirfarandi skeyti: „Óskum ykkur
innilega til hamingju með gulhð. Við
vorum viss um að þið mynduð vinna.
Til hamingju með Bogdan. Hann á
þakkir skildar." Og einnig stóð undir
þessu skeyti: „Kveðjur frá pottþétt-
um aðdáendum sem komust ekki á
staðinn."
Og enn aðrir tóku til við að yrkja
í sigurvímunni. Grímur Norðdal
sendi eftirfarandi skeyti:
„Þó fönnin þeki fjöll og stræti
flýgur um ísland stolt og læti.
Handboltakeppni hörkulæti
við unnum í París 1. sæti.“
Þetta kom frá knttspymufélaginu
Tý í Vestmannaeyjum: „Innilegar
hamingjuóskir meö frábæran árang-
ur. Erum öll stolt af ykkur, íþrótta-
kveðjur."
Helga Magnúsdóttir og landslið
kvenna sendi eftirfarandi skeyti:
„Þúsund kveðjur og kossar, þið eruð
bestir."