Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Blaðsíða 44
44 MÁNUDAGUK 27. FEBRÚAR 1989. Andlát Janu's R. Myers lést á sjúkrahiisi i Cleveland. Oliio. 28. febrúar. Hugi P. Hraunfjörð. Fannborg 1. Kopavogi. andaðist á Hjúkrunar- beiinilinu Reykjalundi. fnnmtudag- inn 28. felirúar. Árnv Marta Jónsdóttir. Njálsgötu 7á. andaðist á héintili sínu fnnmtudag- inn 23. febrúar. Ingólfur borsteinsson. fyrrverandi yfirlögregluþjónn. andaðist aðfara- nótt 24. þ.nt. Jardarfarir lndriði Jónsson lést 19. febrúar sl. Hann var fæddur 21. febrúar 1934. Indriði vann sl. 10 ár hjá Hafrann- fæst á ,. járnbrautar- stöðinni í Kaup- mannahöfn sóknastofnun. Eftirlifandi eiginkona hans er Guðrún Marteinsdóttir. Þau eignuðust eina dóttur saman. Útfór lndriða vérður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag kl. 13.30. Svanborg Þórðardóttir Howe lést i Miles Mark-sjúkrahúsinu. Dun- fermline. Skotlandi. 13. tébrúar sl. Úttörin hefur farið fram í Skotlandi. Utíör Jóhanns Friinannssonar. Odd- eyrargötu 14. Akurevri. fer fram frá Akureyrarkirkju i dag. 27. febrúar kl. 13.30. Hulda l.iney Blöndal Magnúsdóttir. áður til heimilis að Laugarnesvegi 70. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 28. febrúar kl. 10.30. Þórður Þorgrimsson bifvélavirkja- meistari. Heimabæ 3. Hnífsdal. verð- ur jarðsunginn þriöjudaginn 28. fe- þrúar kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Fundir ITCdeildin Kvistur heldur fund sinn í kvöld. mánudags- kvöld. kl. 20 að hótel Holiday-Inn. Allir velkomnir. AðalfundurSuomi- félagsins verður haldinn í Norræna húsinu þriðju- daginn 28. februar kl. 20.30 stundvislega. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Aö aðalfundinum loknum. um kl. 20.30. hefst samkoma sem félagið heldur í tilefni af Kalevaladeginum. Félagar eru hvattir til að korna og taka með sér gesti Aðalfundur Ferða- félags íslands verður haldinn fimmtudaginn 2. mars i Sóknarsalnum. Skipholti 50a. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.30. Venjuleg að- alfundarstörf. Ath.: Félagar sýni ársskír- teini frá árinu 1988 við innganginn. Námskeið Kvöldnámskeið í ferðalandafræði Menntaskólinn í Kópavogi efnir til kvöld- námskeiðs í ferðalandafræði 1.-20. mars nk. Á námskeiðinu verða kynntir helstu ferðamannastaðir og ferðamannaleiðir á íslandi og leiðbeint verður um upplýs- ingaiðlun til ferðamanna. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur og verður kennt á mánudags-, miðvikudags- og fóstudags- kvöldum kl. 19 22. Hnífsdalur: Snjóflóðahætta er liðin hjá „Þetta litur ágætlega út núna og viö teljum að mesta snjóflóðahættan sé liðin hjá. Það hefur verið sáralítil úrkoma síðan flóðin þrjú féllu við Hnífsdal í fyrradag, auk þess sem kalt er í veðri. Það hjálpar allt til,“ sagði Pétur Hafstein, sýslumaður á ísafirði, í samtali við DV. íbúar 6 húsa urðu að yfirgefa húsin í fyrradag og íbúar nokkurra húsa í næsta nágrenni yfirgáfu sín hús af sjálfsdáðum. Fékk fólkið inni í fé- lagsheimilinu í Hnífsdal og hjá vin- um og vandamönnum. „Við mæltumst til þess að þetta fólk yrði að heiman í nótt en með morgninum munum við leyfa fólki að fara í hús sín á ný. Við munum þó áfram hafa vakandi auga með snj óflóðahættunni. ‘ ‘ Engin snjóflóðahætta er yfir byggð á ísafirði en tvö flóð féllu úr Eyrar- fjalli í fyrradag. -hlh Blíðviðri suðvestanlands Veðrið, sem gengur hefur yfir norðanvert landið og Vestfirði síö- ustu daga, mun ekki ganga niður fyrr en á morgun. Veröur viðvarandi snjókoma eða él á þessum slóðum. Suövesturhomið mun áfram njóta blíðviðris. Frost veröur vægt. Færð verður áfram erfið norðan- lands og vestan. -hlh NeyöarkaUið: Bauja féll af skipi í óveðri Neyðarbauja, sem líklega er úr björgunarbát sem fallið hefur af skipi í óvðri, sendi frá sér neyöarmerki í gær. Fokkervél Landhelgisgæslunn- ar staðsetti merkin um 350 sjómílur vestur af Reykjanesi. Danska varðskipiö Ingolf fann baujuna um klukkan átta í gærkvöld. Það var um klukkan hálífimm á sunnudagsmorgun aö flugvél heyrði neyðarmerkið. Eftir það heyrðist merkiö um borð í fleiri flugvélum. -sme Hljóp nakinn um Kringluna Maður, sem boðaði heimsendi, hljóp allsnakinn um verslunarhúsið Kringluna á fóstudagskvöld. Þaö var skömmu eftir lokun verslana sem maðurinn birtist inn í verslanamið- stöðinni. Fátt fólk var innanhúss en maðurinn veittist að fólki með dólgs- hátt og leiðindi. Öryggisverðir náðu að klófesta manninn. Þá hafði hann meðal annars gert þarfir sínar á borði veitingastaðar í Kringlunni. Öryggisverðir héldu manninum föstum þar til lögregla kom og tók hann. Þessi sami maður hefur áöur vakið á sér athygli. Meðal annars hljóp hann nakinn inn á Laugardals- völl fyrir leik íslendinga og Sovét- manna síðastliðið sumar. -sme Meiming Stjömubíó - Kristnihald undir Jökli: Dulúð undir Jökli Gengið á Jökulinn í leit að kistunni. KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI Framleiðandi: Umbi hf. Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir. > Handrit: Gerald Wilson. Kvikmyndataka: Peter Hassenstein. Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson. Aðalhlutverk: Siguröur Sigurjónsson, Baldvin Halldórsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Gisli Halldórsson, Helgi Skúlason og Kristbjörg Kjeld. Kristnihald undir Jökli er mynd- ræn skáldsaga þar sem persónur eru einstaklega skýrar. Dulúð er mikil í sögunni og því ætti engan að undra að Kristnihaldið hefur Kvikmyndir Hilmar Karlsson veriö mikil freisting fyrir kvik- myndagerðarmenn. Leikrit hefur verið gert eftir sög- unni sem naut mikilla vinsælda á sínum tíma og þegar litið er í heild yfir verk Halldórs Laxness verður Kristnihald undir Jökli alltaf talið meðal hans betri verka og fáar bækur hans eru vinsælli meðal landsmanna. Kristnihald undir Jökli er því um leið og að vera freistandi verkefni fyrir kvikmyndagerð einnig hættu- legt verkefni. Hin mikla mystik, er hvílir yfir stórum hluta atburða- rásarinnar sem gerist að lang- mestu leyti í sveit undir Snæfells- jökli, er verðugt verkefni fyrir góð- an handritshöfund þótt lokafrá- gangur kvikmyndarinnar skrifist ætíð á leikstjórann. Þaö er Kanadamaður, Gerald Wilson, er gerir handritið. Hann fer næstum nákvæmlega eftir bókinni og eru mörg samtölin tekin beint án breytinga. Eitt tvítekið atriði er þó á skjön við bókina. Það eru atriðin með biskupa- nefndinni útlendu sem kemur á fund biskups til að ræða hvað gera skuli við Jón Prímus. Þetta er byrj- unaratriði myndarinnar og næst- síðasta atriðið. Það er algjörlega tilgangslaust og ekkert annað en hallærislegt að gera Jón Prímus að einhverju allsherjar vandamáli hins kristna heims. Þar sem vel hefur tekist til með val leikara kemst hinn bráð- skemmtilegi og oft dularfulli texti Laxness vel til skila og með slík gullkorn í íslenskri samræðulist er vel farið af stað. Samt er það svo að þrátt fyrir einstaka atriði, sem eru vel leikin og vel gerð kvik- myndalega séð, nær myndin aldrei almennilegu flugi. Kemur þar til tvennt. Fyrst er að kvikmyndahandritið getur aldrei gert skáldsögunni fullkomin skil, því verður handritið stundum slitr- ótt af þeirri ástæðu að algjörlega er stuðst við skáldsöguna og engum aðalatriðum hennar sleppt. Einstaka persónur verða því ekki eins lifandi og hefði mátt ætla. Á þetta við um Hnallþóru og Tuma Jónsen svo einhver séu nefnd. Og fyrir þá sem ekki hafa lesiö bókina verða sum atriðin hálfu torskildari en hinum sem þekkja vel til. Aðalpersónurnar, Umbi, Jón Prímus og Úa, eru aftur á móti ljós- lifandi komnar og er leikur þeirra Sigurðar Sigurjónssonar, Baldvins Halldórssonar og Margrétar Helgu Jóhannsdóttur góður í erfiðum hlutverkum þótt ætíð verði álita- mál og persónulegur skilningur hvernig túlka eigi Uu. Hitt atriðiö er að með því að fylgja skáldsögunni jafnvel og gert er þá er það á kostnað kvikmyndaforms- ins. í þeim mikla texta, sem er í myndinni, er lítið pláss fyrir kvik- mynd. Snæfellsjökull, sem er ein- hver mesta prýði landsins, er að- eins fjarlægur hlutur sem einstaka sinnum glittir í þótt Jökullinn og hin duldu öfl, sem þar eru, sé það sem skiptir máli fyrir Jón Prímus. Og atriðið þegar Jökullinn er klif- inn í leit aö kistunni hefði eins get- að verið tekið á jörðu niöri í ein- hverjum snjóskaflinum. Það er að- eins í lokin sem atriði án orða njóta sín í myndmáli. Þrátt fyrir þessa annmarka er skemmtanagildi Kristnihalds und- ir Jökli nokkurt. Eins og áður sagði er meistaraverk Kiljans gott vega- nesti og kært þjóðinni. Hnyttin til- svör persóna koma öllum í gott skap og þótt sögusviðið sé nútím- inn má finna hliðstæður í fortíðinni og í þjóðsögum. Og þótt Umbi segi á einum staö, þegar guðfræðinám hans berst í tal, að hann sé varla meira en nafnið þá er myndin meira en aðeins nafnið. -HK Kvikmyndir Aðalhlutverkin eru i höndum John Cleese og Jamie Lee Curtis Gamanmynd í sérflokki lýsingaöflunina kemur Wanda Archie oft í hina mestu klípu. Otto og Ken blandast einnig í málið, en á mismunandi hátt. Loks kemst Wanda að því hvar ránsfengurinn er og upphefjast nú hin mestu svik og prettir með óvæntum endalok- um. Leikarar myndarinnar eru hver öðrum betri og koma sumir þeirra mjög á óvart með frábærum leik. John Cleése (Clockwise, Silverado) og Michael Palin (Life of Brian, Private Function) eru þekktir grín- leikarar, m.a. úr Monthy Python myndunum. Jamie Lee Curtis (Ro- ad Games, Trading Places) er frá- bær sem hin tælandi Wanda og sýnir ótvíræða hæfileika til gaman- leiks. Kevin Kline (Sophie’s Choice, The Big Chill) sannar að hann get- ur leikið hvaða hlutverk sem er og skapar ógleymanlega persónu sem hinn léttgeggjaði Otto. Charles Crichton (The Lavender Hill Mob) leikstýrir þessari frá- bæru gamanmynd af röggsemi og öryggi. Þrátt fyrir að John Cleese hafi skrifað handritið 13 sinnum, þá hlýtur þaö að hafa batnað í hvert sinn, því það er varla dauöan punkt aö finna og gamanið helst út alla myndina. Þetta er gamanmynd eins og þær gerast bestar. Hvað er hægt að hugsa sér betra en breskan húmor sem Ameríkanar hafa gaman af. „Fiskurinn Wanda“ er án efa grín- mynd ársins. Stjörnugjöf: -k * * 'A Hjalti Þór Kristjánsson Fiskurinn Wanda (A Fish called Wanda) Aðalhlutverk: John Cleese, Jamie Lee Curtis Leikstjóri: Charles Crichton Handrit: John Cleese Sýnd í Bióborginni. Bófagengi, sem samanstendur af hinni gullfallegu Wöndu (Jamie Lee Curtis), snyrtimenninu George (Tom Georgeson), byssumanninum Otto (Kevin Khne) og ökumannin- um Ken (Michael Palin), telur sig hafa framið hiö fullkomna rán. Wanda og Otto selja George í hend- ur lögreglunni, en George hefur falið ránsfenginn. Nú eru góð ráð dýr fyrir Wöndu og Otto, því þau vita ekki hvar ránsfengurinn er. Þau telja líklegt að George segi lög- fræðingnum Archie Leach (John Cleese) hvar ránsfengurinn er og Wanda kemur sér í kynni við hann. Wanda á ekki í vandræðum með að kynnast Archie og gerir allt sem í hennar valdi stendur til að fá upplýsingar frá honum. Við upp-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.