Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 2
2 LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. Fréttir_________________________________________________________________________pv Kvikmyndin sem Greenpeace útvegaði Magnúsi Guðmundssyni: Kengúrur pyntaðar á hroða- legasta hátt gegn greiðslu Heimildamyndin „Goodbye to Joey“, sem baeði Magnús Guðmunds- son og danski blaðamaðurinn Leif Blaidel fengu í gegnmn Greenpeace og sýnd eru atriði úr í mynd Magnús- ar, Lífsbjörg í norðurhöfum, er um 60 mínútna löng. í henni er notast við ýmsa filmubúta, þar á meðal bút sem sýnir tvo menn misþyrma keng- úrum á hroðalegasta hátt. Mennirnir misþyrmdu kengúnmum sam- kvæmt beiðni kvikmyndafólksins og fengu borgað fyrir. Mun myndbúturinn upphaflega hafa veriö gerður með það fyrir aug- um að nota hann í mynd um skað- semi kengúra fyrir akuryrkju bænda en aðstandendur myndarinnar lögðu hann á hilluna. Framleiðandi „Good- bye to Joey“ notaði hins vegar filmubútinn og þegar mynd hans var sýnd olli hún miklum úlfaþyt í Ástr- alíu. Mennirnir tveir voru dregnir fyrir dómstóla þar sem þeir játuöu mis- indisverkin á sig. Hljóðaði dómurinn upp á 70 dollara sekt eða 14 daga fangelsisvist. Að sögn Leifs Blaidel hafa Green- peace-menn útvegað þeim sem vildu þessa mynd þó þeir hafi ekki staðið að henni. „Þeir vissu allan tímann af dómnum yfir mönnunum og að atriðin voru sviðsett en hjá Green- peace helgar tilgangurinn meðalið," sagði Leif. Magnús Guðmundsson fékk mynd- ina frá Bandaríkjunum en þegar Greenpeace-menn fréttu af kvik- myndagerð hans „lokuðu þeir sig af ‘ eins og Magnús sagöi. Ráðnir af kvikmyndafyrirtæki í niðurstöðum rannsóknarinnar vegna misþyrminganna segir meðal annars: „Rannsókn lögreglumanna leiddi í ljós að kvikmynd um kengúrur hafði verið tekin af kvikmyndafólki, frá Brisbane, í Dirranbandisýslu í ágúst 1979. Tveir atvinnukengúruveiði- menn frá þessu svæði voru ráðnir í vikutíma af kvikmyndafyrirtækinu til aö aðstoða við töku myndarinnar. Hlutar myndarinnar, sem var tekin í Dirranbandisýslu, sýna kengúrur sem hanga í girðingu og mann sem tekur kengúru af girðingunni og lem- ur hana í höfuðið með öxi. Annar hluti myndarinnar sýnir mann pynta særða kengúru með hattinum sínum og annan mann sem heldur í hala særðrar kengúru og neyðir hana til að hoppa. Síðar sparkar maöurinn í ýmsa líkamshluta kengúrunnar. Loks er hluti myndarinnar sem sýnir tvo menn með særða kengúru á hveitiakri. Annar mannanna sker yfir bijóst kengúrunnar og setur hana upp á tréstaur svo hægt sé að mynda höfuð hennar yfir hveitiakri. Hlutar þessarar myndar koma fram í myndinni „Goodbye to Joey“.“ Mennimir gerðu sig seka um fleiri misindisverk gagnvart kengúnmum og voru dæmdir samkvæmt áströlsk- um dýravemdunarlögum. -hlh Bjórinn hefur áhrif: Sala á áfengi hef ur minnkað um 20% „Ég hef ekki nákvæma tölu um söluna, en ég þori að fullyrða að sala á áfengi hefur minnkað um fast að 20 prósent eftir að bjórinn kom. Fyrstu dagana í mars má segja að áfengissalan hafi algerlega hrunið. Þá keypti fólk nær eingöngu bjór. Nú er komið jafnvægi á þetta aftur og áfengissalan hefur minnkað um fast að 20 prósent," sagði Sævar Skaftason, verslunarstjóri í verslun ÁTVR í Kringlunni, í samtali við DV. Bjami Þorsteinsson, verslunar- stjóri hjá ÁTVR að Stuðlahálsi, sagði að tvær bjórtegundir skæra sig úr hvaö sölu varðar, Löwenbrau og Kaiser. Hann sagði að á þessum tveimur tegundum væri sá munur að Löwenbrau hefði verið til allan tímann frá 1. mars en Kaiser ekki. Hann sagði aö sér sýndist sem Kais- erbjórinn ætlaði aö veröa vinsælast- ur. Verslunarstjórar vínbúðanna við Lindargötu og Snorrbraut hafa pró- sentur af sölu í sínum búðum og bera einnig ábyrgð gegn rýmun. I nýju verslununum hefur þetta verið tekið af. Verslunarstjóramir hafa aftur á móti ekki prósentur af bjórsölunni. Minni sala áfengis þýðir því lægri laun fyrir þá. Erlingur Ólafsson, verslunarstjóri við Snorrabraut, sagðist ekki vilja ræða það mál á þessari stundu. Það var greinilega á honum að heyra að málið væri til athugunar og á viðkvæmu stigi. Loks er þess að geta að allir versl- unarstjórarnir vora sammála mn að tilkoma bjórsins hefði haft í fór með sér margfalt álag á starfsfólk versl- ana ÁTVR. Bjórkassaburðurinn væri mikill og ekki er ótrúlegt að farið verði þess á leit að starfsfólkinu veröibættþettaílaunum. S.dór Unnið við uppskipun á Subaru bílunum í Akureyrarhöfn í gærmorgun. DV-mynd gk Bílaleiga Akureyrar: Bílaflotinn endurnýjaður Gyifi Kristjánsaon, DV, Akureyri: „Þessir bílar fara að langmestu leyti til endumýjunar á bílaflota leig- imnar,“ sagði Oddur Óskarsson hjá Bílaleigu Akureyrar í samtali við DV, en fyrirtækið hefur keypt á ann- að hundráð bíla frá Japan. Bílunum var skipað upp á Akur- eyri í gær en þangað komu þeir með þýska skipinu Tinto sem Eimskip leigði sérstaklega til flutninganna. Reyndar voru 189 bílar um borð í skipinu en 70 þeirra keypti Ingvar Helgason hf. í Reykjavík. Bílamir era allir af Subara gerð, árgerð 1988, og er um þijár gerðir að ræða. Sem fyrr sagði fer mestur hluti þeirra 119 bíla, sem Bílaleiga Akureyrar keypti, til endumýjunar á flota fyrirtækisins en um 30 bílar verða þó seldir. „Þaö verða starfs- menn fyrirtækisins og vandamenn sem hafa forgang að þeim bílum,“ sagði Oddur Oskarsson. Gráhvalastofimm: Hefur náð eðlilegri stærð „Gráhvalastofiiinn við Kalifor- níustrendur hefur eiginlega aldr- ei verið stærri. Hann hefur náð eölilegri stærð,“ sagði Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur viðDV. í vetur villtust nokkrir gráhval- ir undir isinn viö vesturströnd Norður-Ameríku og vora miklar björgmiaraðgerðir settar í gang til að bjarga þeim. í fréttum af björgunaraðgeröum, sem bárust um alla heimsbyggðina, var látiö að því liggja að þama væra á ferðinni síöustu dýrin af þessum stofni sem væri í mikilli útrým- ingarhættu. Vora það ekki síst umhverfisverndarsamtök sem héldu þeim upplýsingum aö fólki. Staöreyndin mim hins vegar vera sú að stofhinn hafi það ágætt og að þessi fáu óheppnu dýr, sem villtust undir ísinn, hafi komiö af stað fjölmiölasprengju þar sem tilfinningamar vörpuöu hulu yfir staöreyndimar. -hlh >* Útbreiðsla hnúfubaks samkvæmt talningu af skip- um sumariö 1987 Jan Mayen GRÆNLAND A e e © 1 hópur © 2-5 hópar Jóhann Siguijónsson um hvalatalninguna: Fullyrðing Green- peace um útrýming- arhættu er röng „Vafalaust era niðurstöðumar þær áreiöanlegustu sem nú liggja fyrir um stærö þessara stofna og gefa þær ótvírætt til kynna að fullyrðingar um bágt ástand þessara tegunda hér viö land eigi ekki við rök aö styðjast," segir í lokaorðum greinar Jóhanns Sigurjónssonar sjávarlíffræðings, Hvalatalningar á Norður-Atlantshafi sumarið 1987, sem birtist í tímaritinu Ægi í haust. Grænfriðungar og önnur umhverf- isvemdarsámtök hafa mjög haldiö þeim skoðunum á lofti aö hvalastofn- inn við ísland og annars staðar í Áætlaður fjöldi nokk- urra hvalategunda umhverfis ísland 1987 Skíöishvalir (stórir og meöalstórir) Steypireyðar 1.000 Langreyöar 6.500 Sandreyðar 1.200 Hnúfubakar 2.000 Hrefnur 8.500 Tannhvalir (stórir og meöalstórir) Búrhvalir 1.500 Andanefjur 15-20.000 Háhymingar 5.000 Marsvfn 5.000 heiminum sé að deyja út. í því sam- bandi hafa hvalveiðar íslendinga í rannsóknarskyni sætt mikilli gagn- rýni þar sem íslendingar em sakaðir um hræsni - að veiða hval í atvinnu- skyni undir merkjum rannsókna og vísinda. Áróður umhverfisvemdar- samtakanna og áhrif hans á við- skipti íslendinga erlendis em flest- um kunn. „Talningarnar sumarið 1987 taka af allan vafa varðandi hvalastofninn. Hann er ekki í útrýmingarhættu. Vissulega hefur hvalastofninn verið ofveiddur og það er mjög auðvelt að ofveiða hval en hætta á útrýmingu er ekki fyrir hendi nú. í sumar mun önnur talning af sömu stærðargráðu eiga sér stað á Norður-Atlantshafi þar sem Norðmenn verða mjög at- kvæðamiklir," sagði Jóhann Sigur- jónsson við DV. Niðurstöður talningarinnar bentu til að í flokki skíðishvala væm um 1000 steypireyðar í hafinu umhverfis Island, 6500 langreyðar, 1200 sand- reyðar, 2000 hnúfubakar og 8500 hrefnur. Af stórum og meðalstórum tann- hvölum var áætlað aö um 1500 búr- hvalir væm í hafmu umhverfis landið, 15-20 þúsund andanefjur, 5000 háhymingar og 5000 marsvín. Árið 1987 veiddu íslendingar 80 lang- reyðar og 20 sandreyðar á móti 68 langreyðum og 10 sandreyðum í fyrra sem ekki virðist mikill fjöldi miðaðviðáætlaöastofnstærð. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.