Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 4
4
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Fréttir
Innihald samninga mun
ráða tímalengd þeirra
Kjarasanirdngarmr:
Þeir Örn Friðriksson, varaforseti ASÍ, og Pétur Sigurðsson, formaður ASV, koma af fundi ríkisstjórnarinnar í gær.
Þeir Gunnar J. Friðriksson og Árni Benediktsson frá VSÍ og VMSS standa vörð við dyrnar, tilbúnir að ganga á
fund ríkisstjórnarinnar. DV-mynd GVA
Því er oft svarað til þegar spurt er
um stöðuna í kjarasamningum eftir
langt þóf að þeir séu á viðkvæmu
stigi. Segja má að strax í upphafi
þeirra kjarasamninga sem nú eru
hafnir séu þeir á viðkvæmu stigi. Það
blasir tvennt við. Annaðhvort verður
samið til skamms tíma og er þá mið-
að við haustið. Slíkir samningar
gætu tekist alveg á næstu dögum.
Takist þaö ekki getur samningalotan
dregist frEim á vor eða jafnvel sumar
og þá að samið verði til lengri tíma.
Um þessi atriði er ágreiningur inn-
an verkalýðshreyfingarinnar. Ýmsir
verkalýðsforingjar utan af landi vilja
semja til lengri tíma. Þeir vilja aö
samið verði við ríkisstjórnina um
fjölmörg atriði. Efst á blaði er aö rík-
isstjómin beiti sér fyrir eflingu at-
yinnulífsins sem víða stendur veikt.
í öðru lagi vilja þeir lækkun vaxta,
lækkun skatta og ýmis fleiri atriði
sem snúa að ríkisvaldinu. Formaður
Verkamannasambandsins, Guð-
mundur J. Guðmundsson fer fyrir
þessum hópi. Þeir vilja og fá fulla
tryggingu fyrir því hjá ríkisstjóm-
inni að kjarabótunum verði ekki velt
út í verðlagið strax að undirskrift
þeirra lokinni.
Svo em aðrir sem vilja semja til
styttri tíma. Þeir vilja fá þá kaup-
hækkun sem iðnaðarmenn hafa
fengið og eiga eftir að fá fram til 1.
september að samningar þeirra
renna út. Sú hækkun nemur 3,5 pró-
sent og að auki hafa iðnaðarmenn
fengið 2,5 prósent sem almennt
verkafólk hefur ekki fengið. Þeir
leggja áherslu á að fá skattalækkun,
hækkun bamabóta og atvinnuleysis-
bætur verði greiddar í lengri tíma
en nú er.
Innihaldið ráði tímalengd
Þótt þessi ágreiningur sé uppi inn-
an verkalýðshreyfingarinnar er
hann ekki ósættanlegur. Allir verka-
lýðsforingjar sem DV hefur rætt við
halda því fram að innihald samning-
anna muni að endingu ráða því til
hve langs tíma samið verður.
Sigurður Ingvarsson, formaður Al-
þýðusambands Austurlands, segir
þetta vera lykilatriði. Snær Karlsson,
formaður Verkalýðsfélags Húsavík-
ur, sagði í samtali við DV að ef sam-
ið yrði um litlar breytingar á kjara-
samningunum yrði samningstíminn
stuttur. Ef hins vegar fást fram um-
talsverðar breytingar sé hægt að
semja til lengri tíma.
Þeir sem semja vilja til eins árs eða
svo, benda á að í haust, hvort heldur
er í september eða október, hafi
verkalýðshreyfingin enn verri stöðu
þá en nú til samninga. Þá verða bát-
ar og togarar langt komnir eða búnir
með kvóta sína og árleg deyfð at-
vinnulífsins í sjávarplássunum að
koma yfir.
Hinir, sem semja vilja til skamms
tíma, benda aftur á móti á aö ef sam-
ið verður til haustsins verði kjara-
samningar allra félaga innan Al-
þýðusambandsins lausir. Þá komi
iðnaðarmennimir inn og það styrki
samningsstöðuna. Verkalýðsforingj-
amir leggjaallir þunga áherslu á að
fá fram tryggingu fyrir því að kjara-
bótunum verði ekki velt út í verðlag-
ið. Þeir vilja líka fá samninga verð-
tryggða með einhverjum hætti. Um
það segjast Vinnuveitendur ekki
vera til viðtals. Ekki er ólíklegt aö
þetta atriði verði hvað erflðast fyrir
þá sem vilja samning til lengri tíma.
Þeir sem vilja skammtímasamning
benda einmitt á þetta atriði. Gera
Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
má ráð fyrir að ef samningarnir fást
ekki tryggðir með einhverjum hætti
komi ekki annað en skammtíma-
samningur til greina.
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Árvakurs á Eskifirði, sagði í samtah
við DV að hann hefði fundið inn á
það í viðræðum við sína umbjóðend-
ur að þeir vildu einhverja kaup-
hækkun strax, tryggingu fyrir því
að hún yrði ekki tekin af strax í auk-
inni veröbólgu. Þá legði fólk mikla
áherslu á að ná niður verðlagi og
lækka skatta. Takist þetta skipti ekki
máli þótt samið væri til skamms
tíma.
í skugga atvinnuleysis
Vinnuveitendur benda réttilega á
að eins og ástandið er nú sé ekkert
til skiptanna. Samkvæmt heimildum
DV myndu þeir þó geta falhst á að
ófaglært verkafólk fái sömu kaup-
hækkun fram til hausts og iðnaðar-
menn eiga eftir að fá.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, hefur lýst því yfir að auk-
inn kaupmáttur í ár komi ekki til
greina. Óllu frekar þurfi hann aö
minnka. Það verður því erfitt fyrir
verkalýðshreyfinguna að sækja
kjarabætur í greipar vinnuveitenda
nú.
Vinnuveitendur vita hka ósköp vel
að verkalýðshreyfingin hefur ná-
kvæmlega enga stöðu um þessar
mundir tíl átaka á vinnumarkaði.
Það væri út í hött fyrir verkalýðs-
foringja, og þá alveg sérstaklega úti
á landi, að ætla sér að fá fólk í verk-
fahsbaráttu fyrir bættum kjörum á
þessu vori. Það sem er efst í huga
þess fólks er að tryggja atvinnuna.
Vinnuveitendasambandið er
hlynnt því að samið verði til skamms
tíma og kemur þar margt til. Qvissan
í atvinnumálum hefur sjaldan eða
aldrei verið meiri en núna. Kröfur
verkalýðshreyfingarinnar yrðu
minni en eha ef samið væri til
skamms tíma og Vinnuveitendasam-
bandið er ekki th viðtals um að verð-
tryggja nýja kjarasamninga. Það
leiðir svo aftur th þess aö verkalýðs-
hreyfingin verður að semja til
skamms tíma.
Á bak við tjöldin
Þegar fyrsti viðræöufundur Vinnu-
veitendasambandsins og Alþýðu-
sambandsins var haldinn síðasthð-
inn mánudag var ljóst að foringjar
beggja komu mjög vel undirbúnir til
þess fundar. Því er haldið fram að
vel hafi verið unnið að undirbúningi
bak við tjöldin áður en th fundarins
kom. Talað var um að ná sem fyrst
skammtíma samningi. Sumir voru
svo bjartsýnir að halda því fram að
hægt yrði að ganga frá samningum
um þessa helgi. Á bak við tjöldin
haíði líka verið unnið að þeim mál-
um sem að ríkisstjórninni snúa.
Þeir Verkamannasambandsmenn
sem ekki voru tilbúnir í skammtíma-
samninga upp á 6 til 7 prósent kaup-
hækkun brugðu hart við og boðuðu
th skyndifundar í framkvæmda-
stjórn Verkamannasambandsins og
kölluðu einnig til formenn svæða-
sambanda. Á þeim fundi var ákveðið
að hlaupa ekki út í skammtímasamn-
inga. Menn vhdu fara miklu betur
ofan í þau mál sem að ríkisstjóminni
snúa. Þar voru efst á baugi atvinnu-
máhn.
Áður en annar viðræðufuridur að-
ha vinnumarkaðarins hófst á
fimmtudag var stóra samninganefnd
Alþýðusambandsins köhuö saman th
fundar. Þar kom ágreiningurinn
mhh skammtíma- og langtímasinna
upp á yfirborðið, þó með þeim fyrir-
vara allra að innihald samninga
skyldi ráða tímalengd. Og þá deha
menn um í hve viðamikla samninga
skuh farið við núverandi aðstæöur.
Þessi staða mála hjá Alþýöusam-
bandinu og Vinnuveitendasamband-
inu hefur orðið til þess að samninga-
mál Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, Bandalags háskólamenntaðra
manna hjá ríkinu og kennara fer í
pattstöðu. Þar mun ekkert gerast
fyrr en séð veröur hvað gerist hjá
ÁSÍ og VSÍ á næstu dögum.
S.dór
Sorpsamlag á Norður-
landi vestra úr sögunni
ÞórhaDur Ásrruindsson, DV, Sauðáriaróki;
„Það er verið að hafa menn að fifl-
um og það af aðha sem er í raun
ekki th og verður kannski aldrei th,“
sagði Bjöm Bjamason, elnn bjóð-
enda í sorphirðu og urðun sem
Byggðasamlag um sorphirðu bauð
út fyrir stuttu fyrir Norðurland
vestra.
Sjö thboð bámst í hvom verkþátt
á sínum tíma og var Bjöm einn
tveggja aðila sem bauð í þá báða.
Öhum þessum thboðum hefur nú
verið hafnaö og bjóðendur sitja nú
uppi með töluverðan kostnað vegna
þátttöku í útboöunum.
„Manni finnst fyrir neðan allar
hehur að beita ekici þessari venju-
legu aðferð fyrir útboð að gera kostn-
aðaráætlun sem útboðsaðilar geta þá
sætt sig við. Þaö er alveg ljóst að shkt
var ekki gert,“ sagði Bjöm.
Undirbúningsstjóm Byggðasam-
lagsins hafði samþykkt að taka
lægstu thboðunum í báöum útboöun-
um. Sveitarstjómir Hvammstanga,
Sauöárkróks og Skagastrandar
höfðu einnig gert það en bæjarstjóm
Blönduóss var á öðru máh. Það var
nóg til þess að þar með voru útboðin
dottin um sjálf sig. Eftir afgreiðslu
bæjarstjómar Blönduóss og umræð-
ur á fundinum verður að telja litlar
líkur á að af formlegri stofnun
Byggöasamlags um sorphirðu verði.
„Mér fannst menn fara allt of geyst
í þessu máli og þetta yrði gert hvað
sem það kostaði," sagði Hilmar
Kristjánsson, forseti bæjarstjómar
Blönduóss. Að hans sögn fólu tilboð-
in í sér hátt í fjórfjöldun kostnaðar
fyrir Blönduós, úr rúmum 700 þús-
undum í 2,7 mhljónir á ári. Að auki
fannst bæjarfuhtrúum margir endar
lausir í þessu máh.
Samningar opin-
berra starfs-
manna eru komnir
í pattstöðu
Það er alveg ljóst að samningar
BSRB, BHMR og kennara við ríkið
em komnir í pattstöðu meðan hin
mikla óvissa ríkir í samningum
Vinnuveitendasambandsins og AI-
þýöusambandsins.
Ógmundur Jónasson, forraaður
BSRB, sagði i samtali viö DV að
ekkert væri hægt að segja um fram-
haldiö meðan þessi óvissa rikti.
Þaö má gera ráö fyrír að þessi
staða haldíst eitthvað fram í næstu
viku. Þaö er alveg ljóst að engin
alvara getur orðið í viðræðum op-
inberra starfsmanna við ríkiö fyrr
en Ijóst er hvort ASÍ og VSÍ semja
til skamms tfma um minni breyt-
ingar eöa til lengri tíma og meiri
breytinga á kjarasamningunum.
Forystumenn opinberra starfs-
manna hafa lýst áhuga á að skoða
skammtímasamninga.
-S.dór