Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 7
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
7
Fréttir
Afstaða Kvennalistans til innáskiptinga að breytast?
HFISHER
Efasemdir
vegna óvissu
á Alþingi
Innan Kvennalistans hafa vaknað
hugmyndir um það að ekki sé rétt
að láta þingkonurnar Kristínu Hall-
dórsdóttur og Guðrúnu Agnarsdótt-
ur hætta á Alþingi í vor eins og þó
hafði verið sagt fyrir síðustu kosn-
ingar. Þær Anna Olafsdóttir Bjöms-
son og Guðrún Halldórsdóttir áttu
að leysa þær af hólmi.
Það er einmitt eitt af stefnumálum
Kvennalistans að stuðla að valddreif-
ingu með því að engin sitji lengur en
6 til 8 ár á Alþingi eða í öðrum álíka
störfum svo sem borgarstjórn.
Kvennalistakonur játa að þessi
umræða hefur vaknað nú en gera
lítið úr því að nokkur ágreiningur
sé um málið. Þá segja þær að ekki
hafi verið tekið nein endanleg
ákvörðun ennþá.
Að sögn Kristínar Halldórsdóttur
var sú ákvörðun tekin fyrir síðustu
kosningar að hún og Guðrún ættu
að hætta nú í vor. Sú ákvörðun hefði
meðal annars verið tekin í þeirri trú
að kjörtímabilið stæði í íjögur ár. Það
væri hins vegar svo mikil óvissa í
stjórnmálum núna að það væri
spuming hvort rétt væri að skipta í
vor. Allt eins væri mögulegt að kosn-
ingabarátta hæfist í haust og því
kynni að vera óþægilegt fyrir konur
að vera nýkomnar á þing.
Kristín sagðist ekki líta svo á að
verið væri að falla frá einhverjum
gmndvallaratriðum í stefnu
Kvennahstans. Eftir sem áður væri
ekki ætlunin að búa til augnakerling-
ar á þingi.
Skiptireglan enn í gildi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti
nú í haust í borgarstjórn eftir að
hafa setið þar í sex ár. Hún sagðist
telja þá grandvallarreglu að engin
sitji lengur en í 6 til 8 ár enn í fullu
gildi.
Ingibjörg sagði hins vegar að
ákvörðunin um að þær Guðrún og
Kristín færa út af þingi stæði þar til
henni hefði verið breytt. Það hefði
ekki verið gert - allavega ekki enn-
þá. Ingibjörg sagði að þaö væri hægt
að fmna rök bæði með og á móti
skiptingu.
Rætt hefur verið um að einnig sé
mögulegt að þær hætti ekki báðar í
einu en ekki hefur verið tekið nein
ákvörðun um hvor þeirra þing-
kvennannahættiráundan. -SMJ
Toppurinn i dag!!
Fermingargjöf — Framtíðareign
FISHER
System M-82
★ Magnari 2x70 W Music ★ Tónjafnari 5 banda
★ Hálfsjálfvirkur plötuspilari ★ Þráðlaus fjarstýring
★ Stafrænt útvarp ★ Tvöfalt segulband
m/24 stöðva minni m/(„Auto reverse")
★ Surround System ★ Hátalarar 2x70 W Music
Verð kr. 39.780,- stgr.
án geislaspilara
Verð kr. 55.910,- stgr.
m/geislaspilara
SjONVAEPSMESTOÐIN HF.
SíöumúJa 2, sími 68 90 90 og Laugavegi 80, sími 62 19 90
Gífurlegur
verðmunur á
veitingum
Verðlagsstofnun hefur kannað
verð á veitingastöðum sem bjóða
upp á vínveitingar. Könnunin
nær til matsölustaða á höfuð-
borgarsvæðinu, ísafirði, Sauðár-
króki, Akureyri, Egilsstöðum og
Neskaupstað.
Dýrasta súpa dagsins kostaði
395 krónur á Hótel Holti sem er
163% dýrara en á Króknum í
Kópavogi þar sem hún kostaði
minnst eða 150 krónur.
Ódýrasti fiskréttur dagsins var
seldur á lægsta verði á 370 krónur
á Veitingahúsinu Laugavegi 22
en á hæsta verði á 890 krónur í
Naustinu. Munurinn er 140%.
Ódýrasti kjötréttur dagsins
kostaði 420 krónur á Hótel Óð-
insvéum en var dýrastur á 1.270
krónur á Hard Rock Café í
Kringlunni. Munurinn er 202%.
Sjö staðir seldu mat af hlað-
borði þegar könnunin fór fram.
Ódýrast var það á 490 krónur og
dýrast á 1.190 krónur sem er 143%
hærra verð.
Þegar litið er á sérréttamatseðla
er algengur munur á hæsta og
lægsta verði á bilinu frá 130-200%
en mestur munur kemur í ljós á
verði eftirrétta. Ódýrasti eftir-
réttur úr ís var 175% dýrari en
sá ódýrasti. Á eftirréttum úr öðru
en ís munaði meiru eða 346%.
Glas af gosdrykk kostaði 70
krónur þar sem það var ódýrast
en það var hjá Þrem Frökkum.
og Úlfari á Baldursgötu. Hæsta
verðið var 140 krónur í Lækjar-
brekku. Munurinn er 125%. Á
glasi af appelsínusafa munaði
enn meira eða 275%. Það var dýr-
ast á Lækjarbrekku og Peking á
140 krónur en ódýrast á 40 krónur
hjá Úlfari á Baldursgötunni.
Vakin er athygli á því að verð-
könnunin var gerð á meðan verö-
stöðvun stóð yfir og getur því
verð hafa breyst í einhverjum til-
vikum eftir að henni lauk.
-Pá
Kraftmikill smábíll
með ótrúlegt lými
Bílatsýmng
Laii^ardag' og siumudag kl. 14-17 báða dagana
hjá okkux* í Rauðagcrðinu
og uniboðsmanni okkar, Oscyri 5a - Akurcyri.
Ingvar
Helgason hf.
Sýningarsalurinn,
Rauöageröi
Sími: 91 -335 60