Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Hvað finnst þér
um Söngvakeppni
Sjónvarpsins?
Áhugi fólks á Eurovision virðist
hafa minnkað mikið síðan í fyrra
og margir segjast einfaldlega ekki
nenna að horfa á lögin. Minna er
talað um Eurovision á vinnustöð-
um en því getur veriö um að kenna
að mynd Magnúsar Guðmundsson-
ar náði allri umræðu vikunnar. En
hvað segja vegfarendur á fömum
vegi? Hvað fmnst þeim?
Anna Gunnarsdóttir:
Ég hef séð öll lögin og fmnst þau
ekkert sérstök. Þau em allt of fá,
hefðu átt að vera minnst tíu. Mér
þykir lag Magnúsar Eiríkssonar
sigurstranglegast.
Sævar Guðjónsson:
Ég hef séð lögin og finnst lag
Magnúsar Eiríkssonar best. Ég
held að áhugi sé ekki eins mikill
og oft áður á keppninni. Ég ætla
að sjá úrslitakvöldið.
Sigrún Dungal:
Eg hef ekki séð öll lögin, enda hef
ég takmarkaðan áhuga á keppn-
inni. Æth ástæðan sé ekki slakur
árangur okkar hingað til í Euro-
vision. Mér þykja fimm lög of lítið,
lögin heföu átt að vera fleiri.
Elva Björk Sigurðardóttir:
Er söngvakeppnin byrjuð? Ég
hafði ekki hugmynd um það. Ég
horfi svo lítið á sjónvarpið, fer frek-
ar í bíó. Ég held að það sé ekki
mikill áhugi hjá krökkum á þessari
keppni en ég býst við að horfa á
úrslitin.
Tyrfingur Tyrfíngsson:
Ég hef eingöngu séð tvö lög. Ég
hef engan áhuga lengur á þessari
keppni. Ég horfði á hana fyrsta
árið af áhuga. Ég reikna með að
fylgjast með úrslitakeppninni. Eftir
því sem vinnufélagar mínir segja
verður það lag Gunnars Þórðar-
sonar sem vinnur keppnina.
Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir:
Ég hef fylgst með lögunum og
fmnst þau vera of fá. Besta lagiö
að mínum dómi er lag Gunnars
Þórðarsonar. Ég er ánægð með fyr-
irkomulag keppninnar að öðru
leyti en þvi að lögin áttu að vera
fleiri. Það em of fáir höfundar sem
fá að njóta sín en við eigum marga
fleiri sem hæfir em í þessu fagi.
HörðurÁmason:
Ég hef séð fjögur lög en af þessum
fjómm finnst mér hálfkjánalegt að
senda lag inn þar sem er jóðlað
þótt við keppum í Sviss. Ég get
ekki svaraö því hvaða lag mér
finnst best og mér finnst ágætt að
hafa þetta fyrirkomulag á keppn-
inni.
Þórarinn Jónsson:
Ég hef einungis séð Alpatwist og
lagið hans Magnúsar Eiríkssonar.
Mér finnst miklu minni áhugi á
keppninni núna. Sennilega hefur
áhuginn minnkað vegna þess að
okkur hefur ekki gengið vel. En ég
ætla ömgglega að horfa á úrslitin.
Söngvakeppni Sjónvarpsins er í
fullum gangi og þau fimm lög sem
keppa til úrshta 30. mars hafa öh
verið flutt. Margir lagahöfundar hafa
lýst yfir óánægju með hvemig staðið
var að vah á lögum að þessu sinni.
Skoðanakönnun var gerð sl. haust
þar sem spurt var hveijir ættu að
taka þátt í keppninni. Sex nöfn voru
nefnd, þar af Bubbi Morthens, sem
hafði ekki áhuga á aö vera með. Eft-
ir vora fimm höfundar sem allir hafa
tekið þátt í keppninni áður, þar af
þrír fyrmm sigurvegarar.
Það em ekki bara lagahöfundum
landsins sem finnst að sér vegið.
Óánægjuraddir hafa einnig heyrst
úr herbúðum sjónvarpsmanna. í
fyrra sá starfsUð Sjónvarpsins um
aUan undirbúning keppninnar og
var Bjöm Emilsson, stjómandi
Hemma Gunn, þar fremstur í flokki.
Ekki náðist í Bjöm en sagt er að
hann hafi reiknað með að hafa um-
sjón með keppninni eins og sl. ár.
Að sögn sjónvarpsmanna skapaði
vinnsla laganna í sjónvarpssal í fyrra
ákveðna hópstemmningu þar sem
menn sameinuðust um að gera
söngvakeppnina að skemmtilegri
sýningu fyrir áhorfendur.
Ákveðin stöðnun
Áður en Hrafn Gunnlaugsson lauk
störfum hjá Sjónvarpinu réð hann
Egil Eðvarðsson hjá Hugmynd til að
vinna aUa þá vinnu sem keppninni
fylgir. EgiU sá einnig um keppnina
Þeir félagar Stefán Hilmarsson og Sverrir Stormsker léku af fingrum fram
í Eurovision-keppninni í fyrra sem fram fór í Dyflinni. Spurningin er hver fer
til Sviss í maí á þessu ári.
Áhugi á söngvakeppninni lítill:
Niðurskurðurinn
kæfir Eurovision
- lagahöfundar óánægðir með fyrirkomulagið
1986 og 1987. „Ég held að það hafi
þótt ástæða til að breyta fyrirkomu-
lagi keppninnar. Tilhögunin hefur
verið svipuð í þrjú ár og öUum gefinn
kostur á að senda inn lög. Ákveðinn-
ar stöðnunar hefur gætt, við höfum
þrisvar lent í sextánda sætinu og
þess vegna þótti ástæða tíl að fara
nýjar leiðir. Að auki var þessi leið
talin kostnaðarminni. Hvort þessi
leið er betri eða verri vU ég engan
dóm leggja á en enginn hefur sagt
að þannig eigi fyrirkomulagið að
vera á næstu áram. Þetta er einung-
is viðleitni hjá Sjónvarpinu til að
breyta til,“ sagði EgiU.
Ekki vfidi EgiU tjá sig um þá sem
standa straum af þáttunum. Hann
sagöi þaö vera eina leiö til spamaöar
hjá Sjónvarpinu, sem hefur vakið
furðu sjónvarpsáhorfenda, að fyrir-
tæki kostuðu myndbandssýningam-
ar. Margir hafa tahð sig greiða nægi-
lega há afnotagjöld tU að hægt væri
aö standa straum af einu vinsælasta
sjónvarpsefninu.
Svo virðist sem keppnin hafi vakið
Utinn áhuga meðal almennings að
þessu sinni. Vegfarendur, sem DV
ræddi við, höföu fæstir séð öU lögin
og einn vissi ekki að keppnin væri
yfirleitt í gangi. EgiU Eðvarðsson
sagði að það væri engin ástæða tíl
að auglýsa mikið upp þessa keppni.
Menn heföu gert sér aUt of háar von-
ir undanfarin ár og yfirlýsingagleðin
verið öðm yfirsterkari. „Það er betra
að fara hægar í sakimar. Við gætum
aUt eins lent enn neðar en í sextánda
sætinusagði EgiU.
Geirmundur
Valtýsson
Geirmundur Valtýsson, einn af
lagahöfundunum fimm, segist óhress
með tilhögun keppninnar í ár.
Reyndar haföi hann ekki hugsað sér
að vera með í söngvakeppninni þetta
árið. „Ég var búinn að ákveða að
taka mér frí í eitt ár. Ég er ekki sátt-
ur við keppnina núna. Kannski var
þetta komið út í öfgar, eins og maður
sér með Landslagið þar sem komu
inn um fjögur hundruð lög. Ég er
frekar á því að þeir heföu átt að til-
nefna fleirl höfunda. Fimm lög er of
Utið og mér finnst aö tíu lög hefðu
verið lágmark. Keppnin er of einhæf
með þessum hætti og ekki nógu
skemmtfieg fyrir þjóðina. Ég er ekki
frá því að mun minni stemmning sé
hjá fóUd en áður,“ sagði Geirmund-
ur.
Hann sagðist hafa ákveðiö að
breyta til úr sveiflu yfir í tvist þetta
árið. „Yngra fóUdð er ánægt með
þetta en ég heyri óánægjuraddir hjá
þeim sem hafa verið sáttir viö mig
áður. Ég samdi Alpatvist í fyrstu sem
sveiflulag eins og önnur lög sem ég
hef gert. í sumar tók ég það upp í
demo fyrir sunnan og setti það í tvist.
Mér fannst skemmtílegt að breyta til
enda hefur ekki komið fram neitt
tvistlag hingað tU. Kannski var það
vitleysa - það er alltaf hægt að vera
gáfaður eftir á. Strákamir í Bítla-
vinafélaginu fara með lagið eins og
ég vUdi.“
Geirmundur sagðist ekki búast við
að fara tU Sviss í maí fremur en fyrri
daginn, eins og hann orðaði það.
„Maður getm- engu spáð um úrslit
en við höfum séð það í gegnum árin
að lögin mín hafa lifað lengst. Hvað
segir þaö?“ sagöi Geirmundur Val-
týsson.
Valgeir
Guðjónsson
Valgeir Guðjónsson er í sömu spor-
um og Geirmundur. Hann ætlaði
ekki að vera með í söngvakeppninni.
Engu að síöur kom það honum ekki
á óvart að hann hefði komist í úr-
sUtahópinn. Valgeir er, eins og aðrir
lagahöfundar, ósáttur við tUhögun
keppninnar. „Ég sakna þess að þetta
er ekki opin keppni. Mér finnst nauð-
synlegt að allir geti átt möguleika á
að vera með. Margir bölva keppninni
en sömuieiðis horfa allir á hana. Mér
fannst einmitt skemmtUegt við
söngvakeppnina að alUr gætu verið
með og það stuðlaði að ákveðinni
breidd. Oþekkt fólk hefur komiö
fram á sjónarsviðið í keppninni en
það hefur ekki verið auövelt að koma
lögum á framfæri á íslandi. Söngva-
keppnin var einmitt kjörinn vett-
vangur til þess.“
Valgeir sagði að honum væri lög-
málsins vegna Ula við aö mæla lög
eftír gæðum svipað og í fegurðarsam-
keppni. „Mér þykja of fá lög núna,
tíu lög heföu verið mátulegt. Sjón-
varpið skar allt mjög niður í sam-
bandi við þessa keppni. Það er
kannski aUt gott við aö breytingar
eigi sér stað. Menn mega ekki staðna
í neinu fagi. Það fer þó minna fyrir
keppninni nú og vantar jafnvel ein-
hverja stemmningu í kringum
hana.“
Söngvari Valgeirs er tvítugur og
heitir Daníel Ágúst Haraldsson.
Hann hefur sungið með hljómsveit-
inni Nýdönsk. „Hann er góöur
söngvari og ég er ánægður með lag-
iö.“ Valgeir sagði að hann hugsaði
Utíð út í úrsht keppninnar. „Ég hef
unnið einu sinni og það nægir mér
en það er auðvitað aUtaf gaman að
vinna í því sem maður tekur þátt.
Ég verð engu að síður jafnsæll og
glaður hvort sem ég vinn eða ekki.“
Magnús
Eiríksson
Magnús Eiríksson er sammála
gagnrýni sem fram hefur komiö.