Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 16
16 LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. Vísindi Framgjamir uppfinningamenn eru enn aö finna upp eldinn; það er að segja þegar þeir eru ekki aö finna upp þjóliö. Því hefur þó lengi verið trúað að mannskepn- an hafi fýrst náð valdi á eldinum fVrir um 500 þúsund árum. Sá skólabókaiærdómur kann þó að vera úreltur þvi að fom- leifarannsóknir í Suöur-Afríku benda til að fyrir meira en milljón árum hafi þar veriö uppi menn sem steiktu sér kjöt við varðeld. Minjar um þetta hafa fundist í helli nærri Pretoríu. Kjötið var afantilópu. í heilinum bjó á þessum tíma kynstofn sem kallaður hefur ver- ið „hinn upprétti maður“. Hann er forveri nútímamanna eins og þeirra sem nú rannsaka meira en milijón ára gamlar matarleifar. í Engiandi er nú veriö aö rann- saka möguleikana á því að græða líflæri úr dýrum i menn. Líffæra- flutningar eru orðnir það algeng- ir aö mikill skortur er á lífláerum til ígræðslu. Þetta hefur leitt til þess að læknar hafa leitað nýrra leiða til að verða sér úti um líf- færi. Enn sem komiö er miðast til- raunimar við að flytia líflæri milli dýrategunda. Markmiðið er þó að þróa aðferðir til aö flytja lífíáeri úr dýrum í menn. Helsta vandamálið, sem þarf aö yfir- stíga, er að líkamsvefir einstakra tegunda eru ólikir. Mestar Jíkur em á að líffáeri úr svínum verði í framtíðinni notuö í menn. Lífláeri úr þeim era lik- ust líffærum manna og þvi er þaö taliö möguiegt að við tvífáetling- arnir gætum notast viö þau. I framtíðlnni kann að fara svo að IHtæri úr svínum verði flutt I menn. Loksins læs tölva Þótt tölvur geti næstum allt þá hefur gengið erfiðlega að kenna þeim að lesa venjulega hand- skrift. Venjuleg skrift er of breytileg fýrir tölvurnar sem helst vflja steypa aflt i sama mót- ið. Tölvufræðingar vilja þó ekki sætta sig við þetta. I Bandaríkj- unum er veríð að þróa tölvu sem á að verða iæs á skrifaö mál. Hugmyndin er sú að tölvan læri fyrst að þekkja skrift þess manns sem hún á að lesa eftir. Það er gert með því að maður- inn skrifar með penna á tölvu- ir. Tölvan lærir þar meö helstu ráöið hana aftur þrátt fyrir eðli- leg frávik. Tveir sænskir verkfræðingar hafa fundið upp nýja gerð af sprengi- hreyfli sem þeir segja að henti vel í bíla. Nýja vélin á að vera kraftmeiri, léttari og spameytnari en þær sem nú eru notaðar. Uppfmningamenn- imir heita Sten-Harald Söderström og Börje Árendai. Uppfmningu sína kalla þeir sínusvél. Hugmyndin er að hafa tvo stimpla í hverju sprengirúmi. Annar hreyfist upp og niður eins og venja er í öUum sprengihreyflum en hinn snýst í hringi eftir sérstöku kúrfulaga fari. Það er eins og sínuskúrfa hjá stærð- fræðingum og af þvi er heiti vélar- innar dregið. Uppfinningamennimir segja að vél af nýju gerðinni taki aðeins fjórða hluta af því plássi sem jafnaflmikil bílvél tekur. Nýja vélin á einnig að vera flöng þannig að hægt verður að koma henni fyrir á öðrum stöðum en heföbundnum vélum. Þeir halda því einnig fram að nýja vélin nýti eldsneytið betur en þær eldri og valdi því minni mengun. Þá á slit í nýju vélinni að vera minna. Ekki eru allri á eitt sáttir um að vélin sé búin’öllum þeim kostum sem hönnuðir hennar vflja vera láta. Enn hefur engin vél af þessari gerö veriö Uppíinningamennirnir með hluta í nýju bílvélina. Hún hefur ekki enn verið sett saman. smíðuð en unnið er að því að koma frumgerð hennar saman. Meðan svo er verða uppfinningamennimir að bíða með sannanir fyrir sínu máli. Tfl þessa hafa bílaframleiðendur sýnt málinu lítinn áhuga. Engar full- yrðingar hafa þó komiö fram í þá átt aö hugmyndin sé ómöguleg heldur að hún sé enn aðeins á frumstigi og langur tími líði þar til fyrsta sínus- vélin verði ræst. Ný vél í bíla Samkeppni um staðla fyrir hágæðasjónvörp: Japanskur sigur blasir við Allir helstu framleiöendur sjón- varpa í heiminum reyna nú að ná samkomulagi um staðal fyrir nýju hágæðasjónvörpin sem væntaleg eru á markað eftir eitt tfl tvö ár. Enn er ekkert samkomulag um þennan stað- al frekar en um staðlana sem nú eru notaðir. Með nýju sjónvörpunum verða skjáirnir stærri en áður og myndim- ar líkar þeim sem sjást á breiðtjöld- um kvikmyndahúsanna. Þessi mun- ur fæst með því að fjölga verulega línunum, sem liggja þvert yfir skjá- ina, en deilt er um hvað línumar eiga að vera margar. Evrópsk, bandarísk og japönsk raf- eindafyrirtæki hafa um árabil unnið að þróun nýju tækjanna hvert í sínu lagi og er vinnan nú komin á loka- stig. Svo virðist sem Japanir hafi nokkuð forskot enda hafa þeir þegar boðað komu fyrstu tækjanna á mark- aðinn. Miklir hagsmunir era í húfi því búist er við aö nýju tækin ryðji þeim gömlu af markaðnum á fáum ámm. Um leið verða sjónvarpsstöövar að breyta útsendingum sínum því út- sendingargeislinn sem nú er notaður dugar ekki fyrir nýju tæknina. Nú em notaðir tveir staðlar við framleiöslu sjónvarpstækja. Annar er evrópskur en hinn bandarískur. Sá evrópski þykir bjóða upp á skarp- ari myndir og er notaöur í flestum löndum heims. Japanir hafa fyrir löngu tekið upp þann staðal. Banda- ríski staöallinn er aftur á móti óvíða notaður nema þar í landi. Við framleiðslu á hágæðasjón- vörpum er sundurlyndiö enn meira því unnið er eftir þremur stöðlum; evrópskum, japönskum og banda- rískum. Sumir framleiöendur í Bandaríkjunum segja að hágæða- sjónvörp framleidd eftir þeirra staðli nái cfldrei fótfestu á markaðnum vegna forskots Japana. Framleiöend- ur í ríkjum Evrópubandalagsins, sem hafa komið sér saman um stað- al, em líka uggandi. Bandarísku og evrópsku framleið- endurnir verða því senn hvað líður að gera upp við sig hvort möguleiki sé á aö hafa Japani undir í sam- keppninni. Hinn kosturinn er að hefja framleiðslu á sjónvörpum eftir japönskum staðli. Sérfræðingar í sjónvarpsmálum telja mestar líkur á að síðari leiðin verði valin og Japan- ir hafi fullan sigur í málinu. Mannfræðingar segja að Rambo sé ekki mannlegur því ofbeldi lelja þeir ekki til mannlegs eðlis. Rambo er ekki mannlegur „Rambo er ofbeldisseggur. Það eitt er mannlegt við hann.“ Þannig hefur verið skrifað um þessa hetju kvik- myndanna en nú vflja vísindamenn andmæla þessu og segja að ofbeldi sé ekki mannlegt. Þrátt fyrir ótal sögur um árásar- hneigð manna segja mannfræðingar, sem hafa rannsakað þessa eðlisgáfú, aö hún sé víkjandi í mönnum. Þeir segja aö í eðli sínu sé mannskepnan friðsöm gras- og hrææta sem óttist ofbeldi. Það er mannfræðingurinn Ashley Mongagu sem heldur því fram að árásarhvötin sé manninum ekki eöl- islæg heldur hafi hann lært þann ósið að ráðast á aðra. Hann bendir á að þegar ein þjóð ræöst á aðra þurfi yfirleitt að beita miklum áróðri til að snúa mönnum tfl vamar. Flestum detti fyrst í hug að gefast upp. Innrás- armennimir hafi einnig verið þving- aðir til fararinnar. Samkvæmt þessu er hemaður fjarri mannlegu eðli þrátt fyrir allt. Mongagu segir að rándýr búi yfir eðlislægri árásarhvöt sem haldi í þeim lífmu. Hann segir aö engin slík hvöt búi í mönnum. Þegar maður snúist tfl árásar stafi þaö af þörf fyr- ir að veija hendur sínar. Ofbeldi manna megi því alltaf rekja til utan- aökomandi ástæðna og brjótist fram þegar maðurinn er í vöm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.