Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 18
18
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Þó að andi Kári kalt...
Ekki alls fyrir löngu barst mér í
hendur bréf frá gömlum vini og
kunningja, Hermanni Daníelssyni,
sem ég kailaði þúsundþjalasmið í
gamla daga, vegna þess hve aUt lék
í höndum hans, þó ekki upphátt, því
ég var ekki viss um hvemig hann
tæki nafngifönni. í bréfinu voru
nokkrar stökur, þ.á m. þessi:
Ei má spara orku og fjör,
alltaf batna mannakjör.
Hefur Torfi handtök snör,
hleypur í skarð fyrir Jón úr Vör.
Veturinn, sem er að líða, hefur ver-
ið mörgum erfiöur, svo jafnvel elstu
menn muna vart annan slíkan,
a.m.k. í sumum landshlutum. En hér
áður fyrr var lífið síður en svo neinn
dans á rósum eins og eftirfarandi
húsgangur ber með sér:
Harðnar vetur, herðir frost
heyri ég vindinn gnauða.
Nú er fátt um feitan kost
hjá forumanninum snauða.
Stefán Ásmundsson á Hofsósi tek-
ur í sama streng:
Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka
telur sig kunna ráð við þeim vanda
sem árstíðimar em okkur oft og tíð-
um:
Enginn getur endalaust
ævihretum kviðið.
Sumar, vetur, vor og haust
væri betur hðið.
En þótt haustgrunurinn búi í sálu
hvers og eins má maður ekki guggna.
Gunnar Eggertsson:
Þó aö haust með hélu á brá
hug minn kvíða slái,
reynist auðvelt enn að fá
ást á hveiju strái.
Páll Ólafsson skáld á eftirfarandi
Vetrarkveðju:
Margt er gott aö muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fognuð bæði og angur.
Hríðin ströng í heiftarmóð
herti söng við bæinn.
Varð þá öngum værðin góð
vorinngöngudaginn.
Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Þeir Jón Ellert Tryggvason og Ólafur Theodórsson voru við veiðar
Hvammsvík í Kjós um siðustu helgi og voru búnir að fá 20 regnbogasil
unga og |>eir bættu við fleiri. DV-mynd G.Bende
Heyrt í
veiðiskapnum
Dorgveiðimenn hafa heldur betur
fengið meðbyr í seglin og hafa þeir
farið í hópum til veiða í Hvammsvík
í Kjós. Þar em í vatninu um 14 þús-
und fiskar sem virðast hafa mestan
áhuga á maísbaunum frá Ora, þeir
em óðir í þær. Við höfum frétt að
um páskana sé stefnt að því að halda
heilmikla dorgveiðikeppni í
Hvammsvíkinni. Greint verður nán-
ar frá því þegar þar að kemur.
Margiraðhnýta
Áhugi á fluguhnýtingum er mik-
ill þessa dagana og hafa hinir ótrú-
legustu sést hnýta túbur og flugur.
Af þremur fréttum við sem sáust
skoða túbur í sjoppu einni fyrir
skömmu og þótti sumum viðskipa-
vinunum túbumar líkjast litlum
sprengjum og vom því snöggir að
versla þann daginn. En veiðimenn
héldu áfram aö skoða túbumar.
Nýrritstjóri
Vorblöð veiðitímaritanna Sport-
veiðiblaðsins og Á veiðum em þessa
dagana í undirbúningi. Tímaritið Á
veiðum skipti fyrir skömmu um rit-
stjóra og hefur Þorsteinn G. Gunn-
arsson tekið við af Steinari J. Lúð-
víkssyni. Er þetta í þriðja sinn sem
skipt er um ritstjóra á blaðinu þau
sex ár sem blaðið hefur komið út.
DræmtíMývatni
Dorgveiöi í Mývatni hefur víst
verið frekar lítil það sem af er en
með betri tíð kemur þetta. Fyrir
skömmu var við veiöar á Mývatni
hópm- af nemendum úr Verk-
menntaskólanum á Akureyri, um 40
manns, og fengu víst flestir einhvem
fisk. Mest vom þetta 1 til 2 punda
bleikjur. Lítil veiði hefur verið í neta-
lagnir ennþá.
Verð í Laxá á Ásum
mikið rætt
Verð á veiðileyfum hafa mikið
verið rædd meðal veiðimanna eftir
að DV birti verðið á þeim fyrir
skömmu. Þykir mörgum veiðimönn-
um sem það sé orðið ansi hátt sums
staðar. Sala á veiðileyfúm hefur samt
gengið mjög vel, ótrúlega vel víða.
Laxá á Ásum hefur verið rædd fram
og aftur enda er dýrast aö veiða í
henni. Einn af landeigendum við ána
hafði samband við okkur og sagði að
ódýrasti dagurinn væri á 25 þúsund.
Þetta em fyrstu dagamir í júní.
G.Bender
Veðrið er líklega eitt allra algeng-
asta umræðuefni manna í milli, því
til þess er oft gripið þegar menn hafa
í raun ekkert sérstakt fram að færa.
En það er ekki öllum gefið að geta
lýst útlitinu á jafnfrábæran hátt og
Gestur Guðfmnsson í kvæði sínu
Haust:
Váleg er veðurátt
og vindagari,
loftið haustlegt og hrátt
með skýjafari.
Lítil blóm eiga bágt
í engu vari.
Tré standa blaðlaus og ber
í brekku sinni.
Sjórinn skvettist við sker
í fjarðarmynni.
Hrollkalt, hrollkalt er mér
í veröldinni.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Guðmundur Ingi Kristjánsson yrk-
ir svo um illveður í aðsigi:
Víða grátt er veðrafar,
varla dátt er gaman.
Höfuðáttir heyja þar
hríðarsláttinn saman.
Asahláka getur verið hættuleg,
einkum þegar snjóalög em mikil, og
eflaust hefur Bjami Jónsson frá Gröf
í Víðidal gert sér grein fyrir því þeg-
ar hann kvað:
Þó að andi Kári kalt
og krýni landið fónnum,
þér mun standa þúsundfalt
þyngri vandi af mönnum.
Hér er bölvuð ótíð oft
og enginn friður.
Það ætti að rigna upp í loft
en ekki niður.
Og Siguijóni Jónssyni í Snæ-
hvammi í Breiðdal hefur fundist nóg
komið af svo góðu, eftir vísu hans
að dæma:
Ekki er votra veðra slot,
vætur blota hreysi,
hafa otað öllu á flot
út í notaleysi.
Benedikt Valdimarsson, Þröm í
Eyjafirði, lýsir ástandinu á eftirfar-
andi hátt:
Syngur tíðin sorgarlag,
sæld og bliðu dylur.
Á mér níðist nótt og dag
norðanhríðarbylur.
En Kristján frá Djúpalæk gerir sér
grein fyrir að það em fleiri en ein
hlið á hveiju máh:
En þótt veðurlagið sé á stundum
ekki eins og best verður á kosið hafa
þó verið til menn sem hafa kunnað
að bregðast við því á réttan hátt,
samanber vísuna sem hér fer á eftir,
en uppruni hennar er að líkindum
frá þeim dögum sem Kolbeinsey var
og hét:
Kom ég við í Kolbeinsey,
kafaði snjó í bringu.
Þar var fólk að þurrka heý
og það í stórrigningu.
Torfi Jónsson
B vítamín, sem talsvert eraf í
mjólk eru nauðsynleg tilþess að
viðhalda heilbrigði taugakerfisins.
B-2 vítamín er nauðsynlegt fyrir
augu, húð, negluroghár. Mjólkog
mjólkurvörur eru ein auðugasta
uppspretta B-2 vítamíns í fæðu
okkar fyrir utan innmat.
Eflíkaminn færekki
nægjanlegt kalk úrfæðunni,
gengurhannáforða
kalkbankans og aukin
beingisnun á sérstað.
Þeir sem hreyfa sig mikið
virðast nýta kalkið betur og
hafa því meiri beinmassa á
efri árum en þeirsem hreyfa
sig lítið.
Það er kjörið fyrir þá sem
kjósa fituskerta mjólkað
neyta einnig lýsis, sem erríkt
affituleysanlegum
vítamínum.