Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 23
ov)r kj|ah jrjOAuHAm'J
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
23
Popp
m ; > .
Bemharður rær
einnogmeðöðrum
Eins og komið hefur fram í helg-
arpoppi þá á Manchester hljómsveit-
in New Order heiður af einni bestu
plötu sem út hefur komið það sem
af er ári. Söngvari og gítarleikari
hljómsveitarinnar, Bernard
Albrecht, ætlar þó ekki að láta sér
nægja að eiga heiður af einni plötu á
þessu ári því hann hefur þegar lagt
drög að upptökum sinnar fyrstu sóló-
plötu og verður þar með fyrstur af
New Order/Joy Division genginu til
að arka einsamall á vit tónlistargyðj-
unnar.
Ekki er það nú alveg kórrétt að
Bernard arki einn því sér til fullting-
is hefur hann valið tvo hæfileikaríka
meðreiðarsveina.
Hér er annars vegar um að ræða
melódíumeistarann Neil Tennant
sem fólk þekkir frekar sem annan
helming Pet Shop Boys dúettsins, en
flokkurinn sá hefur verið tíður gest-
ur á vinsældalistunum undanfarin
ár og afrekað nokkrar prýðisgóðar
lagasmíðar. Hins vegar ætlar Bern-
ard að njóta hæfileika Johnny Marr,
gítarjöfurs og aðallagasmiðs Smiths
meðan hún var og hét. Marr hefur
farið huldu höfði síðan Smiths hætti
haustið 1987 og ekki hægt að bendla
hann við neina sérstaka hljómsveit
eða tónlistarmann, hann hefur flakk-
að á milh sem session-maður og ætl-
ar nú að ljá krafta sína Bemard
Albrecht.
Sannarlega sterkt lið á pappímum
og athyghsvert samstarf ólíkra tón-
listarmanna hér á ferð, sem saman
ættu að geta skapað gott verk. Altént
verður spennandi að heyra þegar
platan kemur út seint á þessu ári.
Umsjón: Snorrí Már Skúlason
Þungur tóH veldur ^
þunglyndi ökumanns.
VeDum og höfnum hvað
, nauðsynlega þarf að vera með
í ferðalaginu!
ux
FERÐAR
Centaur býður vetri
konungi birginn
- hljómleikaferð í mars og ný plata í vor
Hljómsveitin Centaur, sem sló svo
eftirminnilega í gegn sumarið 1987
með plötunhi Blús djamm, er í óða
önn að taka upp nýja plötu og þegar
þetta er ritað hafa 6 lög þegar verið
hljóðrituð í Nýja-Sýrlandi. Ætlunin
er að taka upp 10-12 lög á breiðskífu
og ætlar hljómsveitin að róa á önnur
mið tónlistarlega en árið 1987, blúsn-
um hefur verið kastað fyrir róða en
í staðinn státar Centaur af nýju
frumsömdu rokki. Verður fróðlegt
að heyra afrakstur þessarar stúdíó-
ferðar Centaurs því þama fer flokk-
ur einstaklega hæfileikaríkra hljóð-
færaleikara sem hafa spilað saman í
fjölda ára.
Sveinn Kjartansson er upptöku-
maður á þessari væntanlegu plötu
en Jón Steinþórsson er tónlistarlegur
ráðanautur (pródúser) og var það
ekki illa vahð hjá Centaur-mönnum.
Centaur-piltar láta sér ekki nægja að
standa í plötuupptöku því að 1. mars
síðastliðinn hófst á Akranesi 20 daga
tónleikaferð hljómsveitarinnar
norður og síðar austur um land, allt
til Egilsstaða. Er fyrirhugað að koma
við á tólf stöðum og ætlar Centaur
að kynna nýja efnið í skólum en auk
þess verður eitthvert dansleikjahald.
Strákarnir i Centaur eru nú í óða önn að ganga frá nýrri plötu.