Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. Aö undanfömu hef ég nokkrum sinnum rekist á það í tali jafnaldra minna og yngra fólks að margt af því virðist telja popptónlist heyra til list- ar með stóm elli, telji hana eiga að pjóta sömu virðingar og hin svokall- aða klassíska tónlist sem einnig er nefnd erfiðari orðum eins og „æðri tónlist" og „alvarleg tónlist". Gott ef ég hef ekki rekist á umræður um þetta í einhveijum blöðum að undan- fömu. Og margar heimildir hef ég fyrir heitum skoðanaskiptmn og e.t.v. vinslítandi rifrildum í heima- húsum um þetta mál sem virðist ansi viðkvæmur punktur í okkar kynslóðaskiptu menningu. Unga fólkið er alið upp svo til ein- göngu við popp og ýmis ættmenni þess en eldra fólkið hefúr skiljanlega annaðhvort vaxið upp úr því eða aldrei kynnst því á jafngleypandi hátt og við sem fædd erum eftir siða- skiptin í hinum siðmenntaða heimi. Ekkertvaranlegt Okkur sámar því nokkuð að sitja uppi með heilt 100 plötu safn sem enga varanlega tónlist hefúr að geyma, ekkert það sem hlustað verð- ur á eftir þetta 100 ár, allt tómir slag- arar. Og þess vegna, efdr að hafa fómað lífi okkar fyrir breska trommuslagara sem aldrei htu alls gáðan dag og aldrei höföu heyrt um neinn af sonum Bachs getið áður en þeir káluðu sér í einhverju púluæði uppi á hóteli í New York, þá er það e.t.v. skiljanlegt að einhver af okkur vilji reyna að hifa þessa hina sömu hetju upp á einhvers konar stall og gera úr henni einhvem listamann. Jafnvel núlifandi menn og gang- andi á meðal okkar, menn sem kunna að plokka á bassa eða muna nokkur vinnukonugrip á gítar, jafn- vel þeir era af sumum heitum aðdá- endum sínum kallaðir listamenn og gott ef ekki skáld líka. Einkum era það unnendur hins svokallaða „framsóknar-rokks“, „framsækinn- ar popp-tónlistar“, sem harðastir era í þessari upphafiúngu. Þeir telja sín- ar uppáhaldshljómsveitir enga eftir- báta þaulæfðra strengjakvartetta eða annarra klassískt menntaöra sólista. Þetta er sorglegur misskilningur og gerir engum gott og allra síst sjáifum rafmagnsgítarleikurunum. Eða ætlar einhver sér að bera sam- an mann sem getur pikkað eitthvað upp á gítarinn sinn, kann nokkra fræga kafla og kann að ná góðu sándi, er e.t.v. jafnvel flinkur að taka sóló, ætlar einhver að bera hann saman við annan mann sem lagt hef- ur stund á tónlist frá sjö ára aldri, æft sig 5 tíma á dag, les nótur, kann flest helstu verk heimstónmennt- anna utan að og getur túlkað á ýmsa vegu, spilað á allar tilfinningar mannsins, túlkað allar hans bestu kenndir, en verður svo kannski að vinna fyrir sér með því að spiia inn á popp-upptökur í stúdíói, spila þessa þrjá tóna aftur og aftur af eintómum leiðindum, aðeins vegna þess að hann fær borgað fyrir það? Nei, ég efast um að nokkur vilji það. Samaversið afturogaftur Því þó að popptónlistin sé öflug- asta tónform nútímans, njóti mestrar útbreiöslu og láti hæst í eyrum, þá er hún ekki nema mjög lítiíl og tak- markaöur angi á endalausum mögu- leika-meiði tónlistarinnar eins og dr. nafni minn benti nýlega á í blaða- grein. í eðli sínu er öll popptónlist eins, sama versið upp aftur og aftur og hún hefur alltaf verið til, það vita allir. Popp-lag er ákveðin formúla, tromman gefur taktinn, hin hlióð- færin stemmninguna og svo kemur melódían ofan á og aldrei mefra en þrír frasar að meðtöldu viðlaginu. Inngangur, viðlag, inngangur aftur, viðlag aftur, millikafli (sem þó er stundum sleppt), viðlag og svo aftur viðlag. Varíasjónirnar eru svo ekki nema rétt út fýrir þessa formúlu. Það geta allir lagfærir menn samið svona, þó auðvitað kalli það á vissan hæfi- leika að gera það vel sem maður ber sína virðingu fyrir. Við getum kallað það vissa kúnst (í stað listar). Ég er hræddur um að við lista- mennimir værum ekki lengi að bijóta svona þröngar skorður utan af okkur ef í myndlist ætti málverk að vera kanna, epli, blóm og kanna aftur. Þetta á einnig við um hina svokölluðu framsæknu tónlist sem helst er talin til listar, uppbygging laganna er alveg eins og aðeins stillinn á plötualbúminu eða þetta „nýja sánd“ sem gerir gæfumuninn. Ef svo popparamir fara út fyrir rammann og semja kannski 10 mín- útna lög sem e.t.v. hafa 6 frasa í stað þriggja, með löngu gítarsólói og ein- hverju meira skrauti, þá era þau kölluð „meistaraverk". Mönnum finnst það beinlínis ótrúlegt að ein- hver trommuheilinn hafi látið sér detta í hug að skipta um takt í miðju lagi. Fyrir bragðið er hann kallaður „snillingur“. Nauðsynleg dægurmenning En poppið er popp og á allan rétt á sér, það tiiheyrir menningunni sem nauðsynleg dægurmenning, ég er einungis að benda mönnum á aö vera ekki að gera lítið úr því með því að reyna að flokka þetta undir list. Sam- anburðurinn verður svo ósanngjam. Því skilgreining verður aö vera á milli dægurflugna og hstaverks, á milli stundarfyrirbæris og hins ei- lífa, annars er illa komið fyrir því þjóðfélagi sem ekki getur greint á milli poppara og listamanna. Og popparamir eiga ekki að þurfa að kvarta um skort á athygli, hana Úr mínu höfði Hallgrímur Helgason fá þeir óskerta á öllum forsíöum á meðan listamenn mega bíða með sína blaðamannafundi þar til í kirkju- garðinn er komið. Það er pínlegt fyr- ir alla aðila að reyna að blanda þessu saman og poppið þarf alls ekki og á aldrei að þurfa á styrkjum lista- manna að halda, því þetta er vin- sældatónlist fyrst og fremst, sé hún- ekki vinsæl er hún ekkert nema í afar stöku bílskúrstilfelli. En því miður get ég ekki látið hjá líða að leita skýringar á þessum mis- skilningi hjá hinum alvarlegu og klassísku tónskáldum sjálfum. Mód- emisminn hefur farið Ula með öldina að vissu leyti, með einstrengingslegri stefnu sinni hefur hann leyft poppinu að einoka hinn almenna markað. „Alvarlega tónhstin" er á köflum svo hrikalega alvarleg aö það er ekki nema hörðustu hundum hennar inn sigandi á nútímatónleika. Mennimir eru að semja eitthvaö sem kemur okkur saklausum og heymarskert- um smáborgurunum eiginlega ekk- ert við. Tónskáldin leika sér einsömul í sínrnn eigin heimi og era að „vinna úr tónmöguleikum tvíunda með til- hti til minimahsma og strúktúral- isrna". Þeir skrifa fyrirmæli til hlust- enda í prógrammið svo þeir eygi smáglætu í skhningi á verki þeirra. Af þvermóðsku (e.t.v. skiljanlegri) og sárindum út í poppið láta þau þaö engin áhrif á sig hafa. Gera sér engan mat úr alþýðutónhst eins og margir fyrirrennarar þeirra hafa gert með góðum áhrifum aht frá Mozarti til Bartoks. Þetta þekkjum við mynd- hstarmenn einnig vel, við sækjum okkur oftlega andlega næringu og mótív í brann almúgamennskunnar, í dagblöð, tímarit, frístundamálara, jafnvel landslag. Við megum ftjálsir mála fígúratívt, eitthvað sem fólk sér og kannast við, og alveg án þess að þurfa aö minnka við okkur nein hstræn gæði. Þetta heyrir maður hins vegar ekki gert á sama hátt í tónhst. Og þess vegna verður popptóiúistin að hst í hugum sumra í þessu tómarúmi sem þama skapast. Fólk fær ekkert annað. Fáirljóð- unnendureftir Og svipað er uppi á teningi í textagerð, unnendur Ijóða á íslandi era nú sjálfsagt orðnir jafnmargir nunnunum í Stykkishólmi og þess vegna verða dægurlagatextamir eina póetíska næringin sem þjóðin fær inn um sitt bjagaða brageyra. Við verðum að segja eins og kaninn: Lets face it, þjóðin les ekki ljóð en hlustar á útvarpsbylgjumar í stað- inn. Þar fær hún samtímaskáldskap- inn sinn og þess vegna era sumir bestu textagerðarmennirnir kallaðir ljóðskáld í partíum úti í bæ þegar aðdáendurnir era komnir á þriðja bjórglas. Einnig þetta er sorgleg staðreynd og jafnframt misskilningur. Eða hvert er þjóðin leidd þegar Bowie eða Bubbi trjóna fremst í skáldadeildinni í hugum hinna vesælu poppkyn- slóða? En einnig í þessu dæmi er í nokkra við sjálf skáldin að sakast, ekki laða þau beint að sér mannskap- inn með þessu endalausa flæði sínu upp og niður naflann eöa inn og út um heilann, í mesta lagi að þau standi við gluggann. Og á meðan okkar kynslóð verður að bíða og bíða eftir skáldunum sín- um, sem geta ort á hennar máh um Esjuna, Broadway, þjóðveginn aust- ur, Atlavík og AIDS, þá hlustar hún á Megas, Valgeir eða Bjartmar, hlust- ar á hina smehnu texta þeirra, sem eru það sem enskir kaha „No-nons- ense“ skáldskap, og reynir aö taka þá fyrir ljóð, fyrir skáldskap á ein- hvem mögulegan hátt. Maður á það alla vega ekki á hættu að verða þar fyrir „fljúgandi augum“ eða „gler- skógum“ og „blóðhafi" eða einhverri annarri stórkostlegri tjáningardýpt og myndauðgi sem einatt fælir mann upp úr ljóðabókum. Þjóðlistamenn Og þannig verður poppið ofan á þar til listamennimir þora að verða þjóölistamenn, þjóðskáld og þjóð- söngvarar. Á fimm rásum yfirgnæfir það allar hinar hljóðlegu tilkynning- ar um kammertónleika í Bústaða- kirkju eða einleik í Norræna húsi. En það er samt harður hópur, mikill kjami, fólks sem lætur sig hafa það og mætir, þótt ekki sé nema fyrir geðheilsuna eða ættingjabömin. Og engin hætta er á öðra en að klassíkin lifi þetta af, eða hver æhr ekki nú þegar hann heyrir „Honky Tonk Woman“ í 1800sta sinn og hver lyftist ekki ahur úr sæti þegar hann heyrir „Im wimderschönem Monat Mai“? Því poppið gengur aðeins frá degi til dags og þannig er það fínt, ahtaf gam- an að heyra eitthvaö nýtt, maður hefur gaman af poppinu, en bara á aht annan hátt, maður dansar, kemst í fíhng, „helgarskap“. Til dæmis er alltaf gaman að heyra eitthvað sem ungir krakkar eru að gera, þau tjá sinn veruleika á nýjan hátt, það kemur fram nýtt afbrigði dægurmenningar sem áhrif getur haft upp í efri lög listarinnar. Poppið er því best þegar það hefur eitthvert bit, þegar j>að er ferskt, en þvi miður fáum við Islendingar aldrei að heyra það fyrir útvarpsstöðvunum sem aldrei spila annað en gamlar tuggur og annaö sem ekki má trufla fólk við vinnu sína, þær einblína enn á Bret- land eins og allt nýtt sé þaðan. Þannig missum viö algjörlega af öhu því sem gerist í Bandaríkjunum hjá öhum sniðugu svertingjunum þar. Hér heyrist aldrei í Keith Swe- at, Toneloc, Pubhc Enemy, Heavy D, Full Force, Shck Rick, Levert, KRS-1, DJ Jazzy Jeff and the Fresh Prince, Kool Mo Dee, Freddy Jack- son, Vanessu Wilhams, Karen White, Big Daddy Kane, New Kids on the Block, De La Soul, Bismarkie, Living Color, EU, Cheryl Pepsi Riley, Babyface, Dough-E Fresh, Rim DMC, LL Cool J, eða hinum nýja Elhngton frá Harlem, Terry Riley og hljóm- sveit hans Guy, hvað þá Anitu Baker sem í raun er hin nýja Eha Fitz- gerald, svo ekki sé nú talað um Bobby Brown, nýjustu súperstjöm- una í Bandaríkjunum, hinn nýja Elv- is. Þetta er skaði okkur poppunnend- um, því poppið er ekki popp nema það sé alveg nýtt og ferskt, þó ekki jafnvel í því tilviki eigi að bendla það á neinn hátt við Ust. Við skulum sjá um hana, við hstamennirnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.