Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 25
LAUGARDAGUR 18'. MARS 1989.
McFenin flest verðlaun ein-
staklinga. En við verðlaunaaf-
hendíngu einsog þessa kemur
ýmislegt skondið uppá og verð-
laun mælast misjafnlega fyrir.
Þannig eru menn enn gapandi
gáttaðir vestra yf ir verðlaunaaf-
hendingu fyrir bestu þunga-
rokks/bárujárns uppákomu árs-
ins. Fyrirfram var talið að
hljómsveitin Metallica ætti
verðlaunin vís en þegar nafn
sigurvegaranna var tilkynnt
brast á mikið baul og blístur
því nafnið, sem ómaði yfir sal-
inn, var... (þið trúið því
varta}.. .Jethro
Tullf!!!... Hingaðtil hefur
sú ágæta hljómsveit tæpast
verið þekktfyrir þungarokk,
hvað þá bárujárnsrokk, en það
er aldrei að vita hvað þessir
gömlu jaxlar taka sér fyrir í
ellinni... Sam Brown, sem
um þessar munriir á eitt vin-
sælasta lagið á islandi, og
söluhæstu plötuna, Stop, á
ekki langt að sækja hæfileik-
ana á tónlistarsviðinu. Pabbi
hennar heitir Joe Brown og
var vel þekktur söngvari i
Bretlandi á sjöunda áratugn-
um... Paul Rutherford, sem
eitt sinn var liðsmaður
Frankie GoesTo Hollywood,
fylgir brátt i fótspor fyrrum
félaga síns Holly Johnsons
og sendir frá sér sóló-
plötu .. .Fine Young Cannib-
als, sem eru okkur islending-
um að góðu kunnir, hafa hing-
að til ekki sótt gull i greipar
bandarískra plötukaupenda. Á
þessu á nú að gera bragarbót
og nú stendur yfir mikil kynn-
ingarherferð á piltunum
vestra. Og árangurinn lætur
ekki á sér standa, nýja lagið
þeirra, She Orives Me Crazy,
geysist upp bandariska vin-
sældalistann ... Breska
hljómsveitin Marillion hefur
fundið mann sem tekur við
hlutverki söngvara Fish og
heitir nýliðinn Steve Hogarth
... Roger Moore, sem lengst
af hefur gert garðinn frægan
sem James Bond, sýnir á sér
nýja hlið i nýjum söngleik eft-
ir Andrew Lloyd Webber,
Aspects Of Love, sem frum-
sýndur var nýlega í Lundúnum,
Moore gerír nefnilega nokkuð
sem James Bond gerði aldrei,
syngur... tjaldið fellur...
-SþS-
25
DV Nýjar plötur
Tanita Tikaram - Ancient Heart
Þroskað verk ungrar konu
Sumar plötur eru lengur en aðrar
að ná eyrum fólks og þannig er því
varið með plötuna hennar Tanitu
Tikaram sem kom út í loks síðasta
árs.
Reyndar náði eitt lag af plötunni,
lagið Good Tradition, nokkrum vin-
sældum erlendis og hérlendis í des-
ember en það er ekki fyrr en nú sem
platan sjálf tekur við sér og er til
dæmis með tíu söluhæstu plötunum
í Bretlandi, um þessar mundir.
Tanita Tikaram er ein af þessum
ungu hæfileikakonum sem komið
hafa fram á síðustu misserum; kon-
um sem stökkva skyndilega fram
sem alskapaðir listamenn og standa
og falla með sínum eigin verkum.
Þessar konur semja sín eigin lög og
texta og eru sumar liðtækir hljóð-
færaleikarár. Fyrir utan Tanitu má
nefna Tracy Chapman, bandarísku
táningsstúlkuna Debbie Gibson og
Enyu hina írsku.
Tanita Tikaram telst vera bresk en
er ættuð austan frá Fiji-eyjum í
Kyrrahafi. Ekki verða þó greind
áhrif þaðan í tónhst hennar; miklu
frekar gömul þjóðleg bresk áhrif.
Skýringin á því hversu lengi platan
hefur verið að ná til eyma fjöldans
er kannski sú að lagið Good Traditi-
on, sem fyrst varð vinsælt af plöt-
unni, er eins og hvert annað gott
popplag; létt og grípandi en gefur
hins vegar alranga mynd af öörum
lögum plötunnar.
Tónlist Tanitu er nefnilega aö
mestu leyti af allt öðrum toga en létt
popptónlist; þetta er fyrst og fremst
mjúk og þægileg tónlist sem krefst
athygli þess sem hlustar. Þetta er
ekki tónlist sem rennur inn um ann-
að eyrað og út um hitt.
Og það verður að viðurkennast aö
miðað við að Tanita Tikaram er að-
eins 19 ára gömul er þetta ótrúlega
þroskuð tónlist sem hún semur og
þá ekki síður textarnir.
Það er því óneitanlega glæsilega af
stað farið hjá þessari ungu stúlku en
þeim mun erfiðara verður líka að
fylgja þessari plötu eftir.
-SþS-
Sam Brown, Stop:
Efnileg en er það nóg?
Öðm hveiju koma fram á sjónarsvið-
ið dægurlagasöngkonur sem manni
heyrist eiga framtíð fyrir sér. í fljótu
bragði man ég eftir Helen Terry og
D.C. Lee. Stúlkur sem létu eftir-
minnilega frá sér heyra í fyrstu til-
raun en náðu sér einhverra hluta
vegna ekki almennilega á strik. Því
riflast nöfn þeirra tveggja upp að nú
er enn ein hæfileikastúlkan komin
fram á sjónarsviðið, Sam Brown.
Ómögulegt er að spá neinu um fram-
tíð hennar þrátt fyrir að hún sýni á
sér fagmannlegar hliðar á plötunni
Stop, sinni fyrstu. Ekkert fer á milli
mála að hún getur sungið ágætlega.
Hún minnir mig meira að segja
stundum á Kate gömlu Bush. Ekki
er leiðum að likjast. Titillagið er
áheyrilegast á Stop og jafnframt
langþekktast. Það hefur til að mynda
verið á íslenskum vinsældalistum
síðustu vikurnar sem og breskum og
þýskum þótt um það bil ár sé nú lið-
ið síðan það kom út. Ferill Sam
Brown sem söngkonu minnir meira
að segja dálítið á feril Helenar Terry
og D.C. Lee. Helen var bakradda-
söngkona Culture Club áður en hún
reyndi fyrir sér upp á eigin spýtúr.
D.C. Lee var í sams konar hlutverki
hjá Style Council til að byrja með.
(Hún fékk reyndar síðar fulla aðild
að hljómsveitinni jafnframt því sem
hún gat einbeitt sér að eigin ferli.)
Sam Brown söng með nokkrum
þekktum flokkum hér áður fyrr svo
sem Adam and the Ants og Dexy’s
Midnight Runners áður en henni var
boðið að spreyta sig í eigin nafni. Það
er sem sagt engin trygging fyrir
áframhaldandi vinsældum að senda
frá sér athyglisverða fyrstu plötu.
Sam Brown á ekkert síður skiiið en
margar aðrar efnilegar söngkonur
að baða sig í sviðsljósinu í framtíð-
inni. En þvi miður eru fáir útvaldir
í faginu líkt og svo mörgum öðrum
og því er ómögulegt að spá nokkru
um framtíðina. -ÁT
Chris Rea - New Iight Through Old Windows
Pústkerfi
úr RYÐFRÍU GÆÐASTÁLI.
í bifreiðar og vinnuvélar
5 ára ábyrgð
á efni og vinnu.
Bjóðum
kynningarverð
m/ísetningu
til 15. apríl
UoimchoULt Upplýsingar og pantanir 652877 og 652777
tieimspeKKt framtak hf H|jóðdeyfikerfi hf.
gæðavara stapahrauni 3 - Hafnarfirði
Útboð - Malbikun
Gamalt vín á
nýjum belgjum
Það er algild regla að gefnar séu
út plötur með frægum tónlistar-
mönnum sem innihalda þekktustu
lög þeirra. Heiti platnanna er þá yfir-
leitt The Best of.... eða The Greatest
Hits. Þessar plötur eru yfirleitt ör-
uggar um sæmilega sölu. Sumir eiga
það mörg þekkt lög að ein plata næg-
ir ekki. Aðrir sem í hlut eiga hafa
kannski aðeins gefið út eitt eða tvö
lög sem almenningur kannast við.
Hér á íslandi má flokka Chris Rea
undir síðamefnda flokkinn. Rea, sem
á að baki ellefu ár í plötubransanum,
er í raun frægur fyrir aðeins eitt lag,
Fool (If You Think It’s Over), og það
er svo sannarlega lag sem hann getur
verið hreykinn af. Lag þetta er og
verður klassískt. Önnur lög eftir
Chris Rea hafa náð að kíkja inn á
vinsældalista vestanhafs og í Evrópu
en aldrei náð til fjöldans.
Það hefur þó ekki komið í veg fyrir
að kominn er út plata með Chris Rea
er ber nafnið The Best of... En dæm-
ið er samt ekki eins einfalt hjá Chris
Rea eins og hjá flestum öðrum, því
platan ber einnig annað nafn New
Light Through Old Windows.
Chris Rea hefur sem sagt farið þá
óvenjulegu leið að endurupptaka
sum eldri laga sinna og gefa út á plöt-
unni ásamt nýjum og í sannleika
sagt verður platan mun athyglis-
verðari og heUdin verður jafnari.
Chris Rea hefur sérstaka rödd,
ráma og seiðandi. Hann semur öll lög
og texta sjálfur og eru lögin í heild
léttrokkaðar melódíur þar sem ein-
faldleikinn ræður ferðinni. Fyrir ut-
an Fool (If You Thing It’s Over) ættu
margir að kannast við Josephine og
On The Beach og segja þessi þrjú lög
í raun allt sem hægt er að segja um
Chris Rea.
Helsti galli Rea er að hann á það
til að endurtaka sig en í heild er The
Best of... eða New Light Through Old
Wmdows hin ákjósanlegasta plata
fyrir þá sem vilja áreyslulaust og létt
rokk.
-HK
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í malbikun
gatna sumarið 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði,
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudag-
inn 30. mars kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Utboð
Vegmálun 1989 í Suðurlands- og
Reykjaneskjördæmi
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk.
Akreinalínur, 160 km, og markalínur, 340 km.
Verki skal lokið 31. ágúst 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 21. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 10. apríl 1989.
Vegamálastjóri